Morgunblaðið - 29.04.2006, Síða 28
Daglegtlíf
apríl
Einn helsti ferðamanna-staður Gautaborgar erLiseberg-tívolíið sem erhið stærsta á Norð-
urlöndunum og sogar til sín ferða-
menn alls staðar að. Íslendingar
eru yfirleitt tívolíglaðir og börnin
verða ekki svikin af heimsókn í
skemmtigarðinn sem er hefðbund-
inn sem slíkur. Kaupglaðir eru
margir Íslendingar líka og fyrir þá
gæti heimsókn í verslanamiðstöð-
ina Nordstan verið góð hugmynd.
Fyrir þá sem vilja horfa framhjá
tívolíum og verslanamiðstöðvum er
af nógu að taka, eins og Ingrid
bendir á.
Elsta bygging borgarinnar
„Þótt maður versli svolítið í
Nordstan er ekki þar með sagt að
maður þurfi að vera þar allan dag-
inn. Þar rétt hjá eru Kronhusbod-
arna þar sem tilvalið er að fá sér
hádegismat eða kaffisopa, segir
hún. Kronhuset er elsta bygging
borgarinnar í upprunalegri mynd,
og það er í bakgarði þess og hlið-
arhúsum sem litlar búðir og kaffi-
hús hafa verið sett á laggirnar.
Húsið sjálft var byggt um miðja
sautjándu öld en á þeim tíma voru
stríð við Dani tíð og húsið var nýtt
sem geymslustaður fyrir ýmis
stríðstól. Auk kaffihúss eru ýmsar
gamaldags búðir í hliðarhúsunum;
glerblástur, gullsmiðja, súkkulaði-
og karamellugerð, blómabúð og
þar að auki tónleikasalur í sjálfu
húsinu.
Gautaborg er hafnar- og iðn-
aðarborg þar sem skipasmíðar
voru stór atvinnugrein á árum áð-
ur. Borgin byggist frá bökkum ár-
innar Göta älv og langt upp um
sveitir og þar búa nú um 800 þús-
und manns. Nú er svo komið að
skipasmíðakranarnir eru orðnir
tákn borgarinnar og aðalhlutverk
þeirra að prýða póstkort.
Eriksberg er skemmtilegur bæj-
arhluti og einn fyrsti viðkomustað-
urinn í þessu ferðalagi um Gauta-
borg. Þar gnæfir táknið yfir, krani
sem nú er helst notaður í teygju-
stökk eftir að skipasmíðarnar flutt-
ust austur á bóginn. Umhverfið er
alls ekki niðurnítt fyrrum iðn-
aðarhverfi, heldur hefur það verið
endurbætt, snyrt og lagfært og er
orðið að nýju, eftirsóttu íbúðar-
hverfi. Ferðin hefst við Klippan,
sunnan megin árinnar þar sem
einn besti veitingastaður Gauta-
borgar, Sjömagasinet, er stað-
settur, einnig Gautaborgaróperan
og síðast en ekki síst menningar-
miðstöðin Röda Sten sem getur
verið áhugaverður viðkomustaður
fyrir ferðamenn. Í uppgerðu mið-
stöðvarhúsi eru nú haldnar mynd-
listarsýningar og menningar-
viðburðir og þar er veitingastaður
þar sem hægt er að sitja úti á
sumrin með útsýni yfir Älvsborgs-
brúna og Gautaána.
Horfið aftur til fortíðarinnar
Rauði steinninn er í næsta ná-
grenni, stór rauðmálaður steinn við
árbakkann, minnisvarði um sænsk-
an hermann sem féll á sautjándu
öld í baráttu við Dani og steinninn
litaðist rauður af blóði hans. Síðan
hefur steinninn verið málaður
rauður og litnum haldið við. Frá
þessum stað er hægt að taka
Älvsnabben, fljótandi strætó yfir á
norðurbakka árinnar (Norra
Älvstranden) til Eriksberg, en bát-
urinn er hluti af almennings-
samgangnakerfi borgarinnar og
hægt er að nota sama aðgöngumið-
akort og í strætis- og sporvagna.
Ekkert neðanjarðarlestarkerfi er í
Gautaborg og það er kannski m.a.
þess vegna sem borgin hefur ein-
hvern heillandi smábæjarbrag á
sér.
Sunnan megin árinnar er hinn
eiginlegi miðbær. En áður en
þangað er haldið með bátnum aftur
er upplagt að fá sér göngutúr frá
Eriksberg yfir á Slottsberget sem
er einkennilegt íbúðarhverfi innan
um allar nýbyggingarnar því húsin
þar eru öll frá því fyrir aldamótin
1900 og eru fyrrverandi bústaðir
verkamanna við skipasmíðastöðvar.
Timburhús í öllum regnbogans lit-
um standa á lítilli, bíllausri hæð og
með göngutúr þangað hverfur
maður aftur í fortíðina.
Á sumrin er allt fullt af skútum
utan við Gautaborg og í skerja-
garðinum með ströndinni. Gaman
er að fylgjast með skútuumferðinni
og ekki nauðsynlegt að vera um
borð í einni slíkri. Eyjarnar Styrsö
og Brännö er t.d. hægt að komast
út í með almenningssamgangna-
kerfi borgarinnar frá Saltholmen.
Älvsnabben er aðalfarartækið á
þeim slóðum þar sem við erum nú
og það flytur okkur nú yfir á suð-
urbakkann aftur. Frá Lilla Bomm-
en er nauðsynlegt að ganga aðeins
í gegnum Nordstan en við flýtum
okkur þaðan og í Kronhusbodarna
þar sem horfið er aftur í tímann
með engiferbrjóstsykri í gam-
aldags sælgætisbúð. Okkur svíður í
hálsinn þegar við höldum áfram
göngunni um miðbæinn, engiferið
hefur greinilega áhrif. Versl-
unargöturnar Vallgatan, Kungs-
gatan og Magasinsgatan heilla
frekar en Nordstan. Þarna eru
ýmsar tískuverslanir, kaffihús og
hönnunarverslanir, og litla þrönga
götu á milli Vallgatan og Södra
Larmgatan, Victoriapassagen, er
skemmtilegt að skoða. Nöfn á
litlum, áhugaverðum tískubúðum á
þessum slóðum eru t.d. Nanso við
Vallgatan og Mouche við Södra
Larmgatan 2. Veitingastaðir við
Magasinsgötuna eru nokkrir góðir,
að sögn Ingrid, þ.á m. Magnus &
Magnus, Café Wanselius og Sand-
berg & Månsson.
Afslappað Linnéhverfið
Leiðin liggur smám saman inn í
Linnéhverfið þar sem Ingrid bjó
áður en hún keypti sér hús í út-
hverfi ásamt fjölskyldunni. „Mér
finnst alltaf gott að koma í Linné-
hverfið, hér er afslappað andrúms-
loft og góðir veitingastaðir,“ segir
Ingrid og bendir m.a. á tapasstað-
inn La Sombrita og Linné Terr-
assen. Á Nordhemsgatan er einnig
Saluhall Briggen þar sem hægt er
að setjast niður yfir ódýrri máltíð
eða kippa með sér sælkeravörum.
Ingrid finnst Linnégatan enn-
fremur skemmtilegri en Kung-
sportsavenyn (Avenyn) sem í flest-
um ferðamannaupplýsingum er
nefnd aðalveitingastaðagata borg-
arinnar. Á hliðargötunni Prins-
gatan er einnig að finna franska
veitingastaðinn Cyrano þar sem
bestu pítsurnar í borginni fást og
við sömu götu eru ýmsar litlar og
sætar búðir. Við hliðargötur Linné-
götunnar má finna forvitnilegar
búðir, t.d. hönnunarbúðir og
„second-hand“-búðir við Andra
Långgatan. Sem dæmi má nefna
Jaaps Antik. Göngutúrinn endar
svo í Slottsskogen sem mikið er
notaður af Gautaborgarbúum.
Ferðamenn hafa hins vegar ekki
uppgötvað hann en þessi stóri
garður getur verið skemmtilegur
viðkomustaður á góðviðrisdögum.
SVÍÞJÓÐ | Göngutúr um Gautaborg
Heillandi smá-
bæjarbragur
Þegar nýir staðir eru heimsóttir og skyggnast á undir
yfirborðið er skemmtilegt að fá hjálp frá einhverjum
sem býr á svæðinu. Ingrid Hellgren blaðamaður hefur
búið í Gautaborg í fimmtán ár og brá sér í gervi leið-
sögumanns Steingerðar Ólafsdóttur heilan laugardag.
Gautaborg hefur ekki verið í al-
faraleið fyrir Íslendinga hingað til
en það gæti breyst eftir 16. maí nk.
þegar Iceland Express hefur beint
flug á milli Gautaborgar og Kefla-
víkur. Veitingastaðir:
Sjömagasinet Klippan
Kulturreservat
Magnus & Magnus
Magasinsgatan 8
Sandberg &Månsson
Magasinsgatan 26
Café Wanselius
Magasinsgatan 5
La Sombrita
Linnégatan 23
Linne Terrassen
Linnégatan 32
Cyrano Prinsgatan 7
Saluhall Briggen
Nordhemsgatan 28 www.gote-
borg.com
www.vasttrafik.se
www.kronhusbodarna.nu
www.alvstranden.com
www.rodasten.com
Ljósmynd/Göteborg & co
Älvsborgsbrúin er 933 m löng hengibrú yfir hafnarmynnið í Gautaborg. Á sumrin er hægt að setjast niður á úti-
kaffihúsið við menningarmiðstöðina Röda Sten og virða fyrir sér útsýnið.
steingerdur@mbl.is
Morgunblaðið/Steingerður
Ingrid Hellgren. Á góðviðrisdegi getur verið gaman að fara á veitingastaðinn Heaven 23 uppi á efstu hæð í Gothia
Towers-hótelinu í Gautaborg og fá sér brauðsneið með rækjum í hádegismat.
Ljósmynd/Göteborg & coSkipasmíðakraninn við Eriksberg er orðinn eitt af helstu táknum Gautaborgar.