Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 35
FIDE-meistarinn Róbert Harð-
arson (2.369) hlaut 6 vinninga í 9
skákum og hafnaði í 2. sæti í AM-
flokki á febrúarmótinu í First Sat-
urday-skákmótaröðinni í Búdapest.
Róbert tapaði ekki skák og lagði m.a.
sigurvegarann, FIDE-meistarann
Huynh Minh H Nguyen (2.217) frá
Vietnam, að velli. Víetnaminn fékk 7
v. og náði áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli.
Næstu menn voru:
3. Jules Moussard (2.117), FIDE-meistari
frá Frakklandi, með 5½ v.
4. Nick Adams (2.212, Bandaríkjunum), 5 v.
5. Bela Lengyel, alþjóðlegur meistari frá
Ungverjalandi, 4 ½ v.
Róbert var stigahæstur keppenda
og árangur hans var í samræmi við
stigin. Hann gerði of mörg jafntefli
að þessu sinni, til að áfangi að alþjóð-
legum titli næðist.
Firt Saturday-mótin eru haldin
mánaðarlega og hefjast á fyrsta
laugardegi hvers mánaðar, eins og
nafnið ber með sér. Þau er tefld í 5–6
flokkum, venjulega 10 skákmenn í
hverjum. Efsti flokkur kallast stór-
meistaraflokkur, síðan koma tveir
flokkar alþjóðlegra meistara og loks
2–3 flokkar FIDE-meistara.
Við skulum sjá vinningsskák Ró-
berts á móti sigurvegaranum.
Hvítt: Huynh Minh H Nguyen
Svart: Róbert Harðarson
Benköbragð
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5
a6 5. bxa6 g6 6. Rc3 Bxa6 7. g3 d6 8.
Bg2 Bg7 9. Rf3 Rfd7 10. 0–0 Rb6 11.
Dc2 R8d7 12. Hd1 0–0 13. Hb1 –
Önnur leið er 13. e4 Rc4 14. Rd2
Rxd2 15. Bxd2 Re5 16. Be1 Db6 17.
Hab1 c4 18. b4 cxb3 19. Dxb3 Da7 20.
a4 Bc4 og svartur hafði nægilegt
mótspil fyrir peðið, sem hann fórn-
aði, í skákinni, Burmakin-S. Kasp-
arov, 2003.
13. … Rc4 14. b3 Da5 15. Ra4!? –
Einfaldara virðist að leika 15. bxc4
Dxc3 16. Dxc3 Bxc3 17. Bh6 Hfb8 18.
Hxb8+ Hxb8 19. Hc1 Bb2 20. Hc2
Ba3, þótt svartur ætti að halda sínu í
því tilviki.
15. … Bb5 16. Rd2? –
Eftir þennan leik fær hvítur verra
tafl. Hann hefði átt að leika 16. a3,
t.d. 16. … Hfb8 17. Bh3 Da6 18. Rc3
Rxa3 19. Bxa3 Bxc3 20. Dxc3 Dxa3
21. Ha1 Db4 22. Dxb4 cxb4 23. Rd4
Hxa1 24. Hxa1 Rc5 25. Ha7 og hvítur
er með virkari og betri stöðu.
16. … Rcb6 17. Rxb6 Rxb6 18. a4
Bxe2 19. He1 Da6 20. Rc4 –
Enn verra er að leika 20. Bf1 Bxf1
21. Rxf1 Rxd5 og yfir hvíti vofa hót-
anirnar 22. … Rb4 og 22. … Rd3.
20. … Bxc4 21. bxc4 Dxc4 22.
Dxc4 Rxc4 23. Hxe7 Hxa4 24. Bf4
Re5 25. Hb6 Ha1+ 26. Bf1 g5 27.
Be3 Rc4 28. Hc6 Rxe3 29. Hxe3 –
Betra er 29. fxe3, þótt hvíta staðan
sé ekki beint skemmtileg, eftir 29. …
Be5 30. Hcc7 Ha3 o.s.frv.
29. … Bd4 30. He4 Hb8 31. Kg2
Hb2 32. Be2? –
Hvítur leikur af sér í erfiðri stöðu.
Eftir 32. He2 Hbb1 33. He8+ Kg7
34. Be2 Hb2 35. Hxd6 He1 36. Bb5
Bxf2 37. Hxe1 Bxe1+ 38. Kf1 Bxg3
39. hxg3 Hxb5 á svartur unnið enda-
tafl.
