Morgunblaðið - 23.02.2006, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
HAGUR nemenda er ekki borinn
fyrir brjósti í ráðuneyti menntamála
þegar áformað er að skera heilt ár af
framhaldsskólanum, en hitt er ljóst
að hægt er að spara stórar fjárhæðir
með því að draga úr menntun og
skólarekstri. Miðað við fjárframlög
ríkisins nú nemur niðurskurðurinn
um 1,7 milljörðum króna á ári. „Þau
eru því ekki trúverðug orð ráðherra,
sem heldur því fram að niðurskurð-
urinn sé ekki sparnaðaraðgerð held-
ur til að stuðla að aukinni framlegð í
menntamálum hér á landi.“
Þetta sagði Ottó Elíasson sem
sæti á í stjórn Hugins, skólafélagi
Menntaskólans á Akureyri, á mót-
mælafundi á Ráðhústorgi í gær. Þeir
fengu storminn í fangið, MA-ingarn-
ir þegar þeir þustu úr tíma í gær-
morgun, allir sem einn og örkuðu
sem leið lá niður á torg.
Nemendur MA fella niður nám í
einn dag, mæta aftur í dag, fimmtu-
dag, eftir sólarhringsvinnustöðvun
og segja það í samræmi við áætlanir
um að skerða nám til stúdentsprófs
um 20%.
„Stytting náms til stúdentsprófs
er eitt en skerðing á námi, eins og
stefnt er að, er allt annað mál,“ sagði
Ottó. Hugmyndin væri einkum rök-
studd með samanburði við skóla-
kerfi í Danmörku og Svíþjóð, en
Ottó nefndi að mikil afföll væru í
námi í Svíþjóð, margir tækju langan
tíma til að ljúka því og eins að
sænskir atvinnurekendur hefðu beð-
ið ríkið um að mennta nemendur
betur áður en þeir kæmu út á vinnu-
markað. „Er það svona sem stjórn-
völd vilja fara með okkur, nemend-
ur, æsku landsins?,“ spurði Ottó og
kvað það staðreynd að íslenskir
stúdentar þættu almennt standa sig
vel í háskólanámi, heima og í útlönd-
um.
Hann sagði nemendur vilja vera
með í að þróa nýtt kerfi, þeir vildu
leggja sitt af mörkum svo það gæti
orðið sem best. „Skólinn er nú einu
sinni fyrir okkur og það erum við
sem erum að búa okkur undir frek-
ara nám. Við ætlumst til þess að það
sé hlustað á okkur og tekið mark á
orðum okkar,“ sagði hann ennfrem-
ur og bætti við að nemum þætti ráð-
herra virða sjónarmið þeirra að vett-
ugi. Fulltrúar ráðuneytis hefðu ekki
séð sér fært að hlýða á mál MA-
nema á fundinum, það bæri skeyt-
ingarleysi vitni, það að skoðunum
nema væri sýnd slík lítilsvirðing
væri til skammar í lýðræðisþjóð-
félagi.
MA-ingar mótmæla skerðingu náms til stúdentsprófs
Stytting náms er eitt,
skerðing á námi annað
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mótmæla Nemendur MA fjölmenntu á Ráðhústorg í gær til að mótmæla
áformum um skerðingu náms til stúdentsprófs.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Harðorður Ottó Elíasson, í stjórn
Hugins, skólafélags MA, flutti ávarp
og var harðorður: Nemendur vilja fá
að vera með í þróun nýs kerfis.
PLASTEYRI er heiti á nýju fyrir-
tæki sem Hrafn Stefánsson, Upphaf
ehf. og Tækifæri ehf. hafa stofnað en
mun hefja starfsemi á vordögum.
Um er að ræða nýja verksmiðju um
framleiðslu á plastumbúðum sem
verður til húsa við Þórsstíg 4. Fyrstu
afurðirnar verða frauðplastkassar
undir fiskútflutning og ýmiskonar
plastílát undir matvæli.
Bjarni Hafþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri Upphafs, sagði að um
væri að ræða fjárfestingu upp á 125
milljónir króna og áætlanir gerðu
ráð fyrir að veltan yrði á annað
hundrað milljónir króna á ári. „Von-
andi verður svo hagnaður af rekstr-
inum innan þriggja ára,“ sagði hann.
Upphaf mun eiga um helming í hinu
nýja félagi, Tækifæri um þriðjung og
Hrafn Stefánsson vélfræðingur, sem
verður framkvæmdastjóri, mun
einnig eiga hlut. Fyrstu tækin eru
þegar komin norður, en önnur vænt-
anleg á næstu vikum. Starfsmenn
verða í fyrstu 5–6 talsins, en með
tímanum er að sögn Bjarna Hafþórs
ætlunin að skjóta fleiri stoðum undir
reksturinn, bjóða upp á fleiri afurðir
á sviði plastframleiðslu og fjölga
störfum. Ýmis tækifæri væru í plast-
iðnaði og margar hugmyndir í gangi.
„Það er hlutfallslega ódýrara að
bæta við vörutegundum eftir að
framleiðslan er komin í gang.“
Hrafn sagði stofnun félagsins hafa
átt sér nokkurn aðdraganda, hann
hefði rætt við marga, m.a. forsvars-
menn stórra matvælaframleiðslufyr-
irtækja á Akureyri og það orðið til að
verkefninu var hrundið af stað. „Við-
brögðin hafa verið óvenju góð og það
er mjög gott að sjá þetta verða að
veruleika nú, þetta er spennandi,“
sagði Hrafn, en tækjabúnaður allur
er öflugur og dýr, enda yrðu vörurn-
ar að öðrum kosti ekki samkeppn-
ishæfar í verði og gæðum.
Framleiðir plastílát fyrir matvælaiðnað
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Nýtt fyrirtæki Nú á vordögum hefst starfsemi á vegum fyrirtækisins Plast-
eyrar, fyrstu afurðirnar verða frauðplastkassar og plastílát undir matvæli.
Guðmundur B. Guðmundsson, Helgi Aðalsteinsson, Bjarni Hafþór Helga-
son og Hrafn Stefánsson kynntu áformin en þeir eru í stjórn félagsins.
Gott að sjá þetta
verða að veruleika
VÍGÐIR voru 80 skátar í Skátafé-
lagið Kópa í Kópavogi á sunnudag-
inn síðasta. Að sögn félagsforingj-
ans, Þorvaldar Sigmarssonar, er
starfið mjög öflugt og í félaginu eru
starfandi um 300 skátar en Kópar
fögnuðu 60 ára afmæli sínu í gær.
Er 22. febrúar líka fæðingardagur
Sir Robert Baden-Powell, stofn-
anda skátahreyfingarinnar og voru
því hátíðarhöld um allan heim í
gær. Skátafélagið Kópar bauð vel-
unnurum sínum og bæjarbúum að
koma í hátíðarkaffi og fylgjast með
skátastarfinu, en ljósálfar, ylfingar,
skátar og dróttskátar sýndu hinar
ýmsu hliðar starfsins. Þorvaldur
segir skátafélagið Kópa eiga marga
velunnara og Kópavogsbær styðji
vel við bakið á félaginu. Þessi góði
stuðningur og hið nýja húsnæði
sem er á áberandi stað hefur ýtt
undir fjölgun í skátafélaginu. Nýja
húsnæðið var hannað sérstaklega
með starfsemina í huga en frá 1946
hefur skátafélagið verið í nokkrum
húsum sem hafa hentað misvel.
Foreldrafélag er ekki starfandi inn-
an skátafélagsins en samstarf hefur
alltaf verið mikið og koma for-
eldrar mikið að skátastarfi barna
sinna.
