Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 45

Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 45 DAGBÓK EYRARHOLT - HAFNARFIRÐI Glæsileg 4ra herbergja 100 fm íbúð auk bílskúrs og geymslu á jarðhæð sem er u.þ.b. 40 fm. Eignin skiptist m.a. í þrjú her- bergi, stofu, eldhús og baðher- bergi. Svalir og verönd út í garð. Glæsilegt útsýni. V. 24,9 m. 5634 Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali TEPPI Á STIGAHÚS - got t verð - komum og gerum verðtilboð Ávegum Stofnunar Vigdísar Finn-bogadóttur í erlendum tungumálumheldur dr. Ola Knutsson fyrirlestur ídag um sænska tungumálaforritið Grim. Ola hlaut nýdoktorastyrk hjá Norrænu vís- indaakademíunni til að starfa á þessu misseri hjá stofnuninni, þar sem hann vinnur við rannsóknir og fræðastörf í þágu norrænna mála og íslensku sem erlends máls. Forritið Grim er ætlað nemendum í sænsku, einkum þeim sem læra sænsku sem annað eða er- lent mál, og getur gert þeim kleift að kynnast mál- inu af meiri dýpt en áður, gefur þeim leiðbein- ingar um notkun málsins og býður upp á margs konar möguleika sem varpa ljósi á ýmsa fleti sænskrar tungu. Ola Knutsson tók þátt í þróun forritsins, sem tungutæknifræðingur, en fyrsti vísir að Grim varð til fyrir meira en 10 árum: „Í fyrirlestrinum vil ég fjalla um þær rannsóknarspurningar sem smiðir Grim stóðu frammi fyrir og hvernig má notast við tækni til að styðja við tungumálakennslu,“ segir Ola. „Einnig ræði ég um viðmót forritsins gagn- vart notandanum: hægt er að gera margt með tölvu, en ef ekki er hugað að því að forritið vinni sem best með notandanum er hætt við að lítið gagn hljótist af.“ Ýmsar hindranir þurfti að yfirstíga við þróun Grim: „Að vinna með tungumál á tölvum er vanda- samt því erfitt er fyrir tölvuna að greina og fram- kalla venjulegt mál. Þekking tölvunnar er tak- mörkuð og stundum gerir hún mistök sem geta valdið ruglingi hjá þeim sem ekki hafa góða þekk- ingu á málinu. Tekist hefur að þróa Grim þannig að hann fæst við tungumálið á virkan hátt; hann getur greint málið og grisjað, og unnið út fyrir rammann á skapandi hátt,“ segir Ola og bætir við að vankantar annarra tungumálaforrita komi fram þegar þau takmarkast af orðaforða og fyr- irframskilgreindri málfræði: „Í Grim höfum við tækni sem er frjálsari, en það kallar um leið á þann galla að forritið getur greint málið rangt og lagt fram rangar leiðbein- ingar. Þar kemur tölfræði til sögunnar, en við höf- um beitt tölfræðilegum aðferðum til að þróa líkan af normum tungumálsins. Síðan er þetta norm borið saman við málnotkun þess sem notar Grim og athugað hve góð samsvörun er á milli.“ Fyrirlestur Ola Knutsson fer fram í Lögbergi, stofu 102, kl. 12.05 í dag. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Forritið Grim má nálgast ókeypis á slóðinni http://skrutten.nada.kth.se/grim. Fyrirlestur | Ola Knutsson fjallar um sænska tungumálaforritið Grim Fjölhæft forrit til sænskunáms  Ola Knutsson fæddist í Gautaborg 1969 en er búsettur í Stokkhólmi. Hann lauk doktorsprófi í samskiptafræðum manns og tölvu (Human- Computer Interaction) 2005. Ola hefur starfað við þró- un forrita, og við rann- sóknir og hönnun á tölvunámsviðmótinu Grim. Hann hefur birt 17 rannsóknir í bókum, tímaritum og ráðstefnuritum. Árið 2001 hlaut hann námsstyrk Sænsku akademíunnar til rannsókna á nútímasænsku og sænskri mál- rækt. Ola er giftur Lenu Thalin hjúkrunarfræðingi. Eiga þau tvö börn, Axel 12 ára og Isak 6 ára. Mér finnst ekki stórvægilegt – það er kannski frekja – þótt per- sónuafsláttur hafi hækkað um 2.177 krónur á fjórum árum! „Kaupmáttaraukningin er þýðing- armest,“ segir ráðherrann. Þessi fullyrðing er góð þar sem hún á við, en staðreyndin er sú að meðaljón- inum finnst ekki mikið til um söfnun fjár á fjórum árum upp á heilar 2.177 krónur! Eða hvað kaupa ráðherrar fyrir þá upphæð? Eldri borgari. Mér ofbýður Halló, góðan daginn, er ekki allt í lagi heima hjá þér? Ætla nú íslenskir gróðapungar að leggjast á sveif með þessum ofvirku latabæjardrengjum. Pælið í látunum sem verða í kringum þetta. Hefur nú blessað unga fólkið okkar ekki nóg að gera þó að þessi vitleysa bætist ekki við. Hjá dóttur minni sem á 3 börn á Skattalækkanir SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir ráð- herra var að önugmælast við Össur Skarphéðinsson í Morgunblaðinu 31. jan. ’06. Ekki þarf að svara fyrir hann, enda ekki meiningin. En ráðherrann var að tala um umtalsverðar skatta- lækkanir undanfarinna ára og er sá „málflutningur með miklum ólík- indum“ eins og hún komst að orði. Samkvæmt Tryggingastofnun voru skattar undanfarin ár a.m.k. á lægstu laun sem hér segir: Árið 2002 38,54% árið 2003 38,55% árið 2004 38,58% árið 2005 37,73% árið 2006 36,72% í janúar Síðan kemur stóra rúsínan, per- sónuafslátturinn sem jafnframt er skattleysismörk (skv. ríkisskatt- stjóra): Árið 2003 26.825 kr. árið 2004 27.496 kr. árið 2005 28.321 kr. árið 2006 29.029 kr. í janúar. aldrinum 6–16 ára er stór skúffa í eldhúsinu með nammi. Hún er ekki læst en það fer enginn í hana nema mamma og pabbi leyfi. Mér finnst unga fólkið sér vel meðvitað um óhollustu sælgætis í óhófi og eins um íþróttir og útileiki og svo er til fyrirbæri sem heitir tón- listarskólar. Ég skora á íslenska foreldra að blása á þetta framtak sem í versta falli kennir börnum frá 5 ára aldri anorexíu eða orthórexíu. Ágústa Aðalheiður. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. h3 Bb7 9. d3 d6 10. a3 Dd7 11. Rbd2 Hae8 12. a4 Ra5 13. Ba2 b4 14. c3 bxc3 15. bxc3 c5 16. Rc4 Rxc4 17. Bxc4 h6 18. a5 Bd8 19. Be3 Kh7 20. Db3 Bc8 21. Rd2 Db7 22. Heb1 He7 23. Dc2 Da8 24. d4 cxd4 25. cxd4 Hb7 26. Hxb7 Dxb7 27. Bd3 exd4 28. Bxd4 Kg8 29. Rc4 Dc6 30. Rb6 Dxc2 31. Bxc2 Bb7 32. f3 He8 33. Hb1 He7 34. Rc4 Hc7 35. Bb3 Be7 36. Re3 Bc8 37. Bc4 Rd7 38. Hc1 Bd8 39. Rd5 Hc6 Staðan kom upp í B-flokki Corus skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Búlgarski stórmeistarinn Ivan Chep- arinov (2.625) hafði hvítt gegn ung- verska kollega sínum Zoltan Almasi (2.646). 40. Re7+! og svartur gafst upp þar sem eftir 40. ... Bxe7 41. Bxf7+ Kxf7 42. Hxc6 Bb7 43. Hc7 verður svartur óumflýjanlega skiptamun undir. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag, 16. febrúar,er fimmtug Inga Lára Bald- vinsdóttir, fagstjóri myndasafns Þjóð- minjasafns Íslands, til heimilis í Garð- húsum á Eyrarbakka. Af því tilefni efnir hún til samverustundar í sam- komuhúsinu Stað á Eyrarbakka föstu- daginn 17. febrúar milli kl. 20 og 23. Það yrði Ingu Láru mikið gleðiefni að sjá sem flesta samferðamenn sína þar, en blóm og gjafir eru vinsamlega af- þakkaðar. Fyrir þá sem búa vestan heiðar og vilja samgleðjast með Ingu Láru verður boðið upp á rútuferð frá Reykjavík og til baka aftur að sam- verustundinni lokinni. Rútan leggur af stað kl. 19 frá Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og hefur viðkomu á stræt- isvagnastöð við Miklubraut, á móts við Kringluna, og á bensínstöð Skeljungs við Vesturlandsveg. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 16. febrúar,er sextugur Óskar Pálsson, múrari, starfandi móttökustjóri í Hagkaupum, til heimilis að Mark- arflöt 21 í Garðabæ. Bridshátíð. Norður ♠D73 ♥G87 ♦ÁG985 ♣Á5 Suður ♠K10854 ♥ÁD9 ♦D632 ♣3 Suður verður sagnhafi í fjórum spöðum eftir nákvæmar rannsóknir: Vestur Norður Austur Suður – 1 tígull Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 lauf * Pass 2 tíglar Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Suður hefur sýnt stuðning við tíg- ulinn og áskorun í geim (með tveim- ur laufum). Útspil vesturs er tígulfjarki. Hvernig á að taka á málunum? Bridshátíð var sett á Hótel Loft- leiðum í gær, en baráttan hefst fyrir alvöru í kvöld með tvímenningi vel á annað hundrað para. Spilið að ofan er frá tvímenningi Bridshátíðar í fyrra. Ónefndur sagnhafi taldi víst að tígulfjarkinn væri einn á ferð og stakk upp ás til að spila svo spaða á tíuna: Norður ♠D73 ♥G87 ♦ÁG985 ♣Á5 Vestur Austur ♠G6 ♠Á92 ♥K1063 ♥542 ♦K74 ♦10 ♣K982 ♣DG10764 Suður ♠K10854 ♥ÁD9 ♦D632 ♣3 Sigurparið í fyrra var í vörninni – Svíinn Peter Fredin og Daninn Lars Blakset. Fredin var í vestur og spil- aði út tígli til að hræða sagnhafa. Og það tókst fullkomlega. Fredin komst inn á spaðagosa, tók tígulkóng og gaf makker stungu. Hjarta kom til baka, svo vörnin fékk líka slag á hjartakóng: tveir niður og nánast toppur. Fredin og Blakset eru aftur mætt- ir til leiks ásamt fjölda erlendra keppenda frá Evrópu og Bandaríkj- unum. Hátíðinni lýkur á sunnudags- kvöld og eru áhorfendur að sjálf- sögðu velkomnir, alla dagana. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is TÓNLIST Jeffs Waynes um inn- rásina frá Mars sem kom út á hljómplötunni „The War of the Worlds“ um miðjan áttunda ára- tuginn virðist eiga sér marga aðdáendur hér á landi. Varla var fyrr búið að auglýsa tónleika Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, sem fyrirhugaðir eru fimmtudaginn 23. febrúar í næstu viku, en þeir seldust upp. Eftir talsverða yfirlegu hefur tekist að setja saman auka- tónleika síðar sama kvöld. Auka- tónleikarnir hefjast klukkan 22 og miðasala á þá er þegar hafin. Athugið að ekki er hægt að taka miða frá, þeir verða einungis seldir. Það er einvalalið listamanna sem kemur fram þetta kvöld: Margrét Eir, Jónsi, Friðrik Ómar og Matthías Matthíasson munu syngja, leikarinn góðkunni Jó- hann Sigurðarson verður í hlut- verki sögumanns en Richard Bur- ton gerði honum góð skil á sínum tíma. Ásamt Sinfóníuhljómsveitinni, sem verður undir stjórn hins góð- kunna Bernharðar Wilkinsonar sem hefur marga fjöruna sopið, leika valinkunnir popptónlistar- menn. Marsbúarnir þokast nær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.