Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Atvinnuhúsnæði SMÁHEILDSALA / LEIGU- HÚSNÆÐI Til leigu nýinnréttuð jarðhæð við Dugguvog. Fyrsta flokks skrif- stofu aðstaða. Vörulager/ vörumóttökudyr. Upplýsingar í síma 896 9629. Skrifstofuhúsnæði óskast. Snyrtilegt skrifstofuhúsnæði 40- 80 fm óskast á Reykjavíkursvæð- inu. Æskileg staðsetning, Múlar, Skeifan, Mörkin. Uppl. í síma 517 5557. Sumarhús Rotþrær Framleiðum rotþrær 2300-25000 lítra Öll fráveiturör og tengistykki í grunninn Sérborðuð siturrör og tengistikki í siturlögnina Heildarlausn á hagstæðu verði Borgarplast, Seltjarnarnesi, s: 561 2211 Borgarplast, Borgarnesi, s:437 1370 Heimasíða: www.borgarplast.is Námskeið www.enskunam.is Enskuskóli Enskunám í Englandi 13-17 ára 18 ára og eldri 40 ára og eldri Uppl.og skráning frá 17- 21 í síma 862-6825 og jona.maria@simnet.is Til sölu Vinnuskúr til sölu. Mjög góður vinnuskúr sem skiptis í kaffist., WC og geymslu. Til sýnis að Eik- arási 10 GB. Verð ca. 600Þ, eða tilboð. Uppl. í s: 897 5598/587 7098. Kanadísk sumarhús úr furu, sedrus eða douglas furu, grindarhús og bjálkahús. Spónasalan ehf., Smiðjuvegi 40, gul gata, s. 567 5550. Burstabæir. Burstabæirnir komnir aftur. Kíktu á heimasíðu hugmót.is/lara/ sími 899 9667. 60 fm bústaður til sölu með geymslu, fokheldur eða lengra kominn (í smíðum). Með 30 m² pöllum. Getum einnig boðið lóðir undir sumarhús. Gott verð. Upp- lýsingar í síma 893 4180 og 893 1712. Þjónusta Móðuhreinsun glerja! Er kominn móða eða raki milli glerja? Móðuhreinsun Ó.Þ., s. 897 9809 og 587 5232. Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Viðgerðir PÍPULAGNIR Tökum að okkur viðgerðir, breytingar og nýlagn- ir. Setjum upp varmaskipta. Löggiltur pípulagnameistari. Rörverk ehf. sími: 894 0938. PÍPULAGNIR Tökum að okkur viðgerðir, breytingar og nýlagn- ir. Setjum upp varmaskipta. Löggiltur pípulagnameistari. Rörverk ehf. sími: 894 0938. Innrömmun Innrömmun - Gallerí Míró Málverk og listaverkaeftirprentanir. Speglar í úrvali, einnig smíðaðir eftir máli. Alhliða innrömmun. Gott úrval af rammaefni. Vönduð þjónusta, byggð á reynslu og góðum tækjakosti. Innrömmun Míró, Framtíðarhús- inu, Faxafeni 10, s. 581 4370, www.miro.is, miro@miro.is Ýmislegt Tilboð Öll dömustÍgvél á kr. 2.500. Margar gerðir, margir litir. Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Mjúkur og sætur í BC skálum kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995. Voða þægilegur, má taka hlýra af í BC skálum kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995. Falleg blúnda með fyllingu í BC skálum kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Hárspangir frá kr. 290. Einnig mikið úrval af fermingar- hárskrauti. Skarthúsið, Laugavegi 12, sími 562 2466. Army húfur aðeins kr. 1.690. Langar hálsfestar frá kr. 990. Síðir bolir kr. 1.990. Mikið úrval af fermingarhár- skrauti og hárspöngum. Skarthúsið, Laugavegi 12, sími 562 2466. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, bifhjól, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2004, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. Mótorhjól Yamaha Virago XV1100cc. Til sölu glæsilegt og vel með farið bifhjól árg. 1999. Upplýsingar í síma 869 2487 Guðmundur. Skemmtileg og hagnýt kaup (gjöf). Peugeot Speed fight 2. Vökvakældur mótor, auðvelt í um- ferð og akstri. Eyðsla 3-4 lítrar á hundraðið. Verð 179 þús. (ný á 279 þús.) Uppl. í s. 898 8577 og 551 7678. Bílar aukahlutir Til sölu plasthús á jap. pallbíl Festingar fylgja. Verð 68 þús. (nýtt 220 þús.) Upplýsingar í síma 898 8577 og 551 7678. Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR „AÐ MÍNU mati er langsótt að sú aðstaða sem fyrir er verði í heild sinni flutt burt, enda er í raun um algjöra lágmarksaðstöðu að ræða fyr- ir svæðið. Aftur á móti er ekkert því til fyr- irstöðu að frekari uppbygging á þjónustu fari fram á öðrum svæðum fjær laugasvæðinu og þess vegna alla leið niður í byggð,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferða- félags Íslands, þegar blaðamaður leitaði við- bragða hjá honum við hugmynd Karls Ingólfs- sonar, rekstrarstjóra ferðaskrifstofunnar Ultima Thule, um að flytja núverandi aðstöðu í Landmannalaugum norður fyrir Norðurbarm, en sem kunnugt er rekur Ferðafélag Íslands gistiskála í Landmannalaugum ásamt hrein- lætishúsi. Að sögn Páls ganga hugmyndir félagsins út á að byggja upp gestastofu við Land- mannalaugar og bæta enn frekar aðstöðuna fyrir ferðamenn með það í huga að hægt verði að stýra umferðinni þar enn betur og vernda svæðið enn frekar, en þess má geta að árlega leggja rúmlega hundrað þúsund ferðamenn leið sína á svæðið. Bendir hann á að það verði þó ekki gert nema í samvinnu við sveitarfélag- ið í Rangárþingi ytra og Umhverfisstofnun og vinna þurfi deiliskipulag á svæðinu. „Við fögnum því auðvitað að ferðaþjónustan í heild láti sig þessi mál meira varða og geri til- kall til þessara svæða sem hafa verið í um- ræðunni sem og til hálendisins, því ferðaþjón- ustan á auðvitað mikilla hagsmuna að gæta,“ segir Páll og tekur fram að markmið félagsins miði að sjálfsögðu að góðu nábýli við náttúr- una. Aðspurður segist Páll ekki sammála því mati Karls að núverandi mannvirki við Land- mannalaugar þrengi að upplifun ferðafólks á svæðinu og bendir máli sínu til stuðnings á þann mikla fjölda gesta sem leggur leið sína á svæðið ár hvert. Strandar á fjármagni Þegar leitað var viðbragða Árna Bragason- ar, forstöðumanns náttúruverndar- og útivist- arsviðs hjá Umhverfisstofnun, sagðist hann hins vegar sammála Karli. „Það geta samtímis verið nokkur þúsund manns í Landmanna- laugum. Allir eru á þessum eina bletti og þarna eru menn mjög nálægt því sem verið er að skoða. Þannig að það myndi örugglega vera til bóta að færa þetta fjær,“ segir Árni og bendir á að það strandi hins vegar á fjármagni. Tekur hann þó líka fram að ákvörðun um flutning mannvirkja af svæðinu þurfi að taka í sam- vinnu Umhverfisstofnunar, viðkomandi sveit- arfélaga og hagsmunaaðila. Bendir hann á að starfandi sé ráðgjafarnefnd fyrir friðlandið sem fundi reglulega. „Ég geri ráð fyrir að þetta verði til umræðu hjá ráðgjafarnefndinni á næstu fundum.“ Aðspurður segir Árni umræðuna um mann- virkin við Landmannalaugar ekki nýja af nál- inni. Bendir hann á að ákveðin hugmyndafræði liggi að baki öllu skipulagi í Landmannalaug- um eins og það er nú, en sú hugmyndafræði var unnin í samstarfi sveitarfélaganna á svæð- inu og Náttúruverndarráðs fyrir allmörgum árum síðan. „Eitt af því sem þessir aðilar hafa rætt er hvort flytja eigi aðstöðuna út að Sól- vangi, en þar var áður aðstaða. Auk þess hefur verið rætt um að færa alla hestaumferð úr Landmannalaugum yfir í Landmannahelli til að dreifa álaginu.“ Hugmyndir um breytingar á núverandi aðstöðu í Landmannalaugum Skiptar skoðanir um ágæti þess að flytja aðstöðuna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.