Morgunblaðið - 03.04.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Nýjar gallbuxur og -pils
Mánudagur 03.04.
Grænmetislasagne m/pestó
Þriðjudagur 04.04.
Afrískur pottréttur m/steiktum
bönunum
Miðvikudagur 05.04.
Engiferpottur & kartöflubakstur
Fimmtudagur 06.04.
Hummus, buff & bakað grænmeti.
Föstudagur 07.04.
Burritos m/chillisósu & guacamole.
Helgin 8.-9.03.
Linsubaunabollur & cashewkarrý
Barcelona er einstök perla
sem Íslendingar hafa tekið
ástfóstri við. Heimsferðir
bjóða þér nú tækifæri til að
njóta vorsins og dekra við
þig í aðbúnaði í þessari
einstaklega fögru borg á
frábærum kjörum. Gisting á
hinu glæsilega Hotel Avenida
Palace við Gran Via götuna,
ein besta staðsetningin í
hjarta Barcelona, við þekkt-
ustu verslunargötuna.
Glæsilegt fjögurra stjörnu
„superior“ hótel með frábærum
aðbúnaði og þjónustu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Lúxushelgi í
Barcelona
20. apríl
frá kr. 49.990
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
Frá kr.49.990
M.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel
Avenida Palace ****+ með morgunverði,
20. apríl. Netverð á mann.
Hotel Avenida Palace ****+
Frábær nýjung...
Vertu velkomin til okkar að fræðast um þessa frábæru nýjung í
kavíar línunni milli kl. 13-17:
Í dag, mánudag og á morgun þriðjudaginn 4. apríl
Bjóðum 10% staðgreiðslu-
afslátt og kaupauka.
SKIN CAVIAR LUXE BODY EMULSION
Laugavegi 80 • Sími 561 1330
tískuvöruverslun
Laugavegi 82
Síðustu dagar
4 verð
á öllum fatnaði
500, 1000,
1500 og 2000
Stígvél 4.900
DOKTORSVÖRN við læknadeild
Háskóla Íslands fer fram föstudag-
inn 7. apríl. Þá ver Jón Hallsteinn
Hallsson sameindalíffræðingur
doktorsritgerð sína „Virkni, varð-
veisla og breytingar á Mitf umrit-
unarþættinum“ (á ensku „Function,
conservation and modifications of
the Mitf transcription factor“).
Andmælendur eru dr. Colin God-
ing, vísindamaður við Marie Curie
Research Institute í Bretlandi, og
dr. Sigurður Ingvarsson, prófessor
við læknadeild Háskóla Íslands og
forstöðumaður tilraunastöðvar Há-
skóla Íslands í
meinafræði að
Keldum. Dr.
Stefán B. Sig-
urðsson, forseti
læknadeildar,
stjórnar athöfn-
inni sem fer fram
í hátíðasal, Að-
albyggingu og
hefst klukkan 14. Doktorsverkefni
Jóns Hallsteins fólst í greiningu á
byggingu, starfsemi og varðveislu
Mitf gensins. Stjórnpróteinið Mitf
er nauðsynlegt fyrir þroskun nokk-
urra frumutegunda í mús, þar með
talið mastfrumna, beinátsfrumna
og litfrumna í húð og augum.
Stökkbreytingar í geninu hafa áhrif
á þessar frumutegundir en í mis-
miklum mæli. Í verkefni Jóns Hall-
steins var nokkrum stökkbreyting-
anna í músum lýst, auk þess sem
útbúnar voru nýjar stökkbreyt-
ingar í geninu með aðferðum erfða-
tækninnar.
Doktorsvörn
í erfðafræði
frá lækna-
deild HÍ
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
karlmann af ákæru fyrir að særa
blygðunarsemi konu með því að taka
hreyfimyndir af henni inni á kvenna-
salerni veitingahúss í Kópavogi.
Staðfesti Hæstiréttur með þessu
dóm Héraðsdóms Reykjaness.
Hæstiréttur taldi ekki hægt að
staðhæfa að verknaður mannsins
teldist lostugt athæfi, svo sem áskil-
ið sé í 209. grein almennra hegning-
arlaga um brot gegn blygðunarsemi.
Lostugt athæfi í skilningi 209. gr. al-
mennra hegningarlaga sé athöfn af
kynferðislegum toga og sem stjórn-
ist af kynhneigð manna en gangi
skemmra en samræði og önnur kyn-
ferðismök. Ákærði hafi borið því við
að athæfi hans hafi ekki verið af
kynferðislegum rótum sprottið og
að hann hafi eingöngu verið að „fífl-
ast“.
Dómurinn taldi að ákærði yrði í
sakarmati að njóta vafans í málinu
um þá huglægu afstöðu sem bjó að
baki verknaði hans.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón
Steinar Gunnlaugsson og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Verjandi var
Jón Auðunn Jónsson hrl. og sækj-
andi Kolbrún Sævarsdóttir saksókn-
ari frá ríkissaksóknara.
Sýknaður eftir
myndatöku á
kvennasalerni
HALDINN verður stofnfundur
samtakanna Hollvinir Grensás-
deildar næstkomandi miðvikudag, í
safnaðarheimili Grensáskirkju í
Reykjavík kl. 20.
Það eru bæði núverandi og fyrr-
verandi sjúklingar deildarinnar,
aðstandendur og vinir þeirra og
starfsfólk tengt deildinni fyrr og
nú sem standa að samtökunum.
Tilgangur þeirra er að styðja við,
efla og styrkja endurhæfingar-
starfsemi þá sem fram fer á Grens-
ásdeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss.
„Margir þarfnast endurhæfingar
eftir að hafa lent í sjúkdómum eða
slysum. Þar hefur Grenásdeild
verið í fararbroddi frá því að deild-
in tók til starfa 1973. Fjárskortur
hefur þó löngum hamlað starfsem-
inni og legurúmum hefur ekki
fjölgað í áranna rás þó að íbúum
landsins hafi fjölgað um 40% og
meðalaldur hækkað, sem allt hefur
leitt til enn meiri hlutfallslegrar
þarfar fyrir endurhæfingu,“ segir í
kynningu á stofnfundi samtakanna.
Erfið aðstaða og bið
Bent er á að að því slepptu að
sundlaug var bætt við á níunda
áratug, hefur önnur sjúkra- og
iðjuþjálfunaraðstaða ekki verið
aukin.
„Fara því saman mikil og vax-
andi þrengsli og erfið aðstaða bæði
fyrir sjúklinga og starfsfólk.
Sárast er þó að fjöldi fólks verð-
ur að bíða mánuðum saman, oft við
miklar kvalir og skerðingu líkam-
legrar getu vegna þess að það
kemst ekki í endurhæfingu, en
geta í bæklunarskurðaðgerðum,
þar með talin liðaskipti, Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss, sem einn-
ig þarf að auka, er nú meiri en af-
kastagetu Grensásdeildar nemur.“
Stofna samtök
hollvina
Grensásdeildar
TÁPMIKLIR voru þeir og útsjón-
arsamir, iðnnemarnir sem sýndu
listir sínar á Íslandsmóti iðnnema –
„Gerðu betur,“ sem fram fór í
Kringlunni fyrir helgina með
pompi og prakt í tilefni af degi iðn-
og starfsmenntunar.
Á Íslandsmótinu öttu kappi nem-
ar í hinum hefðbundnu og fjöl-
breyttu iðngreinum og mátti þar
sjá málmsmiði framtíðarinnar setja
saman grill, dúkleggjara skera út
mynd á gólfi Kringlunnar, hár-
snyrtinema klippa og greiða og
nema í rafvirkjun tengja flókin
lagnaverkefni. Þá sýndu mál-
aranemar stílmálningu en tré-
smíðanemar settu saman hand-
hæga gripi á meðan
snyrtifræðinemar snyrtu, förðuðu
og lökkuðu. Einnig sýndu nemar í
múrverki listir sínar í flísalögn og
síðast en ekki síst settu pípulagn-
ingamenn framtíðarinnar saman
mikil rörlistaverk. Alls voru skráð-
ir til leiks 72 keppendur frá 11 skól-
um.
Nokkrir iðn- og starfsmennta-
skólar kynntu einnig námsframboð
sitt á básum í Kringlunni, en um
fjölbreytt námsframboð er að ræða
í iðngreinum landsins. Það eru Iðn-
mennt og Mennt sem stóðu fyrir
kynningardeginum og Íslands-
mótinu, en markmið mótsins er að
auka sýnileika iðn- og starfsmennt-
unar, bæta ímynd greinanna, kynna
þær fyrir almenningi – ekki síst
ungu fólki og vekja athygli á þeim
tækifærum sem felast í námi og
starfi í iðngreinum.
Pípað, græjað og
snyrt í Kringlunni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti