Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 53. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Lundir og slatti af rjóma Róbert Wessmann kaupir inn í hæfi- lega hollan veislumat | Daglegt líf Viðskiptablað | Sam-bíóin fjárfesta í Danmörku  Dagblöðin halda velli  Lággjaldaflugfélög í Evrópu Íþróttir | HSÍ ræðir við Alfreð Gíslason  Auðun úr leik hjá FH-ingum Bagdad. AP, AFP. | Ævareiðir sjítar réðust í gær á moskur súnníta víðs vegar um Írak til að hefna þess, að Gullna moskan, einn mesti helgistaður sjíta, hafði að hluta verið sprengd í loft upp. Skoruðu stjórnvöld og trúarleið- togar á fólk að halda ró sinni en litið er á skemmdarverkið sem tilraun öfgamanna til að koma af stað borgarastyrjöld í landinu. Í Bagdad varð æstur múgur súnnítaklerki og þremur öðrum mönnum að bana í einni moskunni og í Basra í Suður-Írak réðust sjít- ar inn á skrifstofu eins stjórnmálaflokka súnníta, drápu þar einn mann, og brutust síð- an inn í fangelsi borgarinnar. Þar tóku þeir 11 útlendinga, súnníta, sem eru sagðir hafa barist með skæruliðum, og hengdu 10 þeirra. Sagt er, að ráðist hafi verið á 27 moskur súnníta en sumir nefna enn hærri tölu. Þriggja daga þjóðarsorg Ali al-Sistani, æðsti kennimaður sjíta, skoraði í gær á trúbræður sína að sýna still- ingu og Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg. Sagði hann, að þrír menn hefðu verið handteknir, grunaðir um aðild að spengingunni. Líklegt er talið, að liðsmenn al-Qaeda í Írak hafi staðið að árásinni á moskuna og til- gangurinn sá að kynda undir átökum milli sjíta og súnníta og spilla fyrir myndun rík- isstjórnar í landinu. Bandaríkjastjórn fordæmdi í gær árásina sem „glæp gegn mannkyni“ og aðrir þjóð- arleiðtogar hafa harmað hana og hvatt Íraka til að verða ekki leiksoppur í höndum hryðju- verkamanna. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi árásina í gær og hét því jafnframt, að Bretar myndu leggja fram fé til að byggja Gullnu moskuna upp aftur. AP Sjítar efndu til mikilla mótmæla vegna eyðileggingar Gullnu moskunnar í Sam- arra, meðal annars í Bagdad. Þar voru bornar myndir af hinum róttæka klerki Muqtada al-Sadr og byssum brugðið á loft til marks um, að menn væru við öllu búnir. Ólga meðal sjíta  Borgarastyrjöld | 18 GENGISFALL íslensku krónunn- ar í gær og í fyrradag hefur haft mun víðtækari áhrif en nokkurn gat órað fyrir. Þannig er veiking gjaldmiðla nokkurra svokallaðra nýmarkaðslanda á mörkuðum í gær rakin til gengisfalls íslensku krónunnar. Áhrifin af veikingu ís- lensku krónunnar eru þannig talin hafa teygt sig alla leið til Suður- Ameríku, Afríku, Asíu og Austur- Evrópu. „Hrun á Íslandi hefur neikvæð áhrif á gjaldmiðla nýmarkaðs- landa,“ sagði í fyrirsögn á frétt á vef Financial Times í gær en fjöl- margir fjölmiðlar víða um heim fjölluðu um veikingu íslensku krónunnar og áhrif hennar á mynt- ir annarra nýmarkaðslanda, svo og um hættuna á hruni eða brotlend- ingu í íslensku efnahagslífi. „Fjármálaævintýri Íslendinga gæti endað með tárum“, sagði í fyr- irsögn danska blaðsins Berlingske Tidende, „Stefnir í brotlendingu á Íslandi“, sagði í fyrirsögn Dagens Næringsliv í Noregi og orð eins og skellur, hrun og þrot komu víða fyrir þótt raunar hefði gjarnan oft fylgt að hætta væri á, að það stefndi í o.s.frv. Í umræddri frétt Financial Tim- es sagði að veiking krónunnar hefði orðið til þess að gengi reals- ins í Brasilíu hefði um tíma lækkað um 3%, tyrkneska líran, randið í Suður-Afríku, mexíkóski pesóinn og rúpían í Indónesíu hefðu lækkað um að minnsta kosti 1% þótt sumar myntirnar hefðu síðan rétt úr kútnum. Vita núna að Ísland er til Sabrina Jacobs, sérfræðingur hjá Dresdner, Kleinwort, Wasser- stein, staðfesti í samtali við Morg- unblaðið að menn teldu að veikingu umræddra gjaldmiðla mætti rekja til veikingar íslensku krónunnar, fjárfestar hefðu kosið að draga úr gengisáhættu sinni almennt og því hefðu áhrif af falli krónunnar verið afar víðtæk. „Við teljum að það hafi verið Ís- land sem hleypti þessu öllu af stað. Það voru verðbréfamiðlarar í Asíu sem vissu ekki einu sinni að Ísland væri til. En það er alveg öruggt að þeir vita það núna,“ segir Jacobs. Á símafundi sem Fitch Ratings hélt í gær kom fram að sérfræð- ingar félagsins telji að hættan á harðri lendingu í efnahagsmálum á Íslandi hafi aukist og þeir hafa áhyggjur af því hvort fjármála- kerfið hafi getu til þess að þola slíka lendingu. Eins benda þeir á að skuldir heimila og fyrirtækja séu mjög háar sem hlutfall af landsframleiðslu og það valdi þeim áhyggjum að stærstur hluti þess- ara skulda sé gjaldeyris- eða vísi- tölutengdur. Lækkun krónunnar hafði víðtæk áhrif Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is  Mat Fitch | Miðopna  Viðskiptablað Gjaldmiðlar í Afríku, Suður-Ameríku, Austur-Evrópu og Asíu veiktust HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra átti fund með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Downingstræti 10 í gær. Þetta var fyrsti fundur forsætisráðherra landanna frá því Geir Hall- grímsson hitti Harold Wilson fyrir þrjátíu árum. Ráðherrarnir ræddu m.a. Evrópumálin, Atlants- hafsbandalagið og góða samvinnu landanna á al- þjóðavettvangi og á viðskiptasviðinu. | Miðopna Reuters Halldór fundaði með Blair London. AFP. | Vopnaðir menn, dul- búnir sem lögreglumenn, rændu í gær meira en 25 milljónum punda, meira en 2,8 milljörðum ísl. kr., á einni miðstöð Securitas í bænum Tonbridge í Kent á Englandi. Ránið hófst með því, að menn- irnir stöðvuðu bíl framkvæmda- stjóra miðstöðvarinnar og sögðu við hann, að hefði hann ekki sam- starf við þá, yrði fjölskyldu hans unnið mein. Á sama tíma komu tveir menn á heimili hans, leiddu burt konu hans og son og höfðu í gíslingu um stund. Þegar á miðstöðina kom voru 15 starfsmenn hennar bundnir og fénu rænt. Óstaðfestar fréttir eru um, að ránsféð hafi verið allt upp í 40 millj. punda, nærri 4,5 milljarð- ar kr., og þá um leið mesta rán á Bretlandseyjum fyrr og síðar. Stórrán á Bretlandi ÁÆTLAÐ er, að tilkoma ýmissa samheitalyfja muni spara Dönum, ríki og neytendum, tæplega 33 milljarða íslenskra króna á þessu ári. Kom það fram í dagblaðinu Børsen í fyrradag. Frá árinu 2001 hafa runnið út einkaleyfi fyrir 46 lyfjum og hefur það hleypt miklu lífi í fyrirtæki, sem framleiða samheitalyf, og stóraukið samkeppni á milli þeirra. Miðað við fyrra verð á einkaleyfislyfjunum, nemur verðlækkunin með tilkomu samheitalyfjanna um 70% til jafn- aðar. Af þessu hafa danska ríkið og neytendur notið góðs og sparnaður á þessu ári er áætlaður tæpir 33 milljarðar kr. Mun hann síðan aukast er fleiri einkaleyfi renna út og notkun á samheitalyfjum eykst. Það hefur ýtt mjög undir sparn- aðinn, að 1. apríl á síðasta ári var reglum breytt þannig, að nú niður- greiðir ríkið aðeins þau samheitalyf, sem eru ódýrust hverju sinni. Er það kannað hálfsmánaðarlega. Spara á samheitalyfjum Viðskipti og Íþróttir í dag Berlín. AFP. | Formaður þýska knattspyrnusambandsins lýsti í gær áhyggjum af viðbúnaði þýska hersins vegna heimsmeistaramóts- ins í knattspyrnu í júní og sagði, að hann hryllti við tilhugsuninni um leikvanga umkringda skrið- drekum. Theo Zwanziger sagði í viðtali við vikublaðið Die Zeit, að skrið- drekar og leikar færu illa saman auk þess sem Þjóðverjar hefðu lagt á það áherslu er þeir fengu heims- meistarakeppnina, að þeir yrðu haldnir í afslöppuðu andrúmslofti. „Við viljum, að fólk verði í hátíð- arskapi en með skriðdreka á hverju strái mun fara lítið fyrir því,“ sagði Zwanziger. Vill enga skriðdreka ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.