Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 55
FRÉTTIR
fimmtudag,
föstudag
og laugardag
Opið til kl. 16 laugardag
Tilboð í 3 daga
Okkar árlega
vortilboð
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814
20%
afsláttur
ALMENNUR fundur starfsmanna
slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli
sendi frá sér ályktun þar sem segir
að nú þegar ákveðið hafi verið að
varnarliðið hverfi á braut sé mikil-
vægt að þekking og reynsla slökkvi-
liðsins fari ekki forgörðum.
„Slökkviliði Keflavíkurflugvallar,
sem er atvinnumannaslökkvilið, hef-
ur verið stjórnað af Íslendingum síð-
an 1963 við mjög góðan orðstír eins
og þau fjölmörgu verðlaun og við-
urkenningar sem það hefur hlotið
bera vitni um. Það er eina slökkvilið-
ið á Íslandi sem hefur hlotið alþjóð-
lega vottun, nú síðast í vetur. Innan
liðsins býr því gríðarleg reynsla,
mikill mannauður og menntun. Á
þessum tímamótum er mjög mikil-
vægt að þessi þekking og reynsla
fari ekki forgörðum. Hjá slökkvilið-
inu starfa í dag um 70 manns í hús-
bruna-, forvarnar-, eiturefna- og
flugvallardeild. Þar að auki sá
slökkviliðið til 30 ára um allar við-
gerðir á tækjum og tólum liðsins, all-
an snjómokstur og hálkuvarnir á
flugbrautum og flugvallaröryggi við
frábæran orðstír.
Að okkar áliti kallar brottför varn-
arliðsins á breytingar og meiri hátt-
ar uppstokkun á rekstri og stjórn-
sýslu Keflavíkurflugvallar, svo og
öllum flugrekstrar- og flugöryggis-
málum Íslands, þar með talið innan-
landsflug til að ná fram samlegðar-
áhrifum við rekstur eins flugvallar í
stað tveggja. Að því máli verða því að
koma þingmenn, sveitarstjórnar-
menn og fagaðilar.
Það er því skýr krafa starfsmanna
Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli
að haft verði samráð við þá vegna
þeirra breytinga sem fyrirhugaðar
eru. Einnig að hagsmunir heildar-
innar verði hafðir að leiðarljósi,“ seg-
ir í ályktun fundar slökkviliðsmanna
á Keflavíkurflugvelli.
Mikilvægt að þekking og
reynsla fari ekki forgörðum
LANDAKOTSSKÓLI fagnar um
þessar mundir 110. starfsafmæli
sínu en skólinn tók til starfa árið
1896 að frumkvæði danskra kaþ-
ólskra nunna sem hófu þar lestr-
arkennslu fyrir börn. Í tilefni af af-
mælinu hefur verið gefinn út
vandaður kynningarbæklingur sem
dreift hefur verið í hús í Reykjavík.
Opið hús verður í skólanum í dag,
laugardag, kl. 14–16.
Um 150 nemendur stunda nú nám
í Landakotsskóla sem er sjálfstætt
starfandi grunnskóli fyrir nemend-
ur í 1.–10. bekk auk fimm ára bekkj-
ardeildar. Eins og vænta má hefur
skólinn gengið í gegnum margar
breytingar á löngum starfstíma en
allt fram á síðasta ár var hann rek-
inn af kaþólsku kirkjunni. Skólinn
er í dag sjálfseignarstofnun sem
starfar undir verndarvæng kaþ-
ólsku kirkjunnar. Hún leggur skól-
anum til húsnæði við Túngötu þar
sem hann hefur starfað frá upphafi,
en mikið hefur verið aukið við hús-
næðið á síðustu áratugum. Skólinn
nýtur margvíslegrar sérstöðu, m.a.
þeirrar að aðeins ein bekkjardeild
er í hverjum árgangi þar sem hver
nemandi nýtur sín til fulls. Einnig
hefur Landakotsskóli fjölmenning-
arlegt yfirbragð þar sem nemendur
eru af mörgu þjóðerni og með fjöl-
breyttan bakgrunn. Tónlistarskóli
er starfræktur við Landakotsskóla
og er kennslu á hljóðfæri fléttað inn
í grunnskólanámið.
Á afmælisárinu hafa stjórnendur
skólans með liðsinni öflugs foreldra-
ráðs ýmislegt á prjónunum til að
efla og styrkja starfsemi hans.
Verður m.a. ráðist í fjáröflun til
þess að auka bókakost skólans og
verður leitað til fyrrverandi nem-
enda skólans, sem nú skipta þús-
undum, og annarra velunnara hans í
því skyni.
Opið hús hjá Landakotsskóla
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Hauk-
ar og EGO ehf. hafa gert með sér
samning um að EGO byggi og reki
lágverðsstöð fyrir eldsneyti á lóð
félagsins á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Samkomulagið er gert með fyrir-
vara um samþykki bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði.
Með samningnum eru Haukum
tryggðar ákveðnar tekjur af hverj-
um seldum eldsneytislítra til áfram-
haldandi uppbyggingar á hinu
kraftmikla íþróttastarfi sem fram
fer á Ásvöllum.
Á myndinni má sjá Árna Sverr-
isson, formann framkvæmda-
stjórnar Hauka, og Jóhann P. Jóns-
son, framkvæmdastjóra EGO,
undirrita samninginn fyrir hönd
sinna félaga.
EGO-stöð byggð
á Ásvöllum
UNGVERSKA menningarfélagið
á Íslandi, Félagið Ísland-Ung-
verjaland, sem stofnað var árið
1992, býður tvo styrki fyrir Ís-
lendinga til sumarnáms í Ung-
verjalandi. Styrkirnir eru í boði
ungverska menntamálaráðuneyt-
isins. Námskeiðin eru öll haldin
við háskóla í Ungverjalandi og er
hægt að velja um 2 til 4 vikna
námskeið. Allar upplýsingar á
netinu: www.scholarship.hu/
static/angol/summercourses/.
Styrkirnir fela í sér: skólagjöld,
húsnæði, fullt fæði, kvölddagskrá,
ferðir og annað á vegum skólans.
Styrkurinn felur ekki í sér flug-
farið.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja
um styrkinn sendi ferilskrá sína
ásamt bréfi sem segir af hverju
viðkomandi vill fara á námskeið í
Ungverjalandi eða læra ung-
versku.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl
næstkomandi og skal skila um-
sóknum til félagsins Ísland-Ung-
verjaland, Hagamel 45, 107
Reykjavík eða á netfangið mauriz-
iotani@yahoo.it.
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðu félagsins (http://ung-
verjaland.supereva.it/) og með því
að senda tölvupóst á netfangið
mauriziotani@yahoo.it eða í síma
551 2061 – 696 7027.
Styrkir til náms í
Ungverjalandi í sumar
FYRIR fjörutíu árum komu þrír
aðilar saman á Sæbólslandi í Kópa-
vogi gagngert til að stofna Sendi-
bílastöð Kópavogs. Þeir voru Ing-
ólfur Finnbjörnsson, Ellert
Tryggvason og Guðmundur Þórð-
arson. Þetta var árið 1966 og er
sendibílastöðin því 40 ára og er
þess minnst í þessari viku.
Af því tilefni er öllum viðskipta-
vinum boðinn 10% afsláttur af taxta
í afmælisvikunni. Á sjálfum afmæl-
isdeginum laugardaginn 18. mars
verður tímamótunum fagnað með
því að koma saman á stöðinni kl.
11–16, þar sem boðið verður upp á
grillaðar pylsur, öl og kaffihlaðborð.
Einnig verður hoppukastali fyrir
börnin á staðnum.
Sendibílastöð
Kópavogs
40 ára
ATLANTSOLÍUHLAUPIÐ fer
fram í fyrsta sinn í dag, laugardag-
inn 18. mars, og verður hlaupið um
Elliðaárdalinn. Hlaupið er fyrir
fjölskylduna en boðið verður upp á
tvær vegalengdir – 3 eða 7 kíló-
metra. Áður en hlaupið hefst verð-
ur boðið upp á létta upphitun allur
undirbúningur er í höndum Skokk-
hóps Víkings.
Hlaupið verður frá bensínstöð-
inni á Sprengisandi og hring um
Elliðaárdalinn. Það verður Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri sem ræsa mun hlaupið kl.
10.30.
10 heppnir hlaupagarpar fá frítt
á tankinn, segir í fréttatilkynningu.
Atlantsolíu-
hlaupið
OPIÐ hús verður í Waldorfskólan-
um í Lækjarbotnum v. Suðurlands-
veg í dag, laugardaginn 18. mars kl.
14–17. Eldsmiðjan er opin, handverk
og önnur vinna nemenda liggur
frammi. Kennarar og foreldrar
verða til viðtals og elsti bekkurinn
verður með kaffisölu.
Opið hús í
Waldorfskólanum
í Lækjarbotnum
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna harmar og hafnar al-
farið hugmyndum Kristins H. Gunn-
arssonar í þá veru að tími sé til
kominn að huga að sameiningu
Framsóknarflokks og Samfylkingar.
Í ályktun stjórnarinnar segir m.a.:
„Sýnir þetta betur en margt annað
undanfarnar vikur að Kristinn vinn-
ur ekki lengur í þágu Framsóknar-
flokksins heldur lætur hann stjórn-
ast af eigin athyglissýki. Stanslausar
árásir þingmannsins á eigin flokks-
félaga og málefnastarf eru fyrir
margt löngu komnar út fyrir öll vel-
sæmismörk og ekki verður sérstök
eftirsjá af Kristni þó hann hverfi úr
félagaskrá Framsóknarflokksins.
Vill SUF benda þingmanninum á að
honum sé í lófa lagið að sameina
sjálfan sig inn í Samfylkinguna og
getur hann þá stundað sína pólitísku
hryðjuverkastarfsemi þar sem hún á
heima.“
Hafna sameiningu
Framsóknarflokks
og Samfylkingar