Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 29
Stóra svið
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 4/3 kl. 14 UPPS. Su 5/3 kl. 14 UPPS.
Lau 11/3 kl. 14 Su 12/3 kl. 14 UPPS
Lau 18/3 kl 14 Su 19/3 kl. 20
CARMEN
Fö 3/3 kl. 20 Lau 4/3 kl. 20
Lau 11/3 kl. 20 Lau 18/3 kl. 20
Lau 25/3 kl. 20
TALAÐU VIÐ MIG -ÍD-
Su 5/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20
Su 19/3 kl. 20 Su 26/3 kl. 20
WOYZECK
Þr 28/2 kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT
AUKASÝNINGAR:
Su 12/3 kl. 20 Fi 23/3 kl. 20 .
PÍKUSÖGUR
Mi 1/3 kl. 20 Í tilefni af V-DEGINUM flytja
þingkonur þetta þekkta verk Eve Ensler
Nýja svið / Litla svið
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 4/3 kl. 20 Su 5/3 kl. 20
Fö 10/3 kl. 20 Lau 11/3 kl. 20 UPPS.
Su 12/3 kl. 20 Lau 18/3 kl. 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 2/3 kl. 20 Fö 3/3 kl. 20 UPPS.
Mi 8/3 kl. 20 Fi 9/3 kl. 20
Mi 15/3 kl. 20 Fi 16/3 kl. 20
HUNGUR
Lau 4/3 kl. 20 Mi 8/3 kl. 20
Fö 10/3 kl. 20 Fi 16/3 kl. 20
NAGLINN
Fi 2/3 kl. 20 Fö 3/3 kl. 20 UPPSELT
Lau 11/3 kl. 20 Su 12/3 kl. 20 UPPSELT
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Mi 1/3 kl. 20 Fö 17/3 kl. 20
SAKAMÁL Á SVIÐ
Þr 28/2 kl. 20 umræðufundur um íslensk
sakamál í forsal Borgarleikhússins
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Miðasalan opin virka
daga kl. 13-17 og frá
kl. 15 á laugardögum.
Miðasala opin allan
sólarhringinn á netinu.
Maríubjallan - sýnt í Rýminu
Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas - UPPSELT
Fös. 3. mars kl. 19 7.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 19 8.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 22 AUKASÝNING - Nokkur sæti laus
Fös. 10. mars kl. 19 9.kortas - UPPSELT
Lau. 11. mars kl. 19 Nokkur sæti laus
17/3, 18/3
Litla hryllingsbúðin - Frums 24. mars.
Frábært forsölutilboð: Geisladiskur fylgir með í forsölu.
Forsala hefst 27. feb. – fyrstir koma –fyrstir fá.
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 24. febrúar -
Laugardagur 25. febrúar -
Föstudagur 3. mars -
Föstudagur 10. mars -
Föstudagur 17. mars -
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Laus sæti
Laus sæti
Miðasala í síma 575 1550,
verslunum Skífunnar og www.midi.is
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI
7. sýn. 3. fös. 3. mars kl 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
8 . sýn. sun. 5. mars kl. 15 - KYNNING KL 14.15 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
9. sýn. fös. 10. mars kl. 20 - 10. sýn. lau. 11. mars kl. 20 - LOKASÝNING
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
KYNNING FYRIR SÝNINGU
Kynning á verkinu og uppsetningu þess er í boði Vinafélags Íslensku óperunnar
hefst kl.19.15 og er innifalin í miðaverði. Húsið opnar kl. 19.00
FÖS. 3. MAR. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖS. 10. MAR. kl. 20
LAU. 18. MAR. kl. 20
SÝNINGUM LÝKUR Í MARS!
ÞRI. 28. FEB. kl. 9 UPPSELT
MÁN. 06. MAR. kl. 9 UPPSELT
ÞRI. 07. MAR. kl. 9 UPPSELT
MIÐ. 08. MAR. kl. 9 UPPSELT
HVAÐ EF
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
www.performer.is
SÚRT og sætt fjallar á kómískan
máta um klisjur í kynjaskiptingu
karla og kvenna og eru samkvæm-
isdansar viðfangsefnið. Verkið hófst
á löturhægum dansi sex para við Big
Band tónlist. Kvendansararnir voru
klæddir í bleika stutta kjóla skreytta
pallíettum og karldansararnir í svart-
ar buxur og hvítar skyrtur. Búið var
að opna rými uppsviðs og með lýs-
ingu mynduðust einskonar dreglar
frá lofti til gólfs. Sviðið var því í lík-
ingu við glæsileg salarkynni. Döm-
urnar dönsuðu „dömulegan“ dans og
mösuðu þess á milli og strákarnir
„herralegan“ dans með viðeigandi
einvígi í lokin. Stutt sóló, einskonar
dúkkudans í fallegum bleikum dúl-
lukjól var dansað og í því settist
kvendansarinn niður, beið eftir prins-
inum og spáði í hvort hann elskaði
hana eða ekki. Reykur var á sviðinu
og gerði hann andrúmsloftið draum-
kennt, stundum veruleikafirrt þegar
sumar kynjaklisjurnar bar fyrir
augu. Dansgerðin var einföld og end-
urtekin. Hreyfingarnar ýktar, kóm-
ískar og í grófari kantinum. Það er
erfitt annað en að láta sér dansverkið
falla í geð. Það er létt og skemmti-
legt, þar sem tónlist, dans og bún-
ingar að ógleymdri lýsingunni mynd-
uðu áhorfsvæna heild. Kvendansar-
arnir á sýningunni voru að þessu
sinni svipaðir að stærð og gerð en
margir dansaranna voru nýir af nál-
inni og mis-reynslumiklir. Tímasetn-
ing í hópatriðunum var á köflum óná-
kvæm en það tekur tíma að hlusta sig
inn á meðdansara. Eitthvað sem
kemur með meiri reynslu. Einnig
vantaði nokkuð upp á dýpt og fágun í
hreyfingum hjá yngstu dönsurunum.
Annars var þetta bráðskemmtilegt
dansverk sem ánægðir áhorfendur í
hléi hrósuðu óspart.
Danshöfundinn Rui Horta þarf
vart að kynna. Hann hefur und-
anfarið verið tíður gestur á verk-
efnaskrá ÍD. Dansverkið Gleðilegt ár
fjallar um þrá eftir gleði í lífinu. Gleði
sem getur uppfyllt þarfir og vænt-
ingar og síðast en ekki síst gleði sem
veitir hugarró. Það hófst á sólódansi
Katrínar Ingvadóttur þar sem hún
hreyfði sig með ímyndaðar byssur
skjótandi út í loftið. Dansinn var
brotinn upp á skondinn hátt og áhorf-
andanum kippt inn í raunveruleikann
á nýjan leik. Dansararnir birtust
svartklæddir á sviðinu og hreyfðu sig
undir harkalegri tónlist Yens+Yens.
Verkið var brotið upp með eintals-
kafla sem Guðmundur Elías Knud-
sen fór með. Hann þuldi upp einfald-
ar kröfur til að öðlast frið og ró.
Færðist í aukana og missti stjórnina
en upp úr spannst rólegur kafli sem
byggðist á snertingu dansaður af öll-
um í kös.
Katrín Ingvadóttir hóf verkið af
öryggi og það er ljóst að á ferð er fág-
aður dansari með reynslu. Steve Lor-
enz hefur mjög góða hreyfigetu og
greip alltaf augað. Yngri dansararnir
fóru léttar með hreyfingarnar í þessu
verki en því fyrra. Dansgerðin hent-
aði þeim vel. Athyglisverður var sóló-
dans um miðbik verksins dansaður af
einum af yngri kvendönsurunum.
