Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 17
ERLENT
Washington. AFP. | Bandaríkjaþing
birti í gær skýrslu um fellibylinn
Katrínu og afleiðingar hans. Er hún
sögð mikill áfellisdómur yfir ríkis-
stjórn George W. Bush og raunar öll-
um, sem við sögu koma.
Michael Chertoff, heimavarnaráð-
herra Bandaríkjanna, kom fyrir
þingnefnd og viðurkenndi að yfir-
völdum hefðu orðið á „mörg mistök“
þegar þau brugðust við fellibylnum.
Til að mynda hefði ekki verið rétt að
láta Michael Brown, yfirmann
FEMA, bandarísku almannavarn-
anna, hafa yfirumsjón með björgun-
arstarfinu.
Í skýrslunni, sem er 600 blaðsíður,
segir, að þeir, sem hafi borið ábyrgð á
neyðarviðbrögðum, hafi látið viðvar-
anir um Katrínu sem vind um eyru
þjóta, en fellibylurinn olli gífurlegu
tjóni á suðurströnd Bandaríkjanna,
stór hluti New Orleans fór undir vatn
og um 1.300 manns týndu lífi.
Þingmenn og höfundar skýrslunn-
ar segja, að jafnvel eftir að viður-
styggð eyðileggingar hafi blasað við,
hafi nauðstöddu fólki ekki verið
hjálpað nógu snemma.
„Rannsóknin sýnir, að Katrína var
þjóðarklúður þar sem menn sinntu
ekki þeirri frumskyldu sinni að koma
meðborgurum sínum til hjálpar,“
segir í skýrslunni. „Allir brugðust.
Einstaklingar, fyrirtæki, hjálpar-
samtök og stjórnvöld.“
Fram kemur, að ráðgjafar og ráða-
menn í Hvíta húsinu hafi ekki sinnt
upplýsingum og viðvörunum um yf-
irvofandi hörmungar og síðan brugð-
ist allt of seint við þegar þær voru
orðnar staðreynd. Sagt er, að banda-
rísku almannavarnirnar, FEMA,
sem eru hluti af heimavarnaráðu-
neytinu, hafi vitað með tveggja daga
fyrirvara, að lík-
lega myndu um
75% New Orleans
fara undir vatn og
Chertoff, heima-
varnaráðherra, er
gagnrýndur fyrir
að bregðast lin-
lega við.
Miklu fé sóað
Skýrslan er
álitshnekkir fyrir Bandaríkjastjórn,
en fyrr í vikunni var hún harðlega
gagnrýnd í annarri þingskýrslu, sem
sagði, að milljónum dollara hefði
verið sóað eftir hamfarirnar, meðal
annars hefði féð verið afhent fólki,
sem eftirlitslaust framvísaði fölskum
persónuskilríkjum og heimilisföng-
um.
Þótt skýrslan, sem birta átti í gær,
sé harðorð, finnst demókrötum ekki
nóg að gert og segja, að í raun séu
engir embættismenn dregnir til
ábyrgðar á klúðrinu og ekkert í henni
um framhaldið.
„Þúsundir manna eru enn á hálf-
gerðum vergangi. Uppbyggingunni
miðar ekkert og í raun veit enginn
hver framtíðin á að vera á þeim svæð-
um, sem verst urðu úti, einkum í New
Orleans og nágrenni. Forsetinn, ráð-
gjafar hans, ríkisstjórnin og emb-
ættimenn bera meginábyrgð á klúðr-
inu,“ sagði öldungadeildarþing-
maðurinn Hillary Clinton, en hún
hefur hvatt til sjálfstæðrar rannsókn-
ar á viðbrögðum stjórnvalda.
Viðbrögðin við
Katrínu kölluð
„þjóðarklúður“
Heimavarnaráðherra
viðurkennir „mörg mistök“
Michael Chertoff
Sydney. AFP. | Ástralska sjónvarpsstöðin SBS
sýndi í gær áður óbirtar myndir af misþyrm-
ingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bag-
dad í Írak á árinu 2003. Talsmaður stöðvarinnar
sagði, að þær sýndu „manndráp, misþyrmingar
og kynferðislega auðmýkingu“.
Myndirnar eiga sér sama uppruna og þær, sem
áður hafa verið birtar, en Bandaríkjastjórn bann-
aði birtingu þessara mynda og er nú tekist á um
það fyrir bandarískum dómstólum.
Myndirnar, sem SBS birti, sýna meðal annars
mann, sem virðist útataður í eigin saur, annan
með skurð á hálsi og að því er virðist yfirheyrslu-
herbergi atað blóði. Á myndbandsbút má sjá hóp
fanga, sem virðast hafa verið neyddir til að fróa
sér fyrir framan myndavél. Aðrar myndir virðast
sýna lík og fanga með blóðug sár á höfði og lík-
ama.
Maðurinn, sem virðist útataður saur, er aug-
ljóslega vanheill á geði og er honum lýst sem
„leikfangi“ fangavarðanna, sem „reyna ýmsar að-
ferðir við að hemja hann“ í stað þess að hjálpa.
„Þetta eru myndir, sem Bandaríkjastjórn vildi
ekki að nokkur sæi,“ sagði þulurinn á SBS, en
sumar myndanna eru þegar komnar á vefsíðu
sjónvarpsstöðvarinnar.
Sumir bandarísku fangavarðanna, sem sjást á
myndunum, hafa nú þegar verið dæmdir fyrir að-
ild sína að misþyrmingunum í Abu Ghraib, þar á
meðal Lynndie England og Charles Graner.
Voru sýndar þingmönnum
Myndirnar voru sýndar í þættinum „Dateline“
á SBS og sagði þulurinn, að þær hefðu á sínum
tíma verið sýndar bandarískum þingmönnum bak
við lokaðar dyr og þá hefðu þeir orðið miður sín
yfir hryllingnum. Talsmaður Bandarísku borg-
araréttindasamtakanna, ACLU, sagði í viðtali við
„Dateline“, að vonandi yrði myndbirtingin til
þess að háttsettir menn í Bandaríkjaher yrðu
dregnir til ábyrgðar.
„Myndirnar virðast sýna, að pyntingar og mis-
þyrmingar í Abu Ghraib hafi verið miklu meiri en
áður hefur komið fram,“ sagði talsmaðurinn.
Myndbirtingin á SBS kemur á sama tíma og
múslímar eru víða æfir yfir skopmyndum af Mú-
hameð spámanni og þykir viðbúið, að myndirnar
á SBS muni kynda enn undir æsingum í ísl-
ömskum löndum.
Nýjar myndir af pyntingum
í Abu Ghraib í Írak sýndar
Reuters
Ein af myndunum frá Abu Ghraib-fangelsinu, sem ástralska sjónvarpsstöðin SBS birti í gær.
London. AFP. | Breska þingið
samþykkti í fyrrakvöld algert
bann við reykingum á opinber-
um stöðum í Englandi en áður
hafa sambærileg lög gengið í
gildi á Norður-Írlandi og frá
og með næsta mánuði er bann-
að að reykja á opinberum
stöðum í Skotlandi.
Reykingabannið nær til
kráa, einkaklúbba, veitinga-
staða og vinnustaða og markar
mikil tímamót í Bretlandi, þar
sem áætlað er að einn af
hverjum fjórum reyki. Fylgir
breska þingið með þessu í fót-
spor Íra, Ítala, Norðmanna,
Möltumanna og Svía.
Í gildi sumarið 2007
Öruggur meirihluti var fyrir
því að banna reykingar á öll-
um krám en síðan samþykkti
þingið einnig að banna reyk-
ingar í einkaklúbbum. Skiptar
skoðanir voru um hversu langt
bannið skyldi ná, en þegar til
kastanna kom samþykkti þing-
heimur semsé að fara alla leið
í þessum efnum, þ.e. banna
reykingar á öllum opinberum
stöðum.
Breski heilbrigðisráðherr-
ann, Patricia Hewitt, fagnaði
ákvörðun þingsins en bannið á
að ganga í gildi sumarið 2007.
Sagði hún að með þessu yrði
„þúsundum mannslífa bjarg-
að“.
Breska
þingið sam-
þykkti reyk-
ingabann