Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VERJANDI sakbornings sem hlaut fimm ára fangelsisdóm fyrir mann- drápstilraun í héraðsdómi í fyrra mun leggja fyrir Hæstarétt afar gagnrýna skýrslu um rannsókn- araðferðir lögreglu, sem unnin var af einkaaðilum. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem skýrsla frá einka- stofu um sakamálarannsókn lög- reglu er lögð fyrir dómstóla hér á landi. Umræddir einkaaðilar eru fyrrverandi lögreglumenn sem reka öryggisfyrirtækið Meton ehf. og hefur stofa þeirra ekki áður gefið út opinbera yfirlýsingu um rannsókn- araðferðir lögreglu. Skýrsla þeirra var unnin að beiðni Sveins Andra Sveinssonar, verjanda sakbornings- ins. Fimm ára fangelsisdómi ákærða hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar og er reiknað með að málið verið flutt í vor. Sjálft sakamálið nær aftur til árs- ins 2004 þegar maðurinn var hand- tekinn síðla júlímánaðar fyrir alvar- lega árás á leigubílstjóra við Vesturgötu í Reykjavík. Hann var ásamt þremur öðrum farþegum í bílnum í aðdraganda verknaðarins. Var hann ákærður og sakaður um tilraun til manndráps með því að skera bílstjórann á háls í gegnum bílgluggann. Skurðurinn var um 18 cm langur og munaði aðeins nokkr- um millimetrum að barkakýlið færi í sundur. Í febrúar 2005 var ákærði sýknaður af ákærunni í héraðsdómi og sagði meirihluti dómsins að rannsókn lögreglunnar í Reykjavík hefði verið „stórlega ábótavant“ og að óupplýst væri hver hefði veitt leigubílstjóranum áverkann. Þessari niðurstöðu var áfrýjað til Hæsta- réttar sem ómerkti dóminn og vís- aði honum aftur heim í hérað. Öðru sinni gekk því héraðsdómur í des- ember 2005 en nú var sakfellt og niðurstaðan fimm ára fangelsi. Taldi dómurinn það væri hafið yfir skyn- samlegan vafa að ákærði hefði gerst sekur um brotið. Gáfu sér ákveðna niðurstöðu í byrjun Að sögn Sveins Andra Sveins- sonar var í síðari héraðsdóminum horft fram hjá þeirri gagnrýni sem í fyrri dóminum var lögð til grund- vallar sýknudóminum. „Ég leitaði til sérfróðra aðila sem starfa ekki á vegum hins opinbera, þ.e. fyrrver- andi rannsóknarlögreglumanna sem hafa hátt í 100 ára samanlagða reynslu af lögreglustörfum. Ég dreg þá ályktun að rannsókn máls- ins hafi verið með þeim hætti að menn hafi gefið sér ákveðna nið- urstöðu strax í byrjun; að ákærði hefði framið brotið, og að allar rannsóknaraðgerðir lögreglu hafi miðast við að staðfesta þessa fyrstu frumkenningu. Þetta er hættuleg- asta gildra sem lögreglumenn falla í, þ.e. að draga ályktanir of snemma.“ Sveinn segir að viðhafa hefði mátt eins vinnubrögð lögreglu og í manndrápsmáli á Hverfisgötu í ágúst 2005. „Þrátt fyrir játningu eins manns í því máli tók lögreglan ákvörðun um að handtaka alla þá sem voru í húsnæðinu þannig að þeir fengu réttarstöðu grunaðs manns og voru yfirheyrðir sem slík- ir. Það var ekki fyrr en lögreglan hafði fengið algera vissu fyrir því að sá sem gaf sig fram væri gerandinn að hinum var sleppt. Þetta hefði líka átt að gerast í [Vesturgötu]málinu. En þar trúði lögreglan strax fram- burði eins vitnis þrátt fyrir að við- komandi hefði langan sakaferil að baki. Það voru mjög afdrifarík mis- tök.“ Í niðurstöðu skýrslu Metons segir m.a. að svo sé að sjá að lögreglan hafi frá upphafi útilokað aðra en sakborninginn sem geranda og öll rannsóknin hafi beinst að því að finna gögn sem sönnuðu það. Ekki hafi verið aflað sakavottorða ann- arra en þessa eina manns. Ekki hafi verið leitað á öðrum stöðum en þeim sem hann hefði hugsanlega getað losað sig við vopn á. Þá hefðu blóð- blettir á skyrtu hans einungis verið rannsakaðir með tilliti til hans og leigubílstjórans, en ekki hinna þriggja. Tæknirannsókn á leigubíln- um hafi þá verið ábótavant þar sem ekki var reynt að gera grein fyrir hreyfingarrými sem ákærði á að hafa haft við verknaðinn og heldur ekki leitað skýringa á því hví nánast engin för fundust á bílnum. Skýrsluhöfundar varpa þeirri spurningu fram hvort einhverjir aðrir gætu hafa framið verknaðinn og segja að ekki verði séð hvernig maður sem standi utan við bílinn geti valdið áverkanum þar sem skurðurinn nái að eyra bílstjórans vinstra megin og hurðarpósturinn komi greinilega í veg fyrir að egg- vopn sé dregið svo aftarlega. Áverk- inn sé þannig að það liggi betur fyr- ir farþega í framsæti að veita hann en einhverjum sem standi fyrir utan bílinn. Vísað er til dómsvitnisburðar læknis sem treysti sér ekki til að taka afgerandi afstöðu til þess hvort sjá mætti að skurðurinn hefði verið dreginn frá eyra að barka eða öfugt. Segir í skýrslunni að allt eins hafi það getað verið framsætisfarþeginn sem skar bílstjórann. Velta skýrslu- höfundar fyrir sér hvort jafndrukk- inn maður og ákærði var gæti hafa framið verknaðinn inn um bílglugga án þess að styðja sig við hurð, hurð- arkarm eða bílþakið, en ekki fund- ust nein för á bílnum utan ósam- anburðarhæfs lófafars. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er Gunnleifur Kjart- ansson, fyrrverandi yfirmaður á rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík, einn skýrsluhöfunda. Hann var í lögreglunni á þeim tíma sem rannsóknin stóð yfir en var í fríi og kom því ekki að rannsókn- inni. Hefði hann að öðrum kosti ekki fengið að vinna umrædda skýrslu að sögn Eiríks Becks, for- svarsmanns Metons. Eiríkur er sjálfur fyrrverandi lögreglumaður og segir skýrsluna um vinnubrögð fyrrum starfsbræðra sinna ekki gagnrýni á þá sjálfa heldur mun frekar þær aðstæður sem þeir séu látnir vinna við. „Lögreglumenn- irnir eru mjög hæfir en þeir fá hins vegar ekki að sinna vinnunni sinni vegna tíma- og fjárskorts,“ segir hann. Starfsemi Metons ehf. tekur m.a. til þriggja þátta; forvarna, rann- sókna og öryggisráðgjafar. Unnið er að eflingu hvers konar forvarna er varða öryggismál, svo sem með gerð hættumats og viðbragðsáætl- ana. Vinnur fyrirtækið einnig að uppljóstrun brota sem framin eru innan fyrirtækja og að öryggismati á þáttum er varða innbrot, þjófnaði og bruna, svo dæmi séu tekin. HÉR á landi er ekki löng hefð fyrir einkaspæjara- stofum en á heimasíðu Metons má sjá að þar starfa rannsóknarmenn sem áður voru í lögreglunni en hafa nú snúið sér að einkageiranum. „Starfsmenn Meton ehf. hafa áratuga reynslu sem lögreglumenn og rann- sóknarlögreglumenn bæði tækni- og almennra rann- sókna og þeir bjóða nú almenningi þekkingu sína og reynslu á almennum markaði,“ segir á heimasíðunni. Fyrrverandi lögreglumenn í einkageiranum Verjandi sakbornings aflar sérfræðiálits fyrir Hæstarétt vegna manndrápstilraunar Leggur fram skýrslu einka- spæjara um rannsóknina Morgunblaðið/Kristinn Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is ERLENDIR fjölmiðlar héldu áfram að fjalla um ákvörðun Bandaríkjamanna um að kalla varn- arlið sitt heim frá Íslandi. Í netútgáfu norska dagblaðsins Aftenposten er umfjöllun um málið með þeirri fyrirsögn að hranaleg framkoma Bandaríkjamanna hafi valdið Íslendingum vonbrigðum. Haft er eftir Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra að Íslendingar hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með að einhliða hafi verið ákveðið af hálfu Bandaríkjamanna að stíga þetta skref. Sérstaklega er Halldór sagður ósáttur við að Bandaríkjamenn hafi kynnt ákvörðun sína án þess að segja nokkuð til um hvernig komið yrði til móts við þarfir Íslendinga um sýnilegar varnir. „Þetta er ekki til að styrkja sam- bandið milli landanna tveggja. Þetta er ekki eitthvað sem vinir og bandamenn gera hvor öðrum,“ seg- ir Halldór. Haft er eftir honum að brottför Bandaríkjamanna hefði þýðingu fyrir Norðmenn og Danmörku og undirstrikaði Halldór að Keflavík væri hluti af varnarlínunni á Norð- ur-Atlantshafi. Aftenposten segir að sá mögu- leiki hafi nú þegar komið upp í um- ræðum á Íslandi að leitað verði til Noregs og annarra NATO-landa um að taka þátt í loftvörnum lands- ins. Ákvörðunin sögð valda spennu Washington Post segir einnig frá málinu og getur þess að ákvörðun Bandaríkjamann hafi nú þegar skapað spennu í samskiptum ríkjanna. Sagt er frá því að banda- rísk stjórnvöld greiði árlega um 260 milljónir dollara (jafnvirði um 17,8 milljarða íslenskra króna) til varn- arstöðvarinnar hér á landi en að viðræður hafi staðið yfir um að ís- lensk stjónvöld tækju á sig meira af þeim kostnaði. Haft er eftir Helga Ágústssyni, sendiherra Íslands í Bandaríkjun- um, að Íslendingar séu mjög von- sviknir vegna ákvörðunarinnar. Ís- lensk stjórnvöld hafi talið viðræðurnar ganga vel þangað til þeim var kynnt ákvörðun Banda- ríkjamanna. Framkoma Bandaríkja- manna sögð valda Ís- lendingum vonbrigðum Erlendir fjölmiðlar fjalla um varnarliðið Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.