Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 19 MENNING Þorskflök-kinnfiskur-nætursaltað plokkfiskur-fiskbollur-saltfiskur-lax Stórkostleg lúða Ýsa í kryddraspi Rauðsprettuflök Breiðafjarðar-ýsa Fiskréttir-kartöfluréttir-ýsuhakk-rækja bleikjuflök-túnfiskur-humar-hörpuskel Fiskbúðin Sjávargallerý Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 2550 Þar sem metnaðurinn á lögheimili ÉG HELD þetta sé fimmta sýn- ingin sem ég sé núna með stuttu millibili í íslensku leikhúsi þar sem mikið er sungið. Fyrir svona fimm- tán, tuttugu árum þá lauk öllum sýningum hér í bænum með söng, jafnvel var ekki hægt að enda góða gamla Sjeikspír öðruvísi og lagið hljómaði svo áfram undir klappinu og allir fóru glaðir heim; nú er söng- urinn gegnumgangandi. Það væri verðugt viðfangsefni fyrir lokarit- gerð í listaháskólanum, þessi ást okkar á söng í leikhúsinu, kannski eru þarna á kreiki gamlar minn- ingar frá þeim tíma er fjölskyldan söng saman upp úr rollubókinni við orgelið, eða börnin saman í anddyri skólanna áður en allir marseruðu í röð upp í stofurnar og svo auðvitað söngurinn í rútubílunum; minning um samkennd og sameiginlega sjálfsmynd sem nú þykir annars býsna hallærisleg. Kannski líka þörf fyrir að undirstrika það að við lifum á glöðum tímum. En hvað það nú svo sem er sem ræður för þá væri áreiðanlega gaman að gefa sér tíma til að velta vöngum yfir því. Þetta er hins vegar fjórða leik- mynd sem ég sé eftir Jón Axel og sú besta. Evrópsk stofa, þó fremur en íslenskur sumarbústaður; stílhrein er hún og björt eins og gamanleik hæfir; lyftir fram leikurum og sterkum litunum í tískublaðabún- ingum Elínar Eddu frá lokum sjötta áratugarins sem eru margir hverjir eins og fallegir skúlptúrar. En ís- lenskur vetur gnauðar í hreyfi- myndum á bakveggjum og þar spretta líka upp skemmtileg munst- ur í söngatriðunum. 1961 (endur) skrifar franska leikskáldið Robert Thomas verkið og gerist það innan stéttar og á tímum þar sem konur eru fjárhagslega háðar karlmönn- um. Konurnar átta sem lokaðar eru inni í blindbyl í sumarbústað eru all- ar háðar einum manni, sem finnst myrtur í upphafi verks, fléttan ætt- uð frá Agötu Christie afhjúpar svo „raunverulegar“ tilfinningar þeirra til mannsins og hver er morðinginn. Glæpsamlega gamanleikinn hefur Sævar Sigurgeirsson aðlagað lipur- lega og sennilega stytt (?) fyrir þessa sýningu, og samið söngva í anda frægrar kvikmyndar eftir verkinu frá 2002. Edda Heiðrún Bachmann heldur áfram að þróa stór og hrein hreyf- ingarmunstur, uppstilltar myndir og gefa leikaranum stærð, og enn auðgar hún íslenskt leikhús með er- lendum áhrifum og kallar til liðs við sig látbragðsleikarann Kristján Ingimarsson. Hann kemur líka fram sem „afturganga“ húsbóndans í söngatriðum, sumum feikilega vel útunnum eins og atriðið, sem telja má hápunkt sýningarinnar, með ömmunni, Margréti Guðmunds- dóttur,- og gott að sjá Margréti loks aftur á sviði eftir langt hlé. En fág- aður léttleiki Kristjáns, áreynslu- leysið og útsmoginn húmor sem endurómar í sérdeilis góðri út- færslu tónlistarinnar hjá Samúel J. Samúelssyni fær mann til að hugsa að þannig hefði átt að leika allt verkið. Þótt söngatriðin séu góð og lýsi samskiptum og tilfinningum kvennanna við húsbóndann rjúfa þau líka á ákveðinn hátt framvind- una án þess að virka sem skýrandi andstæða og bæta litlu við persón- ur. Edda Heiðrún leggur í allri sýn- ingunni fremur áherslu á grátt gamanið en glæpinn. Skiljanlegt er það af því að tími verksins og sýn höfundar á kvenþjóðina er orðin fjarlæg og reyndar nokkuð hlægi- leg. En það veikir glæpafléttuna, dregur úr uppbyggingu grunsemd- anna, spennunnar, í fyrri hlutanum og gerir því afhjúpunina máttlaus- ari í seinni hlutanum. Að ná jafn- vægi milli hraða gamanleiks og nauðsynlegs hægagangs grun- semda og tortryggni er skapast þarf milli persóna í verkinu er held- ur ekki auðvelt. Þjóðleikhúsið teflir hér fram miklu kvennavali. Persónurnar koma samt nokkuð fullmótaðar til leiks, svosem Lovísa dularfulla þjónustustúlkan hennar Birnu Haf- stein, sem er skemmtilega stílfærð, og eiginkonan Guðný, Katla Mar- grét Þorgeirsdóttir, sem í upphafi dregur upp nákvæma mynd af for- dekraðri yfirstéttarkonu – hvorug fær tækifæri til að þróa persónu sína. Sömu sögu er að segja af Ragnheiði Steindórsdóttur sem er bráðskemmtileg í djörfu söngatrið- inu sem Lovísa. Edda Björg Eyj- ólfsdóttir sem svo sannarlega áður hefur sannað ótvíræða hæfileika sína í gamanleik er einsog utanveltu hér í hlutverki Elínar eldri dóttur- innar á heimilinu. María systir hins myrta sem leikin er af Margréti Vil- hjálmsdóttur mætir flott og grun- samleg til leiks en fær svo of lítið til að moða úr. Nína Dögg Filippus- dóttir í hlutverki Katrínar, sem er nokkurs konar Hercule Poirot verksins, dregur upp farsakennda ýkta mynd af barni/táning og á sú lögn stóran þátt í því að gera af- hjúpunina marklausa. En líka lögn- in á Ágústu hennar Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, sem á sinn einstæða og óíslenska hátt getur hlegið að sjálfri sér og þar með fengið allan salinn til að hlæja og elska sig. Sá hæfileiki er notaður í botn í sýningunni og nokkuð oft sýndist mér á kostnað framvindu og sambanda persóna. Það hefði verið skemmtilegra að ísmeygilega glæpakvendið sem bregður af og til fyrir í leik hennar hefði þróast lengra. Ég er viss um að hlátrunum hefði ekki fækkað við það. En sem sagt hér eru margar fal- legar og skondnar myndir dregnar upp, skemmtilegir söngvar, liprir brandarar og góður látbragðsleikur fyrir þá sem vilja afþreyingu. Syngjandi glæpakvendi LEIKLIST Þjóðleikhús Eftir Robert Thomas í þýðingu og aðlög- un Sævars Sigurgeirssonar sem einnig er höfundur söngva. Leikstjóri: Edda Heið- rún Bachmann. Leikmynd: Jón Axel Björnsson. Búningar: Elín Edda Árnadótt- ir. Umsjón með tónlist: Samúel J. Sam- úelsson. Lýsing: Hörður Ágústsson. Leik- endur: Birna Hafstein, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Katla Margrét Þorgeirs- dóttir, Kristján Ingimarsson, Margrét Guðmundsdóttir, Margrét Vilhjálms- dóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir/Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Ragnheiður Steindórs- dóttir. Átta konur María Kristjánsdóttir Úr leiksýningunni Átta konur sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu á föstudagskvöld. Í LISTAHÁSKÓLA Íslands verða í vikunni haldnir svokallaðir Kynja- dagar. Er dagskrá hátíðarinnar helguð kynjunum, kynjaímyndum og femínisma. „Alla hátíðardagana eru viðburðir í hádeginu, 2–3 í hvert sinn,“ segir Álfrún G. Guðrúnar- dóttir, kynningarstjóri hjá Listahá- skólanum. „Nemendur skólans verða með viðburði í tengslum við þema vikunnar, kennarar skólans halda fyrirlestra og einnig fáum við til okkar gestafyrirlesara; fræði- menn, listamenn sem ræða um kynjamímyndir og fleira.“ Dagskráin er haldin á öllum þremur stöðunum þar sem skólinn hefur aðsetur, en kennt er að Sölv- hólsgötu 13, Laugarnesvegi 91 og Skipholti 1. Meðal annars munu nemendur úr hönnun og arkitektúr halda erindi um kynjamyndir í auglýsingum, dansnemendur sýna brot úr verkinu Hindarleik, nemendur í leiklist flytja brot úr „Kynjalestinni“ og tónlistar- uppákoma verður í tónlistardeild. „Tilefni hátíðarinnar er að nýlega var sett á laggirnar jafnréttisnefnd við Listaháskólann sem hefur, meðal annars, það hlutverk að standa fyrir öflugri umræðu um jafnréttismál. Nefndin ákvað að ríða á vaðið á þennan skemmtilega hátt og nýta um leið sérstöðu skólans og fjöl- breytileika námsins. Við höldum há- tíð sem endurspeglar að umræða um jafnréttismál á erindi við alla, í öllum greinum, og að slík umræða getur verið mjög skemmtileg og skap- andi.“ Dagskráin í Listaháskóla Íslands er öllum opin, en nánar má fræðast um starfsemina á heimasíðu Lista- háskólans, www.lhi.is. Kynjadagar í LHÍ Morgunblaðið/Eggert Á Kynjadögum LHÍ er meðal ann- ars reynt að svara spurningunni „Hver er Sylvía Nótt?“ Dagskrá Kynjadaga Listaháskóla Íslands: Mánudagur 3. apríl Sölvhólsgata 13 12.15 Nemendur dansbrautar flytja brot úr Hindarleik Laugarnesvegur 91 12.15 Nemendur á leiklistardeild flytja brot úr Kynjalestinni 12.30 Gísli Hrafn Atlason: „Hvað er femínismi?“ Þriðjudagur 4. apríl Skipholt 1 12.00 Gísli Hrafn Atlason. 12.10 Nemendur úr hönnunar- og arkitektúrdeild „Einu sinni var“. „Levi’s auglýsingaherferð“ 12.30 Sigríður Pétursdóttir: „Karlmennskur í íslenskum kvikmyndum“ Miðvikudagur 5. apríl Laugarnesvegur 91 12.15 Harpa Björnsdóttir: „Guerilla Girls“ 12.30 Nemendur úr tónlistardeild: „George Sand leikur Chopin“ Sölvhólsgata 13 12.45 Gísli Hrafn Atlason. Fimmtudagur 6. apríl Skipholt 1 12.15 Guðmundur Oddur Magnússon: „Íslenskar kynjaímyndir“ Laugarnesvegur 91 12.30 Oddný Sturludóttir: „Hárgreiðsla og hugsjónir“ Föstudagur 7. apríl Laugarnesvegur 91 12.15 Gaukur Úlfarsson: „Hver er Sylvía Nótt?“ 12.35 Nemendur úr hönnunar- og arkitektúrdeild: „Sexí súkkulaði – tengsl súkkulaðis og kynlífs“, „Diezel: Greining á herferðum“. Sölvhólsgata 13 13.00 Björn Ingi Hilmarsson: „Jafnrétti: Spurning um hugarfar?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.