Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR *Miðað við gengistryggðan bílasamning.Vextir háðir breytingum á Libor Kletthálsi 11 Sími 590 5760 bilathing@bilathing.is Laugavegi 174 Sími 590 5040 www.bilathing.is Númer eitt í notuðum bílum LÁTLAUSIR SINUELDAR Enn einn sinubruninn braust út í gær þegar stór svæði við Esjuberg á Kjalarnesi brunnu. Gríðarlegt reykjarkóf lagði af eldinum og þurfti að stöðva umferð á Vesturlandsveg- inum á meðan slökkvistarf fór fram. Gærdagurinn var fjórði dagurinn í röð þar sem sinueldar kviknuðu og var slökkvilið og lögregla víða í mikl- um önnum vegna elda. Á Mýrum er enn brunavakt ef eldar kynnu að blossa þar upp að nýju. Samband riðu og járns í heyi Rannsókn á snefilefnum í íslensku heyi og tengslum þess við uppkomu riðu og aðra sjúkdóma hefur leitt í ljós að samband er á milli járnmagns í heyi og riðu. Járn er marktækt mest í heyi á bæjum þar sem riða hefur komið upp. Staðfesta þessar rannsóknir fyrri rannsóknaráfanga, að ótvíræð tengsl séu á milli mang- ans í heyi og riðu, þar sem mikið mangan feli í sér vörn gegn riðu en að ofgnótt járns í heyi sem jaðrað geti við eitrun sé mikil í heyi frá riðubæjum. Rice og Straw í Bagdad Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, starfsbróðir hennar í Bret- landi, fóru í óvænta heimsókn til Bagdad í gær til að freista þess að flýta myndun þjóðstjórnar í Írak. Rice gaf til kynna að þolinmæði bandarískra ráðamanna væri á þrot- um eftir nær fjögurra mánaða samn- ingaþref flokka sjíta, súnní-araba og Kúrda. Dánarafmælis páfa minnst Um 80.000 manns söfnuðust sam- an á Péturstorginu í Róm í gær- kvöldi til að hlýða á Benedikt XVI páfa fara með bænir klukkan 19.37 að ísl. tíma, þegar nákvæmlega eitt ár var liðið frá því að Jóhannes Páll II páfi lést. Hundruð þúsunda manna sóttu einnig útimessur í Pól- landi til að minnast hans. Taílenska þjóðin klofin Þingkosningar fóru fram í Taí- landi í gær og fyrstu kjörtölur bentu til þess að kjósendurnir væru klofnir í afstöðunni til Thaksins Shinawatra forsætisráðherra. Flokkur Thaksins virtist hafa sótt í sig veðrið í norður- héruðunum. Í suðurhéruðunum og Bangkok voru hins vegar þeir sem skiluðu auðu í kosningunum fleiri en kjósendur stjórnarflokksins. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 25/27 Vesturland 12 Dagbók 30/33 Viðskipti 13 Myndasögur 30 Erlent 14/15 Staður og stund 32 Daglegt líf 16/18 Leikhús 33 Menning 19,33 Bíó 34/37 Forystugrein 20 Ljósvakar 38 Umræðan 22/23 Veður 39 Bréf 23 Staksteinar 39 * * * „MIÐBORG Reykjavíkur hefur lengi skort svigrúm til vaxtar. Á sama tíma og úthverfin hafa vaxið hefur miðjan í borginni staðið í stað,“ að því er fram kom í máli Péturs Ármannssonar arkitekts á borgaraþingi sem virk íbúasamtök í Reykjavík stóðu að í Ráðhúsinu á laugardag. Yfirskrift þingsins var Blessuð sértu, borgin mín en á því var meðal annars rætt um íbúalýðræði, umferðarmál, sjálf- bæra þróun, skipulagsmál, almenn- ingssamgöngur og sjálfsmynd Reyk- víkinga. Í erindi sínu sagði Pétur að brýnt væri skoða hugmyndir um miðbæ Reykjavíkur í nýju ljósi og end- urmeta samband hans við aðra hluta borgarinnar. „Til að svo megi verða þarf að nýta miklu stærra svæði en hingað til hefur verið gert. Áður en tekin er ákvörðun um útfærslu byggðar í Vatnsmýrinni er nauðsyn- legt að horfa á borgina í heild sinni, skoða virkni hennar og innbyrðis tengsl ólíkra hluta,“ sagði Pétur. Vandamálin sem hinu óbyggða svæði í Vatnsmýrinni væri ætlað að leysa kynnu að leynast utan þeirra marka sem þar væru en ekki innan. Ef markmiðið með uppbyggingu í Vatnsmýri væri að efla gamla miðbæ- inn þyrfti að byrja á að huga að teng- ingu við Kvosina og Laugaveginn. Smáralindin miðja höfuðborgarsvæðisins? Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda- gerðarmaður flutti erindi á þinginu sem nefndist Reykjavík í öðru ljósi. Ræddi hann meðal annars um fyrir- hugaða Sundabraut og sagði nokkuð ljóst að yrði „farin svokölluð innri leið verður svæðið í kringum Smáralind- ina miðja höfuðborgarsvæðisins, en verði ytri leiðin farin verði miðjan nánast áfram þar sem hún er nú“. „Hvers vegna ekki að sviðsetja þessa möguleika og leyfa íbúum höfuðborg- arsvæðisins að velja?“ spurði Hrafn. Það kynni að vera ágætt að miðja höf- uðborgarsvæðisins flyttist í Smára- lind en það ætti þá að gera vegna þess að menn vildu það, en ekki óvart. Þá sagði Hrafn frá lauslegri rann- sókn sem hann og aðstoðarmenn hans hefðu gert þegar unnið var að mynd Hrafns, Reykjavík í öðru ljósi. Þeir hefðu farið víða og spurt fólk hvort því þætti gott að búa þar sem þar byggi. Flestir hefðu verið ánægð- ir með búsetustað sinn, en þegar fólk var spurt hvort það vildi búa annars staðar í borginni, hefði verið ráðandi í svörum fólks að það óskaði þess að búa nær miðborginni. Spurt hvers vegna það gerði það ekki hefðu marg- ir nefnt að það væri dýrara. 560 bílar á hverja 1.000 íbúa Þorvaldur Gylfason hagfræðingur fjallaði um borgarhagfræði á þinginu. Þar kom meðal annars fram að Reykjavík væri eiginlega dreifbýlasta höfuðborg heimsins. „Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni tekur einn sjöunda part af flatarmáli Reykjavíkur innan Elliðaáa,“ sagði Þorvaldur. Um væri að ræða dýrmætasta hluta borgar- landsins sem gæti hýst tugi þúsunda íbúa og vinnandi fólks og gert Reykjavík að gönguborg. Slíkt myndi spara ógrynni fjár. Aksturskostnaður sem lagður væri á borgarbúa að óþörfu væri gríðarlegur. Þá væri ekki bara átt við rekstrarkostnað ónauð- synlegra bíla heldur einnig stofn- kostnað. „Við eigum um 560 bíla á hverja 1.000 íbúa í okkar litla sam- félagi,“ sagði Þorvaldur og benti á að Dönum dygðu 360 bílar á 1.000 íbúa. Borgaraþing íbúasamtaka í Reykjavík um málefni borgarinnar Miðborgina skort svigrúm til vaxtar Morgunblaðið/ÞÖK Hildur Helga Sigurðardóttir heilsar Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarfull- trúa. Við hlið Hildar eru Þorvaldur Gylfason og Gauti Kristmannsson. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is EINS OG greint var frá í Morgun- blaðinu á laugardag er von á fjórtán laga plötu með 35 ára gömlum upp- tökum frá fjórum upprunalegra meðlima Stuðmanna á næstu dög- um. Heldur frjálslega var farið með staðreyndir í þeirri frétt í tilefni af 1. apríl og verður hulunni nú svipt af sannleikanum. Platan góða frá Frummönnum, eins og þeir kalla sig nú, er á leiðinni í búðir á næstu dögum, svo mikið er víst, en upptökurnar eru hins vegar frá því í janúar síðastliðnum. „Sannleikurinn er sá að þegar Örn Andrésson, fyrsti rótarinn okkar og umboðsmaður, varð fimmtugur fyrir fimm árum lagði hann ríka áherslu á að fá gamla kvartettinn saman aftur, en þá höfðum við ekki spilað saman síðan 1970,“ segir Jakob Frímann Magnússon. „Þegar kvartettinn var að gera sig kláran til að fara upp á svið að nýju þá heyrði ég söng þess- ara þriggja, Gylfa Kristinssonar, Ragnars Daníelsen og Valgeirs Guð- jónssonar, og það var svo fallegur hljómur að ég hét sjálfum mér því, og við Örn, að við yrðum einhvern veginn að koma þessu á band.“ Hittust fjórmenningarnir á laun í heilt ár og sömdu saman fjórtán lög. Til þess að gera plötuna af fullri al- vöru fóru þeir til Los Angeles í Bandaríkjunum, í gamla hljóðverið hjá Beach Boys með upptökustjóra þeirrar fornfrægu hljómsveitar. „Við fönguðum eiginlega andann sem hafði varðveist þarna óskertur í öll þessi ár,“ segir Jakob en þeir stóðu ekki einir að upptökunum því þeir fengu með sér einvala lið. Hittust á laun í ár og sömdu lög SALASKÓLI sigraði í úrslitum Skólahreysti 2006 sem fram fóru í Laugardalshöll í gær, með 59 stig. Hlíðaskóli hafnaði í öðru sæti með 55,5 stig og Lindaskóli í því þriðja með 55 stig. Hver skóli sendi tvo stráka og tvær stelpur úr 9. og 10. bekk til keppni. Strákarnir kepptu í upphífingum, dýfum og hraðaþraut en stelpurnar í arm- beygjum, fitnessgreip og hraðaþraut. Krakkarnir skiptu greinunum á milli sín svo allir þátttakendur skoruðu stig fyrir sín lið. Um 800 manns mættu á úrslitin og kveðst Andrés Guð- mundsson, sem skipulagði keppnina, afskaplega ánægð- ur með hana. „Ég er rosalega ánægður með krakkana. Það var ekk- ert gefið eftir og gaman að sjá hvað þau eru góð í þessu.“ Morgunblaðið/ÞÖK Hraustir unglingar sem gefa ekkert eftir SÓLVEIG Pétursdóttir, forseti Al- þingis, hóf opinbera heimsókn sína til Írlands í gærdag en heimsóknin stendur til 6. apríl og er í boði for- seta neðri deildar írska þingsins. Með þingforseta í för eru eigin- maður hennar, Kristinn Björnsson, og þingmennirnir Rannveig Guð- mundsdóttir, Guðlaugur Þór Þórð- arson og Þórunn Sveinbjarnardótt- ir, ásamt skrifstofustjóra Alþingis og forstöðumanni alþjóðasviðs. Sendinefndin heimsækir kjör- dæmi írska þingforsetans og hittir þar m.a. borgarfulltrúa. Í Dyflinni á sendinefndin fundi með forsetum beggja deilda írska þingsins, þing- mönnum í Evrópunefnd og forystu- mönnum stjórnmálaflokka á Ír- landi. Þá mun sendinefndin ræða við forseta Írlands, varaforsætis- ráðherra sem jafnframt er heil- brigðisráðherra og aðstoðarutan- ríkisráðherra sem fer með Evrópumál. Forseti Alþingis í op- inberri heim- sókn í Írlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.