Morgunblaðið - 03.04.2006, Side 6
6 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
20
83
03
/2
00
6
49.240*kr.
Verð frá:
Netverð í tvíbýli á Hótel Burlington.
29.900 kr.
Verð á flugsæti:
Tryggðu þér bestu
kjörin og bókaðu strax.
Páskaferð
13.- 16. apríl
Innifalið: Flug, flugvallarskattur, gisting með
morgunverði í 3 nætur og íslensk fararstjórn.
*
Aðeins 2 klst. flug í beinu leiguflugi með Loftleiðum Icelandic.
Ekta kráarstemmning, freyðandi Guinnes og frábærar verslanir.
Gisting á hinu nýja og glæsilega hóteli, Morrisson, Hótel Brooks
eða Burlington.
Beint leiguflug
Dublin
Örfásæti lausBókaðu strax!
SÝNINGUNUM Matur 2006 og Ferðatorg
2006 lauk í Fífunni og Smáranum í Kópavogi í
gær. Líf og fjör var á svæðinu og um 28.000
gestir heimsóttu sýningarnar um helgina.
Sýningin Matur var nú haldin í áttunda skipti
og voru sýnendur fyrst og fremst fyrirtæki í
eða tengd matvælaframleiðslu. Öll ferðamála-
samtök landsins, átta talsins, stóðu að Ferða-
torginu en þar gátu gestir kynnt sér fjöl-
breytta ferðamöguleika og afþreyingu sem í
boði er hér á landi. Þar var lögð áhersla á
tengingu matarmenningar og ferðamennsku
og þá sérstöðu sem einstakir landshlutar
bjóða upp á í matargerð.
Þegar blaðamaður og ljósmyndari Morg-
unblaðsins litu inn í gær voru kjötiðn-
aðarmenn í óða önn að bjóða upp afurðir helg-
arinnar og rann allur ágóði uppboðsins til
krabbameinssjúkra barna. Fjöldi fólks fylgd-
ist með og bitust gestir um kræsingarnar sem
í boði voru. Á meðan voru tilkynnt úrslit í svo-
kallaðri ostrukeppni, en þar áttu þátttak-
endur að opna 30 ostrur á sem bestan hátt á
sem stystum tíma. Gissur Guðmundsson, for-
seti klúbbs matreiðslumeistara, var fljótastur
að opna sínar ostrur en þó náði Bjarki Hilm-
arsson, varaforseti klúbbsins, að stela sigr-
inum af honum með vönduðum vinnubrögð-
um.
Álfukeppni matreiðslumeistara
orðin föst í sessi
Á miðju sýningarsvæðinu myndaðist sann-
kölluð markaðsstemmning á eyfirsku mark-
aðstorgi, en þar sameinuðu matvælaframleið-
endur við Eyjafjörð krafta sína í einum
stórum sýningarbás. Er það í fyrsta sinn sem
slíkt er gert á sýningunni og var Ólína Frey-
steinsdóttir, sem sá um básinn, ánægð með
hvernig til tókst. Í vali um athyglisverðustu
básana hlutu Baco-Ísberg verðlaun í flokki
stórra sýningarbása og Maður lifandi í flokki
þeirra minni en sá norðlenski fékk sérstaka
viðurkenningu.
„Það er búið að vera brjálað að gera og bás-
inn hefur fengið ofsalega góð viðbrögð. Við
ákváðum fljótt að hafa þetta svona
markaðstorgsstemmningu,“ sagði Ólína.
„Stærstu fyrirtækin eru í kjötframleiðslu,
Norðlenska og Kjarnafæði, og það hefði ein-
hvern tímann þótt saga til næsta bæjar að
þau ynnu saman. Þetta er bara spurning um
samvinnu vs. samkeppni og þetta hefur geng-
ið vel hjá okkur.“
Um helgina fór í fyrsta skipti í heiminum
fram álfukeppni matreiðslumeistara en hún
var haldin á vegum Klúbbs matreiðslumeist-
ara á Íslandi og Suður-afrísks klúbbs. Ástralir
fóru með sigur af hólmi en Brasilíumenn
höfnuðu í öðru sæti og Eistar í því þriðja. Að
sögn Hjartar Þórs Frímannssonar, upplýs-
ingafulltrúa keppninnar, tókst mjög vel til og
segir hann keppnina orðna fasta í sessi.
Ferðalangar í eigin landi
Meðal ótal margra annarra skemmtilegra
dagskrárliða um helgina var Orkueldhús
barnanna, þar sem börnum gafst kostur á að
útbúa heilsusnakk og keppni um uppvaskara
ársins, þar sem hin tvítuga Erna Aðalheiður
Karlsdóttir, frá Nordica hóteli, bar sigur úr
býtum. Þá fór fram Íslandsmót kaffibarþjóna
og varð Ingibjörg Jóna Sigurðardóttir hlut-
skörpust þar. Marta Sif Ólafsdóttir sigraði
hins vegar í mjólkurlist.
Á Ferðatorginu voru fjölbreyttar uppá-
komur og skemmtiatriði og á tíu mínútna
fresti voru dregnir út vinningar í svokölluðum
Landsleik sem gestum bauðst að taka þátt í.
Guðrún Birna Brynjarsdóttir, sem sá um leik-
inn, og Hildur Jónsdóttir, frá Ferðamála-
samtökum höfuðborgarsvæðisins, sögðu Ís-
lendinga vera að vakna til vitundar um að þeir
væru ferðamenn í eigin landi og þyrftu ekki
endilega að fara til útlanda til þess að ferðast.
Á sýningunni væri lögð áhersla á að fólk
kynnti sér þá möguleika sem í boði væru og
nýtti sér upplýsingamiðstöðvar um land allt
við skipulagningu ferðalaga. Þær sögðu Ís-
lendinga þurfa að kynnast landinu sínu betur
og þannig yrði það líka boðlegra erlendum
ferðamönnum. Í Landsleiknum þurftu gestir
að svara spurningum um landið sitt og má
ætla að gestir hafi farið fróðari heim.
Ferðatorg 2006 og Matur 2006
Ostrukeppni, lands-
leikur og orkueldhús
meðal dagskrárliða
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Það var girnilegt uppboðið sem haldið var til styrktar krabbameinssjúkum börnum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ólína Freysteinsdóttir, sem sá um eyfirskt
markaðstorg, var ánægð með helgina.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hér standa Hildur Jónsdóttir og Guðrún Birna Brynjarsdóttir við teikniblokk þar sem börn
teiknuðu Reykjavík eins og þau vilja hafa hana og vildu þau meðal annars blóm og bókabúð.
Með þeim er kankvís álfur en áhugasamir geta til dæmis komist í álfabyggðir í Hafnarfirði.
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra hefur falið Náttúru-
fræðistofnun Íslands að gera úttekt
á þeim gróður- og dýralífsskaða sem
sinubruninn mikli á Mýrum hefur
valdið. Hún telur þó ekki nauðsyn á
að banna sinubrennur alfarið og
bendir á að lög frá 1992 um sinu-
brennur og meðferð elds á víðavangi
séu mjög ströng hvað þetta varð-
ar. Náttúrufarslegt tjón á Mýrum
verði hins vegar að rannsaka gaum-
gæfilega.
„Umhverfisráðuneytið hefur verið
í sambandi við Náttúrufræðistofnun
um það hvernig þessari vinnu verði
háttað þegar unnt verður að komast
að brunasvæðunum. Nú þegar hafa
sérfræðingar NÍ farið á svæðið og í
framhaldinu verður ákveðið nánar
hvernig fylgst verði með því. Mér
finnst líklegt að menn muni vilja
verja næstu árum í að fylgjast með
þróuninni því það er algerlega víst að
lífríkið hefur breyst eftir atburð sem
þennan.
Það er bráðnauðsynlegt að taka
svæðið út því um er að ræða geysi-
lega mikið tjón á villtum gróðri, fyrir
utan annað tjón, s.s. eignatjón á girð-
ingum og fleira. En út frá umhverf-
issjónarmiðum er um að ræða gríð-
arlega mikinn skaða.“
Varðandi algert bann við sinu-
brennum tekur Sigríður Anna fram
að gildandi lög frá 1992 séu mjög
ströng og ekki sé nauðsyn á að herða
þau frekar. „Það
er óheimilt að
brenna sinu nema
á jörðum sem eru
í ábúð eða nýttar
af ábúendum
nema með leyfi
sýslumanns. Þá
eru ákvæði þess
efnis að aldrei
megi brenna sinu
ef það hefur í för
með sér almanna-
hættu eða gæti
valdið tjóni, t.d. á náttúruminjum,
fuglalífi, trjágróðri o.fl.
En mér finnst mjög eðlilegt að
menn velti þessu fyrir sér í kjölfar
viðburða af þessu tagi. Einnig finnst
mér eðlilegt að við förum yfir málið
með brunamálastjóra og kannað
verði álit slökkviliðanna í landinu á
þessari lagasetningu. En ég tel að
fyrst og fremst þurfi almenningur að
vera meðvitaður um þá hættu sem
stafar af meðferð elds úti í nátt-
úrunni. Við þær aðstæður sem hafa
verið undanfarið má ekkert út af
bera.“
Náttúrufræði-
stofnun falin úttekt
á brunasvæðunum
Sigríður Anna
Þórðardóttir um-
hverfisráðherra.
SÉRFRÆÐINGAR á Nátt-
úrufræðistofnun Íslands telja erfitt
að spá hverjar verði afleiðingar
sinubrunans á Mýrum en reikna
þó með talsverðum gróðurbreyt-
ingum og að ýmsar tegundir fugla
muni eiga erfiðara með að finna
sér hreiðurstæði í vor.
Á heimasíðu Náttúrufræðistofn-
unar segir að líklegt sé að smá-
dýralíf skaðist, einkum þar sem
hitinn hefur verið mestur og brun-
inn hefur eytt sverðinum. Nátt-
úrufræðistofnun kortlagði gróður
á Mýrum á árunum 1996–1997 og
á gróðurkorti má sjá að landið
sem hefur brunnið er eitt mesta
samfellda votlendi í byggð á Ís-
landi. Þó um sé að ræða votlendi
eru þúfurnar mjög þurrar og þar
sem landið er lítið beitt er elds-
matur óvenju mikill.
Talið er að tjónið sem Mýraeld-
arnir hafa valdið spanni a.m.k. yf-
ir u m 100 ferkílómetra svæði en
umfangsmestu sinubrunar sem
raktir eru í annálum urðu í Úlf-
hildarbrennu á 16. öld. Þá á
brunnu a.m.k. 24 ferkílómetrar
lands í Biskupstungum í Árnes-
sýslu og má því ljóst vera að
Mýraeldar eiga sér vart nokkra
hliðstæðu.
Gróður-
breytingar
og erfiðleikar
hjá fuglum