Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 03.04.2006, Síða 40
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. ÞRÍR menn hafa verið yfir- heyrðir vegna mannránsins í Garði fyrir rúmri viku. Yfir- heyrslurnar fóru fram hjá lög- reglunni í Keflavík á föstudag en ekki liggur fyrir hvort mennirnir voru yfirheyrðir sem grunaðir í málinu. Ekki hefur verið krafist gæsluvarðhalds. Bíllinn sem mannræningjarnir voru á er ófundinn samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Þrír menn yfirheyrðir JÁRN er mikið í íslensku heyi, marktækt mest í heyi á riðubæjum og nálgast ofgnótt og mangan virð- ist vera nægjanlegt í íslensku heyi en í öfugu hlutfalli við járn og er því þéttni mangans marktækt minnst á riðubæjum. Þetta er meðal niður- staðna í framhaldsrannsóknum á sjö snefilefnum í íslensku heyi og tengslum þess við uppkomu riðu og aðra sjúkdóma í búfénaði. Dr. Krist- ín Björg Guðmundsdóttir dýralækn- ir og dr. Þorkell Jóhannesson, fyrr- verandi prófessor sem stýrði rannsókninni, segja í samtali við Morgunblaðið að rannsóknirnar staðfesti fyrri rannsóknaráfanga, að ótvíræð tengsl séu milli mangans í heyi og riðu, þ.e. að mikið mangan í heyi feli í sér ákveðna vörn gegn sé annars vegar, þetta geti vart verið tilviljun. Af öðrum snefilefn- um segir Þorkell að þéttni kóbalts í heyi virðist lítil og gæti kóbalt- skortur komið fyrir í búpeningi en þéttni þess sé hin sama á riðubæj- um og riðulausum. Það sama er að segja um sink og mólýbden. Þá kom í ljós við rannsókn þeirra fé- laga að selenskortur virðist vera útbreiddur í búpeningi á Íslandi þótt það verði ekki tengt við riðu sérstaklega. Þorkell segir hins vegar brýnt að rannsaka málið frekar, ekki síst þar sem riða í sauðfé kosti þjóðfélagið milljónir króna á ári. Hópurinn hafi fullan hug á því en hann hafi hins vegar fengið neitun um styrk hjá Fram- leiðnisjóði landbúnaðarins eftir neikvæða umsögn frá fagráði sauð- fjárræktar. Kostnaður við fram- haldið er áætlaður 5 milljónir. vissum sjúkdómum og ofgnótt get- ur valdið eitrun. Rannsökuð voru sjö efni: járn, mangan, kopar, mó- lýbden, selen, kóbalt og sink. Ákvað hópurinn að tengja niður- stöður við hugsanleg skortsein- kenni eða eitrunareinkenni í plöntum og dýrum og beindust rannsóknirnar einkum að því hvort tengja mætti mun á magni snefil- efna í heyi við uppkomu á riðuveiki í sauðfé. Af þeim sökum voru bæir þar sem heysýni voru tekin flokk- aðir í þrjá flokka: riðulausa bæi á riðusvæðum, fjárskiptabæi, þ.e. bæi þar sem riða hafði verið greind en þeir fengið heilbrigt fé, og riðu- bæi, þ.e. þar sem riða var á rann- sóknartímabilinu. Þorkell Jóhannesson segir að erfitt sé að komast hjá því að túlka þessar niðurstöður þannig að járn og mangan skipti máli þegar riðan riðu og að ofgnótt járns í íslensku heyi sem jaðrað geti við eitrun sé mikil í heyi frá riðubæjum. Rannsóknir þessar hófust árið 2001 og auk þeirra Kristínar og Þorkels voru í hópnum Sigurður Sigurðarson dýralæknir, Jakob Kristinsson dósent og Tryggvi Ei- ríksson fóðurfræðingur. Einnig störfuðu með hópnum um tíma Jed Barash, bandarískur læknanemi, og dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í Englandi. Hópurinn starfaði í nánum tengslum við embætti yfirdýralæknis. Skortur eða eitrun Rannsóknarhópurinn gerði út- tekt á sjö snefilefnum sem eru mik- ilvæg fyrir starfsemi plantna, dýra og manna. Þau eru nauðsynleg fyr- ir starfsemi vítamína og hormóna og getur skortur á þeim valdið Samband á milli járn- magns í heyi og riðu Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is HELGI Jóhannesson sigraði í þremur greinum á Íslandsmótinu í badminton sem lauk í gær í