Morgunblaðið - 03.04.2006, Side 36
SÝNING á verki Joseph Kosuths Auðþekkjanleg ólíkindi var opnuð á Kjarvals-
stöðum í gærdag en það er sérstaklega ofið, risastórt teppi sem þekur allan vest-
ursal safnsins og býður áhorfandanum að ganga um hugarheim H.C. Andersens
en ganga má á teppinu. Ævintýrið um nýju fötin keisarans er ofið í teppið auk
þess sem Kosuth notar tilvitnanir frá samtímamanni Andersens og helsta gagn-
rýnanda hans, Søren Kierkegaard, til að brúa hugmyndaheim þeirra tveggja.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjöldi fólks mætti á Kjarvalsstaði til að berja augum sérstætt
risateppi með ævintýrinu um Nýju föt keisarans.
Listamaðurinn Joseph Kosuth skýrir
hér verk sitt fyrir Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands.
Sýning á Kjarvalsstöðum
36 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
F R U M S Ý N I N G StærSta kvikmyndahúS landSinS
FRELSI AÐ EILÍFU !
Basic Instinct 2 kl. 5:40 - 8 og 10:20 B.i. 16 ára
V for Vendetta kl. 5:20 - 8 og 10:40 B.i. 16 ára
The Matador kl. 6 - 8 og 10 B.i. 16 ára
The World´s Fastest Indian kl. 5:30
Syriana kl. 8 og 10:30 B.i. 16 ára
Blóðbönd kl. 6 og 8
The New World kl. 10 B.i. 12 ára
eee
- VJV topp5.is
eee
- SV mbl
eeee
- S.K. - DV
eeee
- S.U.S. - XFM 91,9
eeeee
- V.J.V. - TOPP5.IS
eeee
- KVIKMYNDIR.IS eeee- A.B. Blaðið
Allt
áhugavert,
hefst í
huganum
Allt áhugavert,
hefst í huganum
Framhaldsmyndin sem allir hafa beðið
spenntir eftir, er komin.
Sjáið Sharon Stone í banastuði eins
og hún var í fyrri myndinni.
Framhaldsmyndin sem
allir hafa beðið spenntir
eftir, er komin.
Sjáið Sharon Stone í banastuði
eins og hún var í fyrri myndinni.
FRUMSÝND SAMTÍMIS UM ALLAN HEIM
Ó G N A R E Ð L I
FRUMSÝND SAMTÍMIS UM ALLAN HEIM
Ó G N A R E Ð L I
F R U M S Ý N I N G
Hagatorgi • S. 530 1919
www.haskolabio.is
eeeee
Dóri Dna / Dv
Frá höfundi „Traffc“
BORGARÍSJAKAR eru tilkomumikil sjón en
kuldaleg, sama má segja um Sharon Stone. Hún
er stæðileg sem fyrr, aldurinn og lýtalæknar
hafa farið mildum höndum um konuna, en af
henni stafar jökulkulda. Hann er aðeins einn
mýmargra brotalama Ógnareðlis 2, framhalds-
myndarinnar sem tekið hefur á annan áratug að
koma á koppinn. Óþægileg nærvera leikkon-
unnar bætir ekki upp vel þekktan hæfi-
leikaskortinn. Tálkvendið og metsöluhöfund-
urinn Catherine Tramell á vissulega ekki að
vera umvafin hlýju og notalegheitum en Stone
fer langt yfir strikið.
Sögusviðið er að þessu sinni köld og fráhrind-
andi Lundúnaborg, í stað gömlu góðu kennileit-
anna sem gera hana að einni glæsilegustu
heimsborginni, dvelur kvikmyndagerðarfólkið
við nýtískulegri borgarhluta og byggingar; stál
og gler og kaldir litatónar þjóna vel smekklausri
sögunni.
Í upphafsatriðinu kemst Tramell enn og aftur
í kast við lögin er hún verður mannsbani. Er að
fróa sér undir stýri á hartnær tvö hundruð kíló-
metra hraða. Slík athöfn hlýtur að enda með
lúðrablæstri og söng: Á augnabliki fullnægj-
unnar tekst Tramell á loft, í bókstaflegri merk-
ingu, og endar á árbotni Thames. Sportbíllinn
virðist búinn undir slíkar flugferðir því ekki sést
skráma á skáldkonunni en ferðafélagi hennar er
ekki jafnheppinn og Tramell er ákærð fyrir
morð, við réttarhöldin er m.a. leitað álitsgerðar
sálfræðingsins Glass (Morrissey), sem verður
næsti leiksoppur skáldkonunnar og jafn-
ástæðulaust að rekja framhaldið nánar og að
gera sér ferð til að sjá það í bíó.
Það má mikið vera ef Ógnareðli 2 kemst ekki
á blöð sögunnar sem ein versta mynd allra tíma,
það eitt er afsakanlegt tilefni til að berja hana
augum. Áður hefur verið minnst á frammistöðu
Stone, mótleikari hennar, David Morrissey, er
ekki hótinu skárri og getur nagað á sér negl-
urnar að hafa tekið hörmulega illa skrifað hlut-
verk sálfræðingsins sem fús og glaður lætur
Tramell táldraga sig uns hann situr pikkfastur í
netinu. Morrissey er sjálfsagt ekki vondur leik-
ari, hann geldur, líkt og Rampling og Thewlis,
fyrir afspyrnu vont handrit og nöturlega leik-
stjórn. Það er eitt af furðum leiklistarsögunnar
hvernig hin hæfileikaríka Rampling hefur
drabbast niður á tjaldinu og Thewlis virðist vera
að leika Graham Sounnes á hliðarlínunni.
Að öllu samanlögðu, engin ástæða að fagna
öðru en endinum.
Ó, ó, óeðli í London
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Leikstjóri: Michael Caton-Jones. Aðalleikarar: Shar-
on Stone, David Morrissey, Charlotte Rampling,
David Thewlis. 115 mín. Þýskaland/Spánn/
England. 2006.
Ógnareðli 2 (Basic Instinct) 2 „Það má mikið vera ef Ógnareðli 2 kemst
ekki á blöð sögunnar sem ein versta mynd
allra tíma, það eitt er afsakanlegt tilefni til
að berja hana augum,“ segir m.a. í dómnum.
Sæbjörn Valdimarsson
TEKIÐ er að hausta á Suð-
urskautslandinu þegar
Jerry (Walker), leið-
sögumaður á lítilli rann-
sóknarstöð, fær það verk-
efni að fara með
vísindamanninn Davis
(Greenwood), nokkrar dag-
leiðir út á auðnina. Tilefnið
að hafa uppi á nýföllnum
loftsteini og ferðast þeir fé-
lagar á sleða, dregnum af
átta stórum og stæltum
sleðahundum. Jerry er jafn-
framt þjálfari þeirra, um-
sjónarmaður og vinur.
Tvímenningarnir hafa
ekki fyrr haft uppi á stein-
inum en boð berast frá stöð-
inni að þeir snúi sem skjót-
ast til baka, ofviðri er í
uppsiglingu. Þeim tekst að
ná til bækistöðvanna í tæka
tíð og samstundis er rokið í
loftið en ekkert pláss er fyr-
ir hundahjörðina og verða
þeir strandaglópar.
Þegar heim til Bandaríkj-
anna er komið getur Jerry
ekki á heilum sér tekið,
finnst hann hafa brugðist
vinum sínum illilega og ger-
ir margar en árangurs-
lausar tilraunir til að hrinda
af stað björgunarleiðangri
eftir þeim. Það tekst ekki
fyrr en að hálfu ári liðnu.
Að einhverju leyti styðst
myndin við atburði sem áttu
sér stað um miðja síðustu
öld í búðum japanskra Suð-
urpólfara. Það skiptir ekki
máli að öðru leyti en því að
þeir sanna hve sleðahundar
eru sterk og vitur dýr og vel
búin til að takast á við ótrú-
legar þolraunir.
Eight Below er tekin í
ægifögru vetrarríki, að vísu
á norðurhveli jarðar, en það
truflar engan (nema þá helst
mörgæsaaðdáendur). Á hinn
bóginn eru stúdíótökur og
brellur ekki jafn trúverð-
ugar og svipaða sögu er að
segja um leikarana sem fá
einkum vondar línur og
standast ekki samanburðinn
við notalega frammistöðu
ferfætlingana sem eignast í
manni hvert bein.
Þegar Disney er í fjöl-
skyldustellingum er við hæfi
að gefa heilasellunum frí,
landfræðilegar staðreyndir,
veðurfræði og aðrir slíkir
smámunir eru algjört auka-
atriði í þeim ævintýraheimi.
Engan skal undra þó það sé
sumar og sól á Suðurpólnum
þegar þar ríkir, samkvæmt
hnattstöðu, bleksvört vetr-
arnóttin,. Til hvers að ergja
sig yfir því og ýmsum öðr-
um smámunum? Eight Be-
low er hönnuð fyrir fjöl-
skylduna, ekki síst yngstu
meðlimina og er bless-
unarlega laus við allt sem
heitir ofbeldi, sem gerist
harla fátítt, jafnvel í fjöl-
skyldumyndum. Á hinn bóg-
inn útskýrir hún, á sinn ein-
falda hátt, þau sterku og
bætandi bönd sem myndast
á milli mannsins og besta
vinar hans.
Rakkar í raunum
KIVKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Frank Marshall. Aðal-
leikarar: Paul Walker, Bruce
Greenwood, Jason Biggs, Moon
Bloodgood, August Schellen-
berger. 120 mín. Bandaríkin
2006.
Eight Below
Sæbjörn Valdimarsson