Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 30

Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR Heillandi. Vekjandi. Þaðeru orðin sem komafyrst upp í hugann þeg-ar horft er á Guyom og Sabah dansa, en þau verða sér- stakir gestir á árlegri dansveislu Kramhússins á Nasa í kvöld, sem er liður í Vetrarhátíð í Reykjavík. Þó þau séu vissulega á mjög ólíkum sviðum dansins, dansa þau bæði af mikilli ástríðu og þekkingu. Hennar sérsvið er magadansinn en hans er „house“-dans, sem er einhverskon- ar bræðingur af djass fönki, free- style, hipp hoppi og breikdansi. Dansinn kom með blóðinu Guyom kemur frá Frakklandi en hann er fæddur og uppalinn í Afr- íku. „Dans er mér í blóð borinn, ég byrjaði eiginlega að dansa í móð- urkviði. Heima í Afríku dansa flest- ir frá barnsaldri, það er partur af lífinu þar. Þegar ég var unglingur fór ég og afríski danshópurinn minn til Frakklands og við unnum þar stóra danskeppni og þá byrjaði dansferill minn fyrir alvöru. Ég hef sýnt dans um víða veröld síðan þá, ýmist með hópum eða einsamall,“ segir Guyom sem leggur mikið upp úr því að kynnast sem fjölbreytt- ustum danshefðum og ólíkum lönd- um og menningu, til að spinna inn í dansinn sinn. Dansar magadans í táskóm Magadansmærin Rachel Kuhr kemur frá Bandaríkjunum og notar listamannsnafnið Sabah vegna þess að þegar hún bjó í Egyptalandi þá gat enginn borið nafnið hennar rétt fram svo hún fékk þetta egypska nafn sem merkir dögun. „Ég hef dansað ballett frá því ég var pínu- lítil en þegar ég var átján ára meiddist ég og varð að taka mér hlé frá ballettinum. Þá fór ég að velta fyrir mér hverskonar dans ég gæti dansað sem reyndi ekki eins mikið á líkamann og magadansinn varð fyr- ir valinu. Ég sé ekki eftir því, enda er ég alveg heilluð af honum og ég fór í dansskóla í eitt ár til Egypta- lands til að læra magadans al- mennilega og þar komst ég í dans- hóp og fór með honum um heiminn og dansaði í allskonar sýningum. Ballettreynslan nýtist mér mjög vel og ég dansa stundum magadans í táskóm, sem er mín sérstaka út- færsla. Magadansinn er svo frábær að því leyti að það er hægt að spinna sjálfur og gera sínar eigin útfærslar.“ Gaman að kenna Íslendingum Þau eru bæði gestakennarar í Kramhúsinu um þessar mundir og eru sammála um að íslenskir dans- nemendur séu í uppáhaldi hjá þeim af því þeir séu svo opnir fyrir því að læra eitthvað nýtt og fljótir að til- einka sér sporin. „Íslendingar hafa góðan takt, eru einbeittir en líka svo afslappaðir og gaman að kenna þeim.“ Dansveislan á Nasa verður mikill suðupottur og fyrir utan maga- dansinn og housedansinn verður sýndur afródans, þjóðdansar frá Balkanskaga, bollywood og flamenco og að sýningu lokinni verður opið dansgólf. Guyom og Sabah verða sann- arlega þjóðnýtt á Vetrarhátíðinni því áður en þau sýna í dansveislunni munu þau dansa í gjörningnum mikla sem opnunaratriðið mun verða á Austurvelli og eins taka þau þátt í Þjóðhátíð Alþjóðahússins á sunnudag í Blómavalshúsinu.  