Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ég vona að hæstvirtur þingheimur setji það ekki fyrir sig þó að þjóðarblómið hafi orðið fyr-
ir erfðabreytingu og að hennar tími sé þar með kominn.
FÓLKI er mismunað með
misháum notendagjöldum
í sjúkratryggingum hér á
landi, til að mynda eftir
aldri, heilsu, sjúkdómum
og tekjum, en þetta kemur
fram í nýlegri samantekt
yfirstjórnar og sérfræð-
inga sjúkratryggingasviðs
Tryggingastofnunar ríkis-
ins (TR). Samantektin ber
yfirskriftina Réttlátari
notendagjöld í sjúkra-
tryggingum á Íslandi en í
henni segir meðal annars
að bæði virðist skorta á
samræmingu og heildaryfirsýn í
málaflokknum. Taka þurfi til
gagngerrar endurskoðunar allt
regluverk um greiðsluþátttöku
sjúkratrygginga með það að
markmiði að einfalda reglur til að
tryggja jöfnuð.
Í samantektinni eru gefnar
skýringar á því áliti höfunda
hennar að ójöfnuður ríki í þessum
málaflokki. Fram kemur að hann
stafi að einhverju leyti af því að
aðgengi einstaklinga og þrýsti-
hópa að stjórnvöldum sé mismun-
andi. Því geti greiðsluþátttaka
sjúkratrygginga verið meiri, og
þar með kostnaður sjúklinga
minni, vegna ýmissa velmegunar-
sjúkdóma sem líklegri eru til að
hrjá þá sem meira mega sín í þjóð-
félaginu en vegna sjúkdóma sem
frekar hrjá hina efnaminni.
Á Vesturlöndum fjármagni hið
opinbera heilbrigðiskerfi að
mestu með skatttekjum, en víðast
greiði sjúklingar þó umtalsverðan
hluta kostnaðar við heilbrigðis-
þjónustu með notendagjöldum.
Gripið hafi verið til þess að velta
hluta af kostnaðinum yfir á not-
endur til þess að draga úr vaxandi
kostnaði og meintri óþarfa notkun
heilbrigðisþjónustunnar. „Rann-
sóknir hafa hins vegar sýnt að
notendagjöld eru ámóta líkleg til
að draga úr nauðsynlegri þjón-
ustu og ónauðsynlegri,“ segir í
samantektinni. Því geti notenda-
gjöld leitt til heilsuskaða þeirra
sem ekki hafa efni á að greiða þau.
Þá er rætt í samantektinni um
tekjutengingu sjúkratrygginga,
sem eiga við í sumum tilfellum
greiðslna í heilbrigðiskerfinu. Þar
segir að mun einfaldara og æski-
legra sé, að þeir sem þurfa meiri
aðstoð, en almannatryggingum er
almennt ætlað að veita, fái hana í
gegnum félagslega kerfið. Einnig
segir í samantektinni að ekkert
bendi til þess að lönd sem hafa
hlutfallslega há notendagjöld hafi
jafnframt lægri heilbrigðisútgjöld
eða að slík útgjöld aukist þar hæg-
ar en í þeim löndum þar sem not-
endagjöld eru lægri.
Engin afsláttarkort vegna
tannlækninga barna
Rætt er um afsláttarkort í sam-
antektinni og bent á að æskilegt
sé að þau miðist við hlaupandi tólf
mánaða tímabil í stað almanaks-
árs, eins og nú er um afslátt sem
sjúklingar geta fengið þegar not-
endagjöld vegna ákveðinnar heil-
brigðisþjónustu, sem veitt er á
heilsugæslustöðvum, á göngu-
deildum, bráðamóttöku og slysa-
deildum sjúkrahúsa, hafa náð
ákveðinni upphæð.
Í samantektinni er enn fremur
bent á að þeir, sem þurfa að nota
heilbrigðisþjónustu innan mis-
munandi málaflokka sjúkratrygg-
inga, geti borið mikinn kostnað án
þess að eiga nokkurn rétt á auk-
inni þátttöku trygginganna.
Tannlækningar barna og lífeyris-
þega falli t.d. ekki undir nein af-
sláttarkort.
Vill ekki kasta
kerfinu fyrir róða
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra kveðst hafa átt einn fund
með starfsmönnum TR vegna
samantektarinnar, en þar hafi
verið ákveðið að ræða efni hennar
nánar. Samantektin sé vinnu-
plagg, en þar komi fram ábend-
ingar sem ráðuneytið sé tilbúið að
skoða. Áreiðanlega sé eitthvað
sem megi betur fara í kerfinu, en
hann vilji þó ekki kasta því fyrir
róða.
Inntur eftir áliti sínu á þeirri
gagnrýni sem fram kemur á not-
endagjöld í samantektinni, segir
Jón velferðarkerfið þannig upp-
byggt að mismunandi greiðslur
renni til mismunandi hópa. „Við
erum með afslætti fyrir eldra fólk
og fyrir börn. Þá er niðurgreiðsla
lyfjakostnaðar mismunandi eftir
þjóðfélagshópum, það eru sérstök
kjör fyrir öryrkja,“ nefnir Jón
sem dæmi.
Með velferðarkerfinu sé reynt
að ná til þeirra sem minna mega
sín. „Þetta leiðir af sér flóknara
kerfi, eðli málsins samkvæmt.“
Æskilegt að afsláttarkort
miðist við 12 mánaða tímabil
Ráðherra tekur undir það sem
fram kemur í samantektinni um
að æskilegt væri að afsláttarkort
til sjúklinga miðist ekki við alman-
aksár, heldur við 12 mánaða tíma-
bil. „Ég tek undir það að það væri
skynsamlegra að miða ekki við
almanaksárið,“ segir Jón.
Jón kveðst telja að notenda-
gjöld í heilbrigðisþjónustunni eigi
fullan rétt á sér, en hann hafi hins
vegar ekki verið fylgjandi því að
hækka þau frekar. „Auðvitað væri
miklu einfaldara að fella þau nið-
ur, en við höfum ekki haft svigrúm
til þess,“ segir Jón.
Fréttaskýring | Samantekt um notendagjöld
í sjúkratryggingum
Fólki mismun-
að í kerfinu
Ráðherra segir að gera megi umbætur á
kerfinu en vill ekki kasta því fyrir róða
Barn í tannlæknastól.
Sjúklingar greiða 15%
með notendagjöldum
Skipting útgjalda til heilbrigð-
ismála er þannig á Íslandi að hið
opinbera greiðir um 85% kostn-
aðarins en sjúklingar um 15%
með notendagjöldum, að því er
segir í samantekt Trygg-
ingastofnunar. Meðal OECD-
landa er staðan önnur en þar
greiðir hið opinbera að jafnaði
um 69% kostnaðar við heilbrigð-
isþjónustu en 31% koma frá not-
endagjöldum og einkatrygg-
ingum.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Kl. 9.00 Afhending gagna
Kl. 9.15 Setning · Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, utanríkisráðherra.
kl. 9.30-12.00 Málefni · Framsögur og umræður
Hópur I
Aldraðir & öryrkjar
Skattalækkanir
Löggæslumál
Breytt námsskipan til stúdentsprófs
Hópur II
Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Samgönguáætlun
Umhverfismál
Kl. 12.00-12.45 Matarhlé
Kl. 12.45 – 13.40 Kosningaundirbúningur
Hlutverk Valhallar · Hlutverk SUS · Skipulag kosningabaráttu
Fjármál í kosningum · Utankjörstaðakosningar
Kl.13.40 – 15.45 Hópvinna
Kosningahópur · Reykjavík · Suðvesturkjödæmi · Reykjanes · Suðurland
Austurland · Norðurland eystra · Norðurland vestra · Vestfirðir · Vesturland
Kl. 15.00 – 15.15 Kaffihlé
Kl.15.15 – 15.45 Kynning á umræðum úr hópum
Fundarslit: Kristján Þór Júlíusson, formaður Sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins.
Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og borgarfulltrúi.
Kl. 16.00 Léttar veitingar
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík
sími 515 1700 www.xd.is
Fram til sigurs,
sjálfstæðismenn!
Vinnufundur Sveitarstjórnarráðs og þingflokks
Föstudaginn 17. febrúar í Valhöll frá kl. 9.15 til 16.00
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122