Morgunblaðið - 29.04.2006, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.04.2006, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 31 MENNING Hagasmára 1 Smáralind Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) Sími 513 4300 Sérlega hlýlegur og fallegur 43,5 fm sumarbústaður, með ca 12 fm verönd, ásamt 9,9 fm geymsluskúr, samtals 53,4 fm á 5.000 fm eignarlóð í Norður- kotslandi í Grímsnesi. Húsið er tvö svefnherbergi, salerni og alrými með eldhúsi og stofu. Búið er að tengja 12v rafmagn inn og kalt vatn en raf- magn og hitaveita er komið að lóðarmörkum. Verð 8,9 m. SUMARBÚSTAÐUR – GRÍMSNESI Opið hús í dag og á morgun á Miðnesvegi 10 milli kl. 12 og 17 Upplýsingar gefa Hera í s. 863 6330 og Kristján í s. 866 6570 Salómon Jónsson - Lögg. fast.sali Breska leikskáldið EdwardBond er gestur Félags leik-skálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu í dag kl. 10–16. Allir áhugamenn um leik- hús og leikritun eru velkomnir á þennan sérstaka viðburð í íslensku leikhúsi. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og leik- stýra leikurum í tveimur atriðum úr verkum sínum til að skýra hug- myndirnar sem að baki liggja. Fyr- irlesturinn og sýnikennslan fer fram á ensku en leikið verður á ís- lensku. Tekin verða til skoðunar atriði úr leikritunum Crime of the 21st Century og Have I None sem bæði voru frumsýnd árið 2000. Verkin gerast bæði í einhvers konar fram- tíð þar sem almenningur dregur fram lífið í skugga afstaðinnar kjarnorkustyrjaldar.    Edward Bond er af mörgumálitinn eitt merkasta leik- skáld 20. aldarinnar. Hann á að baki glæsilegan feril, þar sem öll helstu leikhús beggja vegna Atlantshafsins hafa sviðsett leikrit hans, þ. á m. The National Theatre London, The Royal Shakespeare Company, The Royal Court Theatre, Off Broadway leikhús í New York, Berliner Ensamble, Theatre National Paris og fleiri. Eftir Bond liggja nær 30 leikrit, auk kvikmyndahandrita og sjón- varpsleikrita, leikrita fyrir útvarp og einþáttungar fyrir leikhópa, safn ljóða og ritgerða ásamt fleiru. Bond varð fyrst þekktur fyrir leik- ritið Saved (Borgið) sem Royal Court-leikhúsið frumsýndi 1965. Saved er eina leikrit Edwards Bond sem flutt hefur verið af at- vinnuleikhúsi á Íslandi í þýðingu Úlfs Hjörvars. Það var leikfélag Reykjavíkur sem tók verkið til sýn- ingar árið 1968 . Saved var bannað af konunglegu ritskoðuninni í Bretlandi en varð engu að síður til þess að ekki löngu síðar var rit- skoðunin í Bretlandi afnumin enda löngu orðin vandræðaleg tíma- skekkja. Af öðrum leikritum Bonds má nefna Bingo, The Fool, The Hum- an Cannon, The Sea, The War Plays, The Woman, The Crime of the 21st Century, Ollie’s Prison og Have I None.    Edward Bond hefur ávallt veriðeindregið þeirrar skoðunar að leikhúsið væri einn mikilvæg- asti samræðuvettvangur sam- félagsins, þar mætti ræða og kryfja grundvallarspurningar um mannlega tilveru og tilgang henn- ar. Honum hefur verið lýst sem einum friðsamasta einstaklingi sem sögur fara af í leikhúsinu, en leikrit hans fjalla þó oftar en ekki um ofbeldi þar sem hann heldur því fram að samfélag okkar þrífist á ofbeldi og ef okkur á að takast að uppræta ofbeldi og lifa í friði verðum við að skilja hvers vegna menn beita hver annan ofbeldi. „Ef við getum ekki horfst í augu við Hiroshima á leiksviði þá munum við horfast í augu við Hiroshima í raunveruleikanum.“ Hægt er að segja að hugmyndir Bonds um rætur og orsakir ofbeld- is hafi fengið aukið vægi með ár- unum. Hann hefur jafnframt sagt að fyrir honum vaki að segja ein- ungis það sem er satt og hann hafi ekki áhuga á að sviðsetja ímynd- aðar aðstæður. Trúr þessu sjón- armiði má telja Bond einn af upp- hafsmönnum þeirrar stefnu eða stíls í bresku leikhúsi sem stundum er kallaður leikhúsrraunsæi þar sem athafnir og samtöl eru of- urraunsæ en sviðsetningin leikræn og engin tilraun gerð til endur- sköpunar veruleikans. Áhorfand- anum er ávallt ljóst að hann er í leikhúsi, natúralismanum er hafn- að sem aðferð til að fá áhorfand- ann til að gleyma stund og stað. Hér helst hugmyndafræðin þétt í hendur við þróun myndlistar og hönnunar á sviðsrými í leiksýn- ingum á síðustu 40 árum og jafnvel þó lengra aftur væri farið.    Texti Bonds er þó oft ekki síðurexpressjónískur en raunsær; persónurnar tala beint út úr að- stæðum sínum, ekki beint til áhorf- enda, en fram hjá öðrum per- sónum. Segja hug sinn allan og stundum er engu líkara en textinn njóti ákveðins sjálfstæðis frá at- burðarás, upplifunin er í þeim skilningi tvöföld og því verður lest- ur á leikritum Bonds oft býsna strembinn en komin á svið ljúkast þau upp. Edward Bond er því leik- skáld í besta skilningi þess orðs; hann semur verk sín með leikara og sviðsetningu í huga. Horfst í augu við Hiroshima ’„Ef við getum ekkihorfst í augu við Hiroshima á leiksviði þá munum við horfast í augu við Hiroshima í raun- veruleikanum.“‘ Edward Bond havar@mbl.is AF LISTUM Hávar Sigurjónsson VOX Academica og Jón Leifs Camerata flytja Requiem W.A. Mozarts í Langholtskirkju í dag kl. 15, ásamt ein- söngvurunum Þóru Einarsdóttur sópran, Sesselju Kristjánsdóttur alt, Gunnari Guðbjörnssyni tenór og Davíð Ólafssyni bassa. Stjórnandi tónleikanna er Há- kon Leifsson. „Mozart er 250 ára og við í Vox Academica viljum fagna því, eins og svo margir eru að gera. Requiem hans er talið eitt stórkostlegasta verk tónbók- menntanna og er eitt af þeim sem menn fá aldrei nóg af, sama hversu oft það er flutt,“ sagði Hákon í samtali við Morgunblaðið. Requiem Mozarts verður flutt eftir hlé, en fyrir hlé á tónleikunum verða flutt nokkur minni verk; Maríukvæði eftir Leif Þórarinsson, Requiem eftir Jón Leifs og Um nóttina eftir Szymon Kuran, auk þess sem leikin verður útfarartónlist eftir Henry Purcell. „Án þess að við séum að biðja fólk um að koma í svörtum fötum, viljum við hafa ákveðið „konsept“ á tónleikunum og hátíðlega stemningu. Við erum þó ekki að minnast neins ákveðins – fyrst og fremst viljum við hafa dagskrána í samræmi.“ Vox Academica ásamt stjórnanda sínum, Hákoni Leifssyni. Vox Academica með Mozart Requiem NÝR formaður Rithöfunda- sambands Íslands var kjörinn á aðalfundi félagsins á fimmtudags- kvöld. Það var Pétur Gunnarsson sem tók við af Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni, sem gegnt hafði starfi formanns í átta ár, en eng- inn mun hafa gegnt embættinu lengur en hann. Ýmsar aðrar breytingar urðu á stjórninni á fundinum; Andri Snær Magnason lét af störfum sem varaformaður og við tók Rún- ar Helgi Vignisson, sem verið hafði meðstjórnandi. Í stað Rún- ars Helga kom Bragi Ólafsson, sem verið hafði varamaður, og Davíð A. Stefánsson kom inn sem nýr varamaður. Auk þess sitja að óbreyttu í stjórninni Karl Ágúst Úlfsson og Kristín Helga Gunn- arsdóttir, sem eru bæði með- stjórnendur, og Sigurbjörg Þrast- ardóttir, sem er annar varamaður. Þá var Þorsteinn frá Hamri kjörinn heiðursfélagi Rithöfunda- sambandsins. Ánægja með Pétur Að sögn Ragnheiðar Tryggva- dóttur hjá Rithöfundasambandinu var aðalfundurinn að líkindum sá fjölsóttasti í mörg ár, en fé- lagsmenn eru um 370 talsins og hafa aldrei verið fleiri. „Það var mikil stemmning á þessum fundi. Aðalsteinn kvaddi og fór yfir það sem hefur áunn- ist, og enn á eftir að vinna í. Síðan tók Pétur við embættinu með erindi, þar sem hann velti fyrir sér áhyggjum sín- um af fækkun lesenda, og hvernig Rithöf- undasambandið gæti beitt sér fyr- ir aukinni meðvitund um slíkt. Hver tapaður lesandi væri dýr- mætur.“ Hún sagði meðlimi ánægða með kjör Péturs. „Það var mjög mikil ánægja með Pétur, og almennur samhugur á fundinum.“ Bókmenntir | Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson lætur af störfum sem formaður Rithöfundasambands Íslands eftir átta ár Pétur Gunnarsson kjörinn nýr formaður Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Pétur Gunnarsson HERDÍS Anna Jónasdóttir sópran heldur útskriftartónleika sína frá Listaháskóla Íslands í Salnum í Kópavogi í dag kl. 16. Fjölbreytt verk eru á efnis- skránni, en með henni leikur enn- fremur fríður hópur tónlistar- fólks; þau Selma Guðmundsdóttir á píanó, Eygló Dóra Davíðs- dóttir á fiðlu, Grímur Helgason á klarínett, Jó- hann Nardeau á trompet, Þorbjörg Daphne Hall á selló og Þorvaldur Kristinn Þorvaldsson á bassa. „Já, ég er með nokkra hljóðfæra- leikara með mér,“ segir Herdís Anna í samtali við Morgunblaðið. Meðal verka á efnisskránni er verk eftir föður hennar, Jónas Tómasson; nokkur lög sem hann útsetti fyrir klarínett, fiðlu, selló og sópran. Að öðru leyti koma verkin á efnis- skránni úr ýmsum áttum. „Þetta eru flest verk sem eru í uppáhaldi hjá mér, til dæmis nokkur norræn lög sem mér þykir vænt um. Svo verð ég með nokkrar óperuaríur eftir hlé,“ segir Herdís Anna og bætir við að þær séu ofarlega á blaði hjá henni um þessar mundir, enda stór- skemmtilegar. „En svo finnst mér líka ótrúlega gaman að syngja nú- tímatónlist, eins og sést kannski á lögunum eftir pabba og norrænu lögunum.“ Útskriftartónleikar LHÍ | Herdís A. Jónasdóttir Flytur verk eftir pabba sinn Herdís Anna Jónasdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.