Morgunblaðið - 03.04.2006, Qupperneq 1
Skemmta sér
án vímuefna
Vinavika og forvarnasamstarf vest-
lenskra ungmenna | Minn staður 12
Fasteignir | Þau gefa tóninn í Garðabæ Heimilin vellrík
eða buguð af skuldum Íþróttir | Formaðurinn glímukóngur
Íslands Helgi þrefaldur meistari í badminton
FJÓRÐI dagurinn í röð sem daglegt líf fólks til bæja og
sveita fór mikið úr skorðum vegna þrálátra sinuelda rann
upp í gær, þurr og kaldur. Sina og gróður var víða skrauf-
þurr á Suður- og Vesturlandi og voru slökkvilið og lögregla
í miklum önnum vegna elda víða. Fyrir utan stórbrunann á
Mýrum lá við alvarlegum óhöppum á Kjalarnesi þegar mik-
ill sinueldur kviknaði við Esjuberg. Gífurlegur reykur steig
upp og lagði yfir nálæg býli með þeim afleiðingum að fólk á
tveim bæjum þurfti að yfirgefa heimili sín. Stöðva þurfti
umferð á Vesturlandsveginum meðan á slökkvistarfi stóð.
Ógnarlangur hali kyrrstæðra bíla, með tilheyrandi töfum,
beið á Vesturlandsvegi eftir því að umferð yrði hleypt á.
Slökkviliðið var einnig sent út í talsverðan sinueld í
Elliðaárdal og viðbúnaður var við Dvalarheimilið Hrafnistu
í Hafnarfirði. Á Mýrum er enn brunavakt.
Morgunblaðið/RAX
Þóra Kristjánsdóttir á Sætúni og frændinn Sigfús Magnússon í kófinu.
Látlausir stórbrunar
fjórða daginn í röð
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
STÓR svæði við Esjuberg á Kjalarnesi urðu eldi að bráð í
enn einum sinubrunanum. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæð-
inu var kallað út og tókst að slökkva eldinn síðdegis.
Gríðarlegt reykjarkóf lagði af eldinum og voru fjögur
hross af bænum Sætúni í nokkurri hættu af þeim sökum.
Brugðið var á það ráð að reka þau á næsta bæ á meðan verið
var að slökkva. Fólk á tveim bæjum, Sætúni og Enni var
beðið um að yfirgefa hús sín meðan slökkvistarf stóð yfir.
„Reykurinn var mestur yfir Enni og Sætúni,“ sagði Þóra
Kristjánsdóttir á Sætúni. „Reykurinn varð fljótlega mjög
mikill og ég sá ekki húsin á Enni fyrir reyk þótt það séu ekki
nema 100 metrar þangað yfir. Þetta var alveg gífurlega mik-
ið. Við fórum afleggjarann yfir að Hvammi þar sem reyk-
urinn var mun minni, en undir lokin magnaðist reykurinn
þar.“ Til að hjálpa Þóru að koma hrossunum burt úr reykn-
um kom frændi hennar og gekk þeim nokkuð vel, miðað við
aðstæður, að koma hrossunum fjórum á skárri stað.
Svo mikið var reykjarkófið á tímabili yfir Sætúni að Þóra
þurfti að flýja inn í nálægan bíl til að ná andanum og tvennt á
bænum hugðist leita sér hjálpar á sjúkrahúsi vegna gruns
um reykeitrun. „Ég var alveg að kafna. Reykurinn var gríð-
armikill en datt niður á milli. En á tímabili varð mér ekki um
sel og hélt að eldurinn kæmi yfir veginn í húsin hjá okkur og
þetta myndi allt fara í eldinum. Meira að segja inni í hús-
unum er öskulag.“
Hrossin á Sætúni voru nokkuð hrædd þegar verið var að
bjarga þeim yfir að Hvammi, bæði við hina miklu bílaumferð
og svo reykinn. Þau voru sett í gerði á Hvammi en síðan rek-
in heim í Sætún í gærkvöldi þegar allt var um garð gengið.
„Var alveg að kafna“
Bangkok. AFP, AP. | Þingkosningar fóru
fram í Taílandi í gær og fyrstu kjör-
tölur bentu til þess að kjósendurnir
væru klofnir í afstöðunni til Thaksins
Shinawatra forsætisráðherra sem
hefur átt mjög undir högg að sækja.
Kjörtölurnar bentu til þess að
flokkur Thaksins hefði sótt í sig veðr-
ið í norðurhéruðunum þar sem stuðn-
ingurinn við hann hefur verið mestur.
Í suðurhéruðunum og Bangkok,
þar sem óánægjan með Thaksin er
mest, voru hins vegar þeir sem skil-
uðu auðu í kosningunum fleiri en kjós-
endur stjórnarflokksins í mörgum
kjördæmum. Í nokkrum þeirra var
munurinn mikill.
Sniðgengu kosningarnar
Þrír helstu stjórnarandstöðuflokk-
ar landsins sniðgengu kosningarnar
og hvöttu kjósendur til að skila auðu
eða merkja við sérstakan reit á kjör-
seðlinum til að sýna að þeir sætu hjá.
Thaksin hafði lofað að segja af sér
fengi flokkur hans minna en helming
greiddra atkvæða. Talið var mjög
ólíklegt að flokkurinn fengi svo lítið
fylgi, vegna mikils stuðnings við hann
í norðurhéruðunum.
Stjórnarandstaðan vonar hins veg-
ar að sú ákvörðun hennar að snið-
ganga kosningarnar verði til þess að
ekki verði hægt að úthluta öllum
þingsætunum. Það gæti síðan orðið til
þess að ekki yrði hægt að kalla nýtt
þing saman og mynda nýja stjórn.
Flokkur Thaksins býður fram án
mótframboðs í 278 af 400 kjördæm-
um. Samkvæmt kosningalögunum
þurfa frambjóðendur flokksins að fá
minnst 20% atkvæðanna til að ná
kjöri og mjög ólíklegt þykir að flokk-
urinn fái svo mikið fylgi þar sem
stuðningurinn við hann er minnstur.
Líklegt er því að efna þurfi til tíma-
frekra aukakosninga áður en þingið
velur forsætisráðherra.
Margir skiluðu auðu
Útlit fyrir stjórnarkreppu eftir mjög
tvísýnar þingkosningar í Taílandi
FALLEGIR vegfarendur eru líkleg-
astir til að trufla ökumenn við akst-
urinn og verða til þess að þeir lendi
í bílslysum, ef marka má könnun í
Bretlandi.
Að sögn breska dagblaðsins The
Daily Telegraph sögðu 36% öku-
manna, sem tóku þátt í könnuninni,
að kynþokkafullir vegfarendur
væru líklegastir til að trufla þá við
aksturinn. Aðeins 20% nefndu far-
símann, 11% bílinn fyrir framan og
2% sögðu að vegamerki hefðu trufl-
að þá.
Könnunin fór fram á vefsetri
breskra bílasala.
Kynþokkinn
hættulegur
Fasteignir og Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 92. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Löng töf | 10