Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 25
MINNINGAR
✝ Knútur KristjánGunnarsson
fæddist í Neskaup-
stað 11. nóvember
1930. Hann lést í
Lundi í Svíþjóð 17.
júní 2005. Foreldrar
hans voru hjónin
Gunnar Sæmunds-
son klæðskeri, f. 5.
júlí 1901, d. 10. okt.
1971, og Rósa Krist-
jánsdóttir húsmóð-
ir, f. 23. mars 1904,
d. 13. febrúar 1983.
Þau áttu lengst af
heima í Reykjavík en Rósa bjó síð-
ustu æviár sín á Akranesi.
Systkini Knúts eru Ragnar bú-
settur á Akranesi og Erna búsett í
Kópavogi.
Knútur kvæntist
31. desember 1952
Kristínu Marinós-
dóttur, f. 7. maí
1934. Knútur og
Kristín eignuðust
níu börn. Þau eru: 1)
Elsa, f. 1953, d.
1954, 2) Ragnar
Már, f. 1955, 3)
Gunnar Örn, f. 1956,
4) Elsa Björk, f.
1958, 5) Rósa, f.
1959, 6) Sigríður, f.
1960, 7) Kristín
Ólöf, f. 1963, 8)
Knútur Kristján, f. 1963, og 9)
Marinó, f. 1966.
Útför Knúts verður gerð frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Fyrsta minning mín um Knút var
í Neskaupstað þar sem foreldrar
okkar höfðu heimili og ráku sauma-
stofu í húsi Jóns Sveinssonar út-
gerðarmanns sem hét í Bár.
Það var haust og var ég dúðaður
og látinn út, ég vappaði í kringum
húsið og baka til voru hænur sem ég
hafði afskaplega gaman af að horfa
á og svo kom hann í barnavagni og
var látinn sofa sunnan við húsið og
ég átti að fylgjast með honum og
gera viðvart þegar hann vaknaði, þá
komu þær hlaupandi út mamma eða
Rúna frænka. 1932 yfirgáfum við
þennan indæla stað Neskaupstað í
Norðfirði, til Reykjavíkur var ferð-
inni heitið og bjuggum við á Lauga-
vegi 83 og þar man ég eftir uppi-
standi þegar Knútur, tveggja ára,
hvarf út í buskann, seinna um dag-
inn fannst hann niðri á Lækjartorgi
þar sem sendisveinn hjá Silla og
Valda þekkti drenginn og lét vita.
1933 seinnipart sumars flytjum við í
Stykkishólm þar sem faðir okkar
rak saumastofu Kaupfélagsins í
Stykkishólmi. Í Stykkishólmi áttum
við margar góðar stundir í stórum
hóp skyldmenna og vina. Í afmæl-
unum hjá Braga vini okkar var mik-
ið sungið og séra Sigurður Ó. Lár-
usson kenndi okkur að syngja
raddað og frú Ingigerður, hún hafði
svo gaman af því að fá Knút til að
syngja einan, hann hafði mjög
skæra sópranrödd sem hún hafði
mikið dálæti á og ég og Bragi urð-
um mjög afbrýðisamir því Ingigerð-
ur sagði orðrétt „hann er svo lítill
og sætur og verið þið góðir við
hann“. En þegar við Bragi hermd-
um eftir Ingigerði þá varð Knútur
svo fjúkandi vondur að við Bragi
urðum að taka til fótanna og forða
okkur.
Í Valgrímshúsi þar sem við áttum
heima var lítið hesthús og sunnan
við hesthúsið voru tveir hænsnakof-
ar með stuttu millibili, í kofanum
sem var nær var nýr hænsnastofn,
svokallaðir hvítir ítalir, og var það
okkar hlutverk að gæta þeirra, han-
inn okkar var rígmontinn, háfættur
og reigði sig allan til og frá en í kof-
anum sem var fjær voru Möngu-
bæjar-hænsnin og voru þær af öðru
kyni og haninn þar var afar skraut-
legur og þéttvaxinn og með allt
öðruvísi kamb. Fyrsta embættis-
verk okkar Knúts var að fylgjast
með hönunum og þegar þeir lentu í
slagsmálum þá reyndum við að
skvetta á þá vatni til að stöðva
slagsmálin, annað embættisverk
sem fylgdi þessum hænsnum var að
fara vor og haust út í Landey að
sækja skeljasand, við lærðum
snemma á sjávarföllin því Landeyj-
arsundið var okkar aðal-leikvöllur,
þar voru fjörupollar af öllum stærð-
um og á hverri fjöru fullir af sjáv-
arlífi, seiðum, marflóm og allskonar
kvikindum en í skeljasandsferðum
var Sigvaldi Pétursson frá Ökrum
alltaf með okkur. Í Landeyjarsundi
byrjaði karl faðir okkar að veiða
grásleppu og rauðmaga og vorum
við stundum notaðir sem ræðarar í
þessum sjóferðum og lögðum við
netin úti við Skiphólma, þar lærðum
við að skera okkur kræklingsklasa.
Á hverju sumri var farið á Hraun-
flatir við Selvallavatn og veiddur sil-
ungur og þá fékk Knútur veiðibakt-
eríuna sem fylgdi honum alla ævi.
Þessum sælustundum lauk snögg-
lega og fluttum við suður til Reykja-
víkur. Vorið 1942 var búist við því
að þýski herinn myndi ráðast á
Reykjavík og voru því börn og allir
sem ekki áttu brýnt erindi fluttir
frá Reykjavík og fórum við því til
Vopnafjarðar þar sem við dvöldum í
góðu yfirlæti skyldmenna móður
okkar. Um haustið þegar við kom-
um að austan fluttum við í sum-
arbústað við Elliðaár og áttum við
þar góðar stundir og veiddum við
Knútur þar silung. Haustið eftir
fluttum við að Sunnuhvoli við Há-
teigsveg og þaðan að Háteigsvegi
28 þar sem skyldmenni okkar að
vestan voru nýbúin að byggja. Þeg-
ar Knútur hafði aldur til fór hann í
iðnnám og lærði húsgagnabólstrun
hjá Ásgrími P. Lúðvíkssyni sem
reyndist honum bæði vinur og fé-
lagi, vann hann hjá Ásgrími þangað
hann flutti á Akranes þar sem hann
tók við rekstri Bólstrunar Guðrún-
ar. Á Akranesi fékk hann útrás fyrir
dugnað sinn og áræði, stofnaði eigið
fyrirtæki og rak húsgagnaverslun
og bólstrun, byggði 2 hús, jafnframt
því sem börnunum fjölgaði jafnt og
stöðugt þar til þau urðu alls átta
talsins. Kristín Marinósdóttir eig-
inkona hans stóð eins og bjarg við
hlið hans í blíðu og stríðu. Á þessum
árum byggði Knútur veiðihús við
Vesturhópsvatn og þar dvöldu þau
hjónin öll sumur við veiðiskap og
þangað var gaman að koma.
Við Knútur vorum samrýndir frá
fyrsta degi og til lokadægurs, þar
bar aldrei neinn skugga á. Ég er
þakklátur fyrir að hafa átt slíkan
bróður og vin og verið samvistum
við í 75 ár. Það var mikil gæfa og
fyrir það ber að þakka.
Ragnar Gunnarsson.
KNÚTUR KRISTJÁN
GUNNARSSON
var Svavar Eiríksson. Á samri
stundu urðum við perluvinir.
Þarna varð til vinahópur sem átti
sitt fasta borð niðri á Mat og kaffi á
daginn og í Alþýðuhúsinu um helg-
ar. Námsástundun var ekki aðall
okkar, en lífsgátan var leyst hvenær
sem hana bar á góma. Svavar hafði
einstaka gleðiríka útgeislun. Glað-
værð hans og brosmildi hreif. Þótt
við sem þyngri vorum í skapi kæm-
um guggnir og niðurdregnir til leiks
tók það hann aðeins örskamma
stund að fá okkur til að hlæja og
gleðjast. Hann gat verið kerskinn en
hann stríddi sjaldan á annarra
kostnað. Trauðla fannst betri félagi
þegar á reyndi. Ævinlega var Svav-
ar innsti koppur í búri.
