Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 15
ERLENT
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
Sterkur acidophilus
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
www.nowfoods.is
New York. AP. | Rannsókn á áhrifum
fyrirbæna á hjartasjúklinga bendir
til þess að heilsa þeirra hafi ekki
batnað eftir að ókunnugt fólk bað
fyrir þeim.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að
á meðal þeirra sjúklinga, sem vissu
að beðið var fyrir þeim, voru ýmsir
fylgikvillar hjartasjúkdóma ívið al-
gengari en á meðal þeirra sem vissu
aðeins að hugsanlega yrði beðið fyrir
þeim. Rannsóknarmennirnir sögð-
ust ekki vita hvernig á þessu stæði.
Nokkrir vísindamenn sögðust
vera undrandi á því að ráðist skyldi í
slíka rannsókn þar sem vísindunum
væri „ekki ætlað að rannsaka hið yf-
irnáttúrulega“.
Rannsóknin kostaði 2,4 milljónir
dollara, sem samsvarar um 170
milljónum króna. Sérfræðingar
sögðu þetta viðamestu rannsókn til
þessa á áhrifum fyrirbæna á sjúk-
linga.
Vísindamennirnir sem rannsök-
uðu mátt bænarinnar lögðu áherslu
á að rannsóknin svaraði því ekki
hvort Guð væri til eða svaraði fyr-
irbænum.
Rannsóknin náði til 1.800 sjúk-
linga á sex sjúkrahúsum í Banda-
ríkjunum. Templeton-stofnunin,
sem hefur styrkt ýmsar vísinda-
rannsóknir sem tengjast trúar-
brögðum, fjármagnaði rannsóknina
ásamt einu sjúkrahúsanna. Nið-
urstöðurnar verða birtar í næsta
tölublaði tímaritsins American
Heart Journal sem kemur út á
þriðjudag.
Fyrirbænir
höfðu ekki
áhrif á
sjúklingana
Prag. AFP. | Þúsundir manna urðu að flýja
heimili sín í Mið-Evrópu um helgina vegna
vatnavaxta, flestir þeirra í norður- og suðaust-
urhluta Tékklands.
Áin Morava flæddi yfir úthverfi tékknesku
borgarinnar Olomouc eftir að flóðgarðar
brustu í gær. Alls var um 4.500 manns sagt að
fara frá heimilum sínum í borginni vegna flóð-
anna.
Þá þurftu íbúar bæjarins Hrensko í norð-
anverðu Tékklandi að flýja heimili sín vegna
mikilla vatnavaxta í Saxelfi. Búist var við að
flóðið næði hámarki í gær. Yfirborð árinnar var
þá um fjórum sinnum hærra en venjulega.
Mikill öryggisviðbúnaður var einnig í borg-
inni Melnik í miðju landsins þar sem búist var
við að yfirborð Saxelfar héldi áfram að hækka.
Hugsanlega verða um 2.000 borgarbúar fluttir
á brott.
Í höfuðborginni Prag höfðu flóð ekki valdið
usla en varnargarðar hafa verið reistir þar á
bökkum Moldár.
Mikil flóð urðu í ágúst 2002 í Saxelfi þar sem
áin rennur gegnum Tékkland. Að minnsta
kosti sextán manns létu lífið og mikið af gróð-
urlendi og mannvirkjum eyðilagðist.
Borgarstjóri Búdapest, höfuðborgar Ung-
verjalands, hvatti stjórn landsins til að lýsa yfir
neyðarástandi í þeim hluta borgarinnar sem er
í mestri hættu vegna vatnavaxta í Dóná.
Reuters
Íbúi þýska bæjarins Meissen, nálægt borginni Dresden, fylgist með flóði í Saxelfi í miðbænum.
Þúsundir manna flýja
heimili sín í Mið-Evrópu