Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Óþekkustu börn í heimi hafa fengið nýja barnfóstru sem er ekki öll þar sem hún er séð. Ein besta mynd ársins. Frá leikstjóra City of God eftir metsölubók John Le Carré BESTI LEIKARI ÁRSINS Í AÐAL- HLUTVERKI TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** Stórkostleg verðlaunamynd Byggð á sönnum atburðum FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG ÓSTÖÐVANDI Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Nýt t í b íó CONSTANT GARDENER kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 UNDERWORLD kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA ZATHURA M /ENSKU TALI kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40, 8 og 10.10 10 BAFTA tilnefningar 4 Óskarstilnenfingar 3 Golden Globe Tilnefningar eeeee V.J.V. / TOPP5.is YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM TVEGGJA EINSTAKLINGA RALPH FIENNES RACHEL WEISZ eeee „…listaverk, sannkölluð perla“ DÖJ – kvikmyndir.com THE CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA NANNY McPHEE kl. 6 og 8 UNDERWORLD 2 kl. 10 B.I. 16 ÁRA FINAL DESTINATION 3 kl. 6 B.I. 16 ÁRA GHOSTIGITAL rekur rætur sínar til þess að Einar Örn Benediktsson og Curver, áður Birgir Örn Thor- oddsen, gerðu í sameiningu fyrstu sólóskífu Einars sem fékk heitið Ghostigital. Samstarf þeirra hófst síðla árs 2002 og platan kom út í október 2003. Á meðan platan var í smíðum og þegar þeir settu saman hljómsveit til að kynna hana varð þetta sóló- verkefni að fullkomnu samstarfs- verkefni og fékk heitið Ghostigital sem hefur verið hljómsveit þeirra Einars og Curvers upp frá því. Í dag kemur svo út önnur breiðskífa Ghostigital, In Cod We Trust, sem gefin er út samtímis hér á landi, í Bretlandi og vestur í Bandaríkj- unum; Smekkleysa gefur plötuna út hér á landi, Honest Jons í Bret- landi og Ipecac í Bandaríkjunum. Ýmsir koma við sögu á In Cod We Trust til viðbótar við þá félaga og meðal gesta eru Mugison, Ása Júníusdóttir, Sensational, Mark E. Smith og Dalek. Platan var tilbúin í október en smábið varð á útgáfu enda þurftu þeir að stilla sig saman við bandaríska útgefandann, því það tekur tvo til þrjá mánuði að undirbúa útgáfu vestanhafs og þar af fara tveir mánuðir að dreifa plöt- unni um landið. „Við vorum eiginlega búnir með plötuna síðasta sumar, byrjuðum á henni eiginlega um leið og fyrri platan var tilbúin og prufukeyrðum síðan plötuna á Aldrei fór ég suður hátíðinni á Ísafirði síðustu páska,“ segir Einar og Curver bætir við að hljóðversvinna hafi hafist ekki löngu eftir páska og lokið að miklu leyti snemmsumars. Það tók svo sinn tíma að safna uppökum með gestum á plötunni. Einar segir að þó platan hafi ver- ið tilbúin svo snemma hafi aldrei komið upp sú hugmynd að gefa plötuna fyrr út hér á landi og alls ekki að gefa hana út í desember, „þetta er ekki jólaplata“, segir Ein- ar. „Það er miklu eðlilegra fyrir allt ferli tónlistarinnar að gera þetta núna í stað þess að leggja allt undir í desember.“ Eins og getið er kemur platan út austan hafs og vestan í dag, en þeir Einar og Curver segjast þó ekki vera með neinar sérstakar utan- ferðir í bígerð til að kynna plötuna. „Við erum með fólk í vinnu úti, bók- ara og fjölmiðlafulltrúa í Banda- ríkjunum, og þau verða í samband ef einhver þörf er á að fara út. Við erum bara rólegir, tökum á verk- efnum ef þau berast og tónlistin okkar er líka þannig að hún þarf að fara rólega inn, við tökum ekki fólk með trompi.“ Birgir segir að vinnubrögð þeirra vegna plötunnar séu nokkuð frábrugðin því sem var með síð- ustu plötu, enda hafi þeir einsett sér að gera plötu sem væri í senn aðgengilegri og um leið sérstakari. „Okkur finnast taktarnir á plöt- unni vera mjög hreinir og poppaðir og finnst það alltaf skrýtið þegar fólk kvartar yfir því að þeir eru skrýtnir,“ segir Curver, en Einar er með skýringu á því: „Það er örugglega af því ég byggði lögin þannig upp að ég sleppti alltaf úr einum takti og byggði lögin á þremur, en ekki fjórum.“ Þeir sem skipa ætla Ghostigital á bás rata iðulega í ógöngur, en þeir félagar eru með það á hreinu hvernig eigi að flokka músíkina: „Við erum að gera hiphop,“ segir Einar. „Við vitum alveg hvar við erum þó plötufyrirtæki hafi það sjaldnast á hreinu, en þetta er bara taktur og rödd, hiphop.“ „Sumir kalla þetta elektróníska taktmúsík og við erum nálægt teknói stundum, en þetta er bara tónlist, taktar, rödd og hljóð. Við erum mjög sáttir við það hvar við erum.“ Tónlist | In Cod We Trust, önnur breiðskífa Ghostigital, gefin út á Íslandi, Bretlandi og í Bandaríkjunum Elektrónísk taktmúsík Spessi „Við vitum alveg hvar við erum þó að plötufyrirtæki hafi það sjaldnast á hreinu.“ Einar Örn Benediktsson og Curver. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FYRIRTÆKI Sigurjóns Sighvatssonar, Palomar Pictures, hefur eignast endurgerð- arrétt á dönsku myndinni Brødre frá árinu 2004. Sigurjón hefur fengið til liðs við sig handritshöfundinn David Benioff, sem með- al annars vann handrit myndanna Trója og 25th Hour, og nýverið náðust samningar við kvikmyndadeild Sony um framleiðslu mynd- arinnar. „Myndin er mjög góð, fékk fjölda verð- launa og allstaðar góða dóma, en fór því miður ekki víða,“ sagði Sigurjón þegar blaðamaður náði af honum tali. Myndin segir frá tveimur bræðrum: sá yngri er svarti sauðurinn í fjölskyldunni og sífellt til vandræða en sá eldri til fyrir- myndar í alla staði, liðsforingi í danska hernum með konu og börn. Eldri bróðirinn er sendur til Afganistan þar sem þyrla hans er skotin niður, og hann talinn af. Langur tími líður, og yngri bróðurinn hefur gengið í stað fallins bróður síns, þegar sá eldri birt- ist óvænt, gjörbreyttur maður eftir öm- urlega fangavist, og hefst þá dramatísk framvinda. „Þessi mynd á jafnvel meira erindi við bandaríska áhorfendur en danska, enda þjóðin með fjórðung úr milljón manna í stríði í Mið-Austurlöndum. Þetta er nokkuð sem er mjög í brennideplinum í dag,“ segir Sigurjón, sem bætir við að efni mynd- arinnar höfði augljóslega sterklega til manna í Hollywood, því mjög auðveldlega gengur að fá góða menn til að vinna að verkinu: „David Benioff er fyrsti maðurinn sem ég sendi myndina til. Eins og gengur eru menn mjög uppteknir hér í Hollywood, en þegar loksins tókst að fá hann til að horfa á myndina var hann til í dæmið eins og skot.“ David Benioff er með vinsælustu og best launuðu handritshöfundum Hollywood í dag og nefnir Sigurjón sem dæmi að Benioff fái meira greitt fyrir skrif sín við Hollywood- myndina en kostaði á sínum tíma að gera upphaflegu myndina alla í Danmörku. Stóru myndverin hafa verið áköf í að taka þátt í verkefninu: „Þetta hefði ekki verið talið dæmigert söluvænt efni, enda ekki hasarmynd. En eitthvað veldur, að ég virð- ist vera með rétta efnið og rétta fólkið á réttum tíma, svo öll stúdíóin nema Warner buðu í myndina – nokkuð sem ég hef ekki upplifað áður. Það hefur kannski sitt að segja að þær myndir sem tilnefndar eru til óskarsverðlauna í ár eru allar, eins og þessi, með alvarlegu ívafi. Og auðvitað er efni myndarinnar frábært og mjög svo tímabært að gera mynd um þetta efni,“ segir Sig- urjón. Steven Speilberg og Ang Lee hafa þegar lýst yfir áhuga á að leikstýra myndinni, en Sigurjón segir langt ferli framundan, og megi búast við að taki um þrjú ár að ljúka myndini. Kvikmyndir | Sigurjón Sighvatsson endurgerir dönsku myndina Brødre í samvinnu við Sony Spielberg og Ang Lee hafa sýnt áhuga á að leikstýra Sigurjón Sighvatsson David Benioff Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.