Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 2

Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist einungis útvortis og má aldrei taka inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. við vöðva- og liðverkjum Voltaren Emulgel SENDI BUSH BRÉF Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra hefur sent George W. Bush Bandaríkjaforseta bréf þar sem hann óskar eftir svörum um hvernig bandarísk stjórnvöld ætli að standa við samning um varnir Íslands nú þegar kalla á orrustuþotur og þyrlu- sveit frá landinu í haust. Stór fíkniefnarassía Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði upptæk fíkniefni, kannabisefni og amfetamín, fyrir um 10 milljónir króna í stærstu fíkniefnaaðgerð sinni, það sem af er árinu, á fimmtu- dag. Fleiri en þrjátíu lögreglumenn voru sendir snemma fimmtudags- morguns til að framkvæma sex hús- leitir í samstilltu átaki. Tólf manns voru handteknir. Exista skráð í kauphöll Stefnt er að því að skrá hlutafé Exista í kauphöll á þessu ári og slitið á krosseignatengslin á milli fyr- irtækisins og KB banka. Bankinn mun losa um 19,2% hlut sinn í Exista og verða hluthöfum greiddar auka- arðgreiðslur í formi hluta í Exista. Exista er aðaleigandi Exista B.V. fé- lags sem er stærsti einstaki eigandi KB banka með 21,1% hlut. Færri flóttamenn Umsóknum um pólitískt hæli í auðgum ríkjum hefur fækkað mjög á síðustu tveim áratugum og mest síð- ust fimm ár, að sögn Flótta- mannahjálpar SÞ. Er orsökin talin vera auknar hömlur á hælisveitingar eftir hryðjuverkin 2001 en einnig hafi tekist að stöðva að mestu átök á mörgum svæðum, þ. á m. Balkan- skaga og í Afganistan. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Íslenskt mál 40 Fréttaskýring 8 Bréf 43 Úr verinu 14 Minningar 44/49 Viðskipti 18 Kirkjustarf 50 Erlent 22/23 Messur 50/51 Minn staður 26 Fermingar 51 Akureyri 27 Myndasögur 56 Suðurnes 27 Dagbók 56/59 Árborg 28 Víkverji 56 Daglegt líf 27/28 Velvakandi 57 Menning30/31, 57/61 Staður&stund 58/59 Daglegt líf 32/37 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Úr vesturheimi 38 Staksteinar 67 Umræðan 39/43 Veður 67 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %          &         '() * +,,,                       JÓHANNES Jónsson, stofnandi Bónuss, og börn hans, Jón Ásgeir og Kristín, ætla á næstu fimm árum að gefa Barnaspítala Hringsins 300 milljónir króna. Þetta er ein stærsta gjöf sem spítalinn hefur fengið. Jóhannes hefur á liðnum áratug styrkt starfsemi Barna- spítalans með tuga milljóna styrkj- um. Gjöfin verður m.a. notuð til að hefjast handa við að auka há- gæsluþjónustu á Barnaspítala Hringsins, ráða starfsfólk og þjálfa það. Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra sagðist fagna því að ein- staklingar tækju svo vel á fram- faramálum sem efling hágæslu væri. Hún sagði að þjónustan yrði efld þar sem mesta álagsþörfin væri svo að hægt væri að veita öfl- uga hágæsluþjónustu og sagðist ennfremur vera viss um að gjöf þessi rynni í góðar hendur. Anna Ólafía Sigurðardóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á barnasviði, sagði að undanfarna mánuði hefði sá möguleiki verið kannaður að efla hágæsluþjónustu innan barnaspít- alans en hann sinnti sífellt fleiri al- varlega veikum einstaklingum. Það hefði verið í skoðun að þessi þjón- usta yrði styrkt og efld og hún bætti við að öflug hágæsluþjónusta yki enn öryggi veikustu ein- staklinganna. Ásgeir Haraldsson, sviðsstjóri lækninga á barnasviði, benti á að með gjöfinni nú væri hægt að hefja skipulagningu á enn betri hágæslu, þar sem fjölmörg börn á barnaspít- alanum væru á milli gjörgæslu- og legudeilda vegna alvarlegra sjúk- dóma, sýkinga og annarra kvilla. Jóhannes Jónsson og börn hans styrkja Barnaspítala Hringsins Gefa 300 milljónir til að efla hágæslu Morgunblaðið/Kristinn Anna Ólafía Sigurðardóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á barnasviði, Ásgeir Haraldsson, sviðsstjóri lækninga á barna- sviði, og Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra, ásamt starfsmönnum spítalans, kynna peningagjöfina til spítalans. FULLTRÚAR stéttarfélaga á Suð- urnesjum, sem eiga félagsmenn að störfum hjá Varnarliðinu, voru kall- aðir hverjir í sínu lagi á samráðsfundi hjá Varnarliðinu í gær. Þar var m.a. gerð grein fyrir fyrirhuguðum breyt- ingum hjá Varnarliðinu og rætt um framtíð íslenskra starfsmanna þess. Alls eiga 120 félagar í Verslunar- mannafélagi Suðurnesja (VS) á hættu að missa störf sín við brotthvarf varn- arliðsins. Að sögn Guðbrands Einars- sonar, formanns VS, er það stærsti hópurinn í sama stéttarfélagi sem nú óttast um störf sín. Í næst stærsta stéttarfélaginu, Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur, eru 99 hjá varnarliðinu. „Það er töluvert stór biti fyrir okk- ur að missa vinnu fyrir alla þessa fé- lagsmenn,“ sagði Guðbrandur. „At- vinnumál á svæðinu hafa verið í ágætum farvegi undanfarna mánuði, en það breytist með fjölgun á atvinnu- leysisskrá sem búast má við. Það verður að grípa til aðgerða eigi að koma í veg fyrir stórslys.“ Guðbrandur kvaðst ekki sjá annað en að af uppsögnunum yrði. Af orðum forsætisráðherra mætti ráða að enn væri ekki ljóst með hvaða hætti Bandaríkjamenn ætluðu að standa við varnarsamninginn. Þeg- ar það lægi fyrir kæmi í ljós hvort ein- hverjir Íslendingar yrðu endurráðnir. „Einhver hluti starfsmanna, sem hefur tengst alþjóðaflugvellinum, fær væntanlega vinnu hjá ríkinu sem nýj- um rekstraraðila flugvallarins,“ sagði Guðbrandur. „En það er aðeins lítill hluti af heildarmannaflanum sem tengist þeirri starfsemi beint.“ Guðbrandur Einarsson, formaður VS Stór biti að missa vinnu fyrir alla þessa starfsmenn Guðbrandur Einarsson FRAM kom á blaðamannafundi með Scott McClellan, talsmanni George W. Bush Bandaríkjaforseta, í Hvíta húsinu í gær að stjórnvöld í Wash- ington legðu áherslu á gott samstarf við Íslendinga um öryggismál þótt varnarliðið fari á brott á árinu. Fréttamaður RÚV var á fundinum og spurði McClellan hvort það væri í samræmi við anda góðrar samvinnu að taka slíka einhliða ákvörðun. „Bandaríkin verða eftir sem áður skuldbundin til að verja Ísland og við ætlum að standa við skuldbindingar okkar sem hafa verið í gildi í rúma hálfa öld í tengslum við varnarsátt- málann og NATO-samninginn frá 1951. Þú ert að tala um fasta viðveru herliðs á Íslandi. Forsetinn féllst á tillögur varnarmálaráðherra um að leggja af fasta viðveru mannmargs herliðs á Íslandi. Við skýrðum rík- isstjórn Íslands frá þessu í vikunni að þetta skref yrði tekið í lok sept- ember. Eftir það yrði ekkert fast bandarískt herlið á Íslandi. Við erum eftir sem áður skuld- bundin til að verja Ísland og hlökk- um til viðræðna við íslensku ríkis- stjórnina um bestu leiðirnar til að nútímavæða varnarsamstarfið. Við hyggjumst líka efla samstarfið við Íslendinga gegn nýjum ógnum á borð við hryðjuverk, mansal og al- þjóðlega glæpastarfsemi,“ sagði Scott McClellan. Vilja efla samstarf gegn „nýjum ógnum“ TEKJUR vegna veru varnarliðsins hafa snarminnkað á undanförnum árum samkvæmt tölum sem Seðla- banki Íslands hefur tekið saman um tekjur af veru varnarliðsins hér á landi á tímabilinu 1990 – 2005. Árið 1990 voru tekjurnar um 9,1 milljarð- ur og voru það 7,0% af útflutnings- tekjum og 2,5% af vergri landsfram- leiðslu. Voru þær tekjur stöðugar mestan hluta tíunda áratugarins en tóku að hækka í lok hans og náðu há- marki árið 2003 þegar þær voru um 11,9 milljarðar króna og nam það 3,8% af útflutningstekjum og 1,5% af vergri landsframleiðslu. Síðan þá hafa tekjurnar hríðminnkað og höfðu þær aldrei verið minni árið 2005 þegar þær voru um 8,2 millj- arðar króna og nam það 2,3% af út- flutningstekjum og 0,8% af vergri landsframleiðslu. Heildartekjur á tímabilinu nema um 161 milljarði króna og er launa- kostnaður um 47 milljarðar en verk- takakostnaður um 58 milljarðar.                                                         Tekjur af varnarlið- inu hafa minnkað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.