Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 57 DAGBÓK Einbýlishús í Seljahverfi óskast Traustur kaupandi óskar eftir 250 fm einbýlis- húsi í Seljahverfi, gjarnan á einni hæð. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Félag harmonikuunnenda í Reykjavík heldur dansleik í Glæsibæ í kvöld kl. 21.30. Hljómsveitir undir stjórn Garðars Olgeirssonar og Sveins Sigurjónssonar, auk Vindbelgjanna, leika fyrir dansi. Mætum öll og tökum með okkur gesti. F.H.U.R Allir í dansskóna Harmonikuball í Glæsibæ Til sölu nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir í grónu hverfi 2ja, 4ra og 5 herbergja • Tveggja herbergja 80 m² • Fjögurra herbergja 135 m² • Fimm herbergja 143 m² Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum. Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum. Stofurnar eru 30-40 m². Á gólfum eru flísar og gott eikarparket. Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni. Stutt í golfvöll. Hrauntún ehf. byggir Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari, í símum 896 1606 og 557 7060. Dæmi um 2ja herbergja íbúð Ávegum Endurmenntunar Háskóla Ís-lands verður dagana 20.–27. mars hald-ið námskeið um utanríkisstefnu Banda-ríkjanna eins og hún birtist í alþjóða- stjórnmálum samtímans. Yfirskrift námskeiðsins er „Land hinna frjálsu?“ og kennarar eru Karen Merrill, dósent í sagnfræði frá Williams College í Massachusetts, Martha Umphrey, dósent í lög- fræði, réttarheimspeki og samfélagsvitund við Amherst College, og Magnús Þorkell Bernharðs- son, sagnfræðiprófessor við Williams College. „Við munum fjalla um sögu innanríkis- og utan- ríkismála í Bandaríkjunum og beina sjónum okk- ar sérstaklega að þeirri miklu spennu sem greina má á báðum sviðum, útþenslustefnunni sem ein- kennir þjóðina og teygði sig í fyrstu yfir álfuna en síðar út á svið alþjóðlegra viðskipta og stjórnmála, og sterka þörf og kröfu þjóðarinnar um öryggi,“ segir Karen Merrill. „Þá munum við líta á hin miklu áhrif uppbyggingar stjórnlaga landsins á þróun sögu Bandaríkjanna og þá ekki hvað síst hvernig stjórnarskráin hefur mótað skilning sam- félagsins á hugtökum á borð við einkalíf og jafn- rétti.“ Í fræðastörfum sínum og skrifum hefur Karen Merrill sérstaklega beint sjónum sínum að vest- urhluta Bandaríkjanna og þeirri íhaldsstefnu sem einkennir stjórnmál á því svæði. Bók hennar um þjóðnýtingu ónýttra jarðeigna í Vestur-Banda- ríkjunum á 19. og 20. öld, „Public Lands and Political Meaning“, hlaut verðlaun Western History Association-sögufélagsins árið 2004 og bók hennar um olíukreppu Bandaríkjanna á 8. áratugnum kemur út síðar á þessu ári. Martha Umphrey hefur rannsakað áhrif laga- kerfisins á bandaríska menningu og sér í lagi hvernig réttarfar og dómstólar hafa mótað fram- vindu margskonar deilumála. Í starfi sínu hefur hún beint sjónum sínum að þróun refsiábyrgðar og breytingum í viðhorfi bandarísku þjóðarinnar. „Það leikur enginn vafi á að Bandaríkin eru fyr- irferðamikil á alþjóðavettvangi og eins og margir Bandaríkjamenn eru meðvitaðir um veit fólk í öðrum löndum mun meira um okkur kanana en við vitum um önnur lönd og þjóðir,“ segir Karen. „Engu að síður, til að skilja hvers vegna Banda- ríkin haga sínum málum eins og þau gera, er mik- ilvægt að skoða hlutina í víðu samhengi og skilja hvernig margt það sem unnið er í dag á sér djúpar rætur í sögunni. Með námskeiðinu viljum við Martha, með aðstoð Magnúsar, gefa þessa víðu sýn og varpa ljósi á mikilvæg atriði í sögu Banda- ríkjanna sem oft falla í skuggann í almennri um- ræðu og fréttaskýringum fjölmiðlanna.“ Skráning í námskeiðin og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Endurmenntunar HÍ: www.endurmenntun.is. Námskeið | Utanríkisstefna Bandaríkjanna, sögulegir og samfélagslegir áhrifavaldar Stefna Bandaríkjanna grannskoðuð  Karen Merrill er fædd 1963. Hún lauk BA- gráðu frá Oberlin College 1986 og dokt- orsgráðu í sagnfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor árið 1995. Hún starfar nú sem for- seti rannsókn- armiðstöðvar umhverf- isfræða og er aðstoðarprófessor í sagnfræði við Williams College í Massachus- etts. Karen er gift Mörthu M. Umphrey lagaprófessor, f. 1963. Eiga þær börnin Theo og Dashiell. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 90 ÁRA afmæli. Á morgun, 19.mars, verður níræður Gunn- laugur Björnsson frá Grjótnesi á Mel- rakkasléttu. Hann tekur á móti vinum og ættingjum á afmælisdaginn á milli kl. 15 og 18 á heimili sínu að Fjólu- hvammi 4 í Hafnarfirði. 70 ÁRA afmæli. Mánudaginn 21.mars nk. verður sjötug Jó- hanna D. Magnúsdóttir, Höfn í Horna- firði. Í tilefni þess vill hún heilsa upp á vini og vandamenn í dag, laugardaginn 18. mars, í húsi Eddu-miðlunar, Suður- landsbraut 12 í Reykjavík, 7. hæð, kl. 16–20. ÉG HEF lesið á undanförnum mán- uðum nokkrar greinar eftir vís- indasagnfræðinga þar sem þeir gera kröfur til þess að kristin kirkja breyti kenningum sínum eft- ir niðurstöðum vísinda frá hinum og þessum tímum. Ég vil gera eina at- hugasemd við þennan málflutning vísindasagnfræðinganna. Ég lærði sem barn að Kóp- ernikus hefði fyrir 500 árum breytt skoðunum manna á stöðu sólar og jarðar. Það er svokölluð sól- miðjukenning sem segir að plán- eturnar snúist í kringum sólu. Í stað þess að kirkjan er talin hafa álitið að sólin og pláneturnar hafi snúist krigum jörðina. Samkvæmt minni einföldu athugun er ekkert menningarkerfi um allan heim sem hefur tileinkað sér sólmiðjukenn- inguna í daglegu máli. Almanak Há- skóla Íslands talar ennþá, eftir 500 ár, um sólaruppkomu og sólarlag. Mér fyndist að vísindamenn ættu að byrja á því að breyta þessu orða- lagi í jarðarlag og jarðaruppkomu sem væri kórrétt eftir 500 ára gam- alli kenningu Kópernikusar. Og þá myndi sólarlag heita jarðarupp- koma í almanakinu og sólarupp- koma myndi eiga að heita jarðarlag í almanakinu. Fyrr en vísindamennirnir þora að breyta þessu í sjálfri tímatalsfræði Háskóla Íslands hafa þeir ekki rétt til þess að gagnrýna kristna kirkju fyrir að halda fast við sinn boðskap. Eins og menn geta skilið þá virðast vísindamennirnir vera 500 árum á eftir tímanum að þessu leyti. Sr. Kolbeinn Þorleifsson. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 85 ÁRA afmæli. Á morgun, 19.mars, verður áttatíu og fimm ára Sigríður Sumarliðadóttir, Litlu- Grund, áður Aflagranda 40. Af því til- efni býður hún ættingjum og vinum að gleðjast með sér í húsi Ferðafélags Ís- lands, Mörkinni 6, á afmælisdaginn kl. 15–17. Gjafir vinsamlegast afþakkaðar en bent á Hjálparstarf kirkjunnar eða Kristniboðssambandið. 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. c4 Rb6 4. d4 d6 5. f4 dxe5 6. fxe5 Rc6 7. Rf3 Bg4 8. Be3 Bxf3 9. gxf3 e6 10. c5 Rd5 11. Bf2 Be7 12. Db3 Bh4 13. Dxb7 Bxf2+ 14. Kxf2 Dh4+ 15. Kg2 Re3+ 16. Kg1 Staðan kom upp í annarri deild í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór fyrir skömmu í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Sigurður Sverrisson (1940) hafði svart gegn Austfirðingnum unga Bjarna Jens Kristinssyni (1675). 16... Rd1! sann- arlega skemmtilegur leikur sem hefur í för með sér að hvítur er óverjandi mát. Hann reyndi að að verjast með því að leika 17. Dxc6+ en gafst upp eftir 17…Kd8 18. Kg2 Dg5+ þar sem hann verður mát eftir 19. Kh3 Rf2#. Fyrsti blökkumaðurinn til að verða stórmeist- ari í skák, Bandaríkjamaðurinn Maur- ice Ashley (2465), heldur erindi í dag sem fjallar m.a. um skáklíf í Harlem í New York. Nánari upplýsingar um er- indið er að finna á www.skak.is. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Á MORGUN, sunnudag, heldur Graduale Nobili tónleika í Reyk- holtskirkju. Efnisskráin er helguð Guðsmóðurinni og eru bæði ís- lensk og erlend Maríuverk á dag- skrá. Meðal verka sem sungin verða eru Ave Maria, Salve Reg- ina, Alma Redemptoris Mater, Magnificat, Salutatio Maria, Mar- íuljóð, Haustvísur til Maríu og Ég vil lofa eina þá. Graduale Nobili er skipaður 24 stúlkum á aldrinum 17 til 25 ára, völdum úr hópi söngvara Grad- ualekórs Langholtskirkju. Stjórn- andi kórsins er Jón Stefánsson sem stýrt hefur kórnum frá stofn- un árið 2000. Tónleikarnir í Reykholtskirkju á sunnudag hefjast kl. 16. Graduale Nobili í Reykholtskirkju Morgunblaðið/Jim Smart Graduale Nobili ásamt stjórnanda, Jóni Stefánssyni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.