Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
EINN af helstu djassleik-
urum Svía og einn af stór-
meisturum djassklarinetts-
ins, Putte Wickman, lést
þann 14. febrúar sl. Hann
varð 81 árs gamall.
Putte er einn af hinum
fjórum stóru í sænskri
djasssögu, ásamt Lars
Gullin, Arne Domnerus og
Bengt Hallberg, og hann
var farinn að gutla á píanó ungling-
ur er hann heyrði Benny Goodman
og Artie Shaw fyrst. Hann skipti
strax yfir á klarinett og árið 1944
var hann orðinn atvinnumaður í
tónlist. Frá 1950 lék hann með eig-
in smásveitum og stórsveitum, en
hin síðari ár hefur hann fyrst og
fremst verið einleikari með hryn-
sveit og hefur þá Pétur Östlund
gjarnan verið trommuleikari hans.
Pétur hefur löngum verið ákafur
aðdáandi Putte og ekki farið dult
með þá skoðun sína að hann sé
fremsti djassklarinettuleikari
heims. Pétur hefur ýmislegt fyrir
sér í því og Putte gefur ekkert eft-
ir á þeim stórgóðu dúettskífum,
sem hann hefur hljóðritað
með frægasta djass-
klarinettuleikara eftirstríðs-
áranna, Buddy DeFranco.
Putte var sjálflærður í
tónlist, en þrátt fyrir það
spilaði hann klassíska klar-
inettumúsík einsog að
drekka vatn og árum sam-
an hélt hann tónleika,
ásamt vini sínum Svend
Asmussen, í sænskum kirkjum,
þarsem djass og klassísk voru á
boðstólum. Tónn Putte var af ætt
Goodmans og Shaw, tæknin óskeik-
ul og sköpunarskrafturinn óþrjót-
andi og þaðsem stórkostlegast var
– allt til síðasta dags. Í fyrra hljóð-
ritaði hann geislaplötu með píanist-
anum Jan Lundgren, þarsem þeir
hugleiddu söngdansa tengda Frank
Sinatra, og fékk hún sex stjörnur í
Poletiken og er það heldur sjald-
gæft hjá hinum harða gagnrýnanda
Boris Rabinowitsch. Þegar ég frétti
lát Putte var ég að hlusta á frá-
bæran tríódisk hans, We will al-
ways be together frá 2004, þarsem
Jan Lundgren, Jesper Lundgaard
og Alex Riel leika með honum. Pét-
ur Öslund má finna á mörgum
diskum Putte og hann kom með
honum til Íslands í september
1998, er Putte lék á Jazzhátíð
Reykjavíkur í Súlnasal með kvart-
etti sínum; auk þeirra Claes Crona
á píanó og Hans Backenroth á
bassa. Það voru ógleymanlegir tón-
leikar.
Putte Wickman var glæsilegur á
velli, sérdeilis orðheppinn og
skemmtilegur viðkynningar og af
honum er mikill sjónarsviptir sem
djassklarinettið má illa við, því
djassklarinettusnillinga má telja á
fingrunum. Þrátt fyrir sjúkleika og
háan aldur var Putte að skipu-
leggja nýja tónleikaferð er hann
lést. Við Íslendingar erum svo lán-
samir að tveir af hinum fjóru stóru
í sænskri djasssögu hafa heimsótt
Ísland. Putte og Bengt Hallberg er
hingað kom á fyrstu Listahátíð í
Reykjavík. Lars Gullin er löngu
látinn en Arne Domnerus lifir enn
og mikið væri gaman að heyra
hann hér – hann er jafnaldri Putte.
Vernharður Linnet
Putte Wickman allur
Putte Wickman
Stóra svið
SALKA VALKA
Í kvöld kl. 20 ALLRA SÍÐASTA SÝNING!
WOYZECK
Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA!
CARMEN
Su 19/2 kl. 20 Lau 25/2 kl. 20 UPPS.
Fö 3/3 kl. 20 Lau 4/3 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 18/2 kl. 14 UPPS. Su 19/2 kl. 14 UPPS.
Su 26/2 kl. 14 UPPS. Su 26/2 kl. 17: 30
Lau 4/3 kl. 14 Su 5/3 kl. 14 UPPS.
Lau 11/3 kl. 14 Su 12/3 kl. 14
Lau 18/3 kl 14 Su 19/3 kl. 14
FEBRÚARSÝNING ÍD
24/2 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Su 5/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20
Nýja svið / Litla svið
MANNTAFL
Mi 22/2 kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í kvöld kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS.
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20 UPPS.
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 18/2 kl. 20 UPPS. Su 19/2 kl. 20 UPPS.
Fi 23/2 kl. 20 UPPS. Fö 24/2 kl. 20 UPPS.
Lau 4/3 kl. 20 Su 5/3 kl. 20
Fö 10/3 kl. 20 Lau 11/3 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Mi 1/3 kl. 20 Fö 17/3 kl. 20
NAGLINN
Su 19/2 kl. 20 UPPS. Fö 24/2 kl. 40
Lau 25/2 kl. 20
HUNGUR
FORSÝNINGAR, MIÐAV. 1.200- Kr.
Í kvöld kl. 20 Fö 17/2 kl. 17
Lau 18/2 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 23/2 kl. 20 Su 26/2 kl. 20
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELAWW G.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Fullkomið brúðkaup
Fös. 17. feb kl. 19 AUKAS. - UPPSELT
Fös. 17. feb kl. 22 AUKAS. - Örfá sæti laus
Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT
Lau. 18. feb kl. 22 Öfrá sæti - Síðasta sýning!
Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu.
Maríubjallan
Mið. 15. feb. kl. 20 FORSÝNING - UPPSELT
Fim. 16. feb. kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Sun. 19. feb. kl. 20 2.kortas - UPPSELT
Fim. 23. feb kl. 20 3.kortas - UPPSELT
Fös. 24. feb. kl. 19 4.kortas - Örfá sæti laus
Lau. 25. feb. kl. 19 5.kortas - UPPSELT
Lau. 25. feb. kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti
Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas - Örfá sæti laus
Fös. 3. mars kl. 19 7.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 19 8.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti3
10/3, 11/3, 17/3, 18/3
FÖS. 17. FEB. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAU. 25. FEB. kl. 20
FÖS. 3. MAR. kl. 20
ÞRI. 28. FEB. kl. 9 UPPSELT
MÁN. 06. MAR. kl. 9 UPPSELT
ÞRI. 07. MAR. kl. 9 UPPSELT
MIÐ. 08. MAR. kl. 9 UPPSELT
MIND CAMP
eftir Jón Atla Jónasson
SUN. 19. FEB.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HVAÐ EF
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
VESTMANNAEYJAR
ÞRI. 21. FEB KL. 9 - UPPSELT
KL. 11 - UPPSELT
KL. 13 - UPPSELT
Námsmenn og vörðufélagar frá miðann
á 1000 kr. í boði Landsbankans
TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI
! "
# $ % &''() *+, -.( / % $ % 0)12 *+, -.(
3 %3 $ % 4 5 5 %
/ / '6 , 7 '- /
888
9
!" #" $ %
& "%'(%')
"
*
% +,
"% '(%--
Rússneska listakonan Lena von
Lapschina sýnir nú myndbandsverk
í anddyri Norræna hússins. Hún er
fædd 1965 í Vestur-Síberíu en er bú-
sett í Vín. Í fréttatilkynningu segir
að myndböndin dragi fram mörkin
milli pólitísks áróðurs og markaðs-
áróðurs. Von Lapschina byggir verk
sín upp á einfaldan hátt í formi
ímyndaðra kennslumyndbanda, ann-
ars vegar fyrir líkamsræktarstöð
eins og til heilsbótar og fegurðar og
hins vegar sem kennsluefni fyrir
hermenn í þjálfun. Það kemur ekki á
óvart að um eitt og sama myndband
er að ræða sem varpað er á vegginn
í tvennu lagi, en samhliða svo ein
mynd skapast. Hér sýnir Lena
menn og konur klædd kuldabún-
ingum Síberíu framkvæma all-
margar stuttar æfingar, fáránlegar,
fyndnar, óþægilegar eða tilgangs-
lausar eða allt þetta í senn. Það er
síðan áhorfandans að skapa tvær
ólíkar myndir úr sama myndefninu,
allt eftir hinni tilbúnu umgjörð. Æf-
ingar með spýtu miða annars vegar
að því að stæla vöðvana en hins veg-
ar verður spýtan að vopni í höndum
mannsins í snjóbúningnum. Þetta er
einfaldur leikur með þekkt fyr-
irbæri, annars vegar það hvernig
áhorfandinn vinnur úr þeim upplýs-
ingum sem honum eru gefnar og
hins vegar leikur með ákveðna þætti
samtíma okkar og samfélags. Lík-
amsræktarstöðvar gera sumar út á
að þrautpína kúnna sína líkt og á
heræfingum og kröfur samfélagsins
um stinna vöðva og slétta maga eru
líkastar agakröfum hersins. Stríð og
friður eru orðin afstæð hugtök, lif-
um við á friðartímum eða búum við
stöðuga ógn? Æ fleiri Íslendingar
ljá friðargæslunni þjónustu sína,
klæðast búningi hermanna, vinna
við heraga. Óöryggi, ótti við hryðju-
verk, síaukin öryggisgæsla og við-
búnaður hvar sem komið er kemur
engum á óvart lengur, smátt og
smátt verður þetta allt daglegt
brauð og sjálfsagður hlutur. Mynd-
bönd Lenu von Lapschina eru kær-
komið innlegg í umræðu og vanga-
veltur um það hvað sé stríð og hvað
friður, hver sé hermaður og hver
óbreyttur og ekki síst minnir það
okkur á að gleyma ekki sjálfum okk-
ur í ákafanum við að uppfylla kröfur
umhverfisins.
Stríð og friður
Úr myndbandsverki Lenu von Lapschina.
MYNDLIST
Norræna húsið, anddyri
Til 26. febrúar. Sýningar í anddyri eru
opnar virka daga frá kl. 8-17 og 12-17
um helgar.
Siberian beauty,
Lena von Lapschina
Ragna Sigurðardóttir
HLJÓMSVEIT Tónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Nes-
kirkju laugardaginn 18. febrúar nk.
kl. 17. Á efnisskránni eru Fornar
aríur og dansar (Svíta nr. 1) eftir
Ottorino Respighi, Fiðlukonsert í e-
moll eftir Felix Mendelssohn og
Sinfónía nr. 8 í G-dúr eftir Antonín
Dvorák. Einleikari á fiðlu er Hulda
Jónsdóttir. Hulda er 14 ára gömul,
fædd árið 1991. Hún hóf kornung
nám hjá Lilju Hjaltadóttur í Suzuki-
tónlistarskólanum Allegro, en hef-
ur frá hausti 2003 stundað nám við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
nýtur nú handleiðslu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Síðastliðið haust
sigraði Hulda í samkeppni, sem
haldin var innan skólans um að fá
að koma fram sem einleikari á þess-
um tónleikum. Þetta eru seinni tón-
leikar Hljómsveitar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík á þessu skólaári.
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafs-
son. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan að húsrúm leyfir.
Efnisstúlka spilar
Mendelssohn konsertinn
Hulda Jónsdóttir