Morgunblaðið - 03.04.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 11
FRÉTTIR
Kl. 9.00-12.00
Fundir faghópa
• Afþreyingarfyrirtæki
Markaðsstarf, menntun í afþreyingar-
ferðaþjónustu
• Bílaleigur
Starfsskilyrði bílaleiga í Evrópu
• Ferðaskrifstofur
Markaðsstarf og sýningarhald
• Flugfélög
Breytt skipan flugmála
• Gististaðir
Hótelrekstur í Danmörku, hagtölur,
tekjustýring o.fl.
• Hópbifreiðafyrirtæki
Skipulagsmál og öryggismál
• Veitingastaðir
Starfsleyfaumhverfi í ESB löndum, mat-
vælaverð o.fl.
Fjöldi fyrirlesara, innlendra sem erlendra tala
á fundum þessum.
Kl. 13.00 - 15.15
Setning, Jón Karl Ólafsson, formaður SAF.
Ávarp, Sturla Böðvarson, samgönguráð-
herra.
Hvað selur Ísland?
Sköpunarkrafturinn í íslenskri ferða-
þjónustu
• Hermann Haraldsson, framkv.stjóri OMD
Nordic, Danmörku
• Pétur Óskarsson, framkv.stjóri VIATOR
• Pallborðsumræður. Þátttakendur:
Friðrik Pálsson, framkv.stjóri Oddhóls ferða-
þjónustu
Halla Tómasdóttir, framkv.stjóri Viðskiptaráðs
Ingjaldur Hannibalsson, prófessor og stjórnar-
form. Ferðamálaseturs.
Svanhildur Konráðsdóttir, framkv.stjóri
Höfuðborgarstofu.
Umræðum stýrir Einar Sigurðsson, IMG
Kaffi
Kl. 15.45
• Almenn aðalfundarstörf.
Kl. 19.30
Kvöldverðarhóf félagsmanna.
Þann 7. apríl verður MARKAÐSTORG
SAF haldið á Hótel Loftleiðum þar sem
fyrirtækin kynna vörur sínar og þjón-
ustu fyrir starfsfólki ferðaskrifstofanna.
Yfir hádegisverði flytur Gunnar Ekland,
svæðisstjóri Icelandair í Ameríku, erindi
um markaðssetningu Icelandair í Amer-
íku. Ennfremur verða afhent frum-
kvöðlaverðlaun Icelandair í fyrsta
skipti. Nánari upplýsingar eru á vef SAF
www.saf.is.
Aðalfundur Samtaka
ferðaþjónustunnar er opinn
fulltrúum frá aðildarfélögum SAF
Samtök ferðaþjónustunnar - SAF -
eru málsvari og sameiginlegur
vettvangur íslenskra fyrirtækja
sem stunda rekstur á sviði ferða-
þjónustu. Aðild að SAF er heimil
öllum sem telja sig til ferðaþjón-
ustufyrirtækja.
AÐALFUNDUR
SAMTAKA FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Hótel Loftleiðum 6. apríl 2006
Samtök ferðaþjónustunnar,
Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, sími 511 8000
www.saf.is
Dagskrá:
Frost, napur vindur og ísrekeinkenndu upphaf stang-veiðivertíðarinnar á laug-ardag en engu að síður
veiddist furðu vel víða. Þegar blaða-
maður fylgdist með veiðimönnum
kasta fyrir sjóbirtinginn á nokkrum
veiðisvæðum í Skaftafellssýslum,
áttu þeir sums staðar í mestu vand-
ræðum með að fá þokkalegt rek á lín-
ur sökum íssins sem barst fram með
straumnum.
„Það eru sífelldar tökur, en tómt
ístak!“ kallaði Ragnar Johnsen,
leigutaki Vatnamótanna í Skaftá, upp
á bakkann til félaganna, sem höfðu
fylgst með honum ösla út fyrir skar-
irnar og bregða nokkrum sinnum við
því sem hann vonaðist til að væri fisk-
ur. Þrátt fyrir vandræðin með ísinn
náðu Ragnar og félagar hans þremur
fiskum á laugardag og í gærmorgun
bættu þeir um betur, í álíka að-
stæðum, og lönduðu fimmtán, ágætis
birtingum. Þorvaldur K. Þor-
steinsson setti í flesta og naut þar
sérþyngdrar túpu og steinsökkvandi
enda á flugulínunni, en Ragnar sagði
að í þessum kuldum lægi fiskurinn
þétt við botninn. Sigtryggur Bald-
ursson tónlistarmaður setti einnig í
nokkra á appelsínugulan nobbler.
Ragnar sagði þá félagana hafa misst
annað eins af fiski.
„Þetta er Tungulækur!“
Vestan við Skaftá, í Tungulæk, var
Þórarinn Kristinsson, eigandi lækj-
arins, við veiðar ásamt Kristni, syni
sínum, og nokkrum félögum sem allir
þekkja lækinn vel. Tungulækur er
hlýrri en mörg svæðanna í kring og
var enginn ís á honum en lækurinn
kraumaði hins vegar af fiski. Þegar
veiðimenn tóku sér hlé frá veiðinni
um hádegi höfðu þeir landað um 45
fiskum og þegar veiði lauk um kvöld-
ið var aflinn orðinn 107 sjóbirtingar.
„Þetta er nú einu sinni Tungulækur,“
sagði Þórarinn þegar blaðamaður
bað hann að segja sér töluna aftur.
Stór hluti veiðinnar var afar vænn
fiskur, átta til ellefu pund, og mikið af
feitum og silfruðum geldfiski á milli,
fiski um fjögur pund. Klassískar sjó-
birtingsflugur eins og Black Ghost og
Flæðarmús reyndust vel en Þórarinn
beitti hins vegar rauðri og gulri
flugu, en það sagði hann sína kjörliti í
læknum. Fiskunum hugnuðust lit-
irnir greinilega vel því þeir voru sí-
fellt í flugunni. Um miðjan dag brá
Þórarinn sér síðan út fyrir Opið með
kaststöngina, út í skilin í Skaftá, og
þar tóku fimm birtingar Toby-
spúninn í beit, tveir þeirra voru um
tíu pund og var sleppt aftur út í
strauminn. Á sama tíma liðu ekki
margar mínútur á milli viðureign-
anna hjá hinum veiðimönnunum.
Þetta veiðisvæði er engu öðru líkt.
Skammt þar fyrir norðan, við Geir-
landsá, var árnefnd Stangaveiði-
félags Keflavíkur önnum kafin við að
leggja lokahönd á endurbætur á
veiðihúsinu sem brann í fyrra. Geir-
landsá er býsna köld og gjöfulasti
veiðistaður árinnar, Ármótin, þar
sem Stjórn kemur út í, var ísi lagður
og svo til ómögulegt að veiða hann
fyrri hluta dags. Undir kvöld fóru
veiðimenn þó á staðinn, veiddu djúpt
milli skaranna og náðu um tug fiska á
land. Stærsti birtingurinn var um
átta pund.
86 cm hrygna í Tungufljóti
Í Tungufljóti í Skaftártungum
höfðu veiðimenn einnig brotið sér leið
gegnum ísskarir og vaðið út í straum-
inn til að kasta, og þegar blaðamann
bar þar að garði um miðjan dag, voru
veiðimenn að tínast í hús, klakabrynj-
aðir, en búnir að veiða yfir 20 birt-
inga. Þar með talinn sá stærsti sem
fréttist af um helgina, 86 cm hrygna
sem Þorbjörn Helgi Þórðarson
veiddi. Fiskarnir voru á bilinu 65 til
86 cm og var öllum sleppt aftur. Mik-
ið ísrek var á Tungufljóti og vatnið
ekki nema um ein gráða en tök-
ustundirnar komu þegar sól braust
milli skýja; þá tóku fiskarnir stórar
túpur á steinsökkvandi línum. Flestir
veiddust við Flögubakka en nokkrir
einnig við Syðri-Hólma.
Aðalsteinn Jóhannsson hóf veiðar
einn við Minnivallalæk, í átta stiga
frosti klukkan tíu á laugardags-
morgun. Um sex punda fiskur tók á
Húsabreiðu í fyrsta kasti og síðan
dró Aðalsteinn tíu fiska á klukkutíma
úr Stöðvarhyl. Sá stærsti var um tíu
pund og enginn undir fjórum. Alls
fengust 19 fiskar í Minnivallalæk í
opnuninni, allir á Húsabreiðu og í
Stöðvarhyl.
Birtingurinn sýndi sig ekki á sjó-
birtingssvæðunum í Ytri-Rangá, að-
eins einhverjir niðurgöngulaxar.
Opnunin var með hefðbundnu sniði í
Varmá, þar sem sömu fjölskyldur
hafa veitt í rúm 30 ár. Menn voru
mættir í bítið í norðangarra og afli
dagsins var um 30 fiskar, mestallt
birtingur, tvö til fjögur pund, en einn-
ig veiddust vænar bleikjur. Að þessu
sinni fór minna fyrir regnbogasilungi
í opnuninni en á síðustu árum.
Morgunblaðið/Golli
Þorleifur Gunnlaugsson með stóra bleikju sem hann veiddi á nobbler fyrir neðan Stöðvarhyl í Varmá.
107 sjóbirtingar
úr Tungulæk
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
STANGVEIÐI Umræðan
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun