Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Framtalsaðstoð Annast framtalsaðstoð fyrir einstaklinga með og án reksturs. Annast einnig frestbeiðnir. Pantið tímanlega í síma 511 2828 eða með tölvupósti bergur@vortex.is Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdl. Suðurveri v/Stigahlíð Að púsla saman raun- veruleikanum á morgun Draumaland Andra Snæs Magnasonar er sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð. VEIÐIHEIMILDIR íslenskra skipa á úthafskarfa minnka um 17% frá síðasta ári, samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegsráð- herra hefur gefið út. Heimilt er að veiða samtals 28.610 lestir af út- hafskarfa á þessu ári og skiptist þetta magn á tvö svæði. Heimilt er að veiða 23.406 lestir á deilisvæði sem að hluta liggur innan lögsög- unnar en sá karfi er veiddur á fyrri helmingi ársins, en 5.204 á deilisvæði sem liggur alfarið utan lögsögunnar en sá karfi er veiddur á seinni helmingi ársins. Á ársfundi Norðaustur-Atlants- hafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), sem fram fór í London í nóvember sl., náðist samkomulag um stjórnunarráðstafanir varðandi úthafskarfa. Öll aðildarríki NEAFC að Rússum undanskildum hafa samþykkt ráðstafanirnar. Fram kemur í fréttatilkynningu ráðuneytisins að þótt Íslendingar hafi viljað minnka kvótann meira en samkomulag varð um felur það í sér að komið er lengra til móts við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknar- áðsins (ICES) en verið hefur und- anfarin ár. Viðmiðunarheildarafla- mark NEAFC var lækkað úr 75.200 lestum í 62.416. Þetta er lækkun sem nemur 17% og munu aðildarríkin draga úr sínum veið- um sem því nemur. Í ráðgjöf ICES felst að haga eigi stjórn veiðanna með þeim hætti að tekið sé tillit til þess að um tvö aðskilin veiðisvæði sé að ræða, annað innan og við lögsögu- mörk Íslands og hitt sunnar og vestar (oft kallað „neðri karfi“ og „efri karfi“). Eins og undanfarin ár lagði ICES til að veiðum verði stjórnað þannig að ekki væri hætta á að karfi yrði ofveiddur á öðru hvoru veiðisvæðinu. Þar sem stjórn veiða Íslendinga hefur undanfarin ár tekið tillit til þess að um tvö aðskilin veiðisvæði er að ræða er ekki þörf á breyt- ingu varðandi fyrirkomulag veiða íslenskra skipa. Kvóti úthafskarfa minnkar um 17% Morgunblaðið/Árni Sæberg Tíu tonna hal Úthafskarfakvótinn dregst saman í ár. Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Meðal nýjunga er að heimilt verður að vigta þorsk, ýsu og ufsa eftir slægingu, þótt fiski hafi verið landað óslægðum. Í reglugerðinni eru margvísleg nýmæli sem miða fyrst og fremst að því að fella vigtunina betur að vinnslu og viðskiptaferlum í atvinnu- greininni. Markmiðið er að lækka kostnað og auka öryggi við skrán- ingu og vigtun, segir í fréttatilkynn- ingu ráðuneytisins. Helstu nýmælin snúa að auknum sveigjanleika í vigtunaraðferðum og heimilt verður að vigta þorsk, ýsu og ufsa eftir slægingu, þótt fiski hafi verið landað óslægðum. Reglugerðin tekur gildi 1. sept- ember 2006. Samhliða gildistöku reglugerðarinnar verður slæging- arstuðlum breytt úr 16% í 12% fyrir þorsk og ýsu, en 13% fyrir ufsa. Vinna við reglugerðina hefur staðið yfir á þriðja ár og samráð ver- ið haft við helstu hagsmunaaðila, að því er fram kemur. Heimilt að vigta eftir slægingu HEILDARAFLI íslenskra skipa í ný- liðnum febrúarmánuði var tæpum 10% minni en í sama mánuði 2005, samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofu Íslands. Aflinn var alls 214.251 tonn samanborið við 300.969 tonn í febrúar í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 18% frá sama tímabili í fyrra, sé hann metinn á föstu verðlagi. Það er slök útkoma loðnuvertíðar sem veldur þessum samdrætti milli ára og mánaða. Í febrúarmánuði í ár lönduðu íslensk skip tæpum 160 þús- und tonnum af loðnu en í fyrra ríf- lega 246 þúsund tonnum. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins hafa því borist rúm 168.000 tonn af loðnu samanborið við rúmlega 449.000 tonn í fyrra. Botnfiskaflinn var 49.200 tonn í febrúar en var 50.900 í fyrra. Þorsk- aflinn var 25.900 tonn en ýsuaflinn tæp 8.800 tonn en afli ýsu dróst sam- an um 1.200 tonn. Það sem af er árinu nam afli botnfisks 79.800 tonn- um sem er 3.900 tonna minnkun. Ýsuaflinn er 1.200 tonnum minni VEIÐAR Grænlendinga á náhval og mjaldurhval eru að mati vís- indanefndar NAMMCO ekki sjálf- bærar, og telur nefndin að óbreytt- ar veiðar muni koma niður á stofnstærð þessara tegunda. Þetta er ein þeirrar ályktunar sem NAMMCO, Norður-Atlantshafs- sjávarspendýraráðið, sendi frá sér að loknum 15. ársfundi ráðsins sem haldinn var hér á landi í vikunni. Ráðið lýsti einnig yfir áhyggjum sínum yfir ástandi rostungastofns- ins á Vestur-Grænlandi, en frum- rannsóknir á stofninum gefa til kynna að veiðarnar séu ekki sjálf- bærar. NAMMCO hrósaði hins veg- ar Grænlendingum fyrir að hafa tekið upp kvótakerfi í viðleitni til að ná stjórn á veiðum á náhval og mjaldurhval, en hvetur þá jafn- framt til að draga enn frekar úr veiðunum. Ráðið hyggst halda áfram rann- sóknum sínum á áhrif sjávarspen- dýra á vistkerfi hafsins og vinna frekar að þróun fjölstofna- veiðiráðgjöf. Þá er stefnt að því að koma á laggirnar nefnd um nýt- ingu selstofna á Norður-Atlants- hafinu. Á ársfundinum voru Kate Sand- erson frá Færeyjum endurkjörin sem formaður ráðsins til tveggja ára og Halvard P. Johansen frá Noregi sem varaformaður. Morgunblaðið/RAX Náhvalur Grænlenskur veiðimaður á náhvalsveiðum við Thule. Lýsa yfir áhyggjum af hvalveiðum Grænlendinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.