Að mati Þorvaldar á skátastarfið
fullt erindi til barna í dag og þau
gildi sem skátarnir standa fyrir.
Það er ákveðinn lífstíll að vera
skáti segir Þorvaldur og ein-
staklingarnir læra að rækta sjálfa
sig og gera heiminn betri heldur en
hann var þegar þeir komu í hann. Í
gegnum starfið læra skátarnir að
þekkja eigin getu og bera virðingu
fyrir náttúru og öðrum ein-
staklingum. Sú aukning sem hefur
orðið innan félagsins sýnir að
skátahugsjónin á upp á pallborðið
hjá ákveðnum hópi í þjóðfélaginu í
dag að mati Þorvaldar.
Ákveðinn lífsstíll að vera skáti
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölbreytt þjálfun Hluti af þjálfun skáta er að læra að fást við hin fjölbreytilegustu verkefni.
„VIÐ bjóðum til
veislu“ er yfir-
skrift Breiðholts-
hátíðar, sérlegrar
menningar- og
listahátíðar eldri
borgara, sem
hefst í dag og
stendur næstu
þrjá daga, en
þetta er í fyrsta
sinn sem hátíðin
er haldin. Hátíðin
er hluti af Vetr-
arhátíð Reykja-
víkurborgar sem stendur sömu
daga og haldin er í borginni í
fimmta sinn. Að sögn Guðrúnar
Jónsdóttur, forstöðukonu fé-
lagsstarfsins í Gerðubergi, er há-
tíðin haldin fyrir forgöngu þjón-
ustumiðstöðvar Breiðholts sem
tók til starfa 1. október sl. Segir
hún þjónustumiðstöðina vera líf-
æð fyrir hverfið og fagnar því
framtaki að hún skyldi taka til
starfa og standa fyrir hátíðinni.
Aðspurð segir Guðrún mark-
mið hátíðarinnar að skapa vett-
vang fyrir eldri borgara til að
koma saman, sýna verk sín, þ.e.
list, handverk, ritverk og íþróttir,
auk þess að ræða málefni eldri
borgara og skemmta sér saman.
Einnig sé mikið lagt upp úr því
að skapa vettvang fyrir hinar
ólíku kynslóðir til að hittast og
kynnast, en þess má geta að há-
tíðin er öllum opin. Dagskrá
hennar má nálgast á vef Reykja-
víkurborgar á Netinu sem hluta
af dagskrá Vetrarhátíðar, auk
þess sem kynningarbæklingur
um hátíðina var borinn í öll hús á
höfuðborgarsvæðinu í gær.
Boðið í kaffi í Þjóðleikhúsinu
Eldri borgurum úr Breiðholt-
inu var í gær boðið í Þjóðleik-
húsið, þar sem þeir drukku kaffi
og glöddust saman. Heimsóknin í
Þjóðleikhúsið er samstarfsverk-
efni forvarnardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík og Gerðu-
bergs, en hér má einmitt sjá Eið
Eiðsson, yfirmann forvarn-
ardeildar lögreglunnar, og Guð-
rúnu Jónsdóttur, forstöðukonu
félagsstarfsins í Gerðubergi,
heilsa nokkrum heldri gestum.
Þetta framtak lögreglunnar
mæltist afar vel fyrir og þáðu alls
hátt í 90 eldri borgarar boð henn-
ar um að kíkja í heimsókn í Þjóð-
leikhúsið. Með í för voru einnig
tveir fulltrúar yngri kynslóð-
arinnar, en í félagsstarfi aldraðra
í Gerðubergi er lögð talsverð
áhersla á að brúa kynslóðabilið
og skapa aðstæður þar sem ungir
og gamlir geta átt ánægjulegar
samverustundir. Segja má að
dagskrá Breiðholtshátíðar, sem
hefst í dag, beri þessa einmitt
glöggt merki.
Morgunblaðið/Júlíus
Kátt í Breiðholti