Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 7
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
5
3
9
6 til sjö
Nýr þáttur um lífið frá A til Ö í umsjón
Guðrúnar Gunnarsdóttur og Felix Bergssonar.
Alla virka daga milli 6 og sjö.
6til sjö
FORSETI Al-
þingis, Sólveig
Pétursdóttir,
sækir í dag fund
kvenþingforseta
sem Alþjóðaþing-
mannasambandið
skipuleggur í
tengslum við 50.
fund kvenna-
nefndar Samein-
uðu þjóðanna í
New York.
Á fundinum verður rætt almennt
um stöðu kvenna í stjórnmálum og
hugsanlegar aðgerðir til að auka
þátttöku þeirra. Þingforsetarnir
munu jafnframt ræða áherslur sínar í
starfi og skiptast á hugmyndum um
hvernig breyta megi starfsháttum
þinganna og innleiða ný vinnubrögð
sem stuðla að auknu jafnrétti
kynjanna.
Alþjóðaþingmannasambandið
heldur jafnframt þingmannafund 1.
mars í New York. Fundurinn ber
heitið „Jafnrétti kynjanna – framlag
þjóðþinga“. Auk forseta Alþingis
munu Ásta Möller, formaður Íslands-
deildar Alþjóðaþingmannasambands-
ins og þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og Jóhanna Sigurðardóttir, 4.
varaforseti Alþingis og alþingis-
maður Samfylkingar, sitja fundinn.
Forseti Alþingis sækir fund
kvenþingforseta í New York
Sólveig
Pétursdóttir
FLUGVÉL frá ungverska flug-
félaginu Wizzair lenti á Egilsstaða-
flugvelli um helgina. Þetta er í
fyrsta skipti sem flugvél frá þessu
flugfélagi lendir á Íslandi. Wizzair
flýgur vikulega í leiguflugi fyrir
Bechtel, næstu 60 vikur, milli Kato-
wice í Póllandi og Egilsstaða. Bech-
tel sér um byggingu álvers Alcoa á
Reyðarfirði, en fjöldi Pólverja
starfar við byggingu álversins. Í
þetta flug notar Wizzair Airbus 320
en þetta er tæplega tveggja ára
gamalt flugfélag, og rekur átt flug-
vélar af þessari gerð.
Beint flug
til Póllands
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna,
FÍS, hefur sent inn formlega kvört-
un til Samkeppniseftirlitsins vegna
svonefnds staðsetningargjalds
skipafélaganna Eimskipa og Sam-
skipa. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu er FÍS ósátt við
gjaldið og hefur hvatt meðlimi sína
til að hunsa það. Telja stórkaup-
menn félögin hafa haft með sér
ólöglegt verðsamráð, gjaldið sé hið
sama hjá báðum skipafélögum, upp
á krónu, og það hafi verið sett á á
svipuðum tíma.
Talsmenn Eimskipa og Samskipa
hafa vísað því á bug að hafa haft
með sér eitthvað samráð, segja
aukinn kostnað við gámaflutning
hafa kallað á gjaldtökuna.
Kvörtun vegna
skipafélaganna
BMW-bifreið sem stolið var af bíla-
sölu í Reykjavík endaði í húsgarði í
Keflavík. Lögreglumenn urðu á
vegi bifreiðarinnar, veittu henni
eftirför en misstu af henni. Þegar
bifreiðin fannst síðan í húsgarð-
inum var ökumaður á bak og burt.
Bifreiðin er mikið skemmd og verð-
ur rannsökuð í von um að þjófurinn
finnist.
Keyrði inn í garð
á stolnum bíl
Á SÍÐASTA ári bárust 212 tilkynn-
ingar til skrifstofu starfsmannamála
Landspítala – háskólasjúkrahúss
(LSH) þar sem starfsmenn voru þol-
endur ofbeldis. Á síðasta ári voru at-
vikin 200. Langflestar tilkynningar
um ofbeldi koma frá geðsviði LSH
eða 194 (91%). Eins og á undanförn-
um árum hefur verið lögð áhersla á
að skrá ofbeldi gegn starfsmönnum á
geðsviði og hefur starfsmönnum ver-
ið boðið upp á námskeið í viðbrögð-
um og varnaraðgerðum gegn ofbeldi.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um
slysa- og atvikaskráningu árið 2005.
Samkvæmt skýrslunni bárust sam-
tals 293 tilkynningar um slys/atvik
til skrifstofu starfsmannamála á síð-
asta ári. Flestar tilkynningar bárust
í mars (15%), júlí (11,3%) og í ágúst
(10,9%). Þetta er fækkun tilkynn-
inga frá árinu á undan þá voru þær
307. Árið 2003 voru þær enn fleiri
eða 371.
Af 293 atvikum eru 212 atvik eða
72% flokkuð sem ofbeldi sem beind-
ist að starfsmönnum, bæði andlegt
og líkamlegt. Næstalgengasta atvik-
ið samkvæmt skýrslunni er fall (22)
og þar á eftir kemur bruni (12). Þá
urðu 11 fyrir því sem flokkað er und-
ir högg en þar er átt við atvik þar
sem hlutur fellur á starfsmann.
Í 162 tilvika eða 55% tilfella eru
það konur sem lenda í slysum eða
óhöppum á sjúkrahúsinu en benda
má á að 6.556 starfsmenn unnu á
LSH á árinu 2005, þar af voru 5.223
konur eða 79,7% og 1.333 karlar eða
20,3%. Á síðasta ári urðu því 3,1%
kvenna á LSH fyrir slysi/óhappi á
vinnustað en 8,1% karla.
Starfsmenn LSH tilkynntu
um 212 ofbeldisatvik
LÖGREGLAN í Reykjavík ók utan í
bíl í gærmorgun til að stöðva ölv-
aðan ökumann sem ekki sinnti
stöðvunarmerkjum. Lögreglu barst
tilkynning um drukkinn ökumann
en þegar lögregla bað hann að
stöðva bílinn stakk hann af.
Eltingarleikurinn stóð í um stund-
arfjórðung og stoppaði ökumað-
urinn ekki fyrr en lögreglubíll ók
utan í bíl hans við mót Reykjanes-
brautar og Ártúnsbrekku. Fimm
lögreglubílar tóku þátt í eltingar-
leiknum. Ökumaðurinn er á miðjum
aldri.
Eltingarleikur
í borginni