Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 11 FRÉTTIR HELGI Magnússon, fram- kvæmdastjóri eignarhaldsfélags Hörpu, var kjörinn næsti formað- ur Samtaka iðnaðarins á aðal- fundi samtakanna í gær. Tekur hann við af Vilmundi Jósefssyni sem verið hefur formaður síðustu sex árin og hefur þar með setið hámarkstíma samkvæmt sam- þykktum samtakanna. Þorsteinn Víglundsson, Anna María Jóns- dóttir og Ingvar Kristinsson voru kjörin til stjórnarsetu næstu tvö árin. Fyrir í stjórn Samtaka iðn- aðarins eru Aðalheiður Héðins- dóttir, Hörður Arnarson, Loftur Árnason og Sigurður Bragi Guð- mundsson. Morgunblaðið/Ómar Helgi Magnússon, nýkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins, og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra á iðnþingi í gær en ráðherra var þar meðal ræðumanna. Á þinginu var talsvert fjallað um Evrópumál. Helgi Magnússon formað- ur Samtaka iðnaðarins HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra sagði í ræðu sinni á iðn- þingi í gær að hugsanlega yrði að endurskoða einhverjar ákvarðanir um opinberar framkvæmdir til að tryggja stöðugleika í efnahagsmál- um. Ræddi hann þetta í tengslum við umræðu um stóriðjuframkvæmdir, sagði engar ákvarðanir enn hafa ver- ið teknar um frekari stóriðju en ef til þeirra kæmi yrðu þær vandlega tímasettar með tilliti til áhrifa á efnahagslífið og aðrar atvinnugrein- ar. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti einnig ræðu á iðnþingi, svo og Vilmundur Jósefsson, fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins, og Hans Skov Christensen, framkvæmdastjóri Dansk Industri. Sameina þarf rannsóknastarfsemi Valgerður Sverrisdóttir, gerði grein fyrir stefnumótunarstarfi ráðuneytisins varðandi eflingu ís- lensks atvinnulífs í samræmi við yf- irskrift iðnþings: Framtíðarsýn fyrir atvinnulífið – nýsköpun í hnattvædd- um heimi. Valgerður sagði brýnt að leggja nýjar áherslur í rannsóknum og tækniþróun. Hún nefndi einnig að ná mætti samlegðaráhrifum með því að tengja saman rannsóknir sem nú væru dreifðar, t.d. að sameina mat- vælarannsóknir hjá fjórum opinber- um stofnunum. Ráðherra sagði starf Vísinda- og tækniráðs hafa borið góðan árangur og sagði álitlegt að útvíkka starfsemi ráðsins. Í stað þess að hún væri einskorðuð við vís- indi og tækniþróun yrði þar fjallað um atvinnuþróun og nýsköpun í víðu samhengi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra gerði að umtalsefni tímabundinn vanda af völdum mikilla umsvifa í þjóðfélaginu. Hún sagði rétt að fjár- festing í virkjunum og álverum ætti talsverðan þátt í tímabundinni aukn- ingu þjóðarútgjalda og viðskipta- halla við útlönd. Hátt gengi og aukin verðbólga yrði hins vegar aðeins að hluta rakin til slíkra framkvæmda. „Gríðarlegt innstreymi fjármagns vegna útrásar og útlána bankanna í kjölfar kerfisbreytinga á fjármála- markaði, m.a. greiðari aðgangi að lánsfé til húsbygginga og einka- neyslu, svo og skuldabréfaútgáfa er- lendra aðila í íslenskum krónum, hafa haft mun meiri áhrif,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir. Ekki andstæðir pólar Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra gerði einnig nýsköpun að um- talsefni og minnti á að í kjölfar sölu Landssímans hefði ríkisstjórnin ákveðið að leggja 2,5 milljarða til hennar á næstu árum. Sagði hann áætlað að 1,5 milljarðar rynnu í sjóð sem lífeyrissjóðir, fjármálafyrirtæki og aðrir legðu einnig verulegt fjár- magn í. Vonast hann til að stofnfé slíks sjóðs verði 6-10 milljarðar og að hlutur ríkisins yrði 20-25%. Forsætisráðherra sagði villandi að tala um stóriðju og hátæknigrein- ar sem andstæða póla. Stóriðjufyr- irtæki væru háþróuð og tæknivædd og menn yrðu að komast uppúr þeim hjólförum að framleiðsla og þjónusta gætu ekki haldist í hendur. Sagði hann hefðbundnar framleiðslugrein- ar hafa lagt grunninn að stórauknum hagvexti sem síðan gæfi þjónustu- fyrirtækjum tækifæri til vaxtar og útrásar. Þá sagði ráðherra sjálfgefið að hlutur þjónustu- og hátækni- greina mundi aukast næstu árin, það væri fýsilegt og að því væri stefnt. Halldór Ásgrímsson sagði einnig að öflug fjármálafyrirtæki væru for- senda útrásar. Sagði hann stöðu ís- lensku bankanna trausta og eigin- fjárhlutfall fjármálafyrirtækja hefði aldrei verið hærra og ljóst að þau gætu mætt verulegum áföllum. Forsætisráðherra sagðist enn vera þeirrar skoðunar að Ísland yrði fullgildur aðili að Evrópusamband- inu árið 2015. Telur hann þróun myntbandalagsins verða ráðandi í ákvörðun Íslendinga og taki Bretar, Danir og Svíar upp evru sagði hann um þrjá fjórðu af vöruútflutningi landsins vera í evrum. „Þá verðum við að viðurkenna að sveiflur í gengi íslensku krónunnar eru vandamál, ekki síður nú en í hinu hnattvædda hagkerfi, eins og nýleg dæmi sanna.“ Framkvæmdir hugs- anlega endurskoðaðar Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is HRAFN Bragason hæstaréttardómari telur að við skipan hæstaréttardómaranna Jóns Steinars Gunnlaugssonar og Ólafs Barkar Þorvaldssonar hafi lögbundnar umsagnir Hæstaréttar um um- sækjendur ekki þjónað þeim tilgangi laga að tryggja aðkomu Hæstaréttar að vali á dómurum við réttinn. Þetta kom fram í erindi hans á fundi Lögmannafélags Íslands. Ráðherrar í umrædd skipti, þ.e. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Geir Haarde settur dómsmálaráðherra, hefðu við veitingu embættanna vísað til hliðar umsögnum dómstólsins. Tekið skal fram að í erindi Hrafns voru engin nöfn nefnd en sem dæmi nefndi hann umsækjanda með lögmannsreynslu sem fékk stöðuna 2004 og umsækjanda með kunnáttu í Evr- ópurétti árinu áður. Hrafn rakti álit umboðsmanns Alþingis um að undirbúningur að stöðuveitingu Ólafs Barkar árið 2003 hefði verið ófullnægjandi og sagði Hrafn að veruleg líkindi væru á því að umboðsmaður hefði komist að sömu niðurstöðu í tilviki Jóns Steinars árið 2004. Hins vegar hefði enginn umsækjenda í það skiptið kvartað til umboðsmanns. Viðurkenning á röngu veitingavaldi Hrafn rifjaði einnig upp þegar gengið var framhjá Hjördísi Hákonardóttur umsækjanda þegar Ólafur Börkur var valinn og skaðabótakröfu hennar á hendur ríkinu fyrir vikið. Sættir tókust milli aðila eins og kunnugt er, en Hrafn upplýsti að ríkið mundi að verulegu leyti hafa komið til móts við kröfur hennar. „Má e.t.v. ætla að í því felist einhver viðurkenning á því að ekki hafi verið rétt farið með veitingarvald í greint sinn,“ sagði Hrafn í umfjöllun sinni við spurningunni um hvort ráð- herrum hefðu verið mislagðar hendur við beitingu valdheimilda sinna. Hann taldi erfitt að líta framhjá því sem úrskeiðis hefur farið við skip- unarferli hæstaréttardómara hérlendis. Því gæti verið nauðsynlegt að skoða breytingar á skipunar- ferlinu. Ræddi hann þrjár leiðir að breyttu skip- unarferli til að skapa frið um veitingu þessara mikilvægu embætta. Taldi hann einföldustu breytinguna felast í því að binda í lög að farið skyldi eftir umsögnum Hæstaréttar um dómara- efni. Rökin væru þau að dómstólarnir yrðu þannig óháðari stjórnvöldum. Í öðru lagi hefði sú hug- mynd nokkuð verið rædd að leggja tillögur fyrir Alþingi um skipan í dómarastöður, að bandarískri fyrirmynd. Aðkoma löggjafarvaldsins væri þó til þess fallin að draga úr hinum sjálfstæða og óháða svip dómstóla. Í þriðja lagi sagði hann að huga mætti að því að stækka hlutverk þeirrar dóm- nefndar sem fjallar um hæfi héraðsdómara. Hrafn Bragason hæstaréttardómari gagnrýnir skipan hæstaréttardómara Erfitt að líta framhjá því sem farið hefur úrskeiðis hjá ráðherrum SÖGUSLÓÐIR Vesturbæjar verða til skoðunar í laugardagsgöngu sem farin verður frá félagsmiðstöðinni Aflagranda 40 á kl. 10.30 í dag undir leiðsögn Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings og höfundar bókanna „Indæla Reykjavík“. Þetta er fyrri laugardagsgangan af tveim, en sú seinni verður í apríl. Gengið verður um gamla Bráðræðisholtið, með sjónum inn í gamla bæinn og til baka að félagsmiðstöðinni, þar sem þátt- takendur geta keypt sér hádegismat á vægu verði. Laugardagsgöngurnar eru hluti af átakinu „Fyrir hvert annað,“ sem hófst á dögunum í Vesturbænum, en einkunnarorð þess eru „Gagn- kvæmni og ábyrgð í verki,“ að leið- arljósi. Það er starfsfólk Þjónustu- miðstöðvarinnar Vesturgarðs, sem vinnur að átakinu, en því er ætlað að stuðla að betri þjónustu og faglegra starfi. Meginmarkmið verkefnisins er að auka þátttöku viðskiptavina þjón- ustumiðstöðvarinnar í þjónustunni og auka grenndarkennd með því að setja starf Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar í samfélagslegt sam- hengi og stuðla þannig að auknum félagsauð. Með því að beita þessum markmiðum á verkefni miðstöðv- arinnar, kveður Óskar Dýrmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri Vest- urgarðs, mögulegt að finna þær leið- ir sem bæta þjónustuna og efla þar með Vesturbæinn sem heild. „Við þurfum að setja einstaklinginn í for- grunn, þar sem hans þarfir eru virt- ar og skildar, en ekki síður þurfum við á samstarfi við almenning að halda, það þarf að bæta þann sam- félagsskilning að við þurfum að standa saman,“ segir Óskar og bætir við að undan þessum hugmyndum hafi hugmyndin að „Fyrir hvort ann- að,“ sprottið. „Við þurfum að ná upp samræðu við almenning. Þetta er samstarfsverkefni samfélagsins, ekki þjónusta sem er veitt yfir borð- ið eins og í verslun, heldur er þetta þátttaka í þjónustunni. Reykjavík- urborg er að endurhugsa þjón- ustuna og við erum að fara inn í ákveðið þjónustusamfélag.“ Hluti af verkefninu verður hvatn- ing til grenndargæslu, auk þess sem kynningarbæklingi á starfsemi þjón- ustumiðstöðvarinnar verður dreift á öll heimili í Vesturbænum. Þá hafa tveir rýnihópar tekið til starfa, en þeim er ætlað að koma með gagn- rýni og tillögur á það starf sem unn- ið er á vegum Vesturgarðs. Annars vegar er um að ræða notendahóp eldri borgara, sem nýtir þjónustuna í Aflagranda og hins vegar hóp sem tekur almennt fyrir þá þjónustu sem veitt er í Vesturbænum. Gönguferð skipulögð um Vesturbæinn á vegum Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar Vilja þétta samfélagið og bæta þjónustu við íbúana Starfsmenn Vesturgarðs og aðrir Vesturbæingar lögðu í gönguferð á dög- unum í tilefni upphafs verkefnisins „Fyrir hvert annað“ en í dag verður aftur farið um bæinn í skemmtilegri og fræðandi gönguferð. AKRAFELL og Helgafell, áætlun- arskip Samskipa, urðu fyrir töfum vegna aftakaveðurs í Norðursjó. Tafirnar valda því að Akrafell kemur til Reykjavíkur seinni part þriðju- dags í stað sunnudags og Helgafell á miðvikudagskvöld í stað miðviku- dagsmorguns. Tafir af þessu tagi eru fremur sjaldgæfar en geta orðið nokkrum sinnum á hverjum vetri, að sögn Pálmars Óla Magnússonar, fram- kvæmdastjóra millilandasviðs Sam- skipa. Stærri skipin eru fljótari að vinna upp tafir sem þessar og því hefur óveðrið minni áhrif á áætlun Helgafells, sem er stærra skip en Akrafell. Aftaka- veður tafði áætlun Samskipa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.