Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 15 DAGLEGT LÍF Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Stjórn á blóðþrýstingi LH inniheldur náttúruleg lífvirk peptíð sem geta hjálpað til við stjórn á blóðþrýstingi LH-drykkurinn er gerður úr undanrennu og því fitulaus. Auk þess að innihalda peptíð hefur hann verið bættur með kalki, kalíum og magníum en rannsóknir benda til að þessi steinefni geti einnig haft jákvæð áhrif á blóðþrýsting. 1. Meiri virkni. 2. Mun meiri andoxunarefni. 3. Minni líkur á aukaverkunum. 4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs. RAUTT EÐAL GINSENG Skerpir athygli - eykur þol Virkar m.a. gegn: Einbeitingarskorti, streitu, þreytu og afkastarýrnun Einnig gott fyrir aldraða! www.ginseng.is Flestir vita að það er mik-ilvægt að bursta tenn-urnar daglega til að við-halda munnheilsu og taka því upp tannburstann kvölds og morgna. Að sama skapi eru sér lík- lega flestir meðvitandi um mikilvægi reglulegrar hreyfingar fyrir heilsuna en reynist oftar en ekki erfitt að fylgja þekkingunni eftir, þ.e. að ástunda reglulega hreyfingu. Af hverju? Fólk gefur ýmsar skýringar á hreyfingarleysi og þá m.a. tímaskort. Það getur aftur skýrst af því að sum- ir hafa óraunhæfa hugmynd um það hversu mikið þarf að hreyfa sig til að það skili bættri heilsu og vellíðan. Öll hreyfing er betri en engin hreyfing en almennar ráðleggingar miðast við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur daglega og börn hreyfi sig í minnst 60 mín- útur daglega. Hreyfing til heilsubót- ar þarf því ekki að vera tímafrek en aukinni hreyfingu fylgir aukinn ávinningur. Mestur ávinningur er í húfi fyrir kyrrsetufólk sem fer að hreyfa sig meira. Þegar vel er að gáð ættu flestir að geta komið 30 mín- útna hreyfingu inn í dagskipulagið, annaðhvort í einni lotu eða í 2–3 styttri lotum – og munum að allt tel- ur. Það er því hollt að staldra reglu- lega við og kanna hvernig hreyfi- mynstrið er í daglegu lífi. 1. Hversu mikið hreyfi ég mig í vinnunni? Nota ég stigann eða verð- ur lyftan fyrir valinu? Nota ég alltaf rafrænar leiðir til að eiga samskipti við vinnufélagana í stað þess að standa reglulega upp, teygja úr mér og bera erindið upp í eigin persónu? Hvað geri ég í hádeginu og öðrum hléum? Ýtir klæðnaðurinn minn und- ir hreyfingu, eru t.d. skórnir þægi- legir? 2. Hversu mikið hreyfi ég mig í frístundum, s.s. heimavið með fjöl- skyldunni? Hvað fer langur tími dag- lega í sjónvarpsáhorf eða óvinnu- tengda setu við tölvuna? Hvernig nýtum við skipulögð og óskipulögð tækifæri til útivistar og heilsuræktar sem bjóðast í nánasta umhverfi, s.s. göngustíga, græn svæði og/eða tilboð íþróttafélaga og heilsuræktarstöðva? 3. Hvernig ferðast ég á milli staða? Gæti ég með betra skipulagi gengið, hjólað eða nýtt almennings- samgöngur einhverja eða alla daga? Legg ég eins nálægt áfangastað og mögulegt er eða vel ég stæði sem er lengra í burtu? Hvernig er ferðamáti barnanna í skólann? 4. Hvernig er mataræðið og svefnvenjurnar? Hreyfing veitir okkur aukna vellíðan, kraft og hjálp- ar okkur að slaka á. Takmarkaður nætursvefn og óreglulegt máltíða- mynstur draga hins vegar úr orku og þar með lönguninni til að hreyfa sig. Allt telur og því er notkun á skrefamæli ágæt leið til að meta hreyfingu í daglegu lífi. Algengt við- mið fyrir fullorðna er að ná minnst 10.000 skrefum yfir daginn. Ef það er fjarlægt markmið er um að gera að skoða hreyfimynstrið og leita leiða til að fjölga skrefunum smám saman. Mikilvægast er að hreyfa sig helst daglega í samræmi við getu og áhuga og stuðla þannig að aukinni vellíðan.  HOLLRÁÐ FYRIR HEILSUNA | Lýðheilsustöð Morgunblaðið/Kristinn  Verum meðvituð um að velja hreyfingu í stað hreyf- ingarleysis í daglegu lífi.  Fullorðnir hreyfi sig rösk- lega í minnst 30 mínútur daglega.  Börn hreyfi sig rösklega í minnst 60 mínútur daglega.  Ágætt viðmið fyrir full- orðna er að ná minnst 10.000 skrefum yfir daginn. Áherslupunktar Gígja Gunnarsdóttir íþrótta- fræðingur, verkefnisstjóri hreyfingar á Lýðheilsustöð. Minnst 30 mínútna hreyfing daglega – allt telur Fréttir á SMS „ÞETTA er æðislegt. Mér finnst frá- bært að fá borgað fyrir að stunda líkamsrækt,“ segir Kristjana Hall- dórsdóttir hlæjandi, en hún vinnur við að bera út póst og skúrar auk þess í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. „Skúringar í þrjá tíma á degi hverjum eru heilmikið púl og þegar við bætist göngutúr í aðra þrjá tíma daglega með póstinn, þá er það heil- mikil brennsla. Enda er ég búin að missa þrjátíu og fimm kíló síðan ég byrjaði í póstburðinum fyrir sex ár- um. Þar fyrir utan er póstburðurinn mikil og góð útivist sem er sann- arlega hollt og mér finnst hressandi að fara í hvaða veðri sem er og vor- kenni mér það ekkert. Þetta bætir bæði sál og líkama. Mér finnst ég af- skaplega heppin að þurfa að hreyfa mig allan tímann sem ég er í vinnunni og þar af leiðandi þarf ég ekkert að fara utan vinnutíma í aðra líkamsrækt og spara mér líka þann kostnað. Ég á son sem mér finnst gott að geta gefið allan þann tíma sem ég er ekki í vinnunni.“ Harðneitaði símavinnu Kristjana þarf að burðast með heilmikið magn af pósti og hefur hann ýmist í tösku á öxlinni eða í kerru sem hún dregur á eftir sér. „Þegar mest lætur þá er ég með hundrað og tíu kíló í kerrunni. Það tekur vel í.“ Kristjana er sannarlega ánægð í vinnunni og segist hafa harðneitað þegar henni var boðin kyrrsetuvinna nýlega. „Mér var boðið starf við símavörslu en ég hélt nú ekki. Ég hef engan áhuga á að sitja í stól í vinnunni og fitna aftur. Ég held mér algjörlega í formi með þessum tveimur vinnum, skúringum og póst- burði. Og mér finnst gott að koma heim og finna vel fyrir þreytunni í líkamanum.“ Kristjana segir heilsuátak vera í gangi hjá Póstinum og hún hafi fengið eina viku fría í veggsporti og er alveg til í að prófa það, til tilbreyt- ingar.  HREYFING | Skúringar og póstburður eru góð líkamsrækt Meiriháttar brennsla Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Morgunblaðið/RAX Líkamsrækt má líka stunda í vinnunni eins og Kristjana Hall- dórsdóttir hefur sýnt fram á.                      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.