Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÖLDI erlendra gesta hefur nú um helgina heimsótt landið í tengslum við alþjóðlegu matarhá- tíðina Food & Fun og á meðal þeirra er borgarstjóri höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C., Anthony A. Williams. Williams kom hingað til lands fimmtudaginn síðastliðinn og sagði í samtali við Morgunblaðið að dagskrá hans hefði verið þéttriðin og hefði hann meðal annars hitt fjármála- og ut- anríkisráðherra, borgarstjóra Reykjavíkur ásamt öðrum opin- berum embættismönnum auk þess sem hann heimsótti matvæladeild Menntaskólans í Kópavogi. Hann sagði að þetta væri fyrsta ferð sín til Íslands þó svo að hann hefði ætlað sér að koma áður til að veiða en sú ferð hefði því miður verið slegin af. Því hefði boð á hátíðina verið upplagt tækifæri til að heim- sækja landið. Auk þess að heimsækja opin- bera embættismenn heimsótti Williams höfuðstöðvar Latabæjar hér á landi og sagði hann að sér hefði þótt það einkar ánægjulegt að sjá að ein af aðalpersónum Latabæjar væri borgarstjórinn. Hann sagði að Magnús Scheving væri ótrúlegur athafnamaður og frumkvöðull og auðséð væri að honum væri velferð barna ofarlega í huga. Hann hefði haft mikil áhrif á börn og framtak hans væri ótrú- legt afrek í útflutningi Íslendinga. Áhugaverð orkuframleiðsla Williams sagðist hafa rætt mikið um einkavæðingu opinberra stofn- ana og fyrirtækja við hérlenda embættismenn og benti á að einkavæðing hefði verið mikilvægt skref í stjórnartíð hans. Eignar- hald á Orkuveitu Reykjavíkur vakti áhuga Williams og sagði hann að einkafyrirtæki í eigu op- inberra aðila væri mjög áhugavert rekstrarform á orkufyrirtækjum en þau orkufyrirtæki sem starfa í Washington eru í einkaeigu. Hann sagði einnig að aðferðir Íslendinga við orkuframleiðslu væru áhuga- verðar og ættu orkufyrirtæki vestra að kynna sér þessa tækni en hann taldi að með góðri stjórn- un væri mögulegt að innleiða tækni sem myndi leiða til lægra orkuverðs. Íslenska lambið einstakt Williams sagði að í kvöldverði hjá utanríkisráðherra, Geir H. Haarde, hefði aðalrétturinn verið íslenska lambið. Hann sagði að bragðið af lambinu væri einstakt og bætti við að oft væri ekki hægt að finna bragðmun á mismunandi kjöt- og fisktegundum en svo væri ekki með íslenska lambakjötið. Greinilegt væri að lömb hér á landi fengju gott og ferskt fæði sem skilaði sér í bragði kjötsins. Einnig minntist hann á annað hrá- efni sem hér væri framleitt og þar á meðal íslenska grænmetið sem væri einstaklega gott. Aðspurður hvort hann sjálfur væri mikill kokkur sagðist hann hafa gaman af því að elda og hann eldaði talsvert heima hjá sér, þó svo að það væri ekkert í líkingu við það sem meistarakokkarnir á Food & Fun væru að matreiða en hann hefur farið víða um borgina til að bragða á réttum matreiðslu- mannanna sem nú eru hér á landi vegna hátíðarinnar. Honum þótti ánægjulegt að sjá matreiðslumenn frá Washington á hátíðinni og hafði hann meðal annars farið á milli veitingastaða eitt kvöldið og snætt forrétt á einum stað, aðal- rétt á öðrum og eftirrétt á þeim þriðja til að upplifa hæfileika sem flestra matreiðslumannanna sem væru hér. Fuglaáhugamaður Á laugardeginum heimsótti Williams Bessastaði. Auk þess að hitta fyrir forseta Íslands hafði hann vonast til að fá að skoða fugla en aðspurður sagðist hann vera fuglaáhugamaður. Þó hefði ekki verið mikið að sjá þegar hann kom á Bessastaði enda hafði Ólaf- ur Ragnar tjáð honum að flestir farfuglarnir væru á suðlægari slóðum og kæmu ekki fyrr en sum- arið nálgaðist. Þó sá hann nokkr- um fuglum bregða fyrir og minnt- ist á það að hann sæi ekki betur en að íslenskar aðstæður væru kjörn- ar fyrir fugla. Vinsæll borgarstjóri Frá því að Williams var kjörinn borgarstjóri Washington D.C. árið 1999 hefur hann unnið að því að bæta fjárhag borgarinnar en áður var hann skipaður fjármálastjóri borgarinnar og leiddi einnig þing- skipaða nefnd sem hafði það að markmiði að eyða fjárhagsörðug- leikum borgarinnar og auka stöð- ugleika. Árangurinn lét ekki á sér standa og skilaði borgin 185 millj- ón dala afgangi, tveimur árum fyrr en áætlað var. Í kjölfar þess varð Williams mjög vinsæll í borginni og var kjörinn í embætti borg- arstjóra ári síðar. Hann sagði að í þessari baráttu hefði hann lagt mikla áherslu á ferðamannaþjón- ustu og væri það vaxandi atvinnu- grein í Washington, líkt og hér á landi og því væri kjörið að kynna sér aðstæður í Reykjavík, sem reyndar væri um margt lík banda- rískum borgum. Er hann var spurður hvaða lík- indi mætti sjá benti hann á að borgin væri mjög bílvædd og þró- un hennar væri einnig mjög svipuð og í bandarískum borgum, út- hverfavæðingin ríkjandi á svipuð- um tímabilum og í kjölfarið kæmi bílavæðingin. Hann bætti við að í seinni tíð væru borgir vestra að þéttast í elstu hverfunum líkt og sjá mætti hér á landi. Hann sæi einnig svipaða uppbyggingu við strendur landsins, áherslan á að byggja upp iðnað og athafnasvæði væri að minnka og íbúðar- og ferðamannasvæði væru að aukast við strandlengjuna. Williams tók sem dæmi um frá- bæra uppbyggingu, við strand- lengju eða vatnasvæði, Ráðhús Reykjavíkur, sem hann taldi vera stórglæsilega byggingu. Anthony A. Williams, borgarstjóri í Washington D.C., heimsótti Food & Fun-hátíðina í Reykjavík Morgunblaið /RAX Anthony Williams, borgarstjóri Washington D.C., heimsótti forsetahjónin á Bessastöðum í ferð sinni til Íslands. Við hlið Williams er Dorrit Moussaieff forsetafrú, Diane Williams og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Reykjavík lík bandarískum borgum Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is UM HELGINA bauðst háskólanem- um framtíðarinnar að kynna sér það mikla úrval námsleiða sem í boði er við íslenska háskóla, en alls voru kynntar um 400 námsleiðir á grunn- og framhaldsstigi. Á námskynningu Háskóla Íslands í gær voru tæplega þrjú þúsund manns saman komin en í fimm bygg- ingum skólans voru kynntar um 300 námsleiðir auk stoðþjónustu skól- ans. „Þetta gekk ofsalega vel, stöð- ugur straumur af fólki og mikil stemmning,“ segir Guðrún Bach- mann, kynningarstjóri Háskóla Ís- lands. Í fyrra var tekin upp sú ný- breytni að kynna grunn- og fram- haldsnám við HÍ samhliða sem hún segir hafa gefist vel. Í ár var fjöldi nýrra námsleiða kynntur en flestar eru þær á framhaldsstigi. „Vítt fræðasvið er styrkur Háskóla Ís- lands og þessi mikla fjölbreytni þýð- ir meðal annars að mikill sveigj- anleiki er í samsetningu námsins.“ Meðal nýrra námsleiða sem kynntar voru í ár, má nefna skurðhjúkrun, umhverfis- og náttúrusiðfræði, heil- brigðis- og lífsiðfræði, hagnýta menningarmiðlun, hagnýta ritstjórn og útgáfufræði, fjármál fyrirtækja, vísindasiðfræði, hagnýtt nám í sam- félagstúlkun og fjármálahagfræði. Mjög góð þátttaka Á laugardag var haldinn Stóri há- skóladagurinn í Borgarleikhúsinu en þar stóðu sjö háskólar saman að kynningu; Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Hólaskóli, Kennaraháskólinn, Landbúnaðar- háskólinn, Listaháskólinn og Við- skiptaháskólinn á Bifröst. Jóhann Hlíðar Harðarson, mark- aðsstjóri HR, segir daginn hafa gengið vel fyrir sig og talið sé að um 2-3000 manns hafi mætt sem sé svip- að og í fyrra. Aðspurður segir Jóhann að mjög vel gangi að blanda saman kynningu á skólunum sjö sem eru jafn ólíkir og raun ber vitni. „Það gerir daginn skemmtilegri og líflegri. Þarna kem- ur saman ólíkur hópur fólks sem er ekki endilega visst um hvað það vill lesa. Því er gott að geta kynnt sér um hundrað mismunandi námsleiðir á einum stað, rætt við fólk frá skól- unum og sest svo yfir lesefni heima hjá sér. “ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjöldi áhugasamra gesta kynnti sér starfsemi Listaháskóla Íslands við kynninguna í Borgarleikhúsinu. 400 námsleiðir kynntar Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@hi.is „Í ÞESSU er fólgin afar mikil við- urkenning á því starfi sem hefur verið unnið hér á landi. Það er afar dýrmæt hvatning til okkar sem störfum að þessum málaflokki að fá svona sterka viðurkenningu á því að við séum á réttri leið og að starfsaðferðir okkar séu til fyrir- myndar þegar litið er til heimsins, því að þessi verðlaun eru klárlega ekki veitt nema um framúrskar- andi úrræði sé að ræða,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, en honum var nýverið tilkynnt að Alþjóðlegu barnaverndarsamtökin ISPCAN (International Society for the Pre- vention of Child Abuse and Neg- lect), hefðu ákveðið að Barnahúsið hlyti svonefnd Multidisciplinary Team Award fyrir árið 2006. Verð- launin verða afhent á heimsráð- stefnu samtakanna í York á Eng- landi í byrjun september nk. Aðspurður segir Bragi verðlaun- in nú vera veitt í annað sinn. Það var dr. Patty Toth, lögfræðingur hjá Washington State Criminal Justice Commission, og fyrrum samstarfsmenn hennar hjá Harbourview Medical Center í Seattle, sem tilnefndu Barnahús en þau hafa, að sögn Braga, fylgst með stofnun og starfsemi Barna- húss frá upphafi. Í tilnefningunni kom fram það álit að Barnahúsið hefði valdið þáttaskilum á meðferð kynferðisbrotamála á Íslandi, eink- um með tilliti til þarfa og réttinda barna. Að sögn Braga hefur Barnahús- ið nú þegar vakið mikla athygli á alþjóðavettvangi og eru hinar Norðurlandaþjóðirnar sem og Eystrasaltslöndin flest að skoða hvort unnt sé að opna þar barna- hús að íslenskri fyrirmynd, en Sví- ar opnuðu sem kunnugt er barna- hús fyrir skemmstu. Segist Bragi sannfærður um að viðurkenning ISPCAN muni vekja enn meiri al- þjóðlega athygli á starfinu hér- lendis. Bendir Bragi á að ISPCAN séu einu þverfaglegu heimssam- tökin á sviði barnaverndar og hafa þau það að markmiði að vinna gegn hvers konar ofbeldi og vanrækslu barna alls staðar í veröldinni. Sam- tökin voru stofnuð 1977 og annast m.a. margháttaða þjálfun og fræðslu, t.d. með útgáfu ritsins Child Abuse and Neglect, sem er, að sögn Braga, helsta fræðitímarit um barnavernd sem þekkist. Frek- ari upplýsingar um ISPCAN má finna á heimasíðu samtakanna www.ispcan.org. Alþjóðabarnaverndarsamtökin ISPCAN verðlauna Barnahús „Til marks um að við séum á réttri leið“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.