TBR-húsinu í Reykjavík. Helgi sigraði í einliða-, tvíliða- og tvennd- arleik. Hann er fyrsti badmintonmað- urinn í 15 ár sem afrekar slíkt en Árni Þór Hallgrímsson varð þrefaldur meist- ari árið 1991. Helgi varði titilinn í einliða- leik og það sama gerði Ragna Ingólfs- dóttir sem sigraði fjórða árið í röð í einliðaleik. Ragna varð einnig Íslands- meistari í tvíliðaleik. Broddi Kristjánsson varð Íslandsmeist- ari í tvíliðaleik og eru 26 ár síðan hann varð fyrst Íslandsmeistari en hann verð- ur 46 ára á þessu ári. | B1 Morgunblaðið/ÞÖK Helgi þrefald- ur meistari VALIN hafa verið fjölmörg svæði í grónum hverfum Reykjavíkur vegna áætlana borgaryfirvalda um skipulag lóða fyrir einbýli og sérbýli. Um er að ræða svæði í grónum hverfum fyrir fast að 300 lóðir sem verða þessu næst sendar í frekari skipulagsvinnu og samráð við íbúa, að sögn Dags B. Egg- ertssonar, formanns skipulagsráðs. Eitt þessara svæða, sem má sjá á meðfylgjandi loftmynd, markast af Kirkjusandi og Borgartúni og er talið er að þar megi byggja allt að 70 sérbýli í raðhúsum. „Hugmyndin er sú að þegar þar að kemur renni hluti endur- gjaldsins fyrir lóðirnar til uppbyggingar á útivistarsvæðum og grænum svæðum í hverfunum til þess að bæta og fegra umhverfið. Mér sýnist í fljótu bragði að það ætti að vera svigrúm til þess að verja allt að milljarði í uppbyggingu á grænum svæðum í hverfunum, sem hluta af þessu verkefni,“ segir Dagur. Tæplega 300 lóðir í grónum hverfum ELDUR kom upp í Landrover-jeppa á Hellisheiði um klukkan 14 í gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi fundu öku- maður og farþegi jeppans mikla bens- ínlykt leggja frá bílnum. Bíllinn var því stöðvaður og skömmu síðar blossaði eldur upp úr vélarhúsinu. Ökumaðurinn og farþegi náðu að komast út úr bíln- um, sem varð fljótt alelda, og hringja eftir aðstoð. Slökkvilið kom á vettvang og slökkti í jeppanum. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru en bifreiðin er ónýt. Eldur kom upp í jeppa á Hellisheiði EINS hreyfils fjögurra sæta flugvél af gerðinni Cherokee nauðlenti á túni við bæinn Víði við Þingvallaveg í Mosfellsdal kl. 20.20 í gærkvöldi. Engan sakaði en auk flugmannsins voru tveir farþegar í flugvélinni. Voru þeir þó allir fluttir á slysadeild til skoðunar í gærkvöldi en engin henni en í lendingunni brotnaði nefhjól vélarinn- ar. Eftir nauðlendinguna var tilkynnt um óhapp- ið til Neyðarlínu og voru sjúkrabíll og lögregla send á staðinn. Einnig komu fulltrúar Rann- sóknarnefndar flugslysa á vettvang í gærkvöldi og skoðuðu aðstæður. meiðsl komu í ljós samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis. Vélin var að kom frá Vestmannaeyjum, á leið til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum Flug- málastjórnar urðu gangtruflanir í vélinni til þess að flugmaðurinn sá þann kost vænstan að lenda Morgunblaðið/Júlíus Nauðlenti á túni í Mosfellsdal FARÞEGAÞOTA frá bandaríska flug- félaginu Max Jeat, á leið frá Lundúnum til New York, varð að lenda á Keflavík- urflugvelli í gær vegna sprungu í ytra byrði framrúðu í flugstjórnarklefa. Vél- in, sem er af gerðinni Boeng 767-300, var í háloftunum yfir landinu þegar óhappið varð og lækkuðu flugmennirnir flugið og flugu lágt inn til lendingar í Keflavík. Að sögn lögreglunnar á Kefla- víkurflugvelli var engin hætta talin á ferðum og var ekki settur af stað við- búnaður á vellinum til að taka á móti vélinni. Um borð voru 116 manns að áhöfn meðtalinni. Önnur vél frá flug- félaginu var send til að koma farþegum áfram til New York. Ekki er vitað um orsök þess að rúðan sprakk. Lenti með sprungna framrúðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.