Einu sinni bað hann mig að gera
sér greiða. Ég átti að líta eftir vin-
konu hans í jólafríi. Þetta sýndi hví-
lík fádæma flón við vorum þegar
konur voru annars vegar. Auðvitað
fór það allt í handaskolum.
Eftir að menntaskólaárunum lauk
fórum við hvor í sína áttina. Sam-
skiptin urðu stopul en vináttan og
hlýjan breyttist ekki.
Síðast hittumst við á hlaðinu í
Reykholti liðið sumar, þá kom bekk-
urinn saman. Við heilsuðumst og
kvöddumst af miklum innileik og ég
lofaði honum því að láta loksins
verða af því að heimsækja hann
næsta sumar. Sú heimsókn verður
nú með öðrum hætti en ég hafði ætl-
að.
Ég þakka Svavari vináttu og
ógleymanleg, gleðirík ár fyrir norð-
an, sem hann átti stóran hlut í að
móta.
Við Þórunn sendum Birnu, börn-
um þeirra sem og öðrum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur.
Þröstur Ólafsson.
Svavar Eiríksson vinur okkar er
látinn eftir hetjulega baráttu við ill-
vígan sjúkdóm.
Hann lést á heimili sínu í faðmi
fjölskyldunnar 24. mars síðastliðinn.
Sorg og söknuður fylla hug okkar.
Enn eitt skarð höggvið í hóp skóla-
syskina sem útskrifuðust frá MA
1960.
Á skólaárunum hófst sú vinátta
sem æ síðan hefur eflst og dafnað
milli fjölskyldna okkar.
Svo segir í Hávamálum:
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Við minnumst Svavars sem ein-
staks vinar um hálfrar aldar skeið,
sem kunni þá list að rækta vinátt-
una. Hann lét sér annt um vini sína,
fylgdist með þeim og gaf sér ávallt
tíma til að blanda geði við þá. Hann
var blessunarlega laus við það tíma-
leysi sem hrjáir margan manninn í
dag.
Minningarnar hrannast upp og
margs er að minnast og margt ber
að þakka.
Svavar var góðum gáfum gæddur,
víðlesinn og margfróður og kunni
skil á ótrúlegustu hlutum enda fátt
óviðkomandi.
Ættfræðin var eitt af áhugamál-
um hans.
Hann naut sín vel í góðra vina
hópi, ljúfur og skemmtilegur.
Minnumst við margra ógleyman-
legra samverustunda.
Oft var glatt á hjalla í eldhús-
króknum þegar fjölskyldurnar lögðu
sig fram við að leysa lífsgátuna
hvort heldur var í Stóragerði eða
Beykilundi.
Í einkalífinu með Birnu Sigur-
björnsdóttur sér við hlið var Svavar
lánsamur maður.
Börn þeirra fjögur hafa öll stofn-
að eigin fjölskyldur sem nú eiga um
sárt að binda.
Börn og barnabörn voru Svavari
afar kær og bar hann mikla um-
hyggju fyrir velferð þeirra.
Að leiðarlokum þökkum við og
fjölskyldur okkar Svavari vináttu og
tryggð öll þessi ár.
Hvíl í friði kæri vinur. Blessuð sé
minning hans.
Við vottum elsku Birnu og allri
fjölskyldunni okkar dýpstu samúð.
Guðmundur og María.
Elsku Ingvi afi.
Komið er að
kveðjustund. Við
kveðjum þig með
þakklæti fyrir allar
góðu minningarnar sem þú skilur
eftir þig, minningar sem munu lifa
með okkur alla ævi. Þrátt fyrir að
hafa vitað að hverju stefndi í veik-
indum þínum vorum við alls ekki
undirbúin þegar kallið kom. En í
dag huggum við okkur við að hugsa
um það hversu vel hún Fía amma
okkar tekur á móti þér, nú ert þú
kominn aftur í hennar faðm elsku
afi.
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)
Með þessum orðum minnumst við
þín.
Hvíl þú í friði elsku afi.
Sveinn, Soffía og Hildur.
Okkur langar með örfáum orðum
að minnast þín, elsku Ingvi afi, nú
þegar þú hefur sofnað í hinsta sinn.
Um þessar mundir, þegar hug-
urinn reikar til baka, spretta fram
góðar minningar sem allar eiga það
sameiginlegt að endurspegla það
hversu lánsöm við vorum að fá að
INGVI ELÍAS
VALDIMARSSON
✝ Ingvi ElíasValdimarsson
fæddist í Reykjavík
18. júlí 1921. Hann
lést á Landakots-
spítala 20. mars síð-
astliðinn og var út-
för hans gerð frá
Háteigskirkju 29.
mars.
eiga þig að elsku afi.
Betri afa var varla
hægt að hugsa sér, þú
sem alltaf varst svo
umhyggjusamur og
hlúðir vel að öllu og
öllum í kringum þig.
Ingvi afi, þú varst
mikill listamaður og
náttúruunnandi af
Guðs náð.
Strax sem börn
minnumst við þess
hversu ljúft það var
að leika í garðinum
hjá þér, þar sem í
minningunni virðist allaf hafa verið
sólskin og hlýja, og fylgjast með
hvernig þú ræktaðir upp heilu
meistaraverkin í formi litskrúðugra
blómabeða, trjárunna og matjurta-
garða. Þér var mikið í mun að upp-
fræða okkur börnin um hollustuna
sem í grænkálinu þínu og gulrót-
unum úr garðinum var falin, „allt er
vænt sem vel er grænt“ má segja að
þú hafir snemma gert að einkunn-
arorðum þínum. Þú varst hæfileika-
ríkur maður á fleiri sviðum og varst
iðinn við að smíða hitt og þetta í bíl-
skúrnum þegar færi gafst. Það var
okkur snemma ljóst að þarna væri
meistari að verki. Minnist ég þess,
Ása Björk, elst minna systkina,
þegar ég var fimm ára, einu sinni
sem oftar að heimsækja þig afi, í
skúrinn og þú lagðir fyrir mig gát-
una: „Hver er sá veggur víður og
hár, veglega skreyttur röndum,
gulur, rauður, grænn og blár, gerð-
ur af meistarahöndum?“ Fannst
mér engu líkara en þarna hlytir þú
að vera vísa til einhverra þinna
verka svo mikið álit hafði ég þá þeg-
ar á handbragði þínu, þú hafðir
nefnilega sannkallaðar meistara-
hendur. Núna síðustu árin kynnt-
umst við enn einni hlið manngæsku
þinnar þegar þú hjúkraðir ömmu
Fíu af mikilli alúð og hlýju í veik-
indum hennar og þar til leiðir ykkar
skildi við fráfall hennar sumarið
2004.
Elsku Ingvi afi, nú hafið þið fund-
ið hvort annað á ný og við biðjum
góðan Guð að vaka yfir ykkur um
alla eilífð.
Hafðu þakkir fyrir allt, elsku
Ingvi afi.
Þín barnabörn,
Ása Björk, Egill,
Jón Heiðar og Óskar.
Í dag kveð ég hinstu kveðju
Ingva Elías Valdimarsson, afa minn
og nafna. Ótal minningar koma upp
í hugann en afa minnist ég fyrst og
fremst fyrir yfirvegað fas, góð-
mennsku og þá unun sem hann
hafði af náttúru landsins. Eitt sinn
gáfu þau amma og afi mér heilræði
en það hljóðaði svo: „Láttu sólina
aldrei setjast á reiði þína Ingvi
minn.“ Þarna voru þau að ráðleggja
litlum dreng inn í framtíðina. Þetta
er nokkuð sem ég gleymi seint, orð-
in lýsa hugarfari þeirra og viðhorfi
til lífsins.
Afa minn kveð ég með þessum
orðum og hlýja mér við minningar
um góðan mann.
Hver fögur dyggð í fari manns
er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vægð og góðvild hver
og friðsemd hrein og hógvært geð
og hjartaprýði stilling með.
(Helgi Hálfdánarson.)
Hvíl í friði.
Ingvi Arnar Sigurjónsson.
Í dag er til moldar borinn fyrr-
verandi tengdafaðir minn Ingvi
Elías Valdimarsson og vil ég þakka
honum samfylgdina með þessu
ljóði.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höfundur ók.)
Guð geymi þig.
Valgerður Vilbergsdóttir.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Ef útför hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar