Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 47 MENNING Green tea extract FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir Nr. 1 í Ameríku APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa - Gulli betri Orka og vellíðan Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa- vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl. 9–16.30. Boccia kl. 9.30. Helgistund kl. 10.30. Leikfimi kl. 11. Myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi, myndlist, bókband, fótaaðgerð. Fé- lagsvist á morgun kl. 13.30. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öll- um opið. Samvera og söngur undir stjórn Lýðs Benediktssonar. Morg- unkaffi, hádegisverður og síðdeg- iskaffi. Síminn hjá okkur er 588 9533. Handverksstofa Dalbrautar 18–20 er opin alla daga kl. 8–16. FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl. 10– 11. Mæting fyrir framan Bessann og kaffisopi þar eftir göngu. Allir eldri borgarar velkomnir í hópinn, bara mæta. Útskurðarnámskeið í smíða- stofu grunnskólans fimmtudaga kl. 15.30–18.30. Leiðbeinandi Friðgeir H. Guðmundsson. Uppl. gefur Guðrún í síma 565 1831. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verð- ur haldinn á Hótel Sögu laugardaginn 18. febr. kl.13.30. Félagsmenn fjöl- mennið og takið félagsskírteinið með. Snúður og Snælda sýna leikritið Glæpir og góðverk í Iðnó sunnudaginn 19. febr. kl. 14. Miðapantanir í síma 562 9700. Félag kennara á eftirlaunum | Brids í Kennarahúsi kl. 14–16. EKKÓ-kórinn í KHÍ kl. 17–19. Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05 og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.15 rammavefn- aður, kl. 9.30 málm- og silfursmíði, kl. 10.50 rólegar æfingar, kl. 13 bókband, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Handavinnustofan opin frá kl. 9–16, leiðbeinandi á staðnum. Jóga kl. 10, laus pláss. Brids kl. 13. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op- ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30. Gler- bræðsla kl. 9 í Kirkjuhvoli. Vatns- leikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi kl. 13.15 í Mýri. Handavinnuhorn kl. 13 í Garðabergi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund, umsjón sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá hádegi vinnustof- ur og spilasalur opinn. Kl. 13.30 legg- ur Gerðubergskórinn af stað í heim- sókn í safnaðarstarf Dómkirkjunnar. Menningar- og listahátíð eldri borg- ara í Breiðholti tengd Vetrarhátíð í Reykjavík í næstu viku, nánar kynnt síðar. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9 aðstoð við böðun, almenn handa- vinna. Kl. 13.30 boccia. Messa á morgun, föstudag, kl. 14. Allir vel- komnir. Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur, postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur á staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leik- fimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14 fé- lagsvist. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Pútt kl. 10. Leikfimi kl. 11.20. Gler- bræðsla kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11. Fé- lagsvist kl. 13.30 kaffi og nýbakað. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Hársnyrting, s. 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Dagblöðin leggja frammi í Betri stofunni. Leikfimi kl. 11. Gler- skurður í Listasmiðju 9–16. Hár- greiðslustofa Pamelu 9–12. Sönghóp- urinn: Dísirnar og draumaprinsarnir kl. 13.30. Hægt að fá dagskrána senda heim með pósti eða netbréfi. Síminn er 568 3132. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 á morg- un. Laugardalshópurinn Blik, Laug- ardalshöll | Leikfimi eldri borgara í Laugardalshöll kl. 11. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið, Hátún 12. Skák í kvöld kl. 19. Allir vel- komnir. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl. 9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15– 15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45 spænska. Kl. 11.45–12.45 hádeg- isverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–16 kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Kl. 10.30 verður fyrirbænastund í umsjón séra Jakobs Ágústs Hjálmarssonar, dóm- kirkjuprests. Allir eru velkomnir. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9. Bókband og pennasaumur kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, handmennt almenn kl. 13. Glerskurður kl. 13. Bridge frjálst kl. 13. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. Áskirkja | Opið hús milli kl. 14–16, samsöngur undir stjórn organista, kaffi og meðlæti. Opið hús fyrir for- eldra með börn sín á fimmtudags- morgnum frá kl. 10–12. Kaffi og með- læti. Samvera 8–9 ára barna kl. 17–18. Skemmtifundur. Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20 í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Farið verður yfir bréf Páls til Róm- verja og Galatamanna. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Leikfimi IAK kl. 11. Bænastund kl. 12. Barnastarf 6–9 ára kl. 17–18 á neðri hæð. Unglingastarf kl. 19.30– 21.30 á neðri hæð. www. digra- neskirkja.is Dómkirkjan | Alla fimmtudaga frá kl. 14–16 er opið hús í safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a. Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og bænastund í hádeginu á fimmtudög- um, kl. 12.15. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 22. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyr- irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn 10–12 ára á fimmtudögum í Húsaskóla kl. 17.30–18.30. Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl. 19–19.45, Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Altarisganga. Létt og skemmti- leg samvera. Hafnarfjarðarkirkja | 7–9 ára starf er alla fimmtudaga milli klukkan 17–18. Margt skemmtilegt er gert saman, vonum að sjá sem flesta. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í há- degi alla fimmtudaga kl. 12. Org- elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Háteigskirkja | Taize-messa öll fimmtudagskvöld í Háteigskirkju. Kirkjan opnuð klukkan 19 og messan hefst klukkan 20. Hljóð stund í nær- veru Guðs. Háteigskirkja – starf eldri borgara | Bridsaðstoð í Setrinu, Háteigskirkju á föstudögum kl. 13–16. Kaffi kl. 15. Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9 ára starf, er kl. 16.30–17.30. Opið hús er í dag kl. 12–14. Hádegisverður og sam- verustund. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam- vera eldri borgara kl. 15. Hugleiðing og söngur ásamt kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. Eldurinn kl. 21. Þetta er síðasta samveran hjá Eldinum, nk. fimmtudag hefst svo önnur dagskrá. Nánar auglýst síðar. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM Holtavegi 28, fimmtudaginn 16. feb. kl. 20. „Korintubréfin.“ Sr. Gísli Jón- asson sér um fundarefnið. Kaffi. Allir karlmenn eru velkomnir. Langholtskirkja | Opið hús fyrir for- eldra ungra barna frá kl. 10–12. Þór- gunna Þórarinsdóttir, nuddkennari, fjallar um ungbarnanudd. Kaffisopi, spjall og söngstund fyrir börnin. Verið velkomin. Leitið upplýsinga í síma 520 1300. Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir. Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðarstund í hádegi. Að bænastund lokinni, kl. 12.30, er léttur málsverður í boði í safnaðarheimilinu. Kl. 15 helgistund í umsjá sóknarprests í félagsmiðstöð- inni á Dalbraut 18–20. Kl. 17 Adrenalín gegn rasisma. Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12.05. Samtal um sorg er opin vettvangur þeirra sem glíma við sorg og missi og vilja vinna úr áföllum sínum. Fólk kem- ur þar saman til að tjá sig eða hlusta á aðra. Prestar kirkjunnar leiða fundina. Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl. 10. Beðið fyrir sjúkum og bág- stöddum. Einnig tekið við bæn- arefnum. Kaffisopi að lokinni athöfn- inni. FYRIRVARALAUSAR breyt- ingar hafa verið alltíðar á dag- skrám Myrkra músíkdaga – til blendinnar ánægju fyrir þá er þurfa að standa skil á lágmarks- staðreyndum, eins og upp- tökumenn og gagnrýnendur. Eiga síðasttaldir, er sitja yfirleitt fjærst af tillitssemi við flytjendur, þó mest á hættu að stíga í spínatið, því magnaraverðir njóta oftast hljóðnemanándar við mis- skýrmælta boðendur slíkra skynditíðinda. En ef reynt er að finna jákvæða hlið á téðum dagskrárhrókunum, þá geta þær stundum gert sitt gagn með því að rífa hlustandann upp úr skilyrtu fordómafari. Þann- ig skal fúslega játað að undirrit- aður var þegar kominn á fremsta hlunn með að tengja í huganum fyrsta atriðið á síðdegistónleikum Guðrúnar Óskarsdóttur við meint tónsköpunareinkenni yngri ís- lenzkra tónskálda almennt og Sveins Lúðvíks Björnssonar sér- staklega, þegar sá sté á svið eftir þriðja og síðasta atriði fyrir hlé og í ljós kom að frumfluttu verki hans hafði verið skotið aftur fyrir verk nr. 2 og 3! Kom þá vel á vondan, því raun- verulega fyrsta verk dagsins, Tar- occo per il cembalo Op. 124 eftir Danann Axel Borup-Jørgensen (f. 1924), var samið af manni er hefði getað verið afi Sveins (f. 1962). En kannski sýnir þetta líka að norræn hljómborðsverk hafi varla breytzt svo neinu nemi á undanförnum áratugum. Hvað þá að auðheyr- anlegur munur sé á milli íslenzkra og annarra vestrænna nútíma- verka – þrátt fyrir tíðheyrt gjálfur erlendra gagnrýnenda um óve- fengjanleg náttúrueinkenni hvera og eldfjalla í íslenzkri tónsköpun. Tarocco Borup-Jørgensens fyrir sembal [9’] frá 1988 vísaði (líkt og Píanóæfingar Snorra S. Birg- issonar frá 1981, útg. 1986) til hinna fornu tarotspila og var í mislöngum frjálst uppraðanlegum köflum, en hér flutt í seinni útgáfu tónskáldsins er Guðrún lék land- syðra 2000 og endaði á diski Classico-forlagsins. Jørgensen hef- ur oft verið kenndur við nátt- úruljóðrænan expressjónisma, en fyrir mér bar kankvíst hvat- skeytta stykki hans fremur blæ af prakkarastrikum úr fyndinni teiknimynd. Hvernig „Custer’s Last Stand – on the ground“ [4’; 1989] eftir landa hans Dan Locklair tengdist átökunum við Little Big Horn 1876 kom hvorki heyranlega né lesanlega fram, utan hvað vinstri höndin lék síendurtekið þrábas- sastef („ground“) við gáskafullt djassleitan cakewalk-dans í þeirri hægri. „Tif“ [7’] eftir Svein Lúðvík Björnsson byggði sem nafnið sagði á eintóna (eða einhljóma) tremólóum, og skiptust á hraðir og hægir undirkaflar þar sem örl- aði á kanonvinnslu – nema hafi verið fyrir óskhyggju undirritaðs er greindi annars lítið framvind- usamhengi úr þessari afströktu rapsódíu við fyrstu heyrn. Svipað var uppi á teningnum í L’unione sacra [15’; 2005] fyrir flautu, sembal og rafhljóð eftir Úlfar Inga Haraldsson, er laðaði oft fram falleg litbrigði úr geimvíkk- uðu flautustrófum Kolbeins, en fór að mínum smekk of mikið úr einu í annað. Fyrir þetta langa hlustun virtist burðarþol grunnefnis alltj- ent í veikasta lagi. Loks var tvíverk Leifs Þórarins- sonar fyrir einleikssembal, Sónata (1987) með „Da“ fantasíu (1979) beint á eftir, er þrátt fyrir nærri hálftíma heildarlengd hélt óskertri athygli manns allt til enda. Són- atan bar undir nútímayfirborði talsverðan keim af barokki – t.a.m. með frönsku flúri og þýzk- um fúgatóum (m.a.s. með viðsnún- ingi), og hljómameðferð Fant- asíunnar á ljóðrænt íhugulum stöðum af djassi, er náði skemmti- legri sveiflu á stuttum tokkötu- spretti. Allt sat það afbragðsvel í blæbrigðaríkri túlkun Guðrúnar, er skilaði hér trúlega einhverjum vandaðasta einleik meðal jafningja á þessum Myrku músíkdögum. Framsækna fornhljómborðið TÓNLIST Ýmir Verk eftir Axel Borup-Jørgensen, Dan Locklair, Svein Lúðvík Björnsson (frumfl.), Úlfar Inga Haraldsson* og Leif Þórarinsson. Guðrún Óskarsdóttir semb- all og Kolbeinn Bjarnason flauta*. Sunnudaginn 12. febrúar kl. 16. Myrkir músíkdagar Morgunblaðið/Sverrir Guðrún Óskarsdóttir Ríkarður Ö. Pálsson SIGRÚNU Eð- valdsdóttur konsertmeistara var í síðustu viku boðið að leiða Fílharmóníu- hljómsveitina í Björgvin í Nor- egi á tvennum tónleikum. Fyrri tónleikarnir voru í Grieghallen á fimmtudag og þeir síðari í Festi- viteten í Haugasundi á föstudag. Efnisskráin var af klassískum toga, Haydn-sinfónía nr. 6 og sellókons- ert í c-dúr og fimmta sinfónía Beethovens. Einleikari í sellókons- ertinum var Asier Pola, en Spán- verjinn Rafael Frühbeck de Burgos stjórnaði. Góður rómur var gerður að tónleikunum í blaðinu Bergens Tidende þar sem sérstaklega var getið konsertmeistarans frá Ís- landi. Sigrún leiðir Norðmenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.