Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
mynd eftir
steven spielberg
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
S.V. Mbl.
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand
sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2 H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
Frábær og
kraftmikil mynd
S.K. DV
H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
S.K. DV
HANN VANN HUG OG HJÖRTU KVENNA
EN HÚN STAL HJARTANU HANS.
Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.
Í BANDA-
OG ÓSTÖÐVANDI
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley),
bestu listrænu leikstjórn og tónlist.4H.J. Mbl.
L.I.N. topp5.is
Sýnd með íslensku tali.
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
M.M. J. Kvikmyndir.com
FREISTINGAR GETA REYNST DÝRKEYPTAR
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
S.V. Mbl.
L.I.B. Topp5.is
kvikmyndir.is
Ó.Ö. DV
L.I.B. Topp5.is
Casanova kl. 6 og 9
Munich kl. 5:50 og 9 b.i. 16 ára
North Country kl. 6 og 9 b.i. 12 ára
Pride & Prejudice kl. 6
Caché - Falinn kl. 9 b.i. 16 ára
Clive
Owen
Jennifer
Aniston
Vincent
Cassel
F R U M S Ý N I N GHAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is
STÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS
F R U M S Ý N I N G
V.J.V. Topp5.is
V.J.V. Topp5.is
STEFÁN Ólafsson hefur gengið undir ýmsum nöfnum frá
því hann fór að fást við tónlist, þeirra þekktust sjálfsagt
Mezzíaz og í seinni tíð Steve Sampling, en hann sendi frá
sér fyrstu plötuna undir því nafni fyrir stuttu, The Dawn
is Your Enemy.
Stefán segist vera búinn að vinna í disknum síðasta árið,
en elstu lögin á honum séu kannski tveggja ára gömul.
„Ég raðaði honum saman í nóvember sl., ákvað þá að láta
verða af því að gefa hann út og hef verið að mixa músíkina
og safna pening til að geta gefið diskinn út.“
The Dawn is Your Enemy gefur góða mynd af því sem
Stefán er að fást við í dag, sýnir hvert stíllinn hefur
þróast, er eins konar nafnspjald. „Þetta er það sem mér
líður best í eins og er, ég hef minnkað rappið, en á plöt-
unni sýni ég á mér tvær hliðar, annars vegar hiphop og
hinsvegar house,“ segir Stefán og bætir við að hann sé
ekki beinlínis að færast nær house-tónlist en óneitanlega
séu þessar stefnur tvær, hiphop og house, náskyldar. „Þess-
ar stefnur koma báðar úr fönkinu og house verður til í
Chicago á sama tíma og hiphop verður til í New York.“
Platan er rétt komin út en Stefán er þegar byrjaður á
nýrri, sem verður nokkuð frábrugðin að því hann segir,
meiri rödd á henni. „Ég er að vinna músík með rappara
sem kallar sig Illa leikinn og svo er með okkur amerískur
gæi.“
Mikið líf er í hiphopinu en menn fara nýstárlegar leiðir,
blanda saman noise og hiphopi eða rokki eða house. Stefán
segir að það sé einmitt gaman að því hve mikið sé í gangi,
hve margir séu að fást við hiphop og hvernig það sé að
renna saman við ólíkar tegundir af tónlist. Hann hefur nóg
fyrir stafni við spilamennsku, spilar í hverri viku. Disk-
urinn, sem gefinn er út í takmörkuðu upplagi til að byrja
með í það minnsta, verður seldur í Brimi, Kaffi Hljómalind,
Smekkleysubúðinni og Nakta apanum.
Tónlist | Steve Sampling kveður sér hljóðs
Sýnir á sér tvær hliðar
Morgunblaðið/ÞÖK
Stefán Ólafsson sem kallar sig Steve Sampling.
HárgreiðslustofanSalon Veh hannaríslenskar línur
tvisvar á ári, bæði fyrir
vor og haust, og hefur ný-
verið sent út nýjustu vor-
línuna til erlendra fag-
blaða. Morgunblaðið fékk
að skoða þessar myndir
sem gefa góða hugmynd
um hvernig hártískan er
að þróast.
Teymi Salon
Veh var í
þetta sinn
Birgir Örn
Birgisson og
Alda Lár-
usdóttir ásamt
eiganda stof-
unnar, Elsu
Haralds-
dóttur.
Myndirnar
tala sínu máli
en í nýju vor-
línunni er
áherslan í
klippingu hjá
Bigga á
hnakkasvæðið með léttum styttum en með frjálsa
lengd í útlínu. Toppurinn er þungur en samt
klipptur í styttur. Hjá Öldu er áhersla á hreyf-
ingu og misstórar og óreglulegar krullur með
slétta fleti á milli.
Fagfólk kom að allri vinnu í kringum mynd-
irnar en María Guðmundsdóttir var ljósmyndari,
Edda Guðmundsdóttir frá New York var stílisti
og Maríanna Pálsdóttir sá um förðun.
Hártíska | Vor- og sumarlínan frá Salon Veh
Léttar styttur
og frjáls lengd
Ljósmynd/María Guðmundsdóttir