VETRARHÁTÍÐ | Guyom og Sabah sveigja kroppinn í dansveislu á Nasa í kvöld Munúð mjaðma og fettur fóta Morgunblaðið/Ásdís Íslenskir dansnemendur eru í uppáhaldi því þeir eru opnir fyrir því að læra eitthvað nýtt. Dansveislan á Nasa hefst kl. 21 í kvöld. Þeir sem hafa áhuga á að læra eitthvað af Guyom og Sabah geta kynnt sér tíma hjá þeim á www.kramhusid.is Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is 8$6 )%   H I + #   H          C12DEFFF&C 450  (  5   05   .5   16  1772 42 #  & # 1#  -$ & $ 42    + 42#  7 $# A&J& I    K L# #%M :   5# $    (#  8 # *%  42   % &   A#N$ 0  ! #&3- & F  3- & N $ 8  $O #&  N $ A- -   F%   $O& -  8  #  ;D$0- 0 $0- :0-$  $ 8- ) % 8 - < $) 8$0  7 +# &  #% 0-  %  /AF!% 744$O0   #0  %   P(## ) % 5 #+  % ?    %(# &% 5# QL(  -  % E +  ) % <) )) + % % A0* % 2% +# % 4& %* % 8  & 6#%% +! % " +% ;#  L)).) #+ 8!3!78 8 <48 57; 49 5 ;4 59 <G; ;9 7G G9 <45 79 44 9; 8G G: 89 9: 7; G8 4;7 G58 <: 45 ;4 <9< 44 G; 4: 45 77 :7 <44 H:44 H478 <;9 G;7 9H4G8 )  <8: 57: 84 G ;8 G4 <G: :4 7: <4 <84 ;4 74 9: 8< G5 74 97 77 G4 4;7 G57 <5 4G ;8 <9 48 :< 45 4G 7; :; <G4 H<74 H478 <:4 G;; 9H:7                                                                                                                                KRÓNAN er með lægra verð en fram kom í verðkönnuninni sem birt- ist í Morgunblaðinu í gær. Karfan í Bónus kostar 10.517 krónur en ekki 4.277 krónur eins og kom fram í blaðinu í gær og í Krónunni 10.938 krónur en ekki 4.660 krónur. Vöru- karfan er því 3,8% ódýrari í Bónus en Krónunni en ekki 8,2%. Tvær skýringar eru á þessum mis- mun. Samtalan í lok töflunnar var ekki rétt og var því prósentumun- urinn á vörukörfunni rangur. Þá var ákveðið að taka út kanilsnúðana sem voru með í könnuninni í gær. Snúð- arnir sem fást í Krónunni og Bónus eru frá sama framleiðanda, Pagen, en pokarnir sem seldir eru nú í Krón- unni innihalda 40 g meira en í Bónus. Snúðarnir vega 260 g í Bónus og kosta 137 krónur en 300 g í Krónunni og kosta 199 krónur. Það hefur verið vinnuregla í verðkönnunum Morg- unblaðsins að taka einungis með vörur í matvörukörfuna sem eru af sömu stærð. Þessu til stuðnings má benda á að Filipo Berio ólífuolía fékkst t.d. í ólíkum stærðareiningum í verslununum þegar könnunin var gerð í fyrradag svo og morgunkornið Special K og voru þessar vörur fyrir bragðið þá ekki teknar með. Beðist er velvirðingar á mistökunum.  VERÐKÖNNUN Morgunblaðið/Ásdís gudbjorg@mbl.is Verðmunur á Bónus og Krónunni er 3,8% SÚKKULAÐI þykir mörgum mjög gott en það er þó ekki hollt frek- ar en önnur sætindi. Sumir réttlæta þó súkkulaðiát með því að það sé gott fyrir hjartað að því er sumar rannsóknir hafi sýnt fram á og þá réttlætingu ætlar nú súkkulaðiframleiðandinn Mars Inc. að gera að sinni, að því er m.a. kemur fram í Svenska Dagbladet. Fyrirtækið framleiðir samnefnt súkkulaði og einnig Snickers súkkulaðið, M&M kúlurnar, auk fleiri tegunda. Fyrirtækið hefur nú sett á markað „heilsusamlegt“ súkkulaði sem á að vera gott fyrir hjartað. Markhópurinn er neytendur sem hugsa um heilsuna en vörunum hefur verið tekið misjafnlega af vísindamönnum sem telja erfitt að sanna jákvæð áhrif súkkulaðis á heilsuna. Keppinautur Mars, Hershey, hefur einnig lagt áherslu á hollustu súkkulaðis og undirstrikar nú innihaldið í dökka súkkulaðinu sem fyrirtækið framleiðir, þ. á m. andoxunarefnin, en þau er reyndar einnig að finna í meira mæli í ávöxtum og grænmeti. Morgunblaðið/Ásdís Hæpin hollusta  HEILSA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.