Morgunblaðið - 03.04.2006, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 31
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
40 síðna blaðauki
um vinnuvélar fylgir
Morgunblaðinu á
morgun
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar heldur ámiðvikudag málþing um þátttöku fólksí þeirri þjónustu sem í boði er í mið-stöðinni. Óskar Dýrmundur Ólafsson
er framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvarinnar:
„Við höldum málþingið til að kalla fram um-
ræðu um þjónustuna, sem Þjónustumiðstöð
Vesturbæjar ætlar að setja í félagslegt sam-
hengi: þ.e. að viðskiptavinum okkar er boðið
upp á að verða virkari þátttakendur í þjónust-
unni, og er það í samræmi við stefnumörkun
borgarinnar á þessu sviði. Einnig viljum við
grípa til aðgerða gegn félagslegri einangrun,
sem við höfum orðið vör við að er að aukast í
þjóðfélaginu, efna til vitundarvakningar og
kalla á umræðu þar sem þjónustu borgarinnar
sleppir. Þetta þýðir að við þurfum að skilgreina
enn betur hvað við stöndum fyrir, og hverju
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar er í raun að óska
eftir í samstarfi sínu við íbúa Vesturbæjarins.“
Jafnframt er málþingið lokapunktur í átaki
miðstöðvarinnar „Fyrir hvert annað“ sem stað-
ið hefur yfir undanfarinn mánuð: „Við kynntum
átakið með blaðamannafundi þar sem við fjöll-
uðum um ýmislegt sem hefur verið unnið og er
á döfinni hjá þjónustumiðstöðinni. Átakið hefur
ýmsa snertifleti; augljóslega vörpum við fram
ósk um samvinnu við íbúana, en erum líka að
skoða okkar eigin vinnubrögð, ræðum við sam-
starfsaðila okkar og finnum leiðir til að sinna
viðskiptavinum þjónustumiðstöðvarinnar enn
betur.“
Margt góðra ræðumanna verður á mál-
þinginu: „Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
og formaður velferðarráðs, opnar málþingið.
Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur
og blaðamaður, mun ræða almennt um þá þró-
un sem er í gangi í borginni, og hlutverk borg-
arbúa í þjónustusamfélaginu, hvernig virkja má
afl samfélagsins enn frekar. Berglind Magn-
úsdóttir öldrunarsálfræðingur ræðir sér-
staklega þær breytingar sem orðið hafa í um-
hverfi aldraðra, sem gera aðrar kröfur nú en
áður og vilja margir taka meiri þátt í samfélag-
inu en verið hefur. Loks mun Sigurveig Sigurð-
ardóttir félagsráðgjafi ræða um viðhorf til þjón-
ustunnar, og kynnir niðurstöður könnunar sem
gerð var.“
Eftir hlé er umræðan frá sjónarhóli notenda
þjónustunnar: „Erla Bjarnadóttir, sem fer fyrir
notendaráði Aflagranda, vinnur við ýmis verk-
efni á vegum miðstöðvarinnar, og greinir frá
þeim. Þá mun Freyja Haraldsdóttir flytja er-
indið „Tveggja heima sýn“ en hún er í þeirri
stöðu að vera bæði fötluð og starfsmaður á leik-
skóla, og þekkir því bæði sjónarhorn þess sem
veitir þjónustuna og þiggur hana,“ segir Óskar
sem sjálfur mun verða með innlegg og meðal
annars fjalla um ábendingar sem komið hafa úr
rýnihópum sem hafa verið starfandi.
Í lok erinda verða pallborðsumræður, og
munu þar taka þátt, auk ræðumanna, Þór Hall-
dórsson frá Félagi eldri borgara og Sigursteinn
Másson frá Öryrkjabandalaginu.
Málþingið fer fram á Aflagranda 40, 5. apríl,
og hefst kl. 13. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Málþing | Rætt um stefnu og framtíðarstarfsemi Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar
Óskar Dýrmundur
Ólafsson fæddist í
Reykjavík 1966. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti 1987, BA í
sagnfræði frá Háskóla
Íslands 1993 og fram-
haldsmenntun í op-
inberri stjórnsýslu
2002 hjá Endur-
menntun HÍ. Óskar hóf
störf hjá Reykjavíkurborg 1990 sem borðs-
tennisþjálfari. Hann vann við ungmennastarf í
félagsmiðstöðinni Frostaskjóli og starfrækti
verslunina Týnda hlekkinn. Árið 1997 varð
hann frístundaráðgjafi og síðar forstöðumað-
ur hjá félagsmiðstöðinni Miðbergi, og frá
2005 framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar
Vesturbæjar. Sambýliskona Óskars er Hervör
Alma Árnadóttir félagsráðgjafi og eiga þau
þrjú börn.
Virkari þátttaka og minni einangrunÍslandsmótið.
Norður
♠ÁK83
♥1062 S/NS
♦D952
♣98
Vestur Austur
♠DG92 ♠1074
♥84 ♥95
♦G104 ♦Á87
♣KD76 ♣Á10432
Suður
♠65
♥ÁKDG73
♦K63
♣G5
Furðu margir unnu fjögur hjörtu
í þessu spili frá fyrstu umferð Ís-
landsmótsins.
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
AV eiga greinilega tvo slagi á
lauf og ættu síðan að fá aðra tvo á
tígul í fyllingu tímans. Hvað fór
úrskeiðis í vörninni?
Sumir völdu að spila út tíg-
ulgosa með slæmum árangri. En
útspil í spaða er heldur ekki
hættulaust ef sagnhafi er í stuði.
Sér lesandinn vinningsvon eftir
spaðadrottningu út?
Hún er til og byggist á því að
trompa út spaðann og senda vörn-
ina inn á lauf. En þá verður að
taka strax tvo efstu í spaða og
stinga spaða hátt. Aftrompa vörn-
ina í tveimur umferðum og
trompa síðasta spaðann. Spila
loks laufi.
Vörnin getur tekið tvo slagi á
lauf, en neyðist svo til að hreyfa
tígulinn. Og þá reynir á hittni
sagnhafa. Sennilega er besta
vörnin sú að vestur taki síðari
laufslaginn og skipti yfir í tíg-
ultíu, en ef sagnhafi er á skot-
skónum getur hann unnið spilið.
Eina vörnin sem virkilega dug-
ar er að taka fyrst tvo slagi á lauf
og spila síðan spaða eða trompi.
Þá verður sagnhafi sjálfur að
verka tígulinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 b6 4. Bd3 c5
5. 0–0 Ba6 6. c4 cxd4 7. exd4 Be7 8.
d5 0–0 9. Rc3 Dc7 10. De2 Hc8 11. b3
Bb4 12. Re4 Rxe4 13. Dxe4 f5 14.
Dh4 Bc3 15. Bf4 Dd8 16. Bg5 Bf6 17.
dxe6 dxe6 18. Had1 Df8 19. Hfe1 He8
Róbert Harðarson (2.369) komst
næstlengst íslensku keppendanna á
Glitnismótinu, hraðskákmóti sem
haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur til
minningar um hæstaréttarlögmanninn
Harald Blöndal. Í 32 manna úrslitum
voru 10 íslenskir skákmenn enn á
meðal þátttakenda en þegar þeim
fækkaði um helming voru eingöngu
Róbert og Hannes Hlífar Stefánsson
eftir. Róbert datt út í 16 manna úr-
slitum á meðan Hannesi gekk allt í
haginn þar til að hann laut í lægra
haldi gegn norska undrabarninu
Magnus Carlsen í úrslitaeinvíginu.
Róberti voru mislagðar hendur á
opna alþjóðlega Reykjavíkurmótinu
sem lauk degi áður en Glitnismótið
hófst en í þessari stöðu með hvítu
sýndi hann á sér klærnar gegn Sverri
Erni Björnssyni (2.108). 20. Hxe6!
Hxe6 21. Bxf5 Bc8 22. Dxh7+ Kf7
23. Bxf6 Hxf6 24. Rg5+ Ke7 25.
Bxc8 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Ég spyr því: Hvenær verða beðin
hreinsuð? Korteri fyrir kosningar?
Svar óskast.
Í ljósi þess að yfirvöld í borginni
virðast hafa afskaplega lítinn áhuga
á hreinsunarstarfi er svolítið hlálegt
að sjá auglýsingar frá Reykjavík-
urborg sem ætlað er að hvetja borg-
arbúa til að ganga vel um borgina.
Ekki er þó vanþörf á slíkri áminn-
ingu. En vita borgaryfirvöld ekki að
eftir því sem umhverfið er snyrti-
legra, því betri verður umgengnin?
Ég legg til að borgin spari sér eina
auglýsingu en noti peninginn frekar
til þess að hreinsa draslið við göngu-
stíginn. Hraustur borgarstarfs-
maður myndi ljúka verkinu á hálfum
degi.
Rúnar Pálmason,
íbúi á Leifsgötu.
Enn er draslið á sínum stað
16. MARS birtist í Morgunblaðinu
lesendabréf frá Magnúsi Loga þar
sem hann kvartaði undan drasli við
göngustíginn sem liggur frá Hall-
grímskirkju niður að Barónsstíg en
beðin hafa verið yfirfull af drasli í all-
an vetur.
Um einum mánuði áður hafði ég
raunar sent borginni skriflega ábend-
ingu um sama efni og ég var eiginlega
að vona að einhver í borgarkerfinu
myndi reka augun í lesendabréfið og
taka loks við sér. En það var öðru
nær. Ekkert hefur verið gert og því
er draslið enn á sínum stað.
Bíllyklar í óskilum
BÍLLYKLAR merktir Helga fund-
ust á bílastæði við Rauðarárstíg fyr-
ir framan Hótel Lind í vikunni. Upp-
lýsingar í afgreiðslunni á Hótel
Lind.
Lyklakippa týndist á
Laugavegi
LYKLAKIPPA með 4 lyklum týnd-
ist sl. fimmtudag á Laugaveginum.
Skilvís finnandi skili kippunni til
Karls Bergmanns á Laugavegi 55.
Fundarlaun.
Suðið æft út
NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu
smágein undir nafninu „Suðið æft
út“ og var vísað í tækni, sem manni
skilst að sé ný af nálinni.
Sú er nú ekki raunin því að fyrir
tæpum 30 árum fann maður að nafni
Jack Vernon í Bandaríkjunum þessa
tækni upp og fékk ég svona tæki fyr-
ir 26 árum og notaði þetta í 5 ár, eða
svo lengi sem tækin entust.
Þetta æfir ekki út suðið, sem svo er
kallað, þó að um margar tóntegundir
sé að ræða. Þetta breytir aðeins at-
hyglinni svo að maður hlustar ekki
bara á sinn eigin hávaða, heldur
hlustar maður einnig á hávaðann,
sem tækið gefur frá sér.
Þetta tæki hefur hlotið nafnið
Masker, eða gríma og á einkar vel við
í bardaganum við Tinnitus, en það er
samnefnari yfir allan hávaða í eyrum.
Ég mundi mæla með að Heyrn-
artækni eða aðrir sérfræðingar
fengju afnot af þessari tækni, sem
hvílir hugann og veitir svo sann-
arlega ekki af. Jakob Hólm.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is