Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Oddvitar framboðslistanna í Reykjanesbæ svara spurningum Morgunblaðsins um bæjarmálefni
Fimm listar í kjöri
Fimm framboðslistar eru boðnir fram við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjanesbæ um næstu helgi. D-listi Sjálfstæð-
isflokksins hefur nú
meirihluta í bæj-
arstjórn. Gegn hon-
um er A-listanum
stefnt en að honum
standa Samfylk-
ingin og Framsókn-
arflokkurinn sem
eru í minnihluta
bæjarstjórnar, auk
óflokksbundinna.
V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er nú boðinn
fram í fyrsta skipti í Reykjanesbæ sem og F-listi Frjálslynda
flokksins og óháðra. Þá býður Reykjanesbæjarlistinn fram R-
lista. Helgi Bjarnason lagði fimm spurningar fyrir efstu menn
listanna og fara svör þeirra hér á eftir.
Á hvað leggur þú áherslu við
uppbyggingu atvinnu í
Reykjanesbæ á komandi
kjörtímabili? Ert þú fylgjandi
eða andvígur þeirri vinnu
sem fram fer við undirbún-
ing álvers í Helguvík?
„Við í A-listanum teljum
eðlilegt og munum vinna að
því að ríkisvaldið komi að
stofnun Nýsköpunarstofu
Reykjanesbæjar og leggi til
fjármagn, sem fengið verði
með sölu hlutabréfa ríkisins
í Hitaveitu Suðurnesja.
Þessi frumkvöðlasjóður
verði síðan nýttur til þess
að auðvelda einstaklingum
og fyrirtækjum aðgang að
nauðsynlegu áhættu-
fjármagni til nýsköpunar á
Suðurnesjum. Þess eru
dæmi að ríkið hafi komið að
málum með þessum hætti
þegar verulegar breytingar
verða á atvinnuháttum eins
og nú er fyrirséð á þessu
svæði. Við leggjum áherslu
á fjölbreytni í atvinnulífi og
fjölgun menntunarúrræða
til að gera slíkt kleift. Þá er
fjöldi atvinnutækifæra fólg-
in í aukinni þjónustu Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja
með nýrri skurðstofu, sem
opin verði allan sólarhring-
inn, og byggingu nýs hjúkr-
unarheimilis í Reykjanesbæ.
A-listinn gerir ekki at-
hugasemdir við þá vinnu
sem fram fer við undirbún-
ing álvers við Helguvík, en
leggur áherslu á að íbúum
verði kynntir kostir og gall-
ar slíkrar framkvæmdar og
að þeir fái að láta upplýsta
skoðun sína í ljós þegar, eða
ef þar að kemur, að álver
rísi við Helguvík.“
Telur þú unnt og æskilegt
að lækka eða fella niður inn-
heimtu gjalda vegna vist-
unar barna á leikskólum?
„A-listinn mun lækka
leikskólagjöld um helming
fái hann til þess umboð.
Reykjanesbær er nú með
hæstu leikskólagjöld viðmið-
unarsveitarfélaga, þökk sé
sjálfstæðismönnum sem
hækkað hafa þau um tugi
prósenta á kjörtímabilinu.
Nemur mismunurinn nú frá
33% upp í 128% eftir því
hvaða hópa er verið að bera
saman. Því er málflutningur
sjálfstæðismanna ansi
hreint hjáróma þegar þeir
boða nú lækkun leikskóla-
gjalda í aðdraganda kosn-
inga. A-listafólk lítur á leik-
skólann sem fyrsta
skólastigið og tekur undir
hugmyndir um gjaldfrjálsan
leikskóla. Það er ótækt að á
leikskólastigi séu greidd
hærri skólagjöld en í einka-
reknum háskólum. Þá legg-
ur A-listinn áherslu á að
foreldrar greiði sama gjald,
hvort heldur barnið er í
vistun á leikskóla eða hjá
Guðbrandur Einarsson, A-lista
Tökum undir hugmyndir
um gjaldfrjálsan leikskóla
Guðbrandur Einarsson
Á hvað leggur þú áherslu við
uppbyggingu atvinnu í
Reykjanesbæ á komandi
kjörtímabili? Ert þú fylgjandi
eða andvígur þeirri vinnu
sem fram fer við undirbún-
ing álvers við Helguvík?
„Við leggjum áfram
áherslu á margar stoðir í at-
vinnumálum: Orkutengd
verkefni Hitaveitunnar,
fjölgun starfa í heilbrigð-
isþjónustu með Nesvöllum
og bættri aðstöðu á Heil-
brigðisstofnun, fjölgun íbúa
sem hefur skapað fjölda
nýrra þjónustufyrirtækja,
styrkingu Hafnargötu sem
verslunaræðar, ný verkefni
til að laða ferðamenn inn í
bæinn með Víkingaheimum,
listgalleríum, hvalaskoðun,
Ljósanótt, Vatnaveröld og
menningartengdum verk-
efnum, sem öll eru atvinnu-
skapandi. Við höfum stofnað
til háskólaútibús með
Íþróttakademíu sem vex og
dafnar. Alþjóðaflugvöllurinn
skapar tugi starfa á hverju
einasta ári. Við höfum
brugðist skjótt við vegna
breyttra aðstæðna hjá varn-
arliðinu. Álver í Helguvík
skiptir okkur einnig miklu
máli. Við höfum unnið okkar
heimavinnu og fögnum slíku
tækifæri, enda verður það
knúið með orku frá jarð-
gufuvirkjunum og skal
standast umhverfisstaðla.
Tvær skoðanakannanir á
þessu ári sýna að yfir 70%
íbúa eru fylgjandi slíkum
framkvæmdum.“
Telur þú unnt og æskilegt
að lækka eða fella niður inn-
heimtu gjalda vegna vist-
unar barna á leikskólum?
„Í dag greiðir bæj-
arsjóður 70% af kostnaði við
allan rekstur leikskólanna,
foreldrar 30%. Vegna
stækkandi bæjarfélags og
styrkari fjárhagsstöðu
treystum við okkur til að
hækka greiðslu bæjarsjóðs í
75% af kostnaði. Hér er
kostnaður nokkru meiri en
á höfuðborgarsvæðinu því
við leggjum meira í fæði og
skilgreinda sérfræðiaðstoð
fyrir börnin og höfðum
greitt aðeins hærri laun til
ófaglærðra fyrir almennar
breytingar sem urðu í vet-
ur. Við teljum að foreldrar
leggi meira upp úr að þeir
sem annast börnin séu vel
launaðir, að fæði sé vandað
og annar aðbúnaður sé góð-
ur, fremur en svokallaða
„ókeypis“ þjónustu. Okkur
Árni Sigfússon, D-lista
Sinnum velferð fjölskyldna
af meiri alúð en sést hefur
Árni Sigfússon
Á hvað leggur þú áherslu við
uppbyggingu atvinnu í
Reykjanesbæ á komandi
kjörtímabili? Ert þú fylgjandi
eða andvígur þeirri vinnu
sem fram fer við undirbún-
ing álvers við Helguvík?
„Framboð frjálslyndra og
óháðra telur að Reykjanes-
bær eigi ávallt með ráðum
og dáð að styðja við bakið á
þeim fyrirtækjum sem fyrir
eru í sveitarfélaginu og laða
að sér ný fyrirtæki til
Reykjanesbæjar. Leita
verður allra leiða til að
milda það högg sem at-
vinnulífið verður fyrir við
brottför Bandaríkjahers frá
Íslandi og tryggja hlut
þeirra sem nú verða fyrir
breytingum í atvinnuhögum.
Hér er mikilvægt að
Reykjanesbær, ríkið og
stéttarfélög vinni náið sam-
an ásamt þeim starfs-
mönnum sem hagsmuna
eiga að gæta. Frjálslyndir
og óháðir eru reiðubúnir að
leggja sig alla fram við
þessa vinnu.
Framboð frjálslyndra og
óháða í Reykjanesbæ styður
byggingu álvers í Helguvík
og telur að uppbygging við
höfnina þar geti skapað
mörg spennandi tækifæri.
Reykjanesbær verður
einnig að halda vöku sinni
varðandi uppbyggingu á
Keflavíkurflugvelli í
tengslum við millilandaflug
og ferðaþjónustu.
Sérstaklega skal hlúð að
litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum. Einnig nýsköp-
unar- og sprotafyrirtækjum.
Mjór er mikils vísir.
Bæjarstjórn verður að
halda vöku sinni í málefnum
sjávarútvegsins og greiða
götu greinarinnar eftir
megni, þannig að heildar-
hagsmunir bæjarbúa séu
tryggðir.“
Telur þú unnt og æskilegt
að lækka eða fella niður inn-
heimtu gjalda vegna vist-
unar barna á leikskólum?
„Framboð frjálslyndra og
óháðra mun koma til móts
við barnafjölskyldur í
Reykjanesbæ með gjald-
frjálsum leikskólum og
skapa þannig jafnan aðgang
barna að leikskólum
Reykjanesbæjar óháð fjár-
hag foreldra. Skapast þar
einnig jöfn tækifæri barna
til að búa að sama grunni
fyrir grunnskólanám.
Frjálslyndir og óháðir vilja
fjármagna gjaldfrjálsa
Kristinn Guðmundsson, F-lista
Viljum efna til samkeppni
um framtíð vallarsvæðisins
Kristinn Guðmundsson
Á hvað leggur þú áherslu við
uppbyggingu atvinnu í Reykja-
nesbæ á komandi kjör-
tímabili? Ert þú fylgjandi eða
andvígur þeirri vinnu sem
fram fer við undirbúning ál-
vers í Helguvík?
„Reykjanesbæjarlistinn
mun leggja áherslu á að
styðja sérstaklega við minni
og meðalstór framleiðslufyr-
irtæki ásamt fyrirtækjum
sem eru í ferðaþjónustu sem
vilja hefja rekstur hér í
Reykjanesbæ og þeim sem
eru hér fyrir en eiga erfitt
uppdráttar eins og fiskiðn-
aðurinn. Við viljum álver í
Helguvík og viljum ekki sjá
leigusamninga með fyr-
irvörum sem búa til vænt-
ingar hjá kjósendum svona
rétt fyrir kosningar, heldur
viljum við að tryggt verði fyr-
ir næstu alþingiskosningar að
álverið rísi. Það er rík-
isstjórnin sem ræður hvar
síðasta álverið verður hér á
landi þar sem Ísland er aðili
að Kyoto-bókuninni. Nýjustu
tíðindin í álversmálum geta
hæglega gert væntingar um
álver í Helguvík að engu eftir
að iðnaðarráðherra, Val-
gerður Sverrisdóttir, skrifaði
undir viljayfirlýsingu fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar 17.
maí sl. ásamt Alcoa og Húsa-
víkurbæ um að leggja af stað
með vinnu við að finna nið-
urstöðu sem gerði Alcoa kleift
að meta hvort þeir vilji
byggja 250.000 tonna álver á
Húsavík. Þessi meðbyr Val-
gerðar innan ríkisstjórn-
arinnar núna hefur fengið
okkur til að efast um hæfni A-
listans og Sjálfstæðisflokks-
ins hér í bæ til að koma því í
höfn að álver rísi í Helguvík
vegna tengsla þeirra við
þessa ríkisstjórn.“
Telur þú unnt og æskilegt
að lækka eða fella niður inn-
heimtu gjalda vegna vist-
Baldvin Nielsen, R-lista
Tryggt verði fyrir
alþingiskosningar að álver rísi
Baldvin Nielsen
Á hvað leggur þú áherslu við
uppbyggingu atvinnu í
Reykjanesbæ á komandi kjör-
tímabili? Ert þú fylgjandi eða
andvígur þeirri vinnu sem
fram fer við undirbúning ál-
vers í Helguvík?
„Við leggjum áherslu á að
hverfa frá stóriðjufram-
kvæmdum. Við viljum ekki sjá
Reykjanesbæ fá yfir sig nýjan
her í formi stóriðju. Við viljum
ekki setja öll eggin í eina körfu
og vera svo algerlega undir
hælnum á einu risafyrirtæki
sem ráðskast með bæj-
arfélagið eins og því hentar.
Það bregst ekki í kringum
kosningar hér í Reykjanesbæ
að Sjálfstæðisflokkurinn er
alltaf að lofa einhverju í
Helguvík. Hvað eru þeir búnir
að lofa stálpípuverksmiðju
oft? Peningarnir sem hafa far-
ið í að undirbúa eitthvað sem
vonandi aldrei kemur eru
óhemjumiklir og við viljum
nýta þá í annað.“
Telur þú unnt og æskilegt að
lækka eða fella niður inn-
heimtu gjalda vegna vistunar
barna á leikskólum?
„Það er ekkert mál að
lækka eða fella alveg niður
gjöld á leikskólum og það ætl-
um við okkur að gera og hefur
verið baráttumál hjá okkur á
landsvísu. Við erum löngu bú-
in að ákveða það í sameiningu,
allir landsmenn, að leikskóli sé
fyrsta skólastigið og eigi því
að vera gjaldfrjálst. Hættum
að sprengja og færa til grjót
um allan bæ. Það er búið að
víggirða allt í bænum með
risagrjóti út um allt – rétt eins
og að Sjálfstæðisflokkurinn
búist við því að 50 ára gamlir
rússneskir kafbátar komi upp
í fjöruborðinu þegar herinn
fer. Allir þessir peningar geta
nýst til þess að greiða niður
leikskólagjöldin.“
Telur þú unnt að auka
Sigurður Eyberg Jóhannesson, V-lista
Viljum ekki fá yfir okkur
nýjan her í formi stóriðju
Sigurður Eyberg
Jóhannesson
Morgunblaðið/Svanhildur