Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 23 ERLENT Quito. AP. | Leiðtogi frumbyggja í Ekvador hefur hafnað ákalli frá Al- fredo Palacio, forseta landsins, um að þeir hætti mótmælaðgerðum sín- um vegna fyrirhugaðs fríverslunar- samnings við Bandaríkin. Mótmælin hafa staðið síðan á mánudag en frumbyggjum hefur tekist að lama samgöngur í landinu með aðgerðum sínum og hafa ennfremur hótað því að steypa ríkisstjórn Palacios af stóli ef forsetinn skrifar undir samning- inn við Bandaríkjamenn. „Við munum halda áfram aðgerð- um okkar og magna mótmælin til muna,“ sagði Luis Macas, leiðtogi samtaka frumbyggja í Ekvador, sem þykja halla sér mjög til vinstri í stjórnmálum. Heldur virtist þó hafa dregið úr mótmælunum í gær, að því er AP-fréttastofan greindi frá. Mót- mælendur hafa lamað samgöngur með því að koma fyrir brennandi hjólbörðum á götum Quito, hlaða grjótveggi og koma trjábolum þar fyrir. Frumbyggjar vilja að stjórn- völd hætti við fríverslunarsamning- inn en þeir óttast að hann muni skaða efnahag þeirra og menningu, að aðeins hinir efnameiri muni hagn- ast á honum. Palacio forseti, sem var áður vara- forseti og tók við völdum í fyrra þeg- ar þingið rak Lucio Gutierrez forseta úr embætti eftir að hann lagði hæstarétt landsins niður, sagði hins vegar í sjónvarpsávarpi á miðviku- dag að mótmælin ættu sér það mark- mið helst að skapa glundroða og steypa stjórn hans. Hvatti hann landa sína til að sýna samstöðu og verja lýðræðið í landinu. Neita að hætta mótmælum Frumbyggjar í Ekvador óánægðir með fríverslunarsamning við Bandaríkin AP Frumbyggjakona tekur þátt í mótmælum í Quito á fimmtudag. París. AFP. | Míkhaíl Shaakashvili, forseti Georgíu, hvatti í gær Evrópu- sambandið til þess að styðja við bak- ið á stjórnarand- stöðunni í Hvíta-Rússlandi en hann segir for- setakosningar, sem fara fram í landinu á morgun „skólabókardæmi um hvernig hag- ræða má kosn- ingaúrslitum“. Shaakashvili benti á að fylgismenn Alexanders Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rúss- lands, stýri öllum kjörstjórnum í landinu og að Lúkasjenkó hafi lagt bann við því að eftirlitsmenn fylgist með sjálfri talningu atkvæðanna. Þessar „forsetakosningar“ geti því aldrei staðið undir nafni. Í fyrradag greindi yfirmaður ör- yggislögreglunnar, KGB, í Hvíta- Rússlandi frá því að þátttaka í mót- mælaaðgerðum á morgun yrði skil- greind sem hryðjuverk. Saakashvili sagði hinsvegar í gær að boðaðar mótmælaaðgerðir í Hvíta-Rússlandi, og viðbrögð Evrópu við þeim, væru prófsteinn á það hversu staðráðnar Evrópuþjóðir væru í því að losna við einræðisstjórnir í álfunni. Hvatti hann ESB til að herða á efnahags- legum og pólitískum þvingunarað- gerðum sínum gagnvart stjórnvöld- um í Hvíta-Rússlandi. ESB auki þrýsting á yfirvöld í H-Rússlandi Míkhaíl Saakashvili Dili á Austur-Tímor. AP. | Yfirvöld í her Austur-Tímor hafa rekið þriðjung liðsmanna hersins í kjölfar þess að hermennirnir fóru í verkfall til að mótmæla slæmum aðbúnaði. „Þeir hafa formlega verið reknir,“ sagði Taur Matan Ruak yfirhers- höfðingi um þá næstum 600 hermenn sem undanfarinn mánuð hafa verið í verkfalli og krafist hafa þess, að stjórnvöld á Austur-Tímor bregðist við umkvörtunum þeirra. Alls eru um 1.400 liðsmenn í her Austur-Tímor og því ræðir hér um meira en einn þriðja hermanna landsins. Hernum var komið á fót eftir að íbúar Austur-Tímor sam- þykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1999 að segja skilið við Indónesíu og stofna sjálfstætt ríki. Flestir verkfallsmanna voru áður í hópi skæruliða, sem börðust í 25 ár gegn Indónesíuher. Þeir segja fram- gangsreglur í hernum ósanngjarnar og ennfremur, að yfirmenn hygli gjarnan vinum sínum og vanda- mönnum. Reka þriðj- ung herafla A-Tímor ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.