Morgunblaðið - 16.02.2006, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Ríkisstjórnasamstarf Norðurlandanna í Norrænu ráðherrane-
fndinni tekur breytingum í ár.
Verið er að aðlaga það nýju alþjóðlegu og evrópsku umhverfi,
þar sem stækkun ESB býður bæði upp á möguleika og áskoranir.
Áhersla verður á starfsemi þar sem virðisauki af norrænu
samstarfi er mikill.
Markmið með samstarfinu er meðal annars, að styrkja stöðu
Norðurlandanna og samkeppnishæfni, að stuðla að samstöðu
landa sem liggja að Eystrasalti, að tryggja sameiginlegan
norrænan hag í norðri og vestri og að þróa áfram þau tengsl sem
eru til staðar milli landanna í gegnum tungumál og menningarlega
samkennd.
Til að mæta þessum markmiðum auglýsir Norræna
ráðherranefndin í Kaupmannahöfn eftir nýjum starfsmönnum
til að vinna að samstarfi norrænu ríkisstjórnanna.
Ráðgjafa í
menningarmálum
Við leitum at reyndum ráðgjafa í deild sem vinnur
aðallega að málefnum lista, barna og unglinga,
kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfi auk þess að vinna
ýmis þverfagleg verkefni.
Norræna ráðherranefndin auglýsir eftir:
Umsóknarfrestur er til 6. mars 2006
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarferli: www.norden.org
Ráðgjafa í menntun,
rannsóknir og
vinnumarkaðsmál
Við leitum að reyndum ráðgjafa í deild sem starfar á
ofangreindum sviðum, æskilegt er að viðkomandi hafi
breiða þekkingu á vinnumarkaðsmálum.
3 deildarriturum
Störf deildarritara eru laus til umsókna í þremur
mismunandi deildum, æskilegt er að ritararnir hafi
reynslu af því að vinna með þeim sem starfa á
vettvangi stjórnmála.
Norræna ráðherranefndin
Store Strandstræde 18,
DK-1255 Kaupmannahöfn K
Skrifstofustarf
Innflutnings- og
verslunarfyrirtæki
miðsvæðis óskar að ráða starfsmann
sem fyrst til að annast gerð innflutnings-
skjala, símsvörun, móttöku á pöntunum
og til aðstoðar skrifstofustjóra.
Vinnutími frá 9.00-17.00.
Tölvukunnátta ásamt ensku- og einhverri
þekkingu á Norðurlandamáli nauðsynleg.
Starfsþjálfun fer fram.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist til auglýsingadeildar Mbl. eða á
box@mbl.is merktar:
„Traust til framtíðar — 18195“.
Raðauglýsingar 569 1100
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Laugateigur 5, 201-9111, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Geir Einars-
son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf.,
mánudaginn 20. febrúar 2006 kl. 14:30.
Laugavegur 132, 201-0442, Reykjavík, þingl. eig. Arndís Einarsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Laugavegur 132, húsfélag og
Tollstjóraembættið, mánudaginn 20. febrúar 2006 kl. 13:30.
Torfufell 33, 205-2951, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Björg Pétursdótt-
ir, gerðarbeiðandi Ingvar Helgason ehf., mánudaginn 20. febrúar
2006 kl. 11:00.
Ugluhólar 12, 205-0191, Reykjavík, þingl. eig. Þuríður Birna Halldórs-
dóttir og Guðmundur Oddgeir Indriðason, gerðarbeiðendur Íbúða-
lánasjóður og Tollstjóraembættið, mánudaginn 20. febrúar 2006
kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. febrúar 2006.
FÉLAG tónlistarnema lagði í gær
fram stjórnsýslukæru á hendur
Reykjavíkurborg og Sambandi
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
vegna aldursþaks sem sett hefur
verið á tónlistarnemendur. Sam-
kvæmt aldursþakinu rúmlega þre-
faldast skólagjöld hjá eldri nem-
endum og verða á bilinu 350 þúsund
upp í 600 þúsund krónur fyrir nám
á eitt hljóðfæri eða söng einn vetur.
Samkvæmt upplýsingum Böðvars
Reynissonar, formanns Félags tón-
listarnema, hefur þessi ráðstöfun
þegar bitnað á nemendum um allt
land.
Eldri nemendur hrekjast frá
Í greinargerð frá Félagi tónlist-
arnema segir Böðvar reglurnar
fæla frá nemendur með margra ára
tónlistarnám að baki og einnig hafi
þær bitnað á þeim sem eru yfir um-
ræddum aldurstakmörkum og ætl-
uðu sér í tónlistarnám eftir að regl-
urnar tóku gildi. Segir Böðvar
nýleg ummæli Stefáns Jóns Haf-
stein, formanns menntaráðs, að
engir reykvískir nemendur hafi
hrakist frá námi vegna nýrra
reglna, alröng.
Þá segir Böðvar í greinargerðinni
þá fullyrðingu Stefáns Jóns í ný-
legri blaðagrein, að aldursmörkin
geti hugsanlega hvatt tónlistarnem-
endur til að sýna fram á meiri
námsframvindu þegar vitað er að
námið verði dýrara við ákveðinn
aldur, vafasama. Hér sé um að
ræða algerlega vanhugsað og mis-
heppnað hvatatæki. Nemendur
þurfi að þreyta ströng inntökupróf
til að komast inn í skólana. Mat sér-
fræðinga á hæfni nemenda sé haft
að engu þegar þeim séu settar
hömlur bæði með aldurstakmörkum
og búsetumálum sveitarfélaganna
og neyðist því til að hafna mörgum
af hæfustu umsækjendum. Í grein-
argerð Böðvars segir ennfremur að
skýrt hafi komið fram í svörum full-
trúa borgarinnar á opnum fundi Fé-
lags tónlistarnema 26. janúar sl. að
tónlistarnemar væru notaðir sem
vopn í baráttu sveitarfélaganna við
ríkið, um hvort ríki eða sveitarfélög
ættu að greiða með tónlistarnem-
endum á framhaldsskólaaldri og
upp úr. Tónlistarnemum sé sýnd
mikil lítilsvirðing af hálfu yfirvalda í
málinu. Reglur Menntaráðs
Reykjavíkur og sveitarfélaganna
brjóti klárlega gegn lögum um fjár-
hagslegan stuðning við tónlistar-
skóla, jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar og meðalhófsreglu stjórn-
sýslulaga, að mati lögmanna Félags
tónlistarnemenda. Þá valdi þær því
að skólarnir geti ekki starfað sam-
kvæmt aðalnámskrá tónlistarskól-
anna, sem gefin er út af mennta-
málaráðuneytinu.
Félag tónlistarnema hefur kært
sveitarfélögin fyrir aldursþak
Mörkin eignar-
haldsfélag ehf.
Mörkin eignarhaldsfélag ehf., Fé-
lag áhugafólks um þjónustu við aldr-
aða, stendur fyrir byggingarfram-
kvæmdum við Suðurlandsbraut
58-60-62 en ekki Mörkin ehf. eins og
fram kom í Fasteignablaðinu sl.
mánudag. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
KOMNIR eru út tveir fræðslubækl-
ingar um kynlíf og kynhegðun ung-
linga, annars vegar Kynlíf – ungling-
ar og hins vegar Samskipti foreldra
og barna um kynlíf.
Annars vegar er um að ræða bækl-
ing sem ætlaður er foreldrum og
nefnist Samskipti foreldra og barna
um kynlíf. Í honum er meðal annars
fjallað um mikilvægi þess að börn og
unglingar fræðist um kynlíf, þroska
barna á hinum ýmsu aldursskeiðum
og leiðir fyrir foreldra til að ræða um
kynlíf við börn og unglinga.
Hins vegar er bæklingur fyrir ung-
linga sem nefnist Kynlíf – unglingar. Í
honum er meðal annars skrifað um
rétt unglinga í kynlífi, bjartar og
dökkar hliðar kynlífs og hvert hægt
sé að leita til að fá upplýsingar um
kynlíf.
Höfundar bæklinganna eru þær
Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mannfræð-
ingur, MA í kynlífs- og kynjafræðum,
Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, fé-
lagsráðgjafi og Sigurlaug Hauksdótt-
ir, félagsráðgjafi, MA í uppeldis- og
menntunarfræði.
Höfundarnir ákváðu að ráðast í
gerð bæklinganna í kjölfar fræðslu-
funda um kynlíf og kynhegðun ung-
linga, sem þeir hafa verið með frá
haustinu 2002 fyrir foreldra og nem-
endur í 7.–10. bekk í grunnskólum á
höfuðborgarsvæðinu og víðar um
landið. Fræðslu sína kalla þeir: Tölum
saman – samskipti foreldra og barna
um kynlíf.
Bæklingarnir eru ókeypis og munu
höfundar vera með þá á fræðslufund-
um sínum en jafnframt er hægt að
panta bæklingana og fá um þá frekari
upplýsingar á vef Lýðheilsustöðvar,
www.lydheilsustod.
Fræðslubæklingar um kynlíf og kynhegðun unglinga
Á FÉLAGSFUNDI hjá Samfylking-
arfélagi Grindavíkurlistans 13. febr-
úar sl., kynnti kjörstjórn tillögu af
framboðslista fyrir bæjarstjórnar-
kosningar í vor. Ákveðið hafði verið
að fara í uppstillingu. Listinn var
samþykktur samhljóða og er svo-
hljóðandi: Jóna Kristín Þorvaldsdótt-
ir sóknarprestur, Garðar Páll Vign-
isson bæjarfulltrúi og kennari,
Hörður Guðbrandsson bæjarfulltrúi
og verkstjóri, Dóróthea Jónsdóttir
skrifstofumaður, Sigurður Enoksson
bakari, Pálmar Örn Guðmundsson
íþróttafræðingur, Harpa Guðmunds-
dóttir leiðbeinandi á leikskóla, Sig-
urður Kristmundsson innkaupastjóri,
Jovana Lilja Stefánsdóttir nemi, Ólaf-
ur Sigurpálsson fiskverkandi, Marta
Sigurðardóttir nemi, Benóný Harðar-
son nemi, Steinþór Þorvaldsson
verkamaður og Ingibjörg Reynisdótt-
ir bæjarfulltrúi og verkamaður.
Framboðslisti
Samfylking-
arfélags Grinda-
víkurlistans
SAMNINGANEFNDIR Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna (LSS) og Launa-
nefndar sveitarfélaga koma saman í
húsnæði ríkissáttasemjara í dag til
fyrsta samningafundarins eftir að
samninganefnd LSS hafnaði tilboði
launanefndarinnar í seinustu viku.
Að sögn Braga Mikaelssonar, for-
manns samninganefndar sveitarfé-
laganna, áttu sér stað viðræður í
gærmorgun um starfslokamál sem
þátt í væntanlegum samningum en
hann segist eiga von á að meiri kraft-
ur muni færast í viðræðurnar á fund-
um sem fyrirhugaðir eru um næstu
helgi.
Fram hefur komið að tilboð sveit-
arfélaganna hljóðaði upp á 25%
launahækkun á samningstímanum.
Samningar hafa verið lausir frá ára-
mótum og hafa slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn gagnrýnt
seinagang í viðræðunum.
Búist við stífum
fundahöldum
um helgina
Kjaradeila LSS
og sveitarfélaga