Lofandi dansari þar. Eintalið var
snjallt í útfærslu og kaflinn sem á eft-
ir fylgdi vel lukkaður. Sér í lagi þar
sem haldið er fyrir munninn og síðar
slegist á hægasta hraða. Lýsingin,
örmjó að ofan, fyllti sviðið af kringl-
óttum flötum sem settu sterkan svip
á verkið. Bæði dansverkin eiga það
sameiginlegt að vera flott og fyndin.
Þau eru létt áhorfs og auðskilin.
Þetta er sýning sem áhugafólk um
danslist ætti að sjá.
Fyndið og flott
Lilja Ívarsdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
„Bæði dansverkin eiga það sameiginlegt að vera flott og fyndin. Þau eru
létt áhorfs og auðskilin [...] sýning sem áhugafólk um danslist ætti að sjá.“
DANS
Íslenski dansflokkurinn
Súrt og sætt eftir Didy Veldman. Sviðs-
mynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir.
Lýsing: Lárus Björnsson. Leikmunasmíði:
Egill Ingibergsson. Aðstoð við danshöf-
und: Ólöf G. Söebech. Dansarar: Aðal-
heiður Halldórsdóttir, Brad John Sykes,
Emilía Benedikta Gísladóttir, Guðmundur
Elías Knudsen, Guðrún Óskarsdóttir,
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Itamar Senussi
Sahar, Jesús de Vega, Katrín Ingvadóttir,
Peter Anderson, Steve Lorenz, Valgerður
Runólfsdóttir. Tónlist: Balanescu Quar-
tet: Lullaby Dream, Ethos Percussion
Group: Apple Blossom, Lerner/Loewe: I
could have danced all night, Manning/
Marchetti: Waltz Fascination, Foxtrot:
They say it́s wonderful, Foxtrot: The lady
is a tramp, Faniciulla/Misa: Cha Cha
Gua Gilone.
Gleðilegt ár eftir Rui Horta. Sviðsmynd:
Rui Horta. Búningar og leikmunir: Elín
Edda Árnadóttir. Ljósahönnun: Rui Horta.
Aðstoð við sviðs og ljósahönnun: Bene-
dikt Axelsson. Aðstoð við danshöfund:
Ólöf G. Söebech. Dansarar: Aðalheiður
Halldórsdóttir/Hjördís Lilja Örnólfsdóttir,
Emilía Benedikta Gísladóttir, Guðmundur
Elías Knudsen, Jesús de Vega, Katrín
Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir/
Valgerður Rúnarsdóttr, Peter Aderson,
Steve Lorenz. Tónlist: Dead Combo, Yen-
s+Yens, Tiago Cerqueira, Victor Joa-
quim, Aphex Twin.
Föstudagur 24. febrúar.
Borgarleikhúsið
Fréttir í
tölvupósti
ÞRIÐJA bindi
Landfræðissögu
Íslands eftir Þor-
vald Thoroddsen
er nýlega komið
út.
Landfræðis-
saga Íslands er
vísinda- og rann-
sóknasaga Ís-
lands frá örófi alda til loka 19. aldar
auk þess að fjalla um ýmsa aðra
þætti íslenskrar menningarsögu. Í
þessu bindi greinir frá seinni hluta
18. aldar fram undir 1850. Þorvaldur
fjallar fyrst um framfarahugmyndir Ís-
lendinga og almennt um stöðu vís-
indanna á Vesturlöndum í kjölfar
frönsku byltingarinnar. Svo víkur sög-
unni að Eggerti Ólafssyni og Bjarna
Pálssyni og sagt er frá ævi þeirra og
störfum.
Ítarlega er sagt frá Sveini Pálssyni
lækni og rannsóknum hans, löngu áð-
ur en frásagnir hans og hugmyndir
birtust á prenti.
Verkið kemur nú út í nýrri og mynd-
skreyttri útgáfu, en upphaflega kom
það út hjá Hinu íslenska bókmennta-
félagi á árunum 1892–1904.
Bókin er 256 bls. í stóru broti. Verð
6.840 kr. Kápu- og útlitshönnun ann-
aðist Auglýsingastofa Skaparans. Út-
gefandi er Ormstunga.
Nýjar bækur