32. … He1 33. Kf3 –
Styttir þjáningar hvíts í tapaðri
stöðu. Lengri leiðin er 33. Hc8+ Kg7
34. Hce8 Be5 35. Bf3 Hxe4 36. Bxe4
Bd4, ásamt 37. … Hxf2 og hvítur á
tveimur peðum minna.
33. … Hbxe2! 34. Hxe2 g4+ 35.
Kxg4 Hxe2
og hvítur gafst upp.
Hjörvar Steinn Grétarsson
Norðurlandameistari
í skólaskák
Hjörvar Steinn Grétarsson varð
um helgina Norðurlandameistari í
skólaskák í d-flokki (keppendur
fæddir 1993–94), vinningi fyrir ofan
næsta mann. Með þessari glæsilegu
útkomu bætir Hjörvar við enn einum
sigrinum, en hann hefur verið mjög
sigursæll að undanförnu, m.a. er
hann sá yngsti, sem nokkru sinni
hefur tryggt sér þátttökurétt í lands-
liðsflokki á Skákþingi Íslands. Þetta
er í annað sinn, sem Hjörvar verður
Norðurlandameistari í skólaskák,
auk þess sem hann hefur orðið Norð-
urlandameistari með sveit Rima-
skóla í keppni barnaskólasveita.
Úrslitin urðu þessi:
A-flokkur (keppendur fæddir
1986–88):
Norðurlandameistari varð Svíinn
Kezli Ong (2.275).
Guðmundur Kjartansson (2.287)
hlaut 3 vinninga og hafnaði í 6.–8.
sæti.
Dagur Arngrímsson (2.298) hlaut
2½ vinning og hafnaði í 9.–10. sæti.
B-flokkur (1989–90):
Norðurlandameistari varð Fær-
eyingurinn Helgi Dam Ziska (2.286).
Atli Freyr Kristjánsson (1.922) og
Gylfi Davíðsson (1.595) fengu 1½ v.
og höfnuðu í 12.–14. sæti.
C-flokkur (1991–92):
Norðurlandameistari varð Daninn
Alexei Cherstiouk Hansen (2.064).
Sverrir Þorgeirsson (1.954) hlaut
2½ v. og varð í 8.–11. sæti.
Vilhjálmur Pálmason (1.735) fékk
2 v. í 12. sæti.
D-flokkur (1993–94):
Norðurlandameistari varð Hjörv-
ar Steinn Grétarsson (2.046), með 5
v.
Svanberg Már Pálsson (1.720)
hafnaði í 2.–4. sæti, með 4 v.
E-flokkur (1995–):
Norðurlandameistari varð Daninn
Mads Andersen (1.646).
Dagur Andri Friðgeirsson (1.435)
fékk 4 v. í 2.–5. sæti.
Friðrik Þjálfi Stefánsson hlaut 3½
v. í 6. sæti.
Niðurstaðan varð sú, að Danir
fengu 2 Norðalandameistaratitla. Ís-
lendingar, Svíar og Færeyingar einn
hver.
Þröstur og Helgi Áss á
alþjóðlegu móti í Cannes
Stórmeistararnir Þröstur Þór-
hallsson (2.455) og Helgi Áss Grét-
arsson (2.480), tóku þátt í opnu al-
þjóðlegu skákmóti í Cannes í
Frakklandi, sem lauk um síðustu
helgi. Þeir hlutu 5½ vinning hvor, af
9 mögulegum, og höfnuðu í 22.–34.
sæti af 126 keppendum.
Alþjóðlegi meistarinn Fabien Lib-
iszewski (2.467), Frakklandi, og kró-
atísku stórmeistararnir Robert Zel-
cic (2.514) og Mladen Palac (2.561),
svo og georgíski stórmeistarinn
Mikheil Kekelidze (2.516), urðu jafn-
ir í efsta sæti, með 7 vinninga.
Hannes Hlífar tefldi á
Aeroflot-skákmótinu í Moskvu
Stórmeistarinn Hannes Hlífar
Stefánsson (2.585) hafnaði í 58.–70.
sæti, með 4 v. af 9 mögulegum, á
hinu geysisterka alþjóðamóti Aero-
flot í Moskvu.
Efstir og jafnir urðu stórmeistar-
arnir Baadur Jobava (2.614,
Georgíu) og Viktor Bologan (2.661,
Moldavíu), Krishnan Sasikiran
(2.670, Indlandi) og Shakhriyar
Mamedyarov (2.709, Azerbasjan),
með 6,5 vinninga.
Aeroflot-mótið er sterkasta opna
skákmót ársins, þar sem 93 kepp-
endur kepptu í efsta flokki og voru
langflestir þeirra stórmeistarar.
Hannes Hlífar var númer 54 í röð
keppenda, miðað við stig.
Róbert Harðarson í 2. sæti í Búdapest
SKÁK
„First Saturday“-skákmótaröð
4.–12. febrúar 2006
BÚDAPEST, UNGVERJALANDI
Bragi Kristjánsson
BRIDSHÁTÍÐ lauk sl. sunnu-
dagskvöld með sigri dansk/ís-
lenskrar sveitar í 70-sveita keppni.
Aldrei sem nú í 26 ára sögu
Bridshátíðar hefir útkoma erlendra
þátttakenda verið jafn rýr og ekki
síst í sveitakeppninni. Sigursveitin
kallaði sig Joung Guns og spiluðu
Ómar Olgeirsson, Ísak Örn Sig-
urðsson, Stefán Jónsson og Dan-
irnir Sejr Andreas Jensen og
Kasper Konow í téðri sveit. Hún
hlaut 204 stig, vann 8 leiki, tapaði
tveimur 10–20 og 14–16.
Í öðru sæti varð sveit Vinabæjar
með 201 stig en fyrir síðustu um-
ferðina voru þetta einu sveitirnar
sem áttu möguleika á sigri í
mótinu. Í sveit Vinabæjar spiluðu
Sigtryggur Sigurðsson, Runólfur
Jónsson, Páll Valdimarsson, Ragn-
ar Magnússon, Hermann Lárusson
og Þröstur Ingimarsson. Í þriðja
sæti varð svo sveit Garða og véla
ehf. með Símon Símonarson í far-
arbroddi en með honum spiluðu
Rúnar Magnússon, Friðjón Þór-
hallsson og Sigfús Örn Árnason.
Pólsku landsliðsmennirnir urðu
að sætta sig við 4. sætið og banda-
ríska sveitin sem Hjördís Eyþórs-
dóttir stýrði varð í fimmta sæti.
Síðan komu sex íslenskar sveitir
áður en ensk sveit Janet de Botton
komst á blað þ.e. í 12. sæti og til að
ljúka við umfjöllun um sveita-
keppnina er vert að geta þess að
sveit Baldurs Bjartmarssonar varð
í 13. sæti sem er besti árangur
Baldurs sem leitt hefir sveit á
Bridshátíð trúlega frá upphafi
vega.
Í stjörnutvímenningnum og opna
tvímenningnum báru Jón Baldurs-
son og Þorlákur Jónsson höfuð og
herðar yfir andstæðinga sína og
sigruðu með yfirburðum í báðum
keppnunum. Í opna tvímenningnum
urðu Gregers Bjarnason og Mich-
ael Askgaard í öðru sæti en bræð-
urnir Birkir og Steinar Jónssynir
kenndir við Siglufjörð urðu í þriðja
sæti. Eitt sterkasta par Bandaríkj-
anna Brad Moss og Fred Gitelman,
urðu að sætta sig við fjórða sætið
en þetta eru atvinnumenn í brids
og spila í sveit sem m.a. varð í
þriðja sæti á Bermuda Bowl. Erik
Sælensminde og Andrew McIntosh
urðu í fimmta sæti og Erla Sig-
urjónsdóttir og Sigfús Þórðarson í
því sjötta sem er þeirra albesti ár-
angur í tvímenningnum. Vert er
einnig að geta góðvinanna Sigurðar
B. Þorsteinssonar og Gylfa Bald-
urssonar sem urðu í áttunda sæti
en slæm meinloka í síðasta spili
skaut þeim niður í áttunda sæti.
Á Bridshátíð nú var boðið upp á
nýstárlegan útreikning. Fred Gitel-
man sem endaði í fjórða sæti í tví-
menningnum er Kanadamaður og
spilaði á árum áður í kanadíska
landsliðinu er hvað þekktastur fyrir
að búa til forritið Bridge Base sem
notað var á hátíðinni og sannaði
þar ágæti sitt svo mörgum þótti
meira en nóg um. Bridssambandið
fékk tækin og forritið að láni hjá
SWAN Games Company með kaup-
réttarákvæði og komu erlendir að-
ilar gagngert til að setja það upp,
kenna á það og stjórna því. Tækin
virka þannig að lítil box eru á
hverju borði sem eru fjartengd við
móðurtölvuna. Tækin eru svipuð að
stærð og útliti og VISA notar til að
strjúka kortin okkar. Í lok hvers
spils eru úrslitin slegin inn og þá er
allir hafa skráð sitt spil liggja úr-
slitin fyrir. Þetta er jafnvel enn
magnaðra í sveitakeppninni því þá
er hægt að fylgjast með stöðu í öll-
um leikjunum 70 samtímis og sjá
stöðuna í hverjum leik fyrir sig.
Eins og áður sagði þótti mörgum
nóg um og gamla góða biðstaðan
þar sem beðið var eftir síðustu töl-
um er ekki lengur til staðar.
Mótið var í alla staði skemmti-
legt. Erlendu keppendurnir hældu
Íslendingum í mótslok fyrir gott
skipulag og drengilega keppni. Ein-
hver hafði á orði að þetta væri best
skipulagða mót sem hann hefði sótt
og hefði hann víða farið en það er
best að enda þessa umfjöllun á svo-
litlu karlagrobbi fyrir hönd okkar
manna og hvetja Bridssambandið
til að reyna að finna einhverja
sterkari andstæðinga fyrir okkur
til keppni á næstu Bridshátíð!
Að lokinni
Bridshátíð
Sveit Vinabæjar endaði í öðru sæti í sveitakeppninni eftir hörkukeppni.
F.v. Þröstur Ingimarsson, Sigtryggur Sigurðsson, Hermann Lárusson,
Ragnar Magnússon, Runólfur Jónsson og Þröstur Ingimarsson.
Bræðurnir Birkir og Steinar Jónssynir náðu frábærum árangri í opna
tvímenningnum.
BRIDS
Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Arnór
Góður árangur Sigfúsar Þórðarsonar og Erlu Sigurjónsdóttur vakti
athygli í tvímenningnum.
Gullsmárabrids
Fimmtud. 9. febr. 15 borð. Miðl-
ungur 264. Efst vóru í NS
Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 320
Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 317
Oddur Jónsson - Katarínus Jónsson 287
AV
Kristín Óskarsd. - Gróa Þorgeirsd. 354
Páll Guðmundsson - Sigurst. Hjaltested 331
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 306
Mánud. 13. febr. var spilað á 13
borðum.Miðlungurinn var 264 og
efstu pör í NS urðu þessi:
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 346
Krstinn Guðmundss - Guðm. Pálsson 312
Þorsteinn Laufdal - Tómas Sigurðsson 297
AV
Sigtryggur Ellertss - Ari Þórðarson 302
Filip Höskuldsson - Páll Guðmss. 301
Oddur Jónsson - Sigurst. Hjaltested 291
Fimmtud. 16. febr. var spilað á 12
borðum. Miðlungurinn var að þessu
siinni 220 og efstu pörin í NS:
Elís Kristánsson - Páll Ólason 276
Sigtryggur Ellertss - Ari Þórðarson 245
Björn Bjarnason - Sigríður Gunnarsd. 235
AV
Jón Stefánsson - Eysteinn Einarsson 286
Oddur Jónsson - Sigursteinn Hjaltested 263
Aðalbj.Benediktss - Leifur Jóhanness. 258
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Spilað var á 11 borðum föstudag-
inn 17 febrúar.
Meðalskor var 216. Úrslit urðu
þessi í N/S
Ægir Ferdinands. – Pétur Antonss. 288
Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 241
Björn Björnsson – Sigríður Gunnarsd. 235
Alfreð Kristjánss. – Magnús Halldórss. 231
A/V
Þorvarður S. Guðmss. – Jón Sævaldss. 289
Anton Jónsson – Einar Sveinsson 248
Guðm. Bjarnason – Jón Ól. Bjarnason 245
Sófus Berthelsen – Haukur Guðmss. 245
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 20.2.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig. Árangur N-S
Sæmundur Björnss. - Birgir Sigurðss. 249
Magnús Oddsson - Gísli Hafliðason 247
Ragnar Björnss.- Guðjón Kristjánss. 243
Árangur A-V
Ríkharður Pálsson - Pétur Antonsson 240
Eiríkur Eiríkss. - Skarphéðinn Lýðsson 236
Kristján Jónsson - Alfreð Kristjánsson 232
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson