Morgunblaðið - 29.04.2006, Side 40
Á ÞINGI Þjóðræknisfélagsins í
Victoria var Lillian Gudmundson í
Árborg í Manitoba sæmd æðstu
viðurkenningu INL, the Lawrence
Johnson Lifetime Achievement
Award.
Viðurkenningin er veitt fyrir
frábær störf í þágu „íslenska“
samfélagsins í Norður-Ameríku og
var fyrst veitt á þinginu í Ed-
monton í Alberta 2003. Neil Ófeig-
ur Bardal, þáverandi aðalræðis-
maður í Gimli, var þá sæmdur
viðurkenningunni. Dr. T. Kenneth
Thorlakson, læknir í Winnipeg,
fékk viðurkenninguna á þinginu á
Heclu í Manitoba 2004, og Stella
Stephanson, einn af stofnendum
Íslendingafélagsins í Vatnabyggð í
Saskatchewan, var verðlaunuð á
þinginu í Wynyard í fyrra. Lillian
Gudmundson hefur verið virkur fé-
lagi í Íslendingafélaginu Esjunni í
Árborg í 16 ár og látið mikið að
sér kveða í „íslenska“ samfélaginu
í Árborg. „Hún á þessa viðurkenn-
ingu svo sannarlega skilið,“ segir
Davíð Gíslason, formaður Esjunn-
ar. „Fyrir mér er Lillian ímynd
þess besta í fari íslenskrar konu.
Samstarfsmenn hennar dást að
sterkum persónuleika hennar, feg-
urð og umhyggju fyrir öðrum og
hún er mikils metin á heimaslóðum
sem og í íslensk-kanadíska sam-
félaginu í heild sinni. Lillian hefur
auðgað íslenska menningu í Kan-
ada.“
Að vanda voru útnefndir heið-
ursfélagar Þjóðræknisfélagsins á
þinginu. Að þessu sinni var Sigrun
Cuffling heiðruð ásamt fernum
hjónum, þeim Wayne og Mae
Littlewood, Ken og Marie Svein-
son, Solli og Shirley Sigurdson og
Walter og Julie Sopher.
Lawrence Johnson-viðurkenning Þjóðræknisfélagsins
Lillian Gudmundson
í Árborg heiðruð
Morgunblaðið/Steinþór
Heiðursfélagar Þjóðræknisfélagsins 2006. Aftari röð frá vinstri: Marie og
Ken Sveinson og Shirley og Solli Sigurdson. Fremri röð frá vinstri: Julie og
Walter Sopher, Wayne og Mae Littlewood og Sigrun Cuffling.
Lillian Gudmundson frá
Árborg í Manitoba.
40 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
Góður í brekkunum
og veit hvar þær eru
Garmin GPS leiðsögutæki með íslensku
vega- og hálendiskorti. Virkar um allan
heim og spilar MP3. Andvirði 96.550,-
Leiðsögutæki fylgir hverjum
seldum Impreza
TILBOÐ:STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 LÍTRA - 160 HESTÖFL, SÍTENGT FJÓRHJÓLADRIF,
16” ÁLFELGUR, KASTARAR Í STUÐARA... OG MARGT FLEIRA.
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Umboðmenn
um land allt
Akureyri
461-2960
Selfossi
482-3100
Njarðvík
421-8808
Höfn í Hornafirði
478-1990
Reyðarfirði
474-1453
Beinskiptur Sedan 2.040.000,- Sjálfskiptur Sedan 2.180.000,- Beinskiptur Wagon 2.080.000,- Sjálfskiptur Wagon 2.210.000,-
ÍSLENDINGAR komu fyrst til
Vancouver-eyju 1883 og síðan hafa
stöðugt fleiri bæst í hópinn. Veðr-
áttan hefur sennilega alltaf haft
mikið að segja – aldrei of kalt og
aldrei of heitt – og auk þess hafa
þeir yfirleitt fengið næga vinnu.
Eins og öðrum íbúum hefur þeim
líka almennt liðið vel á eyjunni, en
„að öllum líkindum aldrei betur en í
vikunni sem leið,“ eins og Fred
Bjarnason, formaður Íslendinga-
félagsins á svæðinu komst að orði.
Ísland í „bænum“
Það sem fékk formanninn og aðra
af íslenskum ættum til að tengjast
Íslandi meir en nokkru sinni fyrr
var fernt:
Í fyrsta lagi framkvæmd árlegs
þings Þjóðræknisfélags Íslendinga í
Norður-Ameríku, en þingið var
haldið í Victoria í fyrsta sinn.
Í öðru lagi yfirlýsing borgarstjór-
ans í Victoria þess efnis að fimmtu-
dagurinn 19. apríl sl. skyldi vera
sérstakur Íslandsdagur í borginni.
Í þriðja lagi heimsókn Sturlu
Böðvarssonar, samgönguráðherra,
sem átti fundi með ferðamálayfir-
völdum og fylkisstjóra Bresku-Kól-
umbíu auk þess að vera sérstakur
heiðursgestur þjóðræknisþingsins.
Í fjórða lagi kórónaði verkefnið
Iceland Naturally, kynningarátak
Íslands í Norður-Ameríku, síðan
umgjörðina með kynningu á ís-
lenskum mat, íslenskri matreiðslu
og íslenskum söng. Atli Ásmunds-
son, aðalræðismaður Íslands í
Winnipeg, og Einar Gústavsson,
framkvæmdastjóri Ferðamálastofu
í New York og annar framkvæmda-
stjóra Iceland Naturally, höfðu um-
Ísland í sviðsljósinu í Victoria
Victoria, höfuðborg Bresku-Kólumbíu í Kan-
ada, hefur sennilega aldrei verið eins „íslensk“
og í liðinni viku. Steinþór Guðbjartsson fang-
aði andrúmsloftið og smakkaði á íslensku rétt-
unum á Vancouver-eyju í Kyrrahafinu.
Morgunblaðið/Steinþór
Sekkjapípuleikari fór fyrir heiðursgestum þingsins áður en það var formlega sett. Frá vinstri: Iona Campagnolo,
fylkisstjóri Bresku-Kólumbíu, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Heather Alda Ireland, aðalræðismaður í
Vancouver, Atli Ásmundsson, aðalræðismaður í Winnipeg, Walter Sopher, fráfarandi forseti Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga í Norður-Ameríku, og sekkjapípuleikarinn.