Morgunblaðið - 03.04.2006, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
CONDOLEEZZA Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og Jack
Straw, starfsbróðir hennar í Bret-
landi, fóru í óvænta heimsókn til
Bagdad í gær til að freista þess að
flýta myndun þjóðstjórnar í Írak eftir
nær fjögurra mánaða samningaþref
flokka sjíta, súnní-araba og Kúrda.
Rice gaf til kynna að þolinmæði
bandarískra ráðamanna væri á þrot-
um. „Við ætlum að hvetja Íraka til að
ljúka samningaviðræðunum. Öllum
ætti að vera ljóst að það er kominn
tími til að viðræðurnar leiði til þjóð-
stjórnar,“ sagði Rice á leiðinni til
Íraks. „Ég geri ráð fyrir því að sú
staðreynd að við förum þangað til að
ræða við leiðtoga Íraks sé merki um
hversu mikla áherslu við leggjum á
þörfina á þjóðstjórn í Írak.“
Ráðgert hafði verið að utanríkis-
ráðherrarnir yrðu fluttir með þyrlu
frá alþjóðaflugvellinum í Bagdad inn
á Græna svæðið svokallaða þar sem
helstu stjórnsýslubyggingar Íraks
eru. Vegna úrhellis var ákveðið að
flytja ráðherrana með bílum og
ströng öryggisgæsla var á veginum
frá flugvellinum, einum af hættuleg-
ustu vegum heims, vegna hættunnar
á sprengjuárás uppreisnarmanna.
Utanríkisráðherrarnir ræddu
fyrst við Jalal Talabani, forseta
Íraks, og síðan Ibrahim Jaafari for-
sætisráðherra og Aziz al-Hakim, einn
af áhrifamestu leiðtogum sjíta.
Jaafari afskiptur?
Blaðamenn, sem ferðuðust með
ráðherrunum, höfðu á orði að Rice
hefði ekki verið eins hlý í viðmóti við
Jaafari forsætisráðherra og við aðra
leiðtoga Íraks. Fregnir hermdu í vik-
unni sem leið að bandaríski sendi-
herrann í Bagdad hefði sagt leiðtog-
um sjíta að stjórn Bandaríkjanna
vildi ekki lengur að Jaafari gegndi
embættinu, en bandarískir embætt-
ismenn neituðu þessum fréttum. Rice
ræddi aðeins í 45 mínútur við Jaafari
en átti nær tveggja stunda hádegis-
verðarfund með Hakim og Adel Ab-
del Mahdi, varaforseta Íraks og
hugsanlegu forsætisráðherraefni
sjíta.
Bandalag sjö stjórnmálaflokka
sjíta tilnefndi Jaafari í embætti for-
sætisráðherra eftir kosningarnar í
janúar þegar bandalagið fékk tæpan
helming þingsætanna. Flokkar
súnní-araba og Kúrda höfnuðu til-
nefningunni og hafa hótað að taka
ekki þátt í myndun stjórnar nema Ja-
afari dragi sig í hlé. Er hann einkum
gagnrýndur fyrir að hafa ekki staðið
sig sem skyldi í baráttunni við upp-
reisnarmenn og sakaður um að hafa
lagt svo mikla áherslu á að gæta
hagsmuna sjíta að hann sé ekki rétti
maðurinn til að fara fyrir þjóðstjórn
nú þegar landið er talið ramba á
barmi borgarastyrjaldar.
Leiðtogar sjíta farnir
að efast um Jaafari
Óánægjunnar með Jaafari er nú
einnig farið að gæta í bandalagi hans.
Leiðtogar fjögurra af sjö flokkum
bandalagsins hafa látið í ljósi efa-
semdir um að hann sé rétti maðurinn
í embætti forsætisráðherra. Hermt
er að þeir hafi gefið honum nokkurra
daga frest til að sýna að hann geti
myndað þjóðstjórn, ella missi hann
stuðning þeirra.
Rice og Straw sögðu að þau hefðu
ekki í hyggju að blanda sér í valda-
baráttuna í Bagdad.
Rice hafði tvisvar áður ferðast til
Bagdad frá því að hún varð utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna í janúar á
liðnu ári. Þetta er í þriðja skipti sem
Straw ferðast til Íraks á árinu.
Utanríkisráðherrarnir fóru til
Bagdad eftir tveggja daga heimsókn
Rice til Bretlands.
Rice viðurkenndi á föstudag að
Bandaríkjastjórn hefðu orðið á „þús-
undir“ mistaka í Írak en sagði daginn
eftir að hún hefði aðeins sagt þetta í
„óeiginlegri merkingu“.
Reyndu að flýta myndun
þjóðstjórnar í Bagdad
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands fóru í óvænta ferð til Íraks
Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, og Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, ræða við Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnar Íraks, á skrifstofu hans í Bagdad í gærmorgun.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
UM 80.000 manns söfnuðust saman á Péturstorginu í Róm í gærkvöldi til
að hlýða á Benedikt XVI páfa fara með bænir klukkan 19.37 að íslenskum
tíma, þegar nákvæmlega eitt ár var liðið frá því að Jóhannes Páll II páfi
lést. Hluti mannfjöldans sést hér við Péturskirkjuna.
Hundruð þúsunda manna sóttu einnig útimessur í Póllandi á sama tíma
og héldu á kertum til að minnast Jóhannesar Páls. Efnt var til minning-
arathafna, hljómleika og ýmissa sýninga víða í Evrópu og Ameríku um
helgina í tilefni af dánarafmælinu.
Nokkrar þúsundir Pólverja, þeirra á meðal forseti og forsætisráðherra
landsins, tóku þátt í samkomu þar sem beðið var fyrir því að Jóhannes Páll
II yrði tekinn í tölu blessaðra, sem er fyrsta skrefið í áttina að því að hann
verði tekinn í dýrlingatölu.
Reuters
Tugir þúsunda á Péturstorginu á dánarafmæli páfa
BANDARÍSKA dagblaðið Wash-
ington Post hafði í gær eftir banda-
rískum leyniþjónustumönnum og
sérfræðingum í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfsemi að þeir teldu
að stjórnvöld í Íran myndu svara
hugsanlegri árás á kjarnorkumann-
virki þeirra með því að skipa útsend-
urum leyniþjónustu Írans og Hizbol-
lah-hreyfingunni í Líbanon að
fremja hryðjuverk víða um heim.
Sérfræðingarnir spáðu því að Ír-
anar myndu standa fyrir árásum á
Bandaríkjamenn í Írak þar sem ír-
anska leyniþjónustan er nú þegar
með marga menn. Að sögn Wash-
ington Post telja sérfræðingarnir að
útsendarar írönsku leyniþjónust-
unnar myndu einnig skipuleggja
árásir á óbreytta borgara í Banda-
ríkjunum, Evrópu og víðar.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur sagt að hann hyggist
reyna að leysa deiluna um kjarn-
orkuáætlun Írans með friðsamlegum
hætti en bætt við að öll úrræði komi
til greina til að afstýra því að Íranar
eignist kjarnavopn.
Heimildarmenn Washington Post
sögðu þó að áhugi bandarískra emb-
ættismanna á starfsemi leyniþjón-
ustu klerkastjórnarinnar í Íran benti
ekki til þess að árás á Íran væri yf-
irvofandi eða líkleg.
Hugsanleg árás
rædd í London
Breska dagblaðið The Daily Tele-
graph sagði í gær að breska stjórnin
hygðist halda leynilegan fund með
yfirmönnum hersins í dag til að ræða
afleiðingar hugsanlegrar árásar á Ír-
an. Blaðið hafði eftir heimildarmönn-
um sínum að loftárásir á kjarnorku-
mannvirki í Íran yrðu
„óhjákvæmilegar“ ef þarlend stjórn-
völd yrðu ekki við kröfu öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um að hætta
auðgun úrans.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði þó í síðasta mánuði
að árás á Íran væri „óhugsandi“.
Óttast hryðju-
verk verði
ráðist á Íran
Gautaborg. Morgunblaðið. | Nem-
endur Ytterby-skólans í Sví-
þjóð sem niðurlægja aðra með
kynþáttafordómum eiga á
hættu að falla í samfélagsfræði.
Að sögn skólastjórans, Anne-
Charlotte Brandberg, hafa
komið upp vandamál í skól-
anum vegna slíkra fordóma og
því er gripið til þessara að-
gerða.
Ákvörðunin hefur vakið at-
hygli og einnig gagnrýni
menntamálayfirvalda fyrir að
vera nokkurs konar skoð-
anakúgun. Lögfræðingur
fræðsluskrifstofu segir að
skoðanafrelsi ríki í landinu og
framkoma eigi ekki að gilda
sem hluti af einkunn.
Ytterby-skólinn er fyrir
nemendur í 7.–10. bekk og er í
Kungälv, nágrannasveit-
arfélagi Gautaborgar. Fulltrú-
ar allra stjórnmálaflokka í bæj-
arstjórn hafa lýst stuðningi við
ákvörðun skólastjórans.
Skólastjórinn segir ákvörð-
unina snúast um að kenna nem-
endum leikreglur lýðræðisins
en hún sé ekki neins konar
skoðanakúgun. Að hennar mati
hafa allir rétt á að hafa eigin
skoðun. Hins vegar á skólinn
ekki að umbera kynþátta-
fordóma og tjáningu þeirra í
skólanum þótt margir for-
eldrar taki of laust á slíku.
Fordómar
þýða fall í
samfélags-
fræði