Morgunblaðið - 18.03.2006, Page 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Sími 568 6625
ALTERNATORAR
FYRIR BÍLA
frá
aðra leið
Reykjavík Oslo
Kr. 8.000
www.flysas.is
Aðrir áfangastaðir í Noregi einnig á frábæru verði!
Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars.
Sími fjarsölu: 588 3600.
frá
aðra leið
Reykjavík Bergen
Kr. 9.500
„MÉR finnst þetta mjög gaman,
ég bjóst ekki við þessu þegar ég
sat þarna og beið eftir að nafnið
mitt yrði lesið upp. Svo þegar búið
var að lesa upp annað sætið sagði
systir mín við mig að hún héldi að
ég væri búin að vinna þetta,“ segir
Tanja Rós Ívarsdóttir, nemandi í
tíunda bekk Ölduselsskóla, en hún
bar sigur úr býtum í stærð-
fræðikeppni grunnskólanna í
Breiðholti, sem Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti stóð fyrir á dögunum.
Yfir 200 nemendur tóku þátt í
keppninni og urðu nemendur í
Ölduselsskóla afar sigursælir í
henni. Nemendur skólans tóku
annað og fimmta sætið meðal
níundubekkinga og annað og
þriðja sætið meðal áttundubekk-
inga. Voru þeir þannig með þriðj-
ung af fimmtán efstu sætunum í
keppninni.
Stærðfræðin krefjandi í
bandarískum skólum
Í sjálfu sér er þetta prýðilegur
árangur hjá Tönju Rós, en það sem
gerir hann afburðagóðan er sú
staðreynd að þetta er í þriðja
skiptið sem Tanja Rós vinnur
keppnina í sínum aldursflokki.
Hefur hún því nú unnið keppnina í
öll þau skipti sem hún hefur tekið
þátt í henni. „Mér hefur alltaf
fundist stærðfræði skemmtileg-
asta fagið,“ segir Tanja Rós. „Ég
bjó í Bandaríkjunum í átta og hálft
ár og lærði stærðfræðina mína frá
fyrsta bekk í Bandaríkjunum og ég
sé að það er mikill munur á því og
því sem ég sé í stærðfræði-
kennslunni hjá yngri systkinum
mínum hérna á Íslandi. Mér sýnist
margföldun og fleiri grundvall-
aratriði í stærðfræði kennd mun
fyrr í Bandaríkjunum og á
skemmtilegri hátt, þannig að
krökkum þykir gaman að læra það.
Það var mikið af leikjum í stærð-
fræðinni sem gerði hana að meiri
keppni og einhverju til að hlakka
alltaf til. Ég fékk mikinn og góðan
grunn í Bandaríkjunum. Ég hef
líka mjög mikinn áhuga á raunvís-
indum og hreinum og beinum hlut-
um. Stærðfræðikeppnin gerir líka
stærðfræðina skemmtilega, gerir
hana að keppni, einhverju sem þig
langar að standa þig vel í. Ég byrj-
aði hér í fimmta bekk og þá voru ís-
lenskan og Íslendingasögurnar
þyngri fyrir mig. Ég gat hins vegar
alltaf farið í gegnum stærðfræðina,
því tölur eru bara tölur og þar er
bara eitt tungumál.“ Tanja Rós er
elst fimm systkina, en hún á þrjár
systur og einn bróður. Segir hún
það yfirleitt ágætt að vera elsta
systir og hafa einhverja til að ráða
yfir. Hún lætur ekki grunnskólann
nægja, heldur leggur hún nú stund
á fjarnám við Verkmenntaskólann
á Akureyri. „Í áttunda bekk tók ég
tíundabekkjarensku, en mátti ekki
taka samræmt próf fyrr en í
níunda bekk,“ segir Tanja Rós, en
hún tók fyrstu tvo áfangana í
ensku á framhaldsskólastigi í
níunda bekk og lauk svo sam-
ræmdu prófi með ágætiseinkunn.
„Fyrir jól tók ég svo tölvufræðslu
og excel-námskeið og nú er ég í
fyrsta áfanga í þýsku. Allt í allt
held ég að ég sé komin með ellefu
einingar, svo ég er búin að spara
mér tíma í skólanum og get ein-
beitt mér að öðru í framhaldsskól-
anum.“
Tanja Rós ætlar að fara í
Menntaskólann Hraðbraut eftir
sumarið og ljúka þaðan stúdents-
prófi af náttúrufræðibraut. „Það er
samt ekki af því ég vilji flýta mér,
heldur langar mig að fara í skóla
þar sem markmiðið er að læra,
taka þetta alvarlega og vera með
krökkum sem taka námið alvar-
lega,“ segir Tanja Rós. „Mér finnst
mikilvægt að vera í umhverfi þar
sem markmiðið er að læra. Mig
langar að verða kennari í stærð-
fræði. Ég held að ég myndi vilja
fara í háskólann og læra þar stærð-
fræði og taka síðan kennsluréttindi
til að geta kennt bæði á framhalds-
og grunnskólastigi.“
15 ára Breiðholtsstúlka með fullt hús í stærðfræðikeppni grunnskóla
Stefnir á stærðfræðikennslu
Morgunblaðið/Sverrir
Tanja Rós Ívarsdóttir lengst til hægri ásamt systrum sínum Alexöndru Líf í miðju og Rebekku Lind.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
SÉRFRÆÐIÁLIT öryggisfyrir-
tækis um rannsóknaraðferðir lög-
reglu verður lagt fyrir Hæstarétt í
vor í máli sem snýst um tilraun til
manndráps. Öryggisfyrirtækið heit-
ir Meton ehf. og er rekið af fyrrver-
andi lögreglumönnum. Þetta er í
fyrsta sinn sem fyrirtækið gefur út
álit af þessu tagi en það er unnið að
beiðni Sveins Andra Sveinssonar,
verjanda hins dæmda.
Forsaga málsins er sú að í júlí árið
2004 var maður handtekinn fyrir lík-
amsárás á leigubílstjóra og ákærður
fyrir tilraun til manndráps þar sem
honum var gefið að sök að hafa skor-
ið bílstjórann á háls. Héraðsdómur
sýknaði manninn í fyrstu þar sem
rannsókn lögreglunnar í Reykjavík
þótti „stórlega ábótavant“ en Hæsti-
réttur felldi þann dóm úr gildi og var
ákærði þá dæmdur til fimm ára fang-
elsisvistar af héraðsdómi. Þeim dómi
hefur sem áður segir verið áfrýjað til
Hæstaréttar. Starfsemi Meton ehf.
tekur m.a. til þriggja þátta; forvarna,
rannsókna og öryggisráðgjafar. | 4
Álit um rannsóknaraðferðir
lögreglu lagt fyrir Hæstarétt
ÞAÐ er vor í lofti
á Norðurlandi og
ungir sem aldnir
eru farnir að búa
sig undir vorkom-
una. Í gær var um
tíma 14 stiga hiti
á Akureyri. Þessi
ungi maður frá
Siglufirði brosti til
ljósmyndara sem
varð á vegi hans í
veðurblíðunni.
Drengurinn hafði
nóg að gera enda
með góðar hjól-
börur og skóflu.
Hann var hins vegar búinn undir breytt
veður, klæddur góðum galla. Hlýtt verður í
veðri um helgina, en eftir helgi fer að
kólna.
Vor í lofti á
Norðurlandi
FÍKNIEFNI fyrir um 10 milljónir króna
voru tekin á fimmtudag í stærstu fíkniefnaað-
gerð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á
þessu ári. Meira en þrjátíu lögreglumenn
voru sendir snemma fimmtudagsmorguns til
að framkvæma húsleitir í samstilltu átaki lög-
reglunnar í Kópavogi, Hafnarfirði að fengn-
um liðsauka frá sérsveit ríkislögreglustjóra
og lögreglunni í Reykjavík.
Farið var í sex húsleitir, þar af fjórar í
íbúðir og tvær í iðnaðarhúsnæði. Grunur
hafði verið uppi um stórfellt fíkniefnamisferli
hjá hópi fólks og var því ráðist í aðgerðirnar.
Lögreglan hafði aflað sér dómsúrskurðar
vegna fimm húsleita en í þeirri sjöttu leyfði
húsráðandi leit hjá sér. Aðgerðirnar stóðu
yfir langt fram eftir degi og voru tólf manns á
þrítugs- og fertugsaldri handteknir, konur og
karlar. Sjö þeirra var sleppt að loknum yf-
irheyrslum en fimm voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 20. mars að kröfu sýslu-
mannsins í Hafnarfirði. Þar er um að ræða
karlmenn sem allir hafa komið við sögu lög-
reglunnar áður.
Fundu tvö skotvopn
Við leit fann lögreglan 4 kg af kannabis-
efnum en götuverðmæti þeirra gæti numið
um 8 milljónum króna. Einnig fundust 440
grömm af ætluðu amfetamíni fyrir um tvær
milljónir króna. Auk þess voru tvö skotvopn
tekin af fólki við húsleitir. Ekki urðu nein
átök við þá sem leitað var hjá að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði. Um innri tengsl mál-
anna er ekki hægt að upplýsa að svo komnu
máli en rannsókn stendur yfir.
Lögðu hald
á fíkniefni
fyrir tíu
milljónir
STEFNT er að því að hlutafé Exista verði
skráð í kauphöll á þessu ári og að slitið verði á
krosseignatengslin á milli Kaupþings banka og
Exista. Þetta yrði framkvæmt þannig að bank-
inn losaði um 19,2% hlut sinn í Exista og yrðu
hluthöfum Kaupþings banka greiddar auka-
arðgreiðslur í formi hluta í Exista. Kaupþing
banki hefur haft frumkvæði að viðræðum við
aðra hluthafa í Exista vegna þessa.
Jafnframt hefur Kaupþing banki verið að
skoða framtíðarskipulag um starfsemi bank-
ans og þann möguleika að Kaupþing myndi net
sjálfstæðra banka í stað móðurfélags á Íslandi
með erlend dótturfélög.
banki með sterkt útibúanet í Norður-Evrópu
og höfuðstöðvar í Reykjavík. Stærsti hluti
tekna bankans verður til utan Íslands og
stjórnendur eru ráðnir í þeim löndum þar sem
bankinn starfar. Við höfum um tíma verið að
horfa á framtíðarskipulag um starfsemi bank-
ans og möguleika þess að Kaupþing myndi net
sjálfstæðra banka í stað móðurfélags með dótt-
urfélög. Á meðal margra möguleika væri að
stofna evrópskt fyrirtæki til þess að nýta sér
betur getu Kaupþings banka. Það myndi líka
svara betur raunverulegum umsvifum bank-
ans. Í mínum huga er augljóst að íslensk
stjórnvöld verða að vera viðbúin slíkri þróun og
skapa umhverfi sem gerir það aðlaðandi fyrir
alþjóðleg fyrirtæki að halda áfram að vera með
höfuðstöðvar sínar í Reykjavík.“
Þetta kom fram í ræðu Sigurðar Einarsson-
ar, stjórnarformanns Kaupþings banka, á aðal-
fundi bankans en hann undrast einnig að ekki
skuli þegar vera búið að sameina Kauphöll Ís-
lands norrænum kauphöllum.
Exista er aðaleigandi Exista B.V., félags
sem er stærsti einstaki eigandi KB banka með
21,1% hlut en auk þess á Exista B.V. 43,6% hlut
í Símanum. Miðað við síðasta skráða gengi
bréfa Kaupþings er hlutur Exista í bankanum
nær 124 milljarða króna virði. Ætla má að hlut-
ur Kaupþings í Exista sé nálægt 20 milljarða
króna virði en hann er hins vegar aðeins færð-
ur á 6,9 milljarða í bókum bankans.
Sigurður sagði Kaupþing banka ekki vera
landsbundinn banka heldur hóp fjármálafyr-
irtækja í tíu löndum. „Við erum alþjóðlegur
Slitið verði á krosstengslin milli
Exista og Kaupþings banka
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
♦♦♦