Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Mánudaginn 8. maí 2006 verða hlutabréf í
MP Fjárfestingarbanka hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf.
í samræmi við ákvörðun stjórnar MP Fjár-
festingarbanka hf. þar að lútandi. Þar af leið-
andi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi
við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna
eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í MP
Fjárfestingarbanka hf. tekin til rafrænnar
skráningar en þau eru öll í einum flokki og
gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á
hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofan-
greindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa
leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært
í hlutaskrá MP Fjárfestingarbanka hf. að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til
skrifstofu MP Fjárfestingarbanka hf., Skip-
holti 50d, Reykjavík. Komi í ljós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið
skráð ber eigendum að færa sönnur á þau
gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga
takmörkuð réttindi til ofangreindra hluta-
bréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á
framfæri við fullgilda reikningsstofnun,
þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð
sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu Íslands hf., fyrir
skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu
hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafn-
framt er vakin athygli á að ferli rafrænnar
skráningar hefur engin áhrif á möguleika hlut-
hafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félag-
inu að undanskildum sjálfum skráningar-
deginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar
að fela reikningsstofnun umsjón með eignar-
hlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti
sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reiknings-
stofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning
í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum
félagsins verður kynnt þetta bréfleiðis.
Innköllun vegna rafrænnar skráningar
hlutabréfa í MP Fjárfestingarbanka hf.
Skipholti 50d | 105 Reykjavík | sími 540 3200 | www.mp.is
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis býður út 2.828.000.000
nýja stofnfjárhluti. Farið er með útboðið skv. reglum um
almennt útboð verðbréfa, þótt núverandi stofnfjáreigendur
eigi forgangsrétt til áskriftar að hinum nýju stofnfjárhlutum.
Útboðstímabilið er 7.–21. apríl 2006 og fellur áskrift í eindaga
28. apríl 2006. Verð hvers stofnfjárhlutar er kr. 1,94084 og er
heildarverðmæti útboðsins því kr. 5.488.695.520,-. Heildar-
nafnverð stofnfjár fyrir hækkunina er kr. 2.172.000.000,- og
verður eftir hækkunina kr. 5.000.000.000,- að því gefnu að allt
seljist. Nafnverð nýrra stofnfjárbréfa er kr. 2.828.000.000,-.
Umsjónaraðili útboðsins er Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis og má nálgast útboðslýsingu ásamt viðauka sem
gerður hefur verið við hana í tilefni þessa útboðs og önnur
gögn sem útboðinu tengjast á heimasíðu sparisjóðsins,
www.spron.is, og í útibúum hans.
Sparisjóðsstjórn
Stofnfjárútboð
SPRON
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
HAGNAÐUR samstæðu Milestone
ehf. á árinu 2005 nam tæpum 14
milljörðum króna eftir skatta. Að
teknu tilliti til innborgunar hlutafjár
á árinu nam arðsemi eigin fjár á
árinu 2005 ríflega 207%, sem er í
samræmi við væntingar hluthafa fé-
lagsins, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Milestone. Eiginfjár-
hlutfall móðurfélagsins í lok ársins
var 44,5% og samstæðunnar ríflega
28%.
Eigið fé móðurfélagsins var í upp-
hafi árs rúmlega 2,9 milljarðar en
eigið fé samstæðunnar í lok árs nam
ríflega 23,6 milljörðum.
Stærstu eignir Milestone eru
hlutabréf í Glitni og Sjóvá-Almenn-
um tryggingum, sem Milestone á
66,6% hlut í. Í upphafi árs 2006
keypti Milestone hlutabréf í Dags-
brún hf. og ræður samstæðan nú yfir
15,2% hlutafjár í félaginu.
Í desember 2005 gerði Milestone
áskriftar- og hluthafasamning við
Baug Group, og mun Milestone sam-
kvæmt samningnum framselja eign-
arhluti sína í Glitni að nafnverði
2.150 milljónir króna, að meðtöldum
framvirkum samningum til Þáttar
eignarhaldsfélags, dótturfélags
Milestone. Auk þess mun Milestone
framselja eignarhlut sinn í Sjóvá til
Þáttar. Framsalið er háð samþykki
Fjármálaeftirlitsins sem ekki liggur
fyrir og því hafa viðskiptin ekki verið
bókfærð í ársreikningum félaganna.
Samkvæmt samningnum mun eign-
arhluti Milestone í Þætti lækka í
80%.
Arðsemi eigin fjár
Milestone 207%
LANDSBANKI Íslands hefur til-
kynnt Fjármálaeftirlitinu ákvörð-
un bankans um stofnun útibús í
Amsterdam í Hollandi.
Í tilkynningu frá Landsbank-
anum segir að ákvörðun bankans
sé tekin í ljósi aukinna umsvifa
bankans í lánveitingum og annarri
fjármálaþjónustu í Evrópu und-
anfarin ár. Starfsemi útibúsins
muni einnig falla vel að starfsemi
Kepler Equities sem er á sama
stað.
Útibúið mun heyra undir Fyr-
irtækjasvið Landsbankans. Robert
Verwoerd og Sebastian T.W.
Stoetzer munu stýra útibúinu en
þeir hafa undanfarin sex ár starf-
að við útibú Halifax Bank of Scot-
land í Amsterdam.
Fyrirhugað er að útibúið sinni
lánaverkefnum Landsbankans í
Hollandi og Belgíu. Fyrst og
fremst verði um að ræða þátttöku
Landsbankans í sambankalánum
ásamt innlánastarfsemi á heild-
sölumarkaði og fyrirtækjalánum.
Síðar megi gera ráð fyrir að sett
verði á fót fyrirtækjaráðgjöf í úti-
búinu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Amsterdam Enn bæta íslensku bankarnir við sig starfsstöðvum í Evrópu
og nú hefur Landsbankinn ákveðið að opna útibú í Amsterdam í Hollandi.
Landsbankinn stofnar
útibú í Amsterdam
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Sam-
herji á Akureyri skilaði 3,1 milljarðs
króna hagnaði á síðasta ári, sem er
200 milljónum króna betri afkoma
en árið 2004.
Rekstrartekjur samstæðunnar
námu 21,3 milljörðum króna og juk-
ust um ríflega 27% frá árinu áður.
Aukningin stafar að stærstum hluta
af áhrifum dótturfélaga sem nú eru
að fullu inni í rekstrartekjum ársins
2005 auk sölu fastafjármuna.
Rekstargjöld ársins voru 17,4
milljarðar og hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
var 3,9 milljarðar. Afskriftir voru
1,4 milljarðar króna og voru fjár-
magnsliðir jákvæðir um 1.227 millj-
ónir.
Heildareignir samstæðunnar í
árslok 2005 voru bókfærðar á 28,7
milljarða króna. Skuldir og skuld-
bindingar námu rúmum 21 milljarði.
Í árslok var eiginfjárhlutfall sam-
stæðunnar 25% en var áður 43% og
stafar lækkunin af samruna við
Fjárfestingafélagið Fylki ehf., en
við samrunann lækkar eigið fé Sam-
herja um 6.885 milljónir króna.
„Þrátt fyrir að úthlutaður loðnu-
kvóti á síðustu vetrarvertíð hafi ver-
ið mun minni en væntingar stóðu til
og vertíðin staðið stutt, eru horfur
fyrir árið 2006 þokkalegar. Skýrist
það annars vegar af góðu verði fyrir
afurðir á helstu mörkuðum félagsins
og hins vegar að gengi íslensku
krónunnar er að færast nær því
gildi sem telja má viðunandi fyrir
starfsumhverfi íslenskra útflutn-
ingsgreina,“ segir í tilkynningu
Samherja til Kauphallar Íslands.
Þriggja milljarða
hagnaður Samherja
● VAXTAHÆKKUN Seðlabankans og
hugsanlega einnig fremur jákvæð
umfjöllun um hana á forsíðu fjár-
málablaðsins Financial Times, virð-
ist hafa haft jákvæð áhrif á trygg-
ingaálag á fimm ára skuldabréf
íslensku viðskiptabankanna (CDS) á
eftirmarkaði í Evrópu á föstudag.
Breytingin varð þó ívið meiri á trygg-
ingaálagi Glitnis en hinna bank-
anna.
Í lok föstudags var tryggingaálagið
á fimm ára skuldabréf Glitnis 0,53%
en það var 0,57% deginum áður.
Álagið lækkaði úr 0,80% á skulda-
bréf Kaupþings banka í 0,79% en
það var hins vegar óbreytt á skulda-
bréf Landsbankans, 0,75%.
Tryggingaálagið á eftirmarkaði lækkar
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergiðFréttir á SMS