Morgunblaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Króatía
Frá 45.895kr.
frá 45.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða sept.
Diamant íbúðahótelið.
Heitasti staðurinn í fyrra.
Brottfarir í júní og ágúst
að seljast upp
Bókaðu núna á www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
62
5
MATAR- og skemmtihátíðin Food &
fun hófst með formlegum hætti þeg-
ar Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, og Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra, skáru sér bita af
tveggja metra langri ostaköku, sem
bökuð var í tilefni af hátíðinni, á Hót-
el Nordica í gærdag. Voru þar saman
komnir þeir tólf erlendu mat-
reiðslumeistarar, sem elda munu á
jafnmörgum stöðum meðan á hátíð-
inni stendur, auk íslenskra starfs-
bræðra.
Landbúnaðarráðherra kvaddi sér
hljóðs við setninguna og lofaði ein-
stakt samstarf Icelandair og íslensks
landbúnaðar. Ráðherra sagði að nú
væri gaman að borða í höfuðborginni
sem ilma mun af góðri matarlykt
meistarakokkanna: „Á bakvið hátíð-
ina er svo Ísland sem er að verða við-
urkennt matvælaland af bestu kokk-
um heimsins. Eyjan milli Ameríku
og Evrópu sem vekur svo mikla at-
hygli sem raun ber vitni.“
Baldvin Jónsson, einn aðstand-
enda hátíðarinnar, segist gera ráð
fyrir að allt að tuttugu þúsund
manns muni geta nýtt sér tækifærið
í ár, en margir þurftu frá að hverfa í
fyrra. Hann segir að uppselt sé á
flestum stöðum á föstudag og laug-
ardag, og mikið sé bókað í dag og á
sunnudag.
Hátíðin er liður í markaðsstarfi
Icelandair en með henni er stefnt að
því að kynni gæði íslenskra matvæla
og veitingamennsku á nýstárlegan
hátt. Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair, segir að það sé trú fyr-
irtækisins að hún muni skapa eftir-
spurn frá ferðamönnum sem vilja
ferðast hingað og prófa íslenska
matargerð.
Matar- og skemmtihátíðin Food & fun hófst formlega í gær
Reykjavík ilmar af mat-
arlykt meistarakokka
Morgunblaðið/ÞÖK
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, og Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra opnuðu matar- og skemmtihátíðina með formlegum hætti.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að aðeins tólf veit-
ingastaðir bjóði upp á eiginlega
Food & fun-hátíðarmatseðla hafa
veitingamenn á fleiri stöðum sett
saman sérstaka matseðla sem boðið
verður upp á um helgina, í tilefni af
Vetrarhátíð í Reykjavík eða aðeins
til að fá sinn bita af sneiðinni, en
talið er að á milli fjórtán og sextán
þúsund manns hafi farið út að
borða á þeim fjórum dögum sem
hátíðin stóð yfir á síðasta ári.
Einn þeirra er Tveir fiskar við
Geirsgötu, sem tók þátt í Food &
fun í fyrra. Þar verður boðið upp á
fjögurra rétta máltíð – aðeins úr ís-
lensku hráefni – á 4.900 krónur
ásamt því að tilboð verður á völdum
vínum. Gissur Guðmundsson, veit-
ingamaður á Tveim fiskum og for-
seti Klúbbs matreiðslumanna á Ís-
landi, segir hátíðina vera frábæra
hvatningu fyrir fólk að fara út að
borða og njóta þess sem veitinga-
húsin hafa upp á að bjóða. Hann
myndi hins vegar vilja sjá annað
fyrirkomulag á hátíðinni þannig að
allir veitingastaðir gætu verið með.
„Ég hefði viljað sjá menn hugsa
þetta eins og Eat & joy-hátíðina í
Finnlandi þar sem mun fleiri staðir
fá að vera með. Hátíðin hér mætti
vera opnari og ekki ætti að vera á
hendi örfárra manna að ákveða
hvaða veitingastaðir fá að taka
þátt,“ segir Gissur sem staddur er í
Istanbúl í Tyrklandi að dæma mat-
reiðslukeppni.
Gissur segir það gott framtak að
veitingastaðir séu farnir að bjóða
upp á sérstaka matseðla þrátt fyrir
að þeir séu ekki innan hátíðarinnar.
Það kosti ekkert aukalega og yfir-
leitt er nóg að gera á flestum veit-
ingastöðum þrátt fyrir að þeir séu
ekki með erlenda gestakokka.
Tilboð í tilefni Vetrarhátíðar
FORSVARSMENN Samtaka sunnlenskra sveit-
arfélaga kynntu í gær skýrslu og niðurstöður
nefndar um stóriðju á Suðurlandi en í henni kemur
fram einróma álit nefndarinnar um að Suðurland
uppfylli öll þau helstu skilyrði sem svæði fyrir
stóriðju þarf að uppfylla. Nefnd þessi var sett
saman í kjölfar fundar um möguleika Þorlákshafn-
ar sem haldinn var á vegum sveitarfélagsins Ölf-
uss og Atvinnuþróunarsjóðs haustið 2004 en meg-
inmarkmiðið var að koma Suðurlandi á kortið sem
raunhæfum valmöguleika til uppbyggingar orku-
freks iðnaðar ásamt því að kanna möguleika upp-
byggingar stórskipahafnar í Þorlákshöfn.
Stórskipahöfn mikilvæg
Kjartan Ólafsson, þingmaður Suðurkjördæmis
og formaður nefndarinnar, sagði að aðilar á Suð-
urlandi hefðu lengi haft áhuga á því að nýta þá
orku sem væri framleidd á svæðinu en um 70%
raforku landsins eru framleidd þar. Ljóst hefur
verið um skeið að hafnaraðstaðan á svæðinu væri
því til fyrirstöðu að uppbygging á orkufrekum iðn-
aði gæti orðið að veruleika. Því hefði nefndin gert
líkan af stórskipahöfn sem Siglingastofnun hefur
hannað og gera áætlanir ráð fyrir að höfnin kosti á
milli 4 og 5 milljarða króna.
Kjartan benti einnig á að nálægðin við orkuver-
in væri mikill kostur því að þá yrði orkutap mun
minna en þegar orkan væri flutt lengra að. Auk
þess sagði Kjartan að sveitarfélagið væri vel í
stakk búið til að taka á móti slíkri stóriðju. Það
hefði yfir að ráða miklu landsvæði fyrir verksmiðj-
ur sem og fyrir uppbyggingu á íbúðarsvæðum.
Einnig benti hann á að vinnuafl væri nægt í Ölfusi
og nærliggjandi sveitarfélögum. Stutt væri í alla
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og með tilkomu
Suðurstrandarvegar myndi leiðin til Keflavíkur-
flugvallar styttast til muna. Fram kom að með
stækkun hafnarinnar gæti hún reynst góður kost-
ur fyrir fragtflutninga en Faxaflóahafnir ráðgera
að byggja upp framtíðarsvæði sitt á Grundar-
tanga. Stytting siglingaleiðarinnar frá Evrópu
gæti reynst flutningsaðilum vel auk þess sem
möguleikar á ferjusiglingum á milli Þorlákshafnar
og Skotlands væru mjög spennandi. En ný stór-
skipahöfn yrði ekki byggð nema næg verkefni
yrðu til staðar og því væri leitað leiða til að laða að
starfsemi.
Spurður hvort ekki væri úr takti að kynna
svæðið sem fýsilegan kost fyrir stóriðju, þegar ný-
legar kannanir sýndu að meirihluti þjóðarinnar
væri á móti álverum sem og nokkrir af forsvars-
mönnum atvinnulífsins, sagði Kjartan að nefndin
hefði ekki rætt sérstaklega um álver sem slík
heldur orkufrekan iðnað og stóriðju og það hefði
ekki verið skilgreint nánar.
Því væri hvorki sveitarfélagið né Suðurland að
blanda sér í kapphlaup um álver, þó svo að vissu-
lega kæmi það til greina.
Segja Ölfus fýsilegan kost
fyrir orkufrekan iðnað
Morgunblaðið/RAX
Þeir kynntu skýrsluna, frá vinstri: Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, Kjartan Ólafsson, al-
þingismaður og formaður stóriðjunefndar, og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS.
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
ÆÐARDÚNN er sótthreinsaður við
yfir 100°C í langan tíma í hreins-
unarferlinu og því engin hætta á að
fuglaflensuveiran leynist í honum,
berist hún hingað til lands. Jónas
Helgason, formaður Æðarrækt-
arfélags Íslands, segir æðarbændur
lítið hafa rætt hættuna á fugla-
flensufaraldri í fuglum á Íslandi og
segir erfitt að spá fyrir um hvort
fuglaflensan gæti haft áhrif á sölu á
æðardúni.
„Í sjálfu sér er óskaplega lítið
sem við getum gert. Æðarfuglinn
er fuglastofn sem er staðbundinn
hér við land. Svo koma farfuglarnir
í vor en það er ekkert sem við get-
um gert. Þetta er hlutur sem nátt-
úran verður að sjá um.“
Æðardúnninn
sótthreinsaður
VERÐ á greiðslumarki mjólkur
hefur lækkað um 20% á síðustu átta
mánuðum þegar það var í hámarki.
Verðið lækkaði
mest í síðasta
mánuði eða um
8%.
Verð á mjólk-
urkvóta hækkaði
mjög mikið á síð-
asta verðlagsári,
fór úr 263 kr/l í
405 kr/l. Síðan hefur verðið verið
að þokast niður á við, mest þó í jan-
úar. Nú er kvótinn seldur á 323 kr/l
samkvæmt upplýsingum frá
Bændasamtökunum. Verðið er þó
enn hærra en það var fyrir einu ári
þegar kvóti kostaði 315 kr/l.
Viðskipti með kvóta eru heldur
meiri það sem af er þessu verðlags-
ári, sem hófst 1. september, en á
sama tíma í fyrra.
Verð á mjólkur-
kvóta lækkar