Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ELDAR blossuðu upp á ný á Mýrum
síðdegis á laugardag eftir að þeir
höfðu verið slökktir þá um morg-
uninn eftir tveggja sólarhringa bar-
áttu fjölda fólks. Svæðið verður nú
vaktað rækilega þar til vissa hefur
fengist fyrir því að eldurinn sé alveg
kulnaður.
Talið er að yfir 100 ferkílómetra
svæði hafi orðið eldinum að bráð.
Landhelgisgæslan og Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins tóku loftmyndir
af svæðinu á laugardag til þess að
meta það nákvæmlega hversu stórt
svæði fór undir eld.
Að sögn lögreglu hafa verið skip-
aðir vakthópar sem munu hafa það
verkefni að fylgjast með svæðinu
næstu daga.
Að sögn Ólafs Egilssonar, bónda á
Hundastapa, munu menn ekki yf-
irgefa svæðið á næstunni fyrr en fer
að rigna en spáð er slyddu og rign-
ingu næstu tvo daga. Ólafur sagði að
víða væri glóð í mosa sem sæist ekki
berum augum. Því væri nauðsynlegt
að hafa auga með svæðinu.
Vegurinn rennbleyttur
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs-
stjóri í Borgarnesi, sagði eldinn hafa
blossað aftur upp við bæinn Ánastaði
eftir að glóð hafði borist frá vestara
brunasvæðinu. „Menn héldu nú að
þeim hefði tekist að komast fyrir eld-
inn en hann lifir lengi í mó og þegar
fór að kula á laugardag varð af litlum
neista mikið bál eins og oft vill verða.
Það brann töluvert mikið svæði en
okkur tókst að hindra framrás elds-
ins við Miklaholt. Þar var eldurinn
stöðvaður við læk með því að kveikja
í hinum megin lækjarins þannig að
það brann á móti. Þannig var tryggt
að eldurinn færi ekki upp að Snæ-
fellsnesveginum. Hættan var sú að
eldurinn færi yfir Akraveginn, frá
Hrafnkelsstöðum að Hundastapa.“
„Því var vegurinn rennbleyttur
allan daginn og sömuleiðis öxlin ofan
við veginn. Það gerði gæfumunninn
og því barst eldurinn ekki niður fyrir
veg því annars hefði hann getað farið
yfir Álftá. Hún er á ís núna svo að
það hefði getað feykst glóð yfir hana
og þá hefði allur Álftaneshreppurinn
brunnið. Ég hefði ekki boðið í það.
Til þess að ganga til bols og höfuðs á
helvítinu náðum við okkur í jarðýtu
og flettum sverðinum í sundur og
stöðvuðum eldinn milli Hrafnkels-
staða og Ánastaða.“
Í alla fyrrinótt og í gær var síðan
unnið að því að drepa í glæðum víða
og fékkst aðstoð frá liðsmönnum
SVFÍ og fleirum. Vakt átti að vera á
svæðunum í nótt og í dag, mánudag,
verður framhaldið metið. „Það á víst
að þykkna upp og rigna. Við erum
því alsælir með það.“
Haugsugur bænda hafa sem
kunnugt er gert gríðarlegt gagn en
um tíma var erfitt að beita þeim
vegna frosts í stútum. „Þetta hefði
farið mjög á annan veg ef bændurnir
hefðu ekki komið til. Þetta eru
kjarkaðir og áræðnir menn sem
kunna með þessi tæki að fara. En
vatnið fraus á stútunum, bæði þegar
var verið að sjúga á sig og hleypa úr.
Það var 10 stiga frost á laugardags-
kvöldið og þá voru stútarnir hitaðir
með gaskútum. Þetta var erfitt en
menn eru ekki þekktir fyrir að gef-
ast upp hér á Mýrunum.“
Eldar slökktir enn á ný á Mýrum eftir að þeir blossuðu aftur upp á laugardag
„Ekki þekktir fyrir að gefast upp hér á Mýrunum“
Morgunblaðið/RAX
Sviðin jörðin á Mýrum stingur í augun. Eldurinn var gífurlegur þegar mest
var en var sigraður með samstilltu átaki mikils fjölda liðs leikra og lærðra.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SLÖKKVISTARF á Mýrunum var
allt annað en auðvelt. Eldarnir loguðu
á mjög stóru svæði og á nokkrum
stöðum á sama tíma. Menn notuðu
ýmsar aðferðir og tæki við að slökkva
eldana: haugsugur, slökkvibíla, þyrlu,
handverkfæri og meira að segja var
jarðýta notuð við slökkvistarfið.
Slökkvibílarnir eru stórir og þungir
og því var ekki hægt að keyra þá út
fyrir vegina. Þeir komu því að bestum
notum við að varna því að eldurinn
kæmist yfir á ný svæði. Haugsugurn-
ar reyndust hins vegar mjög vel við að
slökkva elda sem loguðu innar á
svæðinu. Þá reyndist þyrlan vel við að
slökkva á svæðum sem haugsugurnar
komust ekki á og eins var greinilegt
að þyrlan er mjög afkastamikið
slökkvitæki. Ennfremur gengu tugir
manna með skóflur og önnur hand-
verkfæri og slökktu elda og glóð sem
víða logaði.
Mjög erfitt er að keyra á traktorum
um sjálfar mýrarnar, en um helgina
fóru bændur á traktorum um svæði
sem fullyrða má að aldrei hafi verið
ekið um áður. Menn fóru jafnvel um
svæði sem gamlir menn myndu hafa
talið óráð að reyna að fara um á hest-
um. Ástæðan fyrir því að þetta gekk
var sú að jörð er óvenjulega þurr og
frost í jörðu. En stundum lögðu menn
meira á tækin en hægt var og festu
dráttarvélarnar í mýrunum.
Á tímabili á föstudag voru nánast
allar haugsugur úr leik eftir að trakt-
orarnir höfðu fest sig í mýrunum. Á
staðnum var hins vegar öflug grafa á
tvöföldum dekkjum og gröfumaður-
inn, sem hefur mikla reynslu af því að
vinna á Mýrunum, náði að losa allar
dráttarvélarnar.
Mjög kalt var í veðri og olli það
bændum vissum erfiðleikum því að
frjósa vildi í stútunum á haugsugun-
um. Og bændur þurftu að glíma við
fleiri vandamál, eins og sprungin
dekk, bilaðar glussaslöngur og um
tíma vantaði olíu á traktorana. Menn
gáfu sér vart tíma til að borða, því ef
gert var hlé á slökkvistarfi var hætt
við að öll sú mikla fyrirhöfn sem menn
voru búnir að leggja á sig yrði unnin
fyrir gýg. Þá var lítið um svefn hjá
mörgum.
Unnið var fram yfir fjögur aðfara-
nótt laugardags og fram að miðnætti
á laugardagskvöld.
Þeir sem ekki tóku beinan þátt í
slökkvistarfi höfðu í nógu að snúast
við að hafa til mat, svara símtölum frá
áhyggjufullum ættingjum og fleira.
Eldar gusu upp á
ný á laugardag
Oftar en einu sinni gaus upp eldur á
svæði sem menn töldu sig vera búnir
að bjarga. Ástæðan er sú að glóð
leynist víða í gróðrinum. Vindurinn
náði síðan að blása í glæðurnar. Þetta
gerðist t.d. eftir hádegið á laugardag
þegar gríðarlegir eldar kviknuðu í
Ánastaðaflóanum. Eldurinn náði sér
á strik á mjög skömmum tíma þrátt
fyrir að bændur á Mýrunum væru við
eftirlitsstörf á þessu svæði er eldsins
varð vart. Aftur þurfti því að kalla út
mikið lið frá nærliggjandi sveitum og
af höfuðborgarsvæðinu til að berjast
við eldana. Tók um átta klukkutíma
að slökkva þá elda. Í fyrrinótt var
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins með
vakt á Mýrunum.
Ljóst má vera að bændur og
slökkviliðsmenn unnu þrekvirki við að
slökkva eldana. Þó að eldurinn hafi
farið um gríðarlega stórt svæði hefði
hann hæglega getað farið enn víðar.
Ekki er t.d. hægt að útiloka að hann
hefði getað náð yfir í Álftaneshrepp,
sem er næsti hreppur sunnan við
Hraunhrepp og er álíka stór og
Hraunhreppurinn. Fólk víða að kom
að slökkvistarfinu, úr Borgarfjarðar-
héraði, af höfuðborgarsvæðinu, Döl-
um og víðar. Eins og fram hefur kom-
ið er það svæði sem hefur brunnið
stærra en allt höfuðborgarsvæðið.
Hægt er að taka annan mælikvarða.
Á bænum Hundastapa, þar sem rekið
er nokkuð stórt kúabú, eru um 50
hektara tún, sem sumum þykir tals-
vert stórt. Svæði sem brann er talið
ekki undir 10.000 hekturum.
Þeir sem börðust við eldana á Mýrum gáfu sér vart tíma til að sofa eða borða
Erfið barátta við eldanaEftir Egil Ólafssonegol@mbl.is
ALLT að tveggja km löng bílaröð
myndaðist í teppu á Vesturlands-
veginum síðdegis í gær þegar stór-
bruni varð í sinu við bæinn Esju-
berg. Veginum var lokað kl. 16:22
og hann opnaður aftur kl. 18.
Í brunanum urðu á milli 10-20
hektarar eldinum að bráð og var
mikið slökkvilið sent á vettvang.
Slökkvilið var kallað út í hvern
sinubrunann á fætur öðrum í gær
og fimmtánda sinuútkallið kom á tí-
unda tímanum í gærkvöldi, á Víð-
istaðatúni í Hafnarfirði. Langflest
útköllin voru minniháttar að sögn
varðstjóra.
Útlit er fyrir að skrælþurr og eld-
fimur gróðurinn fái vökvun næstu
daga því spáð er úrkomu fram í vik-
una.
Morgunblaðið/RAX
Bílaröðin var allt að 2 km á Vesturlandsvegi þegar slökkvistarf við Esju-
berg fór fram síðdegis í gær. Máttu sumir bíða í yfir klukkutíma.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Óhemjumikið álag hefur verið á slökkviliðsmönnum við að sinna sinuútköllum sem teljast orðið í tugum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Löng töf vegna
sinubruna
Löng röð bíla myndaðist vegna lokunar Vesturlandsvegarins meðan barist var við eldinn.