Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BANASLYS Á HOFSJÖKLI Einn maður lést og annar slas- aðist alvarlega þegar jeppabifreið þeirra féll niður í sprungu á Hofs- jökli á laugardag. Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar var til taks og því voru þyrlur frá danska hernum og Varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli sendar til björgunar. Bílvelta í Hrafntinnuskeri Þyrla Varnarliðsins var kölluð út aðfaranótt sunnudags til að sækja tvo menn sem fóru fram af hengju við Hrafntinnusker. Menn frá björg- unarsveitinni Ársæli voru á æfingu nálægt slysstað og fóru þeir á vett- vang, en mennirnir höfðu komið sér í skála og kallað á hjálp. Fangauppreisn í Afganistan Vistmenn Pul-e-Charkhi-fang- elsisins í útjaðri Kabúl tóku hluta fangelsisins á sitt vald í fyrrinótt og héldu í allan gærdag. Afganski her- inn hefur umkringt fangelsið í því skyni að tryggja að enginn sleppi, en meðal vistmanna í fangelsinu eru liðsmenn talíbana-hreyfingarinnar og al-Qaeda-hryðjuverkasamtak- anna. Óstaðfestar fregnir herma að nokkrir hafi týnt lífi í uppreisninni. Nýtt sendiráð opnað á Indlandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði nýtt sendiráð Íslendinga í Nýju-Delí, en hún er þar stödd í forföllum Geirs H. Haarde. Sturla Sigurjónsson er sendiherra Íslands á Indlandi. Friðarsúla í Viðey Yoko Ono leggur til að reist verði friðarsúla hér á landi og hefur hún óskað eftir því að súlan verði sett upp í Viðey. Hún segist stefna að því að haldin verði friðarhátíð vikuna í kringum afmælisdag Johns Lenn- ons, 9. október. Ólympíuleikunum slitið Vetrarólympíuleikunum í Tórínó á Ítalíu var slitið í gærkvöld með formlegum hætti en þeir voru þeir tuttugustu í röðinni. Næstu vetr- arólympíuleikar verða haldnir að fjórum árum liðnum í Vancouver í Kanada. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Víkverji 26 Viðskipti 12 Velvakandi 27 Daglegt líf 14/15 Staður og stund 28 Umræðan 16/17 Menning 29/33 Bréf 16 Bíó 30/33 Forystugrein 18 Ljósvakamiðlar 34 Minningar 20/23 Veður 34 Dagbók 26 Staksteinar 35 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÞAÐ hefur verið ljóst frá upphafi að við teljum það ekki forgangsverkefni í menntakerfinu að stytta námstíma til stúdentsprófs, og hreint ekki með því að skerða nám, segir Elna Katrín Jónsdóttir, vara- formaður Kennarasambands Íslands. Á laugardag héldu framhaldsskólakennarar fjölmennan fund þar sem tvær ályktanir voru samþykktar, annars vegar gegn styttingu framhaldsskólans og hins vegar um framgöngu forystu KÍ í samskiptum við félagsmenn sína og menntamálaráðherra. Fyrst og fremst mun óánægjan hafa snúið að samkomu- lagi ráðherra og KÍ frá 2. febrúar sl. en þar er m.a. fjallað um breytta námsskipan í framhaldsskólum. „Við höfum búið við þessi áform menntamála- yfirvalda í yfir áratug en með virkum hætti frá 2003,“ segir Elna Katrín. „Þetta er samkomulag um að fara í viðræður en í raun ekki annað þótt rætt sé um það eins og kjarasamningur eða bindandi samkomulag hafi verið gert. Stóri misskilningurinn í málinu finnst mér að Kennarasambandið sé að semja sig frá stefnu sinna samtaka.“ Hún segir að fundarmenn allir hafi verið sammála um það grundvallaratriði að vinna gegn skerðingu á náminu. Athugasemdir hafa verið gerðar við tímasetn- ingu samkomulagsins, þar sem ýmsir telja að hægt hefði verið að knýja fram stefnubreytingu menntamálaráðherra. Það segist Elna Katrín ekki telja raunhæft. „Annars hefðum við ekki gert þetta samkomulag. Þetta var úrslitatilraun til að komast inn í málið og fá ráðherra til að ræða við Kennarasambandið um áformin í heild sinni.“ 25% skerðing á námi Linda Rós Michaelsdóttir, sem var einn fram- sögumanna á fundinum á laugardag, tekur í svip- aðan streng varðandi samskiptin við ráðuneytið: „Síðan ráðherra tók ákvörðun um að fara fram með þetta frumvarp hefur kennaraforystan reynt að ná eyrum hennar en það hefur ekki gengið.“ Hún segir samskiptaleysið óviðunandi sem og þá staðreynd að málið eigi að keyra í gegn á mettíma. „Ég held að forystunni hafi ekki gengið illt til og talið að með þessu væri hægt að hafa einhver áhrif og það getur maður skilið. En það sem okkur sem höfum sett okkur upp á móti samkomulaginu finnst vanta, er klásúla um að aldrei verði gengið að skerðingu. Hnífurinn stendur í kúnni þar sem ráðherra trúir að 25% skerðing á framhaldsskól- anum verði framkvæmd án þess að námið skerð- ist. Við leggjum bara ekki trúnað á það,“ segir Linda Rós. „Nú held ég að menn bíði rólegir eftir hvað ger- ist þegar nýskipuð verkefnisstjórn tekur til starfa. Ég er sannfærð um að ef fyrir liggur að námið verði skert muni Elna Katrín ganga út úr þeim viðræðum og Aðalheiður [Steingrímsdóttir, for- maður Félags framhaldsskólakennara] líka, en ætla ekki að svara fyrir Eirík Jónsson.