Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Góður endir getur orðið þótt saga sé
einungis hálfnuð, eða eins og í dag, í
miðri og hættulegri atburðarás. Hrút-
urinn er ekkert fórnarlamb en gott ann-
að veifið að láta hann bjarga sér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið þarf á meiri háttar áskorun að
halda. Það er eina leiðin til þess að hug-
dirfska þess fái tækifæri til að njóta sín.
Ef hindrun verður á vegi þínum, sem
nánast er tryggt um leið og þú kemur í
vinnuna, skaltu ekki gefa eftir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú er tími til þess að endurmeta sjálfan
sig. Allir sjá sínar eigin takmarkanir, en
í stað þess að einblína á þær skaltu
beita uppbyggilegri gagnrýni í staðinn.
Skrifaðu lista og ekki gleyma að telja
upp alla frábæru eiginleikana sem þú
býrð yfir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þörfin fyrir að gera sér glaðan dag er
allsráðandi. Himintunglin eru í stöðu
sem gerir krabbann sér meðvitandi um
þetta og léttir honum líka lund. Ef þú
ert sæll áttu að segja það, hugsa það og
syngja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Óvinurinn er sá hluti sjálfsins sem
finnst hann verða að kvarta. Ef þú stillir
þig um það, finnur þú máttinn. Það út-
heimtir orku að tjá gremju sína og
henni er betur varið á virkari hátt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er ekki rétti tíminn til að aðgreina
sig, aðskilja eða vera einn. Meyjan sér
möguleikana á því að tengjast fólki með
því að spyrja í sífellu hvort hún geti
hjálpað.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinna vogarinnar virðist yfirþyrmandi,
of margir boltar á lofti í einu finnst
henni. Slakaðu á og reyndu að komast í
samband við alheimsgreindina. Himin-
tunglin ganga eftir braut sinni af fágun
og nákvæmni og það getur líka átt við
um milljón fyrirliggjandi verkefni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn nýtur yfirþyrmandi
stuðnings í augnablikinu. Maki hans
sýnir rausnarskap, kannski ekki í
stórum dráttum, en á lítinn, nánast
ósýnilegan máta sem styrkir böndin enn
frekar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Lýstu vandamáli þínu á tæmandi hátt
en með einföldum orðum. Ef þú gefur
þér tíma til þess, má segja að það sé að
hálfu leyst. Meyja hjálpar þér að ráða
fram úr afgangnum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Jung hafði á orði að allt sem fer í taug-
arnar á okkur í fari annarra feli í sér
lykilinn að sjálfsuppgötvun. Hugsanlega
þarf steingeitin á innsæi fisksins að
halda til þess að komast alla leið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Brjóttu ísinn í samskiptum við kalda og
fjarlæga manneskju með því að láta
eitthvað uppskátt um sjálfan þig. Með
því að gefa færi á þér tekst viðkomandi,
sem er með álíka þykka vörn og Kína-
múrinn, að lækka viðbúnaðarstigið eilít-
ið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er sterkari en áður. Honum
er kleift að grípa tækifæri sem hefði
hæglega gengið honum úr greipum í
fyrra. Áhrifafólk laðast að þér. Bog-
menn og naut luma hugsanlega á samn-
ingum sem þú ættir að spá í.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Vog réttvísinnar er merki
vogarinnar og þegar tungl-
ið ferðast um merki rétt-
sýninnar er þörfin fyrir sanngirni allsráð-
andi. Lífið getur auðvitað verið ósann-
gjarnt, en mögulegt að sú hugmynd um
réttlæti sem við erum með í kollinum sé
ekki jafn fullkomin og alheimsréttlætið.
Samþykkjum að flókin og jafnvel full-
komlega réttlát atburðarás sé að byrja.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 tónverkið, 8
lífga, 9 fyrirgefning, 10
gyðja, 11 tákn, 13 sam-
safn, 15 dæld, 18 sanka
saman, 21 rödd, 22 út-
hluti, 23 útlit yfirborðs,
24 málvenju.
Lóðrétt | 2 truflun, 3
sorp, 4 lands, 5 vondur, 6
misgáningur, 7 hræðslu,
12 ílát, 14 hita, 15 slæp-
ast, 16 hamingju, 17
ásynja, 18 lítið, 19 smán-
arblett, 20 nabbi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hlúir, 4 hanki, 7 tafls, 8 gengi, 9 púl, 11 arra, 13
bann, 14 gubba, 15 hífa, 17 klár, 20 fat, 22 nefna, 23 urt-
um, 24 ilina, 25 trauð.
Lóðrétt: 1 hátta, 2 útför, 3 rasp, 4 hagl, 5 nenna, 6 iðinn,
10 útbúa, 12 aga, 13 bak, 15 hendi, 16 fífli, 18 litla, 19
rómuð, 20 fala, 21 tukt.
Tónlist
Grundarfjarðarkirkja | Vormenn Íslands, þeir Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson tenór, Ólafur Kjartan Sigurð-
arson baritón og Óskar Pétursson tenór ásamt píanist-
anum Jónasi Þóri verða með tónleika í Grundarfjarðar-
kirkju 19. febrúar kl. 20. Efnisskráin er fjölbreytt.
Norræna húsið | Félag þjóðfræðinga á Íslandi
stendur fyrir þjóðlagatónleikum í Norræna húsinu,
fimmtudaginn 16. febrúar, kl. 20. Bára Grímsdóttir (söng-
ur og kantele) og Chris Foster (söngur og gítar) flytja
þjóðlög frá Íslandi og Englandi. Miðaverð er 1.500 kr.
Þjóðleikhúskjallarinn | Hljómsveitin The Rushes
leikur á tónleikum kl. 21. Auk The Rushes koma fram
Bluebird og Idir.
Myndlist
101 gallery | Ásmundur Ásmundsson. Til 25. febrúar.
Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauksdóttir
myndlistarmaður til 19. febrúar. Sjá: www.artotek.is
Bananananas | Finnur Arnar Arnarson til 18. febr-
úar.
Energia | Erla M. Alexandersdóttir sýnir akríl- og olíu-
málverk. Út febrúar.
Gallerí Fold | Málverkasýning Huldu Vilhjálmsdóttur
– Náttúrusköp – the nature shape in creation. Til 19.
febrúar. Gallerí Fold er opið daglega 10–18, laug. kl. 11–16
og sun. kl. 14–16.
Gallerí Kolbrúnar Kjarval | Sigrid Østerby sýnir
myndverk tengd sömum til 22. febrúar.
Gallerí Sævars Karls | Jónas Viðar Sveinsson
sýnir málverk til 23. febrúar.
Gallerí Úlfur | Sýning Ásgeirs Lárussonar út febrúar.
Hrafnista, Hafnarfirði | Sjö málarar frá Félags-
miðstöðinni Gerðubergi sýna í Menningarsal til 21. mars.
i8 | Sýningin Fiskidrama samanstendur af myndbandi,
skúlptúr og teikningum. i8 er opið miðvikudaga–föstu-
daga frá kl. 11–17 og laugardaga frá kl. 13–17.
Jónas Viðar Gallerí | Stefán Jónsson sýnir högg-
myndir 11.–26. febrúar. Opið föstudaga og laugardaga frá
kl. 13–18, annars eftir samkomulagi.
Kaffi Mílanó | Erla Magna Alexandersdóttir sýnir
olíu- og akrílmyndir út febrúar.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýninguna
Týnda fiðrildið til loka apríl.
Kunstraum Wohnraum | Jóna Hlíf Halldórsdóttir
sýnir verkið – Gegnum – Through – til 23. mars.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Ingibjörg Jóns-
dóttir – Fínofnar himnur og þulur um tímann. Gryfja:
Guðrún Marinósdóttir – Einskonar gróður. Arinstofa: Vig-
dís Kristjánsdóttir – Myndvefnaður. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 5. mars
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum Svav-
ars Guðnasonar, Carls-Hennings Pedersen, Sigurjóns
Ólafssonar og Else Alfelt. Til 25. febr.
Listasafn Reykjanesbæjar | Guðrún Einars-
dóttir til 5. mars.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Gabríela
Friðriksdóttir, Feneyjaverkið. Kristín Eyfells. Til 26. feb.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jó-
hannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæðingu málarans.
Til 19. mars.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið. Jóna
Þorvaldsdóttir. Til 22. feb.
Safn | Safn sýnir nú verk einnar þekktustu myndlistar-
konu heims; Roni Horn, á þremur hæðum. Verkin eru
um 20 talsins frá 1985–2004 og eru öll í eigu Safns.
Sýningin ber heitið „Some Photos“. Flest verka Roni
Horn eru ljósmyndir, sem hún hefur tekið á Íslandi en
hún hefur dvalið hér reglulega síðan 1975.
Thorvaldsen | Bjarni Helgason sýnir á Thorvaldsen
bar – Ostranenie – sjónræna tónræna – til 3. mars
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í íslenskri
myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljósmyndir Marcos Paol-
uzzo í Myndasal og ljósmyndir Péturs Thomsen í Mynda-
sal. Til 20. febrúar.
Söfn
Aurum | Þorgeir Frímann Óðinsson fjöllistamaður sýn-
ir verk úr myndaröðinni Vigdís til 17. febrúar.
Bæjarbókasafn Ölfuss | Sýning á teikningum
Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, sem hann gerði er
hann var í verbúð í Þorlákshöfn á árunum 1913–1915.
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins í Duus húsum.
Sagt er frá tímabilinu 1969 til 1979 í máli og myndum.
Rifjuð upp tískan og tíðarandinn. Opið daglega kl. 13–
18.30 til 1. apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar á
sýningunni Móðir Jörð gefa óhefðbundna og nýstárlega
sýn á íslenskt landslag þar sem markmiðið er að fanga
ákveðna stemmningu fremur en ákveðna staði. Skotið
er nýr sýningarkostur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur
og er myndum varpað á vegg úr myndvarpa.
Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á sýningum
stendur yfir. Ný grunnsýning opnuð 1. maí nk.
Þjóðmenningarhúsið | Fræðist um fjölbreytt efni
á sýningunum Handritin, Þjóðminjasafnið – svona var
það, Fyrirheitna landið og Mozart-óperan á Íslandi. Njót-
ið myndlistar og ljúfra veitinga í veitingastofunni. Leið-
sögn í boði fyrir hópa.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Íslands
er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir
safngesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar sýningar auk
safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og
miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga frá landnámi
til nútíma. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Kiwanishúsið | Félagsvist alla fimmtudaga í
Kiwanishúsinu Mosfellsbæ, í landi Leirvogstungu við
Vesturlandsveg. Spilaverðlaun, kaffiveitingar. Sími
566 7495, húsið opnað kl. 20.
Fyrirlestrar og fundir
Friðarhús | Samtök herstöðvaandstæðinga efna til
fundar kl. 20–22, með þremur Íslendingum sem sóttu
nýverið alþjóðasamfélagsþingin í Bamako og Caracas.
Þau eru: Halla Gunnarsdóttir blaðamaður, Alistair Ingi
Gretarsson nemi í alþjóðasamskiptum og Viðar Þor-
steinsson heimspekingur. Fundarstjóri verður Einar
Ólafsson.
Háskóli Íslands | Rannsóknastofa í kvenna- og
kynjafræðum við Háskóla Íslands og Guðfræðistofnun
Háskóla Íslands efna til málþings 17. feb. kl. 13.30–16, í
hátíðarsal Háskóla Íslands. Fjallað verður um hjónaband-
ið og spurt um eðli hjónabandsins og hlutverk. Fyrir
hverja er hjónabandið og í þágu hverra? Nánari upplýs-
ingar: www.rikk.hi.is
Hótel Saga | Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar
heldur fund 17. feb. kl. 13–17, um jafnréttishugtakið,
mannréttindi, minnihlutahópa og möguleika sveitarfé-
laga til að þjónusta alla hópa jafn vel.
Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélag Reykja-
víkur býður þeim sem hafa sótt reykbindindisnámskeið
á sl. ári að koma á endurkomufund kl. 17, í húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Næsta námskeið hefst 2.
mars. Leiðbeinandi er Halla Grétarsdóttir hjúkrunarfr. og
fræðslufulltrúi. Skráning á hallag@krabb.is eða í síma
540 1900.
Landakot | Fræðslunefnd Rannsóknastofu í öldrunar-
fræðum, RHLÖ, heldur fræðslufund kl. 15, í kennslusaln-
um á 6. hæð á Landakoti. Lovísa Einarsdóttir íþrótta-
kennari og samskiptafulltrúi Hrafnistu, Hafnarfirði, fjallar
um grunnæfingar í Tai Chi fyrir eldri borgara. Sent verð-
ur út með fjarfundabúnaði.
ReykjavíkurAkademían | Rannsóknastefna um
hug- og félagsvísindi verður haldin í Reykjavíkur-
Akademíunni kl. 14–17. Fræðimenn og háskólakennarar
velta fyrir sér hlutverki og stöðu hug- og félagsvísinda í
samfélagi dagsins í dag. Stjórnmálamenn taka þátt í
pallborðsumræðum. Veitingar að umræðum loknum.
Fréttir og tilkynningar
Dyslexíufélagið Skuld | Dyslexíufélagið Skuld
heldur stofnfund um verðandi háskólafélag. Fundurinn
verður kl. 20, á Kaffi Rósenberg og hefst með kvöld-
verði þar sem gefst tækifæri á að ræða sýn félagsins
og almenn stofnfundarstörf.
Útivist og íþróttir
Ferðafélagið Útivist | Þorrablót verður í Básum
18.–19. febrúar. Brottför frá Hvolsvelli kl. 10. Þorri blót-
aður í Goðalandi. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
Verð 3.100/3.600 kr. VHF-talstöð skilyrði í allar vetrar-
ferðir.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is