Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 33
DAGLEGT LÍF Í MARS
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
Afgreiðslugjöld á flugvöllum.
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og
minibus, 9 manna, og rútur með/án
bílstjóra.
Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur,
allt að 14 manna. Smárútur fyrir
hjólastóla.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum
stærðum - frá 2ja manna og upp í 30
manna hallir. Valið beint af heimasíðu
minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án
greiðslu og við staðfestum síðan og
sendum samning og greiðsluseðla. Einnig
má greiða með greiðslukorti.
LALANDIA
Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju
skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur.
Lágmarksleiga 2 dagar.
Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006
Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í
Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna-
höfn og Flensborg. Getum útvegað
hjólhýsi og bíla með dráttarkrók.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456 3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem
ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum
Bílaleigubílar
Sumarhús í
Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Okkur leiddist einn daginnog fengum þá hugmyndað skreppa til Gummabróður og skoða gisti-
húsið hans. Ég fann tilboðsferð
fyrir okkur á netinu og nokkrum
dögum seinna vorum við farnar í
helgarferð til hans,“ segir Svan-
hvít Guðmundsdóttir. Hún fór
ásamt þremur systrum sínum til
Englands í febrúar síðastliðnum til
að heimsækja Guðmund Ólafsson,
bróður þeirra, sem rekur eitt
glæsilegasta gistihús þar í landi
eða „bed and breakfast“.
„Gistihúsið heitir The Old Rail-
way Station og er í gamalli lest-
arstöð. Guðmundur keypti það
ásamt konu sinni Katie Ólafsson í
október árið 2004 en það var opn-
að fyrst árið 1996. Forsagan er að
þau bjuggu í Chichester, sem er
þarna rétt hjá, og á fertugsafmæli
Katie bauð hann henni á gisti-
húsið. Þau urðu ástfangin af staðn-
um og þegar hann kom á sölu
ákváðu þau að skella sér í kaupin,
en hvorugt þeirra hafði komið ná-
lægt slíkum rekstri áður.“
Eldhús í miðasölunni
Gistihúsið er í gamla stöðv-
arhúsinu og á járnbrautartein-
unum fyrir utan standa þrír lest-
arvagnar sem eru nú herbergi.
„Stöðvarhúsið var byggt árið 1894
en hafði verið í eyði í 40 ár þegar
það var gert upp og opnað sem
gistihús 1996. Lestarvagnarnir eru
frá sama tímabili og Titanic og
eins og vagnarnir sem voru í Aust-
urlandahraðlestinni. Það eru að-
eins til fimmtán slíkir vagnar í
heiminum,“ segir Svanhvít. Hún
segir að vagnarnir og stöðin hafi
verið mjög illa farin en allt hafi
verið gert vandlega upp og fengið
að halda glæsileika sínum og kar-
akter. „Setustofan er þar sem bið-
stofan var, herbergi þar sem
karlaklósettið var og eldhúsið þar
sem miðasalan var, miðalúgurnar
eru þar meira að segja ennþá.“
Svanhvít segir reksturinn ganga
mjög vel hjá þeim enda hafi þetta
gistiheimili fengið mikla umfjöllun
og fjölda viðurkenninga, sú nýj-
asta er Cesar-verðlaunin frá The
Good Hotel Guide 2005, svo hefur
það líka unnið bæði Hotel of the
year og Bed/Breakfast of the Year
frá The English Tourist Board
nokkrum sinnum.
„Gistihúsið er í West Sussex,
sem er við suðurströnd Englands.
Það er stutt frá London, en virðist
vera í órafjarlægð sökum þess
hversu strjálbýlt það er og það
hefur enn þessa kyrrlátu sveita-
fegurð gamla Englands. Það er
alltaf gaman að sjá hvað borin er
mikil virðing fyrir öllu gömlu og
því vel við haldið á Englandi.“
Svandís segir margt hafa verið að
skoða í nágrenni gistihússins.
„Þrátt fyrir annir í rekstrinum gaf
Guðmundur sér góðan tíma með
systrum sínum, keyrði okkur um
og fór með okkur í siglingu til
Portsmouth og í skoðunarferðir til
Arundel og Chichester. Petworth,
sem er næsta þorp við gistihúsið,
er mjög fallegt og þar er mjög
mikið af antikbúðum sem gaman
er að skoða. Ef fólk er á ferðinni
þarna mæli ég með að fara út að
borða á veitingastaðnum Exsurgo
í Midhurst en það er um tíu
kílómetra frá The Old Railway
Station. Og að setjast inn á ekta
breskt kaffihús og fá sér Cream
Tea að hætti Sussexbúa er nauð-
synlegt og alveg einstök upplifun.“
Svandís segir að þeim systrunum
finnist bróðir sinn sniðugur að
hafa drifið sig í gistihúsakaup. „Ef
maður lætur ekki draumana ræt-
ast þegar tækifærin gefast þá
verður ekkert af þeim. Það þyrftu
fleiri að hafa kjark til að svissa
svona yfir. Við systkinin erum níu
og núna stefnum við öll að því að
fara saman og gista hjá honum, en
skipuleggja það með meiri fyr-
irvara í það skiptið.“ Hún segir
systkinin vera mjög samrýnd og
ferðast oft saman. „Þegar eitt-
hvert okkar á sextugsafmæli bjóð-
um við afmælisbarninu í ferð út.
Við erum búin að fara í tvær slík-
ar ferðir og förum svo í eina í ár,“
segir Svanhvít að lokum.
FERÐALÖG | Svanhvít Guðmundsdóttir fór með systrum sínum til Englands
Gistihús í gamalli lestarstöð
Gistihúsið The Old Railway Station er í gamalli lestarstöð og nokkur her-
bergi eru í gömlum járnbrautavögnum sem sjást til vinstri á myndinni.
Systkinin Guðmundur, Dagbjört, Ingigerður, Jóna og Svanhvít við höfnina
í Portsmouth þangað sem þau fóru í siglingu.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Heimasíða The Old Railway
Station er: www.old-station.co.uk
HÓTELINU Radisson SAS 1919 í
Reykjavík hefur verið boðin þátt-
taka í alþjóðlegu samstarfsneti
lúxusaðila í ferðaþjónustu, sem
nefnist Virtuoso Hotel & Resort
og snýst um að upplýsa alla
helstu og mikilvægustu ferðasala
og umboðsskrifstofur heims um
vönduðustu hótelin og það sem
þau hafa upp á að bjóða. Í frétta-
tilkynningu frá Radisson SAS
1919 kemur fram að hótelið er
fyrsta hótelið í Radisson SAS
keðjunni sem hlýtur þennan heið-
ur.
Virtuoso er samstarfsnet rúm-
lega 7.000 sérfræðinga á sviði
ferðaþjónustu um allan heim og
veitir helstu umboðsaðilum lúx-
usferðalaga og ferðaskrifstofum
heims upplýsingar um markaðs-
setningu, sölu, tæknilegan stuðn-
ing og framboð og þjónustu í
hæsta gæðaflokki.
HÓTEL | Radisson
SAS 1919
Boðin þátt-
taka í alþjóð-
legu neti
lúxusaðila
Radisson SAS 1919 er fyrsta Radisson SAS-hótelið sem boðin er þátttaka.