“ Hún þver- tekur fyrir að bilið á milli kennaraforystunnar og almennra félagsmanna sé óbrúanlegt í málinu. „En menn voru reiðir og ávítur óumflýjanlegar þótt ég telji ekki að framhald verði á.“ Ólga vegna samkomulags KÍ og menntamálaráðherra „Úrslitatilraun til að komast inn í málið og fá ráðherra til að ræða við Kennarasambandið,“ segir varaformaður Kennarasambands Íslands Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@hi.is HÁSKÓLI Íslands hefur sett sér það markmið að komast í hóp eitt hundrað bestu háskóla í heimi, en Ísland er í dag eina Norðurlanda- þjóðin sem á ekki háskóla í þeim hópi. Þetta kom fram í ræðu Kristínar Ingólfsdóttur háskólarektors við út- skrift 280 kandídata frá Háskóla Ís- lands á laugardag. Kristín sagði að til að komast í þennan hóp skipti mestu máli gæði kennslu, árangur í vísindastarfi og doktorsnámi, en það er tiltölulega nýtt af nálinni hér á landi. Kristín sagðist vera sannfærð um að við gætum náð þessum árangri þótt margir myndu telja að þetta markmið væri í djarfara lagi fyrir smáþjóð. Í fyrsta lagi væri það vegna þess að stofnun skólans í upp- hafi, í bláfátæku samfélagi bænda og sjómanna, hefði verið samfelld sigurganga. Í öðru lagi yki bjartsýn- ina sá árangur sem íslensk fyrirtæki hefðu náð í sókn á alþjóðlegum markaði og í þriðja lagi væri um fátt meiri samstaða en mikilvægi mennt- unar og þörf fyrir hraða og kröft- uga uppbyggingu. Í fjórða lagi hefði HÍ þegar lagt áherslu á uppbygg- ingu þriggja fræðasviða, sem fram- tíðarfræðingar spáðu að yrðu einna mikilvægust á næstu tuttugu árum, í samvinnu við fyrirtæki í landinu. Það væri á sviði erfðafræði, örtækni og vélmennafræði. Treysta tökin á tækninni Kristín sagði að það væri eitt brýnasta verkefni okkar á þeim tím- um sem í hönd færu að treysta tökin á tækniþekkingunni og tryggja að við nýttum hana með réttum hætti. „Við verðum að skilja og hafa skoð- un á hvernig ný þekking og ný tækni hefur áhrif á náttúruna, sem er brothættur rammi utan um tilvist okkar, hvernig hún hefur áhrif á samfélagsmyndina, móðurmál, menningu og á daglegt líf fjölskyld- unnar. Háskóli Íslands hefur einsett sér að komast í flokk 100 bestu háskóla í heiminum. En hvernig getur Há- skóli Íslands mest lagt af mörkum? Við gerum það með því að vera í fremstu röð í þróun nútímatækni og í sköpun þekkingar á náttúrulegu umhverfi mannsins, en jafnframt í fremstu röð þeirra sem leita þekk- ingar á eðli mannsins og mannlegu samfélagi. Við viljum auka getu samfélagsins til að hámarka pen- ingalegan arð en líka lífshamingju þeirra sem taka þátt í samfélaginu. Við þurfum að finna eðlilegt og gott jafnvægi menningar og tækni. Það er líka hluti af því að komast í hóp hinna hundrað bestu.“ Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor við útskrift kandídata Háskóli Íslands verði í hópi 100 bestu skóla Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, útskrifaði 280 kandídata á háskólahátíðinni. Hún lagði áherslu á gæði háskólanáms í ræðu sinni. MAÐURINN sem lést þegar hann varð undir vörubíl í Rødovre í Dan- mörku hinn 22. febrúar síðastliðinn hét Sigurður Trausti Kjartansson en hann var til heimilis í Kaupmanna- höfn. Sigurður fæddist árið 1968 en hafði undanfarin ár búið í Kaup- mannahöfn þar sem hann starfaði sem tæknifræðingur. Sigurður var ógiftur og barnlaus. Lést í slysi í Danmörku ♦♦♦ TÆPLEGA tvítugur piltur var hætt kominn á laugardagskvöld eftir að hafa skorist á hálsi í sumarhúsi í Borgarfirði. Að sögn varðstjóra lög- reglunnar í Borgarnesi barst þeim tilkynning um ellefuleytið á laugar- dagskvöldið um pilt með mikla blæð- ingu á hálsi. Pilturinn var fluttur til Reykjavík- ur með sjúkrabíl en óskað var að- stoðar sjúkrabíla frá Akranesi og Reykjavík vegna aukinnar blæðing- ar og keyrðu þeir til móts við þann frá Borgarnesi. Hann fór samstundis í aðgerð og gekk hún vel. Honum var haldið sofandi í gjörgæslu þangað til í dag en ekki er talið að hann sé í lífs- hættu. Slysið vildi þannig til að pilt- urinn hafði verið að skemmta sér ásamt félögum sínum í sumarhúsinu og hrasað. Í fallinu rakst andlit hans í glös sem stóðu á borði, með þeim af- leiðingum að stór skurður opnaðist neðan við kjálka. Slasaðist alvarlega á hálsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.