Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ég vona að hæstvirtur þingheimur setji það ekki fyrir sig þó að þjóðarblómið hafi orðið fyr- ir erfðabreytingu og að hennar tími sé þar með kominn. FÓLKI er mismunað með misháum notendagjöldum í sjúkratryggingum hér á landi, til að mynda eftir aldri, heilsu, sjúkdómum og tekjum, en þetta kemur fram í nýlegri samantekt yfirstjórnar og sérfræð- inga sjúkratryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkis- ins (TR). Samantektin ber yfirskriftina Réttlátari notendagjöld í sjúkra- tryggingum á Íslandi en í henni segir meðal annars að bæði virðist skorta á samræmingu og heildaryfirsýn í málaflokknum. Taka þurfi til gagngerrar endurskoðunar allt regluverk um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga með það að markmiði að einfalda reglur til að tryggja jöfnuð. Í samantektinni eru gefnar skýringar á því áliti höfunda hennar að ójöfnuður ríki í þessum málaflokki. Fram kemur að hann stafi að einhverju leyti af því að aðgengi einstaklinga og þrýsti- hópa að stjórnvöldum sé mismun- andi. Því geti greiðsluþátttaka sjúkratrygginga verið meiri, og þar með kostnaður sjúklinga minni, vegna ýmissa velmegunar- sjúkdóma sem líklegri eru til að hrjá þá sem meira mega sín í þjóð- félaginu en vegna sjúkdóma sem frekar hrjá hina efnaminni. Á Vesturlöndum fjármagni hið opinbera heilbrigðiskerfi að mestu með skatttekjum, en víðast greiði sjúklingar þó umtalsverðan hluta kostnaðar við heilbrigðis- þjónustu með notendagjöldum. Gripið hafi verið til þess að velta hluta af kostnaðinum yfir á not- endur til þess að draga úr vaxandi kostnaði og meintri óþarfa notkun heilbrigðisþjónustunnar. „Rann- sóknir hafa hins vegar sýnt að notendagjöld eru ámóta líkleg til að draga úr nauðsynlegri þjón- ustu og ónauðsynlegri,“ segir í samantektinni. Því geti notenda- gjöld leitt til heilsuskaða þeirra sem ekki hafa efni á að greiða þau. Þá er rætt í samantektinni um tekjutengingu sjúkratrygginga, sem eiga við í sumum tilfellum greiðslna í heilbrigðiskerfinu. Þar segir að mun einfaldara og æski- legra sé, að þeir sem þurfa meiri aðstoð, en almannatryggingum er almennt ætlað að veita, fái hana í gegnum félagslega kerfið. Einnig segir í samantektinni að ekkert bendi til þess að lönd sem hafa hlutfallslega há notendagjöld hafi jafnframt lægri heilbrigðisútgjöld eða að slík útgjöld aukist þar hæg- ar en í þeim löndum þar sem not- endagjöld eru lægri. Engin afsláttarkort vegna tannlækninga barna Rætt er um afsláttarkort í sam- antektinni og bent á að æskilegt sé að þau miðist við hlaupandi tólf mánaða tímabil í stað almanaks- árs, eins og nú er um afslátt sem sjúklingar geta fengið þegar not- endagjöld vegna ákveðinnar heil- brigðisþjónustu, sem veitt er á heilsugæslustöðvum, á göngu- deildum, bráðamóttöku og slysa- deildum sjúkrahúsa, hafa náð ákveðinni upphæð. Í samantektinni er enn fremur bent á að þeir, sem þurfa að nota heilbrigðisþjónustu innan mis- munandi málaflokka sjúkratrygg- inga, geti borið mikinn kostnað án þess að eiga nokkurn rétt á auk- inni þátttöku trygginganna. Tannlækningar barna og lífeyris- þega falli t.d. ekki undir nein af- sláttarkort. Vill ekki kasta kerfinu fyrir róða Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra kveðst hafa átt einn fund með starfsmönnum TR vegna samantektarinnar, en þar hafi verið ákveðið að ræða efni hennar nánar. Samantektin sé vinnu- plagg, en þar komi fram ábend- ingar sem ráðuneytið sé tilbúið að skoða. Áreiðanlega sé eitthvað sem megi betur fara í kerfinu, en hann vilji þó ekki kasta því fyrir róða. Inntur eftir áliti sínu á þeirri gagnrýni sem fram kemur á not- endagjöld í samantektinni, segir Jón velferðarkerfið þannig upp- byggt að mismunandi greiðslur renni til mismunandi hópa. „Við erum með afslætti fyrir eldra fólk og fyrir börn. Þá er niðurgreiðsla lyfjakostnaðar mismunandi eftir þjóðfélagshópum, það eru sérstök kjör fyrir öryrkja,“ nefnir Jón sem dæmi. Með velferðarkerfinu sé reynt að ná til þeirra sem minna mega sín. „Þetta leiðir af sér flóknara kerfi, eðli málsins samkvæmt.“ Æskilegt að afsláttarkort miðist við 12 mánaða tímabil Ráðherra tekur undir það sem fram kemur í samantektinni um að æskilegt væri að afsláttarkort til sjúklinga miðist ekki við alman- aksár, heldur við 12 mánaða tíma- bil. „Ég tek undir það að það væri skynsamlegra að miða ekki við almanaksárið,“ segir Jón. Jón kveðst telja að notenda- gjöld í heilbrigðisþjónustunni eigi fullan rétt á sér, en hann hafi hins vegar ekki verið fylgjandi því að hækka þau frekar. „Auðvitað væri miklu einfaldara að fella þau nið- ur, en við höfum ekki haft svigrúm til þess,“ segir Jón. Fréttaskýring | Samantekt um notendagjöld í sjúkratryggingum Fólki mismun- að í kerfinu Ráðherra segir að gera megi umbætur á kerfinu en vill ekki kasta því fyrir róða Barn í tannlæknastól. Sjúklingar greiða 15% með notendagjöldum  Skipting útgjalda til heilbrigð- ismála er þannig á Íslandi að hið opinbera greiðir um 85% kostn- aðarins en sjúklingar um 15% með notendagjöldum, að því er segir í samantekt Trygg- ingastofnunar. Meðal OECD- landa er staðan önnur en þar greiðir hið opinbera að jafnaði um 69% kostnaðar við heilbrigð- isþjónustu en 31% koma frá not- endagjöldum og einkatrygg- ingum. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Kl. 9.00 Afhending gagna Kl. 9.15 Setning · Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, utanríkisráðherra. kl. 9.30-12.00 Málefni · Framsögur og umræður Hópur I Aldraðir & öryrkjar Skattalækkanir Löggæslumál Breytt námsskipan til stúdentsprófs Hópur II Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga Jöfnunarsjóður sveitarfélaga Samgönguáætlun Umhverfismál Kl. 12.00-12.45 Matarhlé Kl. 12.45 – 13.40 Kosningaundirbúningur Hlutverk Valhallar · Hlutverk SUS · Skipulag kosningabaráttu Fjármál í kosningum · Utankjörstaðakosningar Kl.13.40 – 15.45 Hópvinna Kosningahópur · Reykjavík · Suðvesturkjödæmi · Reykjanes · Suðurland Austurland · Norðurland eystra · Norðurland vestra · Vestfirðir · Vesturland Kl. 15.00 – 15.15 Kaffihlé Kl.15.15 – 15.45 Kynning á umræðum úr hópum Fundarslit: Kristján Þór Júlíusson, formaður Sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins. Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og borgarfulltrúi. Kl. 16.00 Léttar veitingar Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is Fram til sigurs, sjálfstæðismenn! Vinnufundur Sveitarstjórnarráðs og þingflokks Föstudaginn 17. febrúar í Valhöll frá kl. 9.15 til 16.00 ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.