Morgunblaðið - 29.04.2006, Síða 56
Orð dagsins: Biðjið Drottin um regn. Hann veitir vorregn og haustregn
á réttum tíma. Helliskúrir og steypiregn gefur hann þeim, hverri jurt
vallarins. (Sak. 10, 1.)
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
HÆ LÍSA, ERTU
LAUS Á
GAMLÁRSKVÖLD?
ÞÚ ÞÓTTIST LÍKA DEYJA Í
FYRRA, LÍSA!
LEYFÐU
AUMINGJA
KONUNNI AÐ
HVÍLA Í FRIÐI
ANDLITIÐ Á
ÞÉR ER SVO
ÓMERKILEGT
ÞAÐ ER BARA SVO
ANDLITSLEGT! ÞAÐ ER
EKKERT SÉRSTAKT VIÐ
ÞAÐ! EN
ÞÆR
FRÉTTIR
ANDLITIÐ Á MÉR
VERÐUR ALDREI ANNAÐ
EN BARA ANDLITSLEGT
KOMDU NÚ HEIM KALVIN
OG HÆTTU ÞESSARI
VITLEYSU!
HÆI!
MÉR VAR FALIÐ AÐ PASSA
ÞIG OG ÉG ÆTLA EKKI AÐ
BREGÐAST FORELDRUM
ÞÍNUM. ÞARF ÉG AÐ BINDA
ÞIG VIÐ STÓL?
KOMDU!
SKAL
GERT
MEIN
FURER!
HVAÐ SAGÐIR ÞÚ!
ÉG
SAGÐIST
FARA
HVERGI!
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GEFA
ÁHÖFNINNI ÞINNI Í JÓLAGJÖF?
FRÍ Á
AÐFANGADAG
ER ÞAÐ NÚ EKKI
EINUM OF MIKIÐ?
JÚ, EN ÞAÐ
ERU NÚ
EINU SINNI JÓL
ÞAR FÓR
ÞAÐ!
BLAUT-
BOLSKEPPNI
Í OZ
LÍSU?
FLOTT
ER!
ÉG KANN EKKI
AÐ KAUPA GJAFIR
HANDA FÓLKI.
ABBY SÉR ALLTAF
UM GJAFAKAUPIN
EN
HVERNIG
VELURÐU
GJAFIR HANDA
HENNI?
HÚN
SEGIR MÉR
TIL!
ÉG HELD
AÐ ÞÚ HAFIR
GOTT AF
ÞESSU!
HJÁLP! ÉG Á AÐ GEFA
SKRIFSTOFUSTJÓRANUM
OKKAR GJÖF
NÚ VEIT
KRAVEN AÐ ÉG
FYLGIST MEÐ
HONUM OG
M.J. HELDUR
AÐ ÉG TREYSTI
HENNI EKKI.
GÆTI
ÞETTA FARIÐ
VERR?
JÁ!
ÞETTA ER EKKI MJÖG
TIGNARLEGT
AF HETJU
ÞETTA ER
HELDUR LÉLEGT
Dagbók
Í dag er laugardagur 29. apríl, 119. dagur ársins 2006
Víkverji er að geraupp gamalt hús
þessa dagana og hef-
ur þurft að leita til
ýmissa iðnaðarmanna
varðandi viðgerðir og
uppgerðir. Og alltaf
kemur honum jafn-
mikið á óvart, hve sú
þjónusta sem iðn-
aðarmenn, ef hægt er
að alhæfa um þá sem
eina heild, er und-
arlega skipulögð.
Auðvitað eru iðn-
aðarmenn misjafnir
eins og allir, og Vík-
verji hefur líka verið
mjög ánægður með suma þeirra
sem unnið hafa fyrir hann. Þó finnst
honum margt undarlegt.
Til dæmis finnst honum oft, eins
og iðnaðarmenn af ýmsu tagi sé að
gera honum þvílíkan greiða með því
að vinna fyrir hann. Honum finnst
hann þurfa að vera miklu þakklátari
fyrir að fá að njóta þjónustu margra
þeirra heldur en annarra stétta,
hárgreiðslufólks, svo tekið sé dæmi
um aðra iðngrein. Það er engu lík-
ara en að „business is business“ eigi
ekki við í þessum tilfellum; eins og
reikningnum (sem oftar en ekki eru
svimandi háir) þurfi líka að fylgja
vænn skammtur af brosi og hlýjum
straumum. Hvað er
það?
Það hlýtur að stafa
af þeim skorti sem
virðist vera til staðar
á iðnaðarmönnum – að
þeir séu í raun og veru
að gera honum greiða
með því einu að mæta
og vinna umsamið
verk, vegna þess að
þeir gætu verið í svo
mörgum öðrum í stað-
inn.
En hvernig stendur
á þessum skorti?
Hvernig stendur til
dæmis á því að Vík-
verji getur ekki fengið smið fyrr en
eftir mánuð til að vinna fyrir sig
einfalt verk, sem tekur einn dag að
vinna í mesta lagi? Hvers vegna
koma ekki fram fleiri iðnaðarmenn
fyrst þeirra er þörf?
Markaðslögmálin, um framboð og
eftirspurn og verðlag eftir því, virð-
ast ekki hafa náð inn til iðnaðar-
manna í þjónustu við einstaklinga
nema að takmörkuðu leyti. Því
verðið stendur ekki í Víkverja – þó
að það sé oft hátt. Raunar er það
stundum svo hátt, að það hefur
hvarflað að Víkverja að segja starfi
sínu lausu og gerast iðnaðar-
maður…
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Dans | Í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum sem er í dag, 29. apríl, mun Félag
íslenskra dansara standa fyrir dansgleði milli kl. 16 og 18 í Iðnó. Óvænt og
fjölbreytileg dagskrá verður í boði á fjölum Iðnó í tilefni dagsins.
Dagskráin hefst kl. 16 með dansi 3–5 ára yngismeyja úr Ballettskóla Eddu
Scheving. Sýnd verða dansbrot af ýmsum toga í tilefni dagsins, milli kl. 16 og
17. Má þar nefna sýnishorn úr nýju dansverki Flest um fátt eftir Vaðal, sem
frumsýnt verður á vegum Danshöfundasmiðju Íslenska dansflokksins síðar
um kvöldið, en einnig munu dansarar DANSleikhússins sýna brot úr verki í
tilefni dagsins. Eftir dansdagskrána mun FÍLD halda vorfagnað sinn á efri
hæðum Iðnó.
Dansdagskráin er opin öllum meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeyp-
is. Félagsmenn FÍLD og velunnarar listgreinarinnar eru boðnir sérstaklega
velkomnir.
Morgunblaðið/ÞÖK
Dansað í dag
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.