Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 16
16 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@vortex.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurveri v/Stigahlíð
BAUGUR Group hefur keypt tæp-
lega 10% hlut í verslunarkeðjunni
House of Fraser og samkvæmt frétt
breska blaðsins The Guardian hefur
Baugur greitt 27 milljónir punda fyr-
ir hlutinn eða tæpa 3,5 milljarða ís-
lenskra króna. Gengi bréfa verslun-
arkeðjunnar hækkaði verulega við
viðskiptin og hefur ekki verið hærri í
átta ár.
Vangaveltur um yfirtöku
Gunnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Baugs Group í Bretlandi, stað-
festir umrædda frétt og segir Baug
hafa talið þetta vera góða fjárfest-
ingu þótt gengi bréfa í House of
Fraser sé hátt í sögulegu ljósi, það
hafi verið mat þeirra að félagið eigi
töluvert inni. Það reki 64 verslanir í
Bretlandi og selji góð merki og m.a.
merki í eigu Baugs.
Kaup Baugs á hlutnum í House of
Baugur kaupir
aftur í House
of Fraser
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Fraser ýttu undir vangaveltur um að
félagið ætli sér að gera yfirtökutilboð
í keðjuna og spurður um hugsanlega
yfirtöku Baugs á House of Fraser
bendir Gunnar á að Baugur hafi áður
keypt stærri hluti í félögum sem
mönnum hafi litist vel á. „Stundum
hefur það leitt til einhvers meira en
stundum alls ekki,“ segir Gunnar.
Kaup Baugs í House of Fraser eru
ekki þau fyrstu því árið 2002 átti
Baugur um 10% í félaginu en bréfin
höfðu verið keypt á þó nokkrum
tíma. Um svipað leyti gerði skoski
fjárfestirinn Tom Hunter yfirtökutil-
boð í félagið sem ekki var tekið.
Baugur seldi hlut sinn árið 2004 og
hagnaðist um 10 milljónir punda á
viðskiptunum, að sögn The Guard-
ian.
Þar kemur einnig fram að viðskipti
Baugs í gær hafi komið markaðnum
á óvart þar sem þar hafa verið uppi
getgátur um að íslenskir fjárfestar
þyrftu að selja í breskum félögum
vegna stöðu efnahagsmála á Íslandi.
TIL lengri tíma eru horfur á íslensk-
um hlutabréfamarkaði góðar að mati
greiningardeilda Glitnis og Lands-
bankans, en greining Glitnis spáir
20% hækkun á Úrvalsvísitölu Kaup-
hallar Íslands á árinu og er það í sam-
ræmi við spá bankans frá upphafi
árs. Greiningardeildirnar eru hins
vegar sammála um að til skemmri
tíma sé markaðurinn viðkvæmur.
„Enn er ágætur gangur í efna-
hagslífinu og horfur í rekstri fyrir-
tækjanna á markaði hafa almennt
þróast í jákvæða átt með lækkun á
gengi krónunnar. Þó hefur neikvæð
umfjöllun um íslenskt athafnalíf er-
lendis haft mikil áhrif á gengi hluta-
bréfa og krónu og gæti haft áfram-
haldandi áhrif á ávöxtun á árinu,“ að
því er segir í afkomuspá Glitnis, sem
kynnt var á morgunfundi hjá bank-
anum í gær. Þar kynnti Karl Wern-
ersson jafnframt sögu og starfsemi
Milestone, sem er einn stærstu eig-
anda Glitnis. Sagði Karl m.a. að fé-
lagið hefði engin áform önnur uppi en
að halda áfram eignarhaldi sínu í
bankanum.
Danskir fjölmiðlar mildari
Greining Glitnis segir að það sem
einkum mæli með góðri hækkun á
hlutabréfaverði sé góð arðsemi og
sterkt sjóðstreymi helstu fyrirtækja í
Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands.
Hækkandi vaxtastig hérlendis sem
erlendis hafi hins vegar neikvæð
áhrif. „Lækkun á gengi krónunnar
hefur í heildina litið jákvæð áhrif á
rekstur félaganna, en það er þó mis-
munandi eftir vægi erlendrar starf-
semi,“ að mati greiningar Glitnis.
Ingólfur Bender, yfirmaður grein-
ingar Glitnis, sagðist á kynningar-
fundinum hafa verið á fjölmennum
blaðamannafundi í Kaupmannahöfn
á fimmtudag, þar sem hann, ásamt
Bjarna Ármannssyni, forstjóra Glitn-
is og Þórði Friðjónssyni, forstjóra
Kauphallar Íslands, fóru yfir stöðu
mála á Íslandi með blaðamönnum
Ingólfur segir að öldurnar sé farið
að lægja og að danskir fjölmiðlar séu
mun mildari en áður í umfjöllun sinni
um íslensk fyrirtæki. Hins vegar seg-
ir Ingólfur að það verði að viðurkenn-
ast að að einhverju leyti sé sökin hjá
bönkunum hvers vegna umfjöllun er-
lendis hefur verið jafnneikvæð og
raun ber vitni.
Verðlagning sanngjörn
Verðmat Greiningardeildar
Landsbankans á innlendum hluta-
félögum, bendir til þess að hluta-
bréfamarkaðurinn sé sanngjarnt
verðlagður í dag, að því er segir í inn-
gangi á riti bankans.
„Til skemmri tíma litið teljum við
að hlutabréfamarkaðurinn verði
áfram mjög viðkvæmur fyrir öllum
fréttum varðandi lánshæfi Íslands og
íslensku bankanna. Þetta mun vænt-
anlega ekki breytast fyrr en ró skap-
ast um fjármögnun bankanna á al-
þjóða fjármálamörkuðum. Til lengri
tíma eru horfur á hlutabréfamarkaði
góðar.“
Í ritinu var hlutafélögum í Úrvals-
vísitölu skipt upp eftir því hvaða áhrif
veiking krónunnar hefur á virði
þeirra í íslenskum krónum. „Niður-
staðan er að veiking krónunnar hefur
jákvæð áhrif á virði 98% markaðarins
og þar af mjög jákvæð á 53% mark-
aðarins,“ að því er segir í riti Lands-
bankans.
Greiningardeild Landsbankans
spáir því að sex félög, sem skráð eru í
Kauphöll Íslands, muni skila tapi á
fyrsta ársfjórðungi. Félögin eru
Alfesca, Avion Group, Dagsbrún, HB
Grandi, Icelandic Group og Össur. Þá
gerir afkomuspá fyrir árið í heild ráð
fyrir að hagnaður allra félaga, nema
TM og HB Granda, aukist á milli ára.
Horfur á markaði
góðar til langs tíma
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Kauphöllin Ágætlega horfir fyrir flest úrvalsvísitölufélögin sem skráð eru
í Kauphöllinni, samkvæmt spám greiningardeilda Glitnis og Landsbanka.
SJALDAN hefur menningarmunur
í viðskiptum komið eins berlega í
ljós og á aðalfundi sænsku ferða-
skrifstofunnar Ticket þar sem
Pálmi Haraldsson, einn stærsti
hluthafinn, mætti í frjálslegum
stuttermabol meðan aðrir sem
mættir voru klæddust dökkum
jakkafötum. Svo segir í umfjöllun
netútgáfu sænska blaðsins Dagens
Nyheter af fundum þar sem öll at-
burðarás fundarins er rakin á til-
þrifamikinn hátt.
Í lok fundarins afhenti eftirlits-
maður frá samtökum fjárfesta
Pálma að gjöf sænskar reglur fyrir
stjórnir fyrirtækja þar sem hvatt er
til þess að konur eigi sæti í stjórn-
um. Stjórnar-
tillaga Pálma,
sem samþykkt
var á fundinum,
leiddi til þess að
eina konan sem
sæti hafði átt í
stjórn Ticket hélt
ekki sæti sínu.
Allar tillögur
Pálma voru sam-
þykktar á fundinum eins og áður
hefur komið fram. Að lokum á einn
stjórnarmanna, sem einnig hafði
misst sæti sitt, að hafa tekið í hönd-
ina á Pálma og sagt: „Gættu þess nú
vel,“ og átti hann þar við fyrirtækið
sjálft.
Ólíkir menningar-
heimar á Ticket-fundi
Pálmi Haraldsson
! "# #
!" #$%
&'
&"
% #%
() %" %
( "% '%* #% + %*
,
,
& %
-./01 &21#%
3
%
& .0 + %* 4 %*
4. 02% 5
%*
672
89& %
8.
:;"" %". 0 0 %
< %% 0 %
!"
& * =;220 -1>" -0%*
!# $%
5?=@
-A0
0 0
/
/
/
/
/
/
/
; %" 1
; 0 0
/
/
/
/
/
/ /
/ /
/
/
/
/
/
/
/
/
B CD
B CD
B /
CD
B CD
/
B CD
B
CD
B CD
/
/
/
B / CD
B CD
B CD
B /CD
B /CD
/
B CD
/
B CD
/
B /
CD
/
/
/
/
/
4 * 0
*" %
: #0 A *" E
( -
/
/
/
/
/
/
/
< 0 A )$
:4 F "% &2 *
0
/
/
/
/
/
/
/
6 *G
-H8
C
C
&:-=
!I
C
C
?? J,I
C
C
J,I ( %
6
C
C
5?=I !K L%
C
C
„„DANSKA árásin“ á íslenskt efna-
hagslíf getur valdið meiri skaða en
virtist þegar hún hófst. Hin mikla
gengislækkun krónunnar virðist
ekkert ganga til baka þrátt fyrir
0,75% hækkun á stýrivöxtum Seðla-
bankans. Gengisvísitalan hefur enn
verið um og yfir 120 en með vaxta-
hækkuninni hefði mátt gera ráð fyrir
því að hún lækkaði sem þar með
hækkaði gengi krónunnar.“
Þetta segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, m.a. í nýju fréttabréfi
samtakanna. Hann bendir á að gengi
krónunnar hafi verið helsta miðlun-
artæki peningastefnunnar, fyrst og
fremst vegna þess hve lág hlutdeild
íslensku krónunnar sé á íslenska
lánamarkaðnum.
„Þótt gengi krónunnar hafi verið
orðið of hátt með tilliti til afkomu út-
flutningsatvinnuvega og jafnvægis í
utanríkisviðskiptum þá er snörp
lækkun gengisinsins og átt hefur sér
stað undanfarið, óæskileg með hlið-
sjón af áhrifunum á verðbólgu,“ seg-
ir Vilhjálmur en pistil hans má nálg-
ast á vefnum www.sa.is.
Skaði af
„dönsku
